Þjóðviljinn - 12.07.1988, Page 6
VIÐHORF
Frh. af síðu 5
stöðu, þar sem þekkingin er talin
vera skýlaus og óumdeild, áður
en frjálst akademískt nám geti
hafist. Fyrstu eitt eða tvö árin í
náminu verða þannig líkari námi í
framhaldsskóla en háskóla.
Nemendur sætta sig nokkuð vel
við þetta því að þeir eru jú engu
öðru vanir. Sú gagnrýni, sem
Hannes fær fyrir að hafa ekki
stundað nám í byrjendanám-
skeiðum stjórnmálafræðinnar,
finnst mér vera vísbending um
þessi viðhorf.
AÖ dœma hœfi
lektorsins
Engin starfsstétt á íslandi verð-
ur að standast jafn harða hæfnis-
dóma og háskólakennarar. Slíkt
er auðvitað fullkomlega eðlilegt.
Sú regla hefur all lengi gilt við
veitingu prófessorsembætta við
Háskóla Islands að fyrst fjallar
dómnefnd um hæfi umsækjenda.
Dómnefndin er (og hefur verið
skipuð) þannig að einn dóm-
nefndarmaður er tilnefndur af
þeirri háskóladeild, sem væntan-
legur prófsessor á að starfa við og
háskólaráð, æðsta stjórnarstofn-
un Háskólans, skipar annan
dómnefndarmanninn. (í háskól-
aráði eru sextán fulltrúar, níu eru
forsetar háskóladeildanna, einn
fulltrúinn er háskólarektor, Fé-
lag háskólakennara kýs tvo full-
trúa og stúdentar kjósa fjóra).
Þriðja dómnefndarmanninn
skipar ráðherra. Ef meirihluti
dómnefndar lýsir umsækjanda
vanhæfan til að gegna stöðunni,
er ráðherra óheimilt að láta þann
hinn sama fá hana.
Þegar dómnefnd hefur skilað
áliti sínu er það rætt á fundi við-
komandi deildar og síðan er
gengið til atkvæða hverjum
deildin mælir með að fá skuli
stöðuna. Atkvæðisrétt hafa allir
fastráðnir kennarar deildarinnar.
Þessu næst er málið sent til
menntamálaráðherra, sem setur
eða skipar einhvern umsækjend-
anna í stöðuna.
Svipaðar reglur hafa gilt við
veitingu lektorsembætta og
veitingu prófessorsembætta, þó
með tveimur mikilvægum af-
brigðum. Viðkomandi háskóla-
deild hefur skipað alla þrjá full-
trúana í dómnefnd og ráðherra
hefur ekki þurft að ttaka neitt til-
lit til niðurstöðu þessarar dóm-
nefndar.
En reglugerð um Háskóla ís-
lands var breytt 8. júlí 1987 í þá
veru að sömu reglur skyldu gilda
við veitingu loktorsembœtta og
við veitingu prófessorsembœtta.
Regla þessi var að sjálfsögðu ekki
afturvirk og deildum var heimilt
að skipa dómnefndir eftir gamla
laginu fram til 15. september sl.
Umsóknarfresturinn um
lektorsstöðu þá, sem Hannesi
Hólmsteini hefur nú verið veitt,
rann út einhvern tíma vorið 1987
eða áður en fyrrgreind reglu-
gerðarbreyting var framkvæmd.
Því skipaði félagsvísindadeild
alla þrjá fulltrúana í dómnefnd-
ina og voru þeir allir kennarar við
deildina. Hannes taldi skipun
dómnefndar vera sér óvilhalla og
krafðist nýrrar nefndar. Einn
dómnefndarmaður, Ólafur
Ragnar Grímsson, sagði sig úr
dómnefndinni skömmu síðar, en
hinir tveir, Svanur Kristjánsson
og Gunnar Gunnarsson, sátu þar
áfram. Deildin fékk síðan Sigurð
Líndal, prófessor í lögfræði, til að
taka sæti þriðja dómnefndar-
mannsins. í tilefni af árásum
Hannesar á starfshætti félagsvís-
indadeildar bað deildin háskóla-
rektor að skipa sérstakan fulltrúa
háskólayfirvalda í nefndina og
var Jónatan Þórmundsson, lög-
fræðiprófessor og forseti lána-
deildar, fyrir valinu.
