Þjóðviljinn - 05.07.1988, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 05.07.1988, Blaðsíða 5
VIÐHORF Sameiginlegt framboð Gestur Guðmundsson skrifar Það er nú orðið leiðarljós ís- lendinga í stjórnmálum að betra sé að veifa röngu tré en öngvu. Samkvæmt skoðanakönnunum fá stjómendur Reykjavíkurborg- ar mun betri útreið en stjórnend- ur landsins, þótt menn séu al- mennt sammála um að stjórnar- ákvarðanir meirihlutans í borgar- stjórn Reykjavíkur séu rangar og heimskulegar. Á hinn bóginn liggur ríkisstjórnin undir því ámæli að hún geti ekki komið sér saman um að stjórna og kjósend- ur virðast dæma stjórnleysi harð- ar en vonda stjórn. Birgir ísleifur Gunnarsson hafði varla lagt frá sér blaðið með hinum nýju skilaboðum frá kjós- endum fyrr en hann lagði þau út á kórréttan hátt og tók þá vitlaus- ustu ákvörðun sem hann gat tekið sem menntamálaráðherra. Hann skipaði Hannes Gissurar- son lektor í stjórnmálafræðum, þvert ofan í umsögn dómnefndar og vilja háskóladeildar. Kald- hæðni atburðarásarinnar er slík að það var Ólafur Þ. Harðarson sem vann umrædda skoðana- könnun og varð þannig með óbeinum hætti ráðgjafi Birgis ís- leifs við þá ákvörðun að ganga fram hjá Ólafi. Virðing Háskólans var kannski ekki mikil fyrir, en hvað verður um hana, þegar maður er skipað- ur háskólakennari sem aldrei hef- ur komist af Gagn og gaman stig- inu í fræðum sínum? Rétt eins og litla gula hænan fann Hannes Gissurarson eitt sinn fræ, og hann var svo ánægður með þennan fund sinn að hann hefur aldrei leitað að neinu öðru síðan. Það telst hins vegar til afreka, hve Hannesi hefur tekist að gera þetta litla fræ fyrirferðarmikið. Dag eftir dag bakar hann ný brauð úr þessu litla fræi, að vísu ósköp keimlík hvert öðru. Hann leggur jafnan út af einföldustu frumkreddum frjálshyggjunnar, útfærir þær á rökréttan hátt en án minnsta tillits til veruleikans, þannig að lausnin við sérhverjum vanda verður hin sama: gerum markaðinn alfrjálsan. Fyrir þennan barnaskap hefur Hannes fengið doktorsnafnbót hjá skoðanabræðrum sínum í Oxford og nú lektorsstöðu hjá Birgi ís- leifi. Eiginlega finnst mér ekki að það sé virðing háskólans eða menntamálaráðherra sem hafi sett mest niður í þessum leik, heldur virðing hinnar öldnu menntastofnunar í Oxford sem lagði nafn sitt við doktorsgráðu Hannesar. Þetta var nú útúrdúr, því að ég ætlaði að fjalla um skoðanakönn- un Þjóðlífs og Félagsvísinda- deildar, en ekki áhrif hennar á stjórnarákvarðanir Birgis ísleifs. í þessari könnun kom það fram að Sjálfstæðisflokknum virðist á eftir að leiða fólk, og hér skiptir það minnstu máli, hvort gamlar íhaldsættir séu óánægðar með Davíð, eins og Þjóðviljinn er alltaf að hamra á. Það sem skiptir máli er hvort óánægjan með Da- víð á eftir að hrekja marga al- menna kjósendur Sjálfstæðis- flokksins frá honum. Þessi könn- un Félagsvísindastofnunar og Þjóðlífs leiðir ekki í ljós hvort sú þróun er að gerast. Það sem hún sýnir fyrst og fremst fram á er að borgarbúar hafa enn ekki séð trú- „Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar og Pjóðlífs fœrir