Þjóðviljinn - 12.07.1988, Blaðsíða 13
Afganskir
uppreisnarmenn hafa færst í
aukana uppá síðkastið. Að eigin
sögn. Kveðast þeir þjarma ó-
sleitilega að hermönnum Naji-
bullas, forseta í Kabúl, einkum í
héruðum í austri og við borgina
Kandahar í suðri. Þann 15da ág-
úst á helmingur sovéskra her-
manna að vera horfinn úr Afgan-
istan og er enga þeirra að finna
lengur á ofannefndum svæðum.
Kinnock
formaður breska Verkamanna-
flokksins kveðst að sönnu styðja
réttmæta baráttu Afríska þjóð-
arráðsins fyrir jöfnuði hvítra og
blakkra. Hann segist skilja að
baráttumenn samtakanna skuli
grípa til vopna í því augnamiði að
binda endi á óbærilegt ástand en
segist ekki sjá að þeir hafi haft
erindi sem erfiði. Kinnock lét
þessi orð falla í gær eftir að hafa
setið fund með forystumönnum
ANC í Lusaka, höfuðborg
Zambíu. Verkamannaflokkurinn
væri öndverður hvers kyns vald-
beitingu en styddi blökkumenn
heilshugar og gerði sér grein fyrir
því að þeir yrðu að bera hönd
fyrir höfuð sér í kúgunarkerfi
hvíta minnihlutans.
Bingo
hefur verið bannað með lögum í
Sameinuðu arabísku fursta-
dæmunum. Bingo er feikivinsælt
í Abu Dhabi og þar um kring,
landsmenn hafa stytt sér stundir
við það um árabil og á stundum
spilað um myndarlegar fjárupp-
hæðir. Múhameðstrúarmenn
hafa horn í síðu hverskyns fjár-
hættuspils og þar kom að grand-
varir og guðhræddir menn bentu
ráðamönnum á að bingo væri
óíslamskt og því trauðla spá-
manninum að skapi. Löggjafinn
sagði „já, akkúrat“, og fór að
óskum Múhameðs.
íranir
segjast hafa veitt all mörgum Ir-
ökum, stríðsföngum, hæli enda
væru þeir pólitískir flóttamenn.
Færu þeir nú frjálsir ferða sinna í
íran og byggju hjá fjölskyldum
sínum. írakar höfðu furðað sig á
því að um 7 þúsund stríðsfangar í
Iran hefðu horfið sporlaust og
sakað írani um fjöldamorð.
Ráðamenn í Teheran sögðu ásak-
anir þessar út í hött og til þess
ætlaðar að draga athygli þjóða
heims frá þeirri staðreynd að ír-
akar hafa þrásinnis beitt efna-
vopnum í átökum við fjendur
sína.
„Útlegðar-
höfðingi“
Kampútseumanna, hinn nafntog-
aði Síhanúk prins, lét af forystu
fyrir uppreisnarhreyfingunni í
gær. Ákvörðun prinsins kom
einsog þruma úr heiðskíru lofti
enda eru friðarviðræður valdhafa
í Pnom Penh og andstæðinga
þeirra komnar á nokkurn rek-
spöl. Höfðu ýmsir þjóðhöfðingj-
ar á Vesturlöndum og í Asíu ætl-
að að tefla prinsinum fram sem
sínum kandídat. Hafa þeir ítrek-
að gert því skóna að því aðeins
eigi hið stríðsþjáða land von um
betri tíð að prinsinn hefjist þar til
vegs og virðingar (verði væntan-
lega kóngur eftir allnokkra töf).
ERLENDAR FRÉTTIR
Gorbatsjov í Póllandi
Nú em það hefðbundin vopn!
Sovétleiðtoginn vill ráðstefnu Evrópuríkja. Óskar eftir flugvélabýttum
Míkhael Gorbatsjov, bóndi í
Kreml, er við sama
heygarðshornið. í gær hélt hann
ræðu yfir hausamótum pólskra
þingmanna í Varsjárborg og
stakk uppá því að valdhafar ríkja
Evrópu mæltu sér mót til þess að
ræða hvernig best verði komist að
samkomulagi um eyðileggingu
vígtóla, annarra en kjarnorku-
vopna, svonefndra hefðbundinna
vopna. Ennfremur kvaðst hann
meira en fús að semja við Nató
um flugvélar; ef 72 bandarískar
F-16 orrustuþotur á Spáni verða
fluttar heim árið 1991, en ekki til
Ítalíu einsog ráðgert er, munu So-
vétmenn flytja „hliðstæðan“
flugvélakost, sovéskan, austur
fyrir Úralfjöll.