Meðan á þessum dómnefndar-
ruðningi stóð var reglugerðar-
breytingin fyrrgreinda ákveðin.
Hvers vegna greip félagsvísinda-
deild þá ekki til þess ráðs að fœra
sér í nyt þessi nýju ákvœði um
dómnefndarskipan? Þá hefði hún
varla þurft að leita til háskólaráðs
með beiðni um sérstaka vernd
vegna gagnrýni eins umsækjand-
ans á störf sín! Og menntamála-
ráðherra hefði þá ekki getað ve-
fengt niðurstöðu dómnefndar-
innar nýju enda hefði hann þá
fengið að skipa einn fulltrúa
hennar (e.t.v. frá útlandinu hans
Hannesar Hólmsteins).
Þegar margir scekja
um eitt starf tapa
einhverjir...
Ýmsir hafa réttilega bent á þá
staðreynd að með skipun Hann-
esar Hólmsteins í lektorsstöðuna
hafi verið gengið fram hjá ágæt-
um fræðimanni, Ólafi Þ. Harð-
arsyni, sem hafi kennt stjórn-
málafræði við félagsvísindadeild
síðan 1979 við góðan orðstír, ým-
ist sem stundakennari eða sem
lektor í forföllum annarra. En
þegar margir sækja um eitt starf
tapa einhverjir og óþarfi er að
kasta aur á Hannes þótt Ólafur
hafi ekki fengið það sem margir
telja að honum hafi borið.
Þessar aðstæður minna raunar
óþægilega á miklu alvarlegri hlut
en hugsanlega lektorsglímu
þeirra Ólafs og Hannesar en það
er sú staðreynd að allt of fáar fast-
ar kennarstöður eru við Háskóla
íslands og kennslu er þar að
miklu leyti haldið gangandi með
starfi illa launaðra stundakenn-
ara, sem búa við lítið sem ekkert
sjálfsöryggi. Fjöldi slíkra stund-
akennar hefur um áraraðir haft
háskólakennslu fyrir aðalstarf og
hafa þeir þreytt þorrann og gó-
una af tryggð við fræðigrein sína
og í voninni um að fá stöðu fast-
ráðins kennara einhvern tíma í
framtíðinni. Margir hafa séð
þessa von bresta. Öryggisleysið,
að vita ekki einu sinni hvort mað-
ur fái eitthvað að starfa við Há-
skólann nk. vetur, hefur reynst
mörgum stundakennurunum erf-
iðara en frámunalega léleg launa-
kjör þeirra miðað við kjör fast-
ráðinna kennara (sem eru þó
sannarlega ekkert til að hrópa
húrra fyrir)!
Nýlega var fastráðinn lektor í
aðferðafræðum í félagsvísinda-
deild. Starfið fékk ungur maður,
sem nýlokið hefur doktorsnámi í
Bandaríkjunum og hafði ekki
kennt grein þessa við deildina
áður. Um leið var gengið fram
hjá dr. Elíasi Héðinssyni, sem
sinnt hafði þessari kennslu við
góðan orðstír á lélegum kjörum
stundakennarans í sex eða sjö ár,
eða frá því að hann hafði lokið
doktorsprófi. Dómnefnd taldi
bæði Elías og þann sem stöðuna
fékk vera hæfa til að gegna starf-
inu, en meirihluti deildarfundar
félagsvísindadeildar mælti með
þeim síðarnefnda og fylgdi ráð-
herra meðmælum þessa meiri-
hluta. En ef ráðherra hefði veitt
Elíasi stöðuna, hygg ég að fáir
hefðu álasað honum fyrir að þar
með væri hann að ógna sjálfstæði
Háskóla íslands. Margt er afstætt
í heimi hér!
Það þarf að stórbæta kjör
stundakennara við Háskóla ís-
lands bæði í launum, starfsað-
stöðu og starfsöryggi. Séu þeir
hæfir til að kenna við háskólann,
má ekki kasta þeim burt sam-
kvæmt valdboði háskóladeilda
eða ráðuneytis. Hér þurfa bæði
háskólayfirvöld og handhafar
ríkisvaldsins að standa sig betur
en hingað til.