minnihlutaflokkunum mjög einföld og skýr skilaboð: Þeir verða ekki einungis að starfa saman til að gera sér vonir um að hnekkja veldi Sjálfstæðisflokksins. Þeir verða líka að koma sér saman um sameiginlegt framboð. “ eiginlegu framboði til trafala er flokkarígur, ágreiningur milli flokkanna um skiptingu fram- boðssæta milli þeirra, sem og ág- reiningur innan hvers flokks fyrir sig um það hverjir eiga að skipa framboðssæti. Það er alltaf erfitt að eiga við ríg á milli einstakra stjórnmála- flokka. Margir einblína fremur á framgang flokks en málefna og eru jafnvel óhressir, þegar flokk- um með svipaða stefnu vegnar betur en þeirra eigin flokki. Þessi ganga betur að halda í meirihlut- afylgi sitt í borgarstjórn Reykja- víkur en að endurheimta fylgi sitt í landsmálum. Hlutfall Sjálfstæð- isflokksins af þeim sem gáfu upp afstöðu sína var svipað og hlutfall flokksins í síðustu kosningum, en þess ber að gæta að Sjálfstæðis- flokkurinn hefur tilhneigingu til að fá meira fylgi í skoðanakönn- unum en kosningum, a.m.k. þeg- ar um borgarstjórnarkosningar er að ræða. Samt sætir það nokkr- um tíðindum að Sjálfstæðisflokk- urinn virðist hafa meirihlutafylgi til borgarstjórnar eftir að hafa alið á óvinsældum sínum með valdníðslu og fjáraustri í mont- byggingar í stað félagslegra verk- efna. Óvinsældir núverandi stjórnar- stefnu í málefnum Reykjavíkur koma til dæmis fram í því að per- sónulegar vinsældir Davíðs Oddssonar borgarstjóra hafa rénað verulega. Framkoma Da- víðs Oddssonar í ráðhússmálinu hefur kippt fótunum undan vin- sældum hans og opnað augu margra fyrir því að andfélagsleg stefna ræður ríkjum í borgarmál- efnum Reykvíkinga. Það er enn óséð, hversu langt þessi óánægja verðugan valkost í minnihluta fjögurra flokka eða jafnvel fimm. Þessi skoðanakönnun færir minnihlutaflokkunum því mjög einföld og skýr skilaboð: Þeir verða ekki einungis að starfa saman til að gera sér vonir um að hnekkja veldi Sjálfstæðisflokks- ins. Þeir verða líka að koma sér saman um sameiginlegt framboð. Málefnalega virðist ekkert því til fyrirstöðu að minnihlutaflokk- arnir nái slíkri samstöðu. Það sem af er þessu kjörtímabili hafa þeir starfað vel saman, t.d. að breytingartillögum um fjárhagsá- ætlun borgarinnar og ýmsum öðr- um málum. Málefnaágreiningur hefur ekki reynst meiri en svo að hægt er að leysa úr honum þegar menn skoða einstök mál ofan í kjölinn. Bjarni P. Magnússon, borgarfulitrúi Alþýðuflokksins, orðaði sameiginlegan stefnu- grundvöll minnihlutans mjög skýrt í viðtali við Þjóðlíf: „Sam- eiginlegt framboð okkar yrði skýr valkostur sem legði áherslu á fé- lagsleg mál einsog dagvistun, en ræki ekki neina minnisvarðapó- litík.