Leiðtoginn hyggst dvelja í Pól-
landi um sex daga skeið en undir
lok heimsóknarinnar mun hann
sitja fund leiðtoga Varsjárbanda-
lagsríkja í fæðingarborg banda-
lagsins.
Gorbatsjov sagði að ef af fundi
forystumanna allra Evrópuríkja
yrði væri hans tillaga sú að aðeins
eitt mál yrði tekið' til umræðu:
„Hvernig rjúfa megi vítahringinn
og þoka viðræðum um fækkun
hefðbundinna vopna á rekspöl."
Fréttamaður Reuters staðhæf-
ir að þessi málflutningur sovét-
leiðtogans bendi til þess að þolin-
mæði hans yfir hægagangi við-
ræðusveita risaveldanna í Vín sé
á þrotum. Vínverjum sé ætlað að
semja um hefðbundnu vopnin en
hingaðtil hafi allt strandað á
þeirri kröfu Sovétmanna að örlög
svonefndra „tvíeggja vopna“
verði rædd í leiðinni, en slíka
nafngift fá skriðdrekar, fallstykki
og þessháttar vopn sem bæði geta
borið kjarnsprengjur og púð-
ursprengjur. Bandaríkjamenn
harðneiti að taka þessi beggja
handa járn til umræðu.
Auk þess að skora á Nató-
brodda í flugvélabýtti stakk Gor-
batsjov uppá því að Varsjár-
bandalagið og Nató kæmu sér
upp sameiginlegri „miðstöð til
þess að bægja stríðsógn frá dyr-
um; stofnun um samvinnu á
þessu sviði sem starfrækt yrði
árið um kring og myndi verða lóð
á skálar friðarins."
Ymsir „vestrænir" sérfræðing-
ar höfðu leitt getum að því að
Gorbatsjov myndi boða
heimkvaðningu sovéskra her-
sveita frá bandalagsríkjum sínum
í ræðunni en svo fór ekki. Þótt
Sovétmenn hafi nýverið ákveðið
að flytja hermenn sína í Ung-
verjaíandi heim þá bendir ekkert
til þess að slíkt hið sama verði
hlutskipti kollega þeirra í Austur-
Þýskalandi. Tékkóslóvakíu og
Póllandi. I síðastnefnda ríkinu
dvelja 42 þúsund sovéskir her-
menn að staðaldri.
Reuter/-ks.
Ber, brosir, seinkar, syngur, biður. Gorbatsjov hefur í mörg horn að
líta, ekki síður í Varsjá en á heimaslóðum.
Palestína
Tvö ungmenni vegin
Israelsk hernámsyfirvöld loka sex skólum heimamanna á landinu
vestan Jórdanar
Israelskir drottnar á hernáms-
svæðinu vestan Jórdanar
mæltu í gær svo fyrir að sex
skólum heimamanna skyldi lokað
eftir að miklar óeirðir höfðu brot-
ist út. Hermenn þeirra drápu tvö
palestínsk ungmenni.
Málsvari ísraelska setuliðsins
kvað til átaka hafa komið milli
hermanna sinna og hópa ung-
linga sem grýttu þá. Atburðir
þessir áttu sér stað á spildunni við
Jórdan, í bæjunum Nablus, Tulk-
arm, Ramallah, Kalkilja og He-
bron.
Starfsmaður við sjúkrahúsið í
Tulkarm greindi frá því að 16 ára
gamall piltur, Hassan Adass að
nafni, hefði látist þar í gær eftir að
hermenn skutu hann í kviðinn.
Italía
Hiyðjuvericamenn dæmdir
Palestínskir heimildamenn í Nab-
lus sögðu að Faris Al-Anabtawi
hefði verið skotinn til bana af
ísraelskum hermönnum þar í bæ.
Hann var einu ári eldri en Adass.
f Nablus voru fjórir heimamenn
særðir skotsárum.
Talsmenn hernámsliðsins
gengust við drápum þessum.
Hafa fsraelsmenn nú vegið 229
Palestínumenn hið minnsta frá
því uppreisn heimamanna á her-
teknu svæðunum hófst þann
9.desember í fyrra. Reuter/-ks.
Metnaðarmál
13 mennfundnir sekir og dæmdir vegna fjöldamorðs hægri manna í
Bolognu árið 1980
Fjórir nýfasistar voru í gær
dæmdir til æfllangrar
dýflissudvalar fyrir að hafa orðið
85 mönnum að bana í Bologna-
borg þann annan ágúst árið 1980.
Fjórmenningar þessir og sam-
verkamenn þeirra földu vítisvel í
þéttskipuðum biðsal í brautar-
stöð borgarinnar og sprengdu
hana þcgar örtröðin var mest.