„Taka verðurHannes
alvarlegar hér eftir<(
Eitthvað á þessa Ieið skrifaði
Óttar Proppé, ritstjóri Þjóðvilj-
ans, í blaðið í síðustu viku eftir að
búið var að skipta Hannes í lekt-
orsstöðuna.
Annar Þjóðviljaritstjóri,
Mörður Árnason, áttaði sig
sæmilega á mikilvægi Hannesar í
leiðara 5. júlí sl. þegar hann skrif-
aði: „Það hljóta allir að skilja að
sá stjórnmálaflokkur sem tók
fenginshendi við fagnaðarboð-
skapnum frá Hannesi Gissurar-
syni vilji þakka fyrir sig með ein-
hverjum hætti...“
Þetta var auðvitað kjarni máls-
ins. Hannes hefur haft djúptæk
áhrif á marga helstu leiðtoga
Sjálfstæðisflokksins. Peim finnst
það að sjálfsögðu lélegt að sá
maður sem hafði svona mikil
áhrif á þá skuli ekki geta orðið
einn af rúmlega þrjú hundruð
fastráðnum kennurum há-
skólans. Það hljóta allir að skilja,
ekki síst stjórnmálafræðingar.
í sama tölublaði Þjv. veitist
Gestur Guðmundsson félags-
fræðingur að Hannesi á bæði
smáskítlegan og skilningslausan
hátt, en deilir þó harðast á Ox-
fordháskóla fyrir að veita Hann-
esi doktorsnafnbót! Fræði Hann-
esar dæmir hann vera einskis
virði. Eftir lestur þessara skrifa
Gests verður manni ljóst hvers
vegna Hannesi tókst að hafa
svona mikil áhrif. Andstæðing-
arnir vanmátu styrk hans.
Rætur frjálshyggjunar svo-
nefndu eru fyrst og fremst vold-
ugasta kenningarhefðin í hag-
fræðinni, nýklassísk kenning.
Styrkleiki frjálshyggjunnar
endurspeglar í raun og veru
styrkleika þessarar kenningar-
hefðar. „Frumleiki" Hannesar
Hólmsteins og félaga hans hefur
falist í tilraunum til að aðlaga
þessa kenningarhefð að sem
flestum þáttum íslensks þjóðlífs.
Ég hef lengi verið andstæðing-
ur flestra nýklassískra kenninga,
þótt ég viðurkenni notagildi
sumra þeira að vissu marki. Ég
hef sem hagsögufræðingur átt í
miklum deilum og umræðum við
fylgismenn þessara kenninga
markaðshyggjunnar og mér hef-
ur lengi ofboðið hvað margir
vinstri menn hafa verið fáfróðir
um þær. Ég hef raunar lengi gert
mér ljóst hver er ein helsta
ástæða til þessa. Heimspeki-
grundvöllur markaðshyggju-
kenninga felst m.a. í mikilli lög-
málahyggju og sama gildir um
nær allar marxískar kenningar á
þessari öld. Ef „marxistar “ fara í
alvöru að ráðast á heimspeki-
grundvöll nýklassískra hagfrœði-
kenninga hljóta þeir um leið að
fara að draga í efa heimspeki-
grundvöll sinna eigin kenninga.
Slíkt óttast menn.
Á námsárum sínum í Bret-
landi, svo og ýmsum ráðstefnum
sínum erlendis, hefur Hannes
Hólmsteinn án efa getað komist í
kynni við ýmsar frjálshyggju-
kenningar, sem eiga sér rætur í
öðrum greinum en hagfræðinni.
Margar slíkar kenningar hafa
komið fram á síðustu tíu árum
enda eru ávallt tengsl milli þró-
unar í stjórnmálum og í há-
skólum. Ný heimspeki einstak-
lingshyggju hófst í Frakklandi. í
Bretlandi og Bandaríkjunum
hafa auknar vinsældir svonefndr-
ar hugarfarssögu haft í för með
sér dýrkun á einstaklingshyggju.
Hugarfarið, ekki samfélagsskip-
unin, er talin vera burðarás sög-
unnar.
