Þjóðviljinn - 05.07.1988, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 05.07.1988, Blaðsíða 9
IÞROTTIR Kraftlyftingar Tvö Islandsmet fuku í Engjahjallanum Góður árangur á Sumarmóti Kraftarsem haldið var um helgina Öskar Sigurpálsson.98.0-765.0 110 kílóa flokkur Birgir Þorsteinsson.99.9 - 682.5 Baldvín Skúlason.102.0 - 735.0 Óskar Sigurpálsson er enn að og sló öldungamet um helgina á Sumarmóti Kraftar. Fótbolti Mexíkó í tveggja ára bann Missa af Ólympíuleikunum í Kóreu og úrslitum Heimsbikarkeppninnar 1990 „Þetta er fyrst og fremst til að halda mönnum í formi yfir sumarið og láta þá ekki detta nið- ur,“ sagði Óskar Sigurpálsson hjá Krafti um mótið, „margir náðu þarna mjög góðum persónu- legum bætingum.“ Hörður Magnússon setti ís- landsmet í 100 kílóaflokki þegar hann lyfti 337,5 í hnébeygju og Baldvin Skúlason setti Islands- met í bekkpressu, lyfti 205,5 kíló- um. Birgir Þorsteinsson, sem keppir í 100 kílóa flokki setti ung- lingamet, lyfti 183.0 kílóum í bekkpressu og Óskar Sigurpáls- son sló Öldungamet þegar hann hífði upp 320 kfló í hnébeygju. Alfreð Björnsson bætti sig mikið því hann fór úr 615 kflóum í 695, sem er mjög gott. Birgir Skúlason náði einnig góðum þyngdum, bætti sig um 52.5 kfló, fór úr 630 í 682.5 kfló. -ste Úrslit 67.5 kílóa flokkur þyngd - samtals ÞórhallurGuðmundsson 66,2-400.0 82.5 ktlóa flokkur Herbert Eyjólfsson..81.2 - 545.0 Geir Þórólfsson.....81.4 - 407.5 90 kílóa flokkur Halldór Eyþórsson..86.00 - 740.0 Alfreð Björnsson....88.7 - 695.0 Sigurður K. Ægisson.87.4 - 600.0 Ægir Haraldsson.....90.0 - 530.0 100 kílóa flokkur Hörður Magnússon.....100 - 827.5 0g þetta líka... Bayern að spá Landsliðsmaðurinn David Kelly sem leikur með Walsall í Englandi er að spá í að fara til Bayern Munchen og leika þar næsta keppnistímabil. Li- verpool, Tottenham og West Ham eru meðal þeirra ensku liða sem eru að spá í hann en Kelly sjálfur er ekki viss hvort hann vilji spila erlendis. Fótbolti Bandaríkin hlutu hnossið Úrslit heimsbik- arkeppninnar ífót- bolta haldið þar í landi 1994 Það fór eins og búist var við að Bandaríkin yrðu fyrir valinu um að halda næstu úrslitakeppni heimsbikarkeppninnar í fótbolta 1994 en það var talið nokkuð lík- legt eftir að FIFA frestaði ákvörðun sem átti að birtast í júní þar að lútandi fram að 4. júlí sem er mikill hátíðisdagur í Banda- ríkjunum. Marokkó og Brasflía kepptu einnig að útnefningu en voru ekki líkleg til að fá keppnina, í Mar- ókkó átti eftir að byggja öll mannvirki en í Brasilíu er mikil fátækt og óvíst hvort þjóðin hefði efni á slíkri veislu. í Bandaríkjunum er allt tilbúið og sögðu þarlendir að þeir gætu þess vegna haldið keppnina um næstu helgi. -ste „Þetta gerir okkur mjög erfitt fyrir því við getum ekkert bætt okkur á þessum tveimur árum,“ sagði talsmaður mexíkanska knattspyrnusambandsins, Ro- dolfo Sanchez. FIFA dæmdi í síðustu viku Mexíkana frá öllum stærri við- burðum fótboltans í tvö ár fyrir að hafa notað of gamla leikmenn í unglingalandsliðinu þegar þeir léku í forkeppni Heimsmeistara- mótsins í Guetamala í apríl. Af þessu hlýst að Mexikanar leika ekki í Kóreu og ekki í næstu úr- slitakeppni Heimsbikarkepp- ninnar sem verður 1990. Þessari ákvörðum verður ekki hnekkt og kemur það sér sérstak- Iega illa fyrir Hugo Sanchez sem hefði líklega lokið landsliðsferli sínum á þessu tímabili. „Það er erfitt að vega og meta hvort þessi ákvörðun er of ströng en nú er bara að standa sig vel og reyna að fá þessari ákvörðun hnekkt. Það borgar sig ekki að svara þessu banni á neinn hátt því það kæmi aðeins í bakið á okkur aftur.“ Formaður mexíkanska knatt- spyrnusambandsins fór þeirra er- indagjörða til Sviss um daginn að fá dómnum hnekkt en sagði að það hefði ekki gengið eftir og lík- lega bara gert illt verra. Knattspyrnusambönd í Mið- Ameríku og við Karabíska hafið hafa þegar sett unglingalandslið Mexíkó í tveggja ára bann og stjórnendur mexíkanska sam- bandsins í ævilangt bann. -ste Bannið kemur sérlega illa við Mexíkanann Hugo Sanchez sem leikur með Real Madrid á Spáni því hann mun ekki leika fleiri landsleiki á sínum ferli. Þriðjudagur 5. júlí 1988 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 9 Baðvörður Hafnarfjarðarbær auglýsir lausa til umsóknar starf baðvarðar í íþróttahúsi Lækjarskóla. Um- sóknir skulu berast á bæjarskrifstofuna Strand- götu 6 eigi síðar en 14. júlí n.k. Nánari upplýsing- ar veitir íþróttafulltrúi. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði. Þroskaþjálfar meðferðarfulltrúar Á sambýli Styrktarfélags vangefinna í Víðihlíð vantar þroskaþjálfara í 60% starf nú þegar eða frá 1. september n.k. Einnig vantar fólk til sumar- afleysinga í júlí og ágúst. Upplýsingar gefur forstöðumaður í símum 688185 eða 672414. Einnig fást upplýsingar og umsóknareyðublöð á skrifstofu félagsins, Há- teigsvegi 6, Reykjavík. Vinningstölurnar 2. júlí 1988 Heildarvinningsupphæð: Kr. 8.220.558,- 1. vinningur var kr. 5.136.074,- Aðeins einn þátttakandi var með fimm réttar tölur. 'f*nnjn9ur var kr. 925.848,- og skiptist hann á 308 vinningshafa, kr. 3.006,- á mann. vinnlngur var kr. 2.158.636,- og skiptist á 9.902 vinningshafa, sem fá 218 krónur hver. Sölustaðirnir eru opnir frá mánudegi til laugardags og loka ekki fyrr en 15 mínútum fyrir útdrátt. Milljónir á hverjum laugardegi! Upplýsingasími: 685111

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.