Þetta er mannskæðasta hryðju-
verk sem framið hefur verið í
Vestur-Evrópu frá lokum síðari
heimsstyrjaldar.
En ekki virðast öll kurl komin
til grafar í máli þessu, þrátt fyrir
dómana, því ýmsir meintir for-
sprakkar voru sýknaðir. Enn-
fremur komst dómarinn að þeirri
niðurstöðu að fjöldamorð þetta
hafi ekki verið hluti samsæris
öfgamanna í her og leyniþjón-
ustu, nýfasista og P-2 frímúrara-
reglunnar um að skapa ringulreið
og upplausn á Ítalíu, búa í haginn
fyrir valdarán hægrimanna.
Alls voru 13 einstaklingar
fundnir sekir um beina eða
óbeina aðild að hermdarverkinu,
þeirra á meðal eru tveir foringjar
í leyniþjónustunni og hinn
nafntogaði ítalski „athafnamað-
ur“ Licio Gelli. Þeir höfðu allir
reynt að villa um fyrir réttvísinni
þegar unnið var að rannsókn
málsins. Hún tók sex ár og réttar-
höldin stóðu yfir í 18 mánuði.
Átta menn voru sýknaðir, þeirra
á meðal er Stefano nokkur Delle
Chiaie, höfuðpaur nýfasista.
Reuter/-ks.
Sovét-Armenía
100.000 á útifundi
Enn einnfjöldafundurinn Uerevan. Ermsk iðjuverhafa staðið auð og
r
Aannað hundrað þúsund
manns safnaðist saman til
fundarhalda um miðbik Jere-
vans, höfuðborgar Sovét-
Armeníu, í gærmorgun. Á dag-
skrá var mál málanna, krafan um
að íbúar héraðsins Fjalla-
Karabakh, sem langflestir eru
Armenar, fái að segja sig úr
lögum við hina háu herra Bakú-
borgar í Azerbaidsjan og sverja
æðstu mönnum Jerevans,
löndum sínum, hollustueiða. Sem
hljóð í vikutíð
kunnugt er er þetta einkar snúið
mál því hið umbitna hérað cr sem
eyja inní Azerbaidsjan.
Efnt var til fundarins eftir að
forystumaður kommúnista í
Armeníu upplýsti landa sína um
að Kremlverjar hygðust innan
tíðar ræða þessi „kákasus óþæg-
indi“. Fundarboðendur létu þess
ennfremur getið að hreppsnefnd
Fjalla-Karabakhs" myndi koma
saman í dag gagngert til þess að
fjalla um frekari baráttuaðgerðir.
Fundurinn í gær fór fram í for-
garði fornlistasafns Armena og
þar í grennd. Hann stóð yfir í 90
mínútur. Heimildamaður Reut-
ers í Jerevan kvað fundinn hafa
farið vel og friðsamlega fram og
skýrði ennfremur frá því að fund-
arforingjar hefðu boðað fram-
haldsfund á sama stað um kvöld-
ið, þ.e.a.s. í gærkveldi. Hann
kvað engan fullvaxinn Jerevan-
búa hafa haldið til vinnu í gær.
Reuter/-ks.
Til lítils
unnið
Maður er nefndur Tom Crispo,
búsettur í Englaborg á vestur-
strönd Bandaríkjanna. Sér og
sínum til lífsviðurværis rekur
Crispo fatafellubarinn „Skellur
og snúningur“.
Crispo er maður metorða-
gjarn. Því ákvað hann fyrir
skemmstu að efna til metasláttar,
á dansgólfi „Skells og snúnings“
skyldi stiginn maraþon nektar-
dans. Hann fékk tvo starfsmenn
sína til liðs við sig, Newcomb
Munt, 28 ára, og Delane Balliot,
22 ára.
En þótt Munt og Balliot hafi
afklæðst 432 sinnum á 72 klukku-
stundum, og því örugglega slegið
met, þverneita forráðamenn
heimsmetabókar Guinnes að láta
atburðarins getið í næstu útgáfu
bókarinnar. Telja þeir af og frá
að klámfengið efni eigi erindi á
síður bókar sem börn fá gjarnan í
jólagjöf.
Crispo er sár en öldungis ekki
af baki dottinn. Hann hefur falið
lögmanni sínum, Róbert nokkr-
um Stapleton, sem sjálfur aflaði
sér lífsviðurværis á námsárunum
með stripli, að undirbúa málsókn
á hendur Guinnes ef forleggjar-
arnir sjá sig ekki um hönd á næstu
dögum. Reuter/-ks.
Þriðjudagur 12. júli 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13