Að vera umdeildur
Það eitt að vera vinstrimaður
dugar til að vera umdeildur með-
al ráðamanna á íslandi. Að vera
skeleggur vinstrimaður hefur
gengið glæpi næst í augum þeirra.
Þeir eru ekki fáir vinstri mennirn-
ir, sem hafa á undanförnum ára-
tugum verið látnir gjalda
skoðana sinna við embættis-
veitingar, þ. á m. við Háskóla ís-
lands. Margir færustu vísinda-
menn landsins hafa átt erfitt
uppdráttar vegna þess að þeir
hafa legið undir þeim grun vald-
hafa að hafa tengsl eða hafa haft
tengsl við eitthvað sem valdhaf-
arnir hafa skilgreint sem komm-
únisma. Meira bar á þessu á árum
fyrr þegar samfélagið íslenska var
allt smærra í sniðum en núna og
„kommúnisminn“ virtist vera
meiri ógnun en síðar varð. Eigi
að síður er ennþá að öllu jöfnu
erfiðara fyrir vinstrimann að
njóta hylli ráðamanna en fyrir
hægrimann eða miðjumann.
Auðveldast er að fá frama og
stöður í dag ef viðkomandi er
óumdeildur og stendur til hægri
eða nálægt miðju stjórnmálanna.
Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son er bœði mjög umdeildur
maður og stendur ótvírætt tals-
vert til hægri í pólitísku litrófi
stjórnmálanna. Hið fyrra stendur
honum fyrir þrifum, hið síðara
hefur orðið honum ávinningur
þannig að metin hans standa
nokkuð jöfn. Ég efst um að veru-
legur ágreiningur hefði orðið um
veitingu lektorsembættisins í
stjórnmálafræði ef í embættið
hefði verið skipaður Sjálfstæðis-
flokksmaður, sem aldrei hefði
staðið í miklum illdeilum við and-
stæðinga sína, sem aldrei hefði
komið fram með umdeildar hug-
myndir (jafnt innan Flokksins
sem utan) og sem hefði farið
hefðbundnar leiðir í námi og
rannsóknum.
Því er það að ég tel það hættu-
legt og heimskulegt ef vinstri
menn telja Hannes Hólmstein
nánast óalandi og óferjandi hægri
mann vegna þess og í skjóli þessd
að hann er maður mjög um-
deildur.
Nýjustu viðbrögðin
við stöðuveitingunni
All margir aðilar við Háskóla
íslands hafa undanfarna daga
gagnrýnt veitingu lektorstöð-
unnar, m. a. nemendur í stjórn-
málafræðum, félagsvísindadeild,
stúdentaráð og háskólaráð. Eins
og eðlilegt er mótmæltu allir
þessir aðilar stöðuveitingunni
með sérstökum ályktunum á
þeim forsendum að hún væri árás
á sjálfstæði háskólans. Ályktun
stúdentaráðs er að mati mínu góð
og skynsamlegri en hinar álykt-
anirnar.
Einnig hefur réttilega að mínu
mati verið mótmælt þeirri
gagnrýni menntamálaráðherra á
dómnefndina að hún hefði verið
hlutdræg. Engin ástæða er til að
draga það í efa að dómnefndin
um lektorsstöðuna hafi leitast við
að vinna verk sitt á sem heiðar-
legastan og óhlutdrægastan hátt.
En álit dómnefndar er ekki al-
gildur sannleikur, sem allir þurfi
að samþykkja. Umræðan um
hæfi dómnefndar gerir þá spurn-
ingu enn áleitnari hvers vegna
ekki var skipuð ný dómnefnd í
samræmi við réttarbótina frá 8.
júlí 1987 eins og rakið hefur verið
hér að framan.
í tilefni fyrrgreindra mótmæla
hafa ýmis undarleg eða óheppileg
orð verið látin falla, sem ástæða
er til að gera athugasemd við.