“ Það sem helst getur orðið sam- viðhorf hafa lengi átt drjúgan þátt í sundrungu vinstri aflanna; þau hafa að vísu oft verið ósam- mála um málefni, en þegar má- lefnaleg samstaða hefur verið, hefur flokkarígurinn komið í veg fyrir samstarf. Þannig gæti það torveldað samstarf fyrir næstu borgarstjórnarkosningar, að menn vildu skoða þær kosningar sem eins konar prófkjör fyrir næstu Alþingiskosningar. Flokkarígurinn getur líka leitt til þess að menn geta ekki náð samkomulagi um frambjóðend- ur. Það hlýtur að vera verkefni okkar almennra flokksmanna og kjósenda vinstri flokkanna að þrýsta á flokka okkar að láta slíkt ekki henda. Þannig væri eðlilegt að á sameiginlegum lista minni- hlutaflokkanna væru fyrstu 6 sæt- in skipuð fólki úr þessum flokk- um, gjarnan núverandi borgar- fulltrúum, sem hafa staðið sig vel. Þó væri sennilega eðlilegt að Alþýðubandalagið afsalaði sér einum fulltrúa sinna til Kvenna- lista í samræmi við ótvíræðar vís- bendingar skoðanakannana. Síð- an væru sæti 7-9 skipuð nýju fólki, sem ekki hefur beinlínis verið á bás einstakra flokka fyrr. Þannig væri listi minnihlutans ekki einungis listi þeirra flokka sem að honum stæðu heldur allra þeirra sem geta aðhyllst þá fé- lagslegu stefnu sem minnihluti borgarstjórnar hefur barist fyrir. Það hlyti að vera verkefni ein- hvers konar sameiginlegrar fram- boðsnefndar minnihlutaflokk- anna fjögurra að finna slíkt fólk og jafnframt að virkja flokks- bundna jafnt sem óflokksbundna í kosningaundirbúning. Að þessu þarf að hefja undir- búning strax. Fyrsta skrefið er að skapa víðtækar umræður innan allra minnihlutaflokkanna um slíkt framboð og málefnagrund- völl þess og síðan þurfa að fara fram umræður milli flokkanna, bæði borgarmálasérfræðinga þeirra og grasrótarinnar. Reykvíkingum þarf að vera orðið það ljóst vel fyrir næstu kosning- ar, að til er orðinn samhentur val- kostur við Sjálfstæðisflokkinn og Davíð Oddsson. Minnihluta- flokkarnir hafa að vísu unnið víð- tækt undirbúningsstarf að mótun slíks valkosts með samstarfi sínu undanfarin ár, en enn fremur þarf að kveðja til mikinn fjölda Reykvíkinga til að útfæra stefn- una nánar og hugsa upp lausnir sem geta breytt stjórnun Reykja- víkur á verulegan og merkjan- legan hátt í félagslegra horf. Síðast þegar vinstri flokkarnir fengu meirihluta í Reykjavík voru þeir illa undir það búnir. Al- menningur sá ekki neina veru- lega breytingu á stjórnarstefn- unni, en varð hins vegar var við töluverðan innri ágreining. Það þarf að hefjast handa strax til að kjósendur sjái að ekki er ætlunin að endurtaka þann leik. Ef það tekst, er sigurinn vís. Samkvæmt áðurnefndri skoðanakönnun Þjóðlífs, hyggjast tæp 40% kjós- enda kjósa Sjálfstæðisflokkinn, en rúmur þriðjungur einhvern minihlutaflokkanna. Ef sam- eiginlegu framboði þeirra tekst að vinna mikinn meirihluta þeirra, sem enn eru óráðnir, hafa þeir unnið borgina úr höndum Sj álf stæðismanna. Gestur er félagsfræðingur og vinnur við ritstörf, skrifar um þess- ar mundir vikulega pistla í Þjóðvilj- ann. Nýtt álver útlendinga í Straumsvík Atlaga að innlendu alvinnulífi og landsbyggðinni Hjörleifur Guttormsson skrifar Þessa dagana eru samankomn- ir hér á landi fulltrúar fjögurra erlendra álfyrirtækja til að ganga frá samningi við íslensk stjórnvöld. Samkvæmt honum er ætlunin að fyrirtækin vinni sam- eiginlega að hagkvæmniathugun á að reisa fyrir 1992 um 100 þús- und tonna álver í Straumsvík við hliðina á álbræðslunni sem fyrir