í Morgunblaðinu 8. júlí sl.
skrifuðu tveir fulltrúar nemenda
á deildarfundum félagsvísinda-
deildar grein, þar sem óspart var
vitnað í álit dómnefndar um
Hannes Hólmstein Gissurarson
og tínt þar til margt neikvætt um
Hannes, augsýnilega úr sam-
hengi. Þetta eru fáheyrð vinnu-
brögð. Dómnefndarálit eru sér-
stök trúnaðarmál. Svo merkilega
vill þó til, að síðla dags 7. júlí,
eftir að nemendafulltrúarnir tveir
höfu skilað grein sinni til Morg-
unblaðsins, ákvað deildarfundur
félagsvísindadeildar „að aflétta
trúnaðinum af dómnefndarálit-
inu“. Tengdist þessi samþykkt
væntanlegri birtingu greinar
þessarar í Morgunblaðinu? Og er
yfirleitt leyfilegt að aflétta trún-
aði á dómnefndarálitum?
Fram hefur komið að upphaf
lektorsstöðu þeirrar, sem nú er
mjög svo umdeild, megi rekja til
fjárlagagerðar fyrir árið 1987. í
þeim var að finna ákvæði um nýja
lektorsstöðu við Félagsvísinda-
deild Háskóla íslands og átti hún
að vera í stjórnmálaheimspeki.
Stjórnmálaandstæðingar þáver-
andi menntamálaráðherra,
Sverris Hermannssonar, töldu að
hér væri verið að skraddara-
sauma sérstaka stöðu handa
Hannesi Hólmsteini. í framhaldi
af þessari gagnrýni fékk félagsvís-
indadeild að skilgreina stöðuna á
nýjan leik og ætti þessi nýja skil-
greining óneitanlega nokkuð vel
við kennslu og rannsóknir Ólafs
Þ. Harðarsonar. Hannes Hólm-
steinn og menntamálaráðuneytið
gerðu samt enga athugasemd við
nýju skilgreininguna. En það var
á grundvelli hennar sem Hannes
var ekki dæmdur hæfur að gegna
stöðunni nema að hluta.
í fjölmiðlum kvöldið 8. júlí
skýrði rektor Háskóla íslands,
Sigmundur Guðbjarnason, frá
því að hann hefði verið með á-
kveðna „málamiðlurí' í lektors-
deilunni og hefði hann lagt hana
fyrir menntamálaráðherra, sem
því miður hefði ekki fallist á
hana. Málamiðlunin fólst í því að
Ólafur Þ. Harðarson fengi um-
rædda lektorsstöðu en jafnframt
yrði búin til ný staða í stjórnmála-
heimspeki sérstaklega fyrir
Hannes Hólmstein. Þetta er all
merkileg frétt. Var félagsvísinda-
deild eða einhver önnur háskóla-
deild búin að samþykkja þessa
lausn? Var fjármálaráðuneytið
búið að samþykkja hana? Eru
viðskipti af þessari gerð samboð-
in virðingu háskólans?
7.-10. júlí 1988
Gísli Gunnarsson
Gísli Gunnarsson er doktor í hag-
sögu og lektor í sagnfræðl við
heimspekideild Háskóla Islands.
Frá menntamálaráðuneytinu
Lausar stöður við framhaldsskóla.
Við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki eru lausar til umsóknar
kennarastöður í viðskiptagreinum, félagsfræði, dönsku og vélritun.
Við Fjölbrautaskóla Vesturlands er laus kennarastaða í rafvirkj-
un. Þá vantar stundakennara í ensku og viðskiptagreinum og forfall-
akennara í dönsku.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík fyrir 23. júlí
næstkomandi.
Umsóknir um stundakennslu sendist skólameisturum viðkomandi
skóla.
Þá er umsóknarfrestur á áður auglýstum kennarastöðum í stærð-
fræði og rafeindavirkjun við Fjölbrautaskóla Vesturlands fram-
lengdur til 12. júlí.
Menntamálaráðuneytið
Frá menntamálaráðuneytinu
Lausar stöður við framhaldsskóla.
Að Framhaldsskólanum á Húsavík vantar kennara í íslensku og
stærðfræði í fullar stöður og í þýsku og frönsku sem jafngildi heillar
stöðu.
Að Fjölbrautaskólanum í Keflavík vantar kennara í vélritun. Um
er að ræða hálfa stöðu.
Við Myndlista- og handíðaskóla fslands er staða fulltrúa á skrif-
stofu skólastjóra laus til umsóknar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík fyrir 20. júlí.
Menntamálaráðuneytið
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 12. júlí 1988