er. Jafnframt er að sögn iðnaðar- ráðherra gert ráð fyrir þeim möguleika að bæta við öðrum 100 þúsund tonnum á næstu 4-6 árum, eða um miðjan næsta ára- tug. Fulltrúi Alusuisse hefur nefnt „að heildar-álframleiðsla í Straumsvík gæti orðið 320.000 tonn um miðjan næsta áratug." (Morgunblaðið 16. júní 1988). Nú er framleiðslugeta álbræðslu ísals 88 þúsund tonn, þannig að hér er verið að ræða um meira en þreföldun á áliðnaði við bæjardyr Reykjavíkur. Raforkan sem íslendingum er ætlað að leggja til í þessa nýju risaálbræðslu er á bilinu 2000- 3000 gígavattsstundir á ári (300- 350 megavött í afli), en nú er orkuframleiðslan í heild um 4000 gígavattsstundir. Landsvirkjun gerir ráð fyrir því, að til viðbótar við alla framleiðslugetu Blöndu- virkjunar þurfi að koma til nýjar stórframkvæmdir við virkjanir á Þjórsársvæðinu með lúkningu Kvíslaveitna og byggingu nýrra virkjana við Búrfell og Sultar- tanga. Einnig er rætt um raforku frá jarðvarmavirkjunum á Nesja- völlum og Eldvörpum á Reykja- nesi. Þetta stóra álver mun hins veg- ar ekki veita nema 400-500 manns atvinnu, þ.e. færri en nú starfa hjá ísal. Tröllauknar fjárfestingar Iðnaðarráðherra og Jóhannes Nordal hafa greint frá því að 180 þúsund tonna álver og tengdar virkjanir kosti 40-45 milljarða króna á verðlagi ársins 1987. Það svarar til um % af niðurstöðu- tölum fjárlaga íslenska ríkisins árið 1988. Sé gert ráð fyrir þessari stærð af bræðslu og 6 ára fram- kvæmdatíma sést að fjárfestingar í þágu álbræðslunnar nema um 8 milljörðum króna á ári, þar af er meira en helmingur framlag ís- lendinga til virkjunarfram- kvæmda. Hér yrði um að ræða mestu umsvif í íslandssögunni í tengsl- um við eina framkvæmd og á- hrifin á íslenskt efnahagslíf á byggingartíma yrðu gífurleg. Til samanburðar má benda á að heildarfjármagn til opinberra fra- mkvæmda hérlendis er á árinu 1988 talið nema 12,5 milljörðum króna að mati Þjóðhagsstofnun- ar. Eru þar m.a. innifalin saman- lögð framlög ríkis og sveitarfé- laga til skólabygginga, sjúkra- húsa, hafna, flugvalla og vega um allt land. Það er kátbroslegt að það skuli vera aðalbankastjóri Seðlabank- ans, Jóhannes Nordal, sem er meginhönnuður þessara áforma. Hann er um leið stjórnarformað- ur Landsvirkjunar og formaður „starfshóps um stækkun álvers“ og þannig þríeinn eins og almætt- ið. Á sama tíma og allt er að fara úr böndunum hjá ríkisstjórninni í efnahagsmálum og verðbólga geysist upp í meira en 100%, dundar Jóhannes sér við leikflétt- ur sem gera allar vangaveltur um efnahagslegan stöðugleika að gamansögu. Rifrildi ráðherranna um veldi Landsvirkjunar og Hjörleifur er þingmaður fyrir Al- þýðubandalagið á Austurlandi. Síðari grein hans um nýtt álver blrtist í Þjóðviljanum á morgun. „Þessar framkvæmdir kalla á mikil umsvifá peninga- og vinnumarkaði, ekki sístá höfuðborgarsvœðinu. (...) Efefnahagskerfið á ekki aðfara gersamlega úr böndunum, þará meðal verðbólga og vaxtastig, hlýtur að koma til stórfelldur samdráttur í öðrum fjárfestingum um allt land“ Þriðjudagur 5. júlí 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.