Þjóðviljinn - 23.07.1988, Side 5
FRETTIR
Vinnutíminn
Vinnuþrælkun = streita
Olafur Ölafsson landlœknir: Við komum
ekki í vegfyrir streitu með því aðfjölga lækn-
um. Streita veldur aukinnifjarverufrá vinnu.
Streita hefur aukist verulega hjá íslendingum
- Samfara löngum vinnudegi
er Ijóst að streita eykst í þjóðfé-
laginu. Pað er einnig Ijóst að sam-
fara aukinni verðbólgu og annarri
óáran í þjóðfélaginu eykst
streita, sagði Olafur Ólafsson
landlœknir í gœr þegar hann
kynnti nýútkomið rit Landlækn-
isembættisins um Mannvernd í
velferðarþjóðfélaginu.
Eins og komið hefur fram að
undanförnu lengist stöðugt sá
tími sem fólk þarf að eyða við
vinnu til að geta séð sér og sínum
farborða. Samkvæmt könnun
sem Hjartavernd hefur gert á
tveimur tímabilum, því fyrra á ár-
unum 1968 til ársins 1969 og hinu
síðara árin 1983 til 1985 hefur
vinnutími meðal karla og kvenna
á aldrinum 34 til 44 ára aukist
verulega,
- Athyglisvert er að tíðni
streitu er mun lægri eftir 45 ára
aldur samfara því að fólk hefur
lokið byggingarframkvæmdum.
Pað má því draga þá ályktun að
lífsbaráttan gengur mjög nærri
fólki, sagði Ólafur og bætti við að
kapphlaupið eftir lífsins gæðum
væri beinlínis sjúkdómsvald-
andi.
Samkvæmt niðurstöðum rann-
sóknarinnar kemur fram að þeim
fer stöðugt fjölgandi sem kvarta
undan streitu. Þannig hefur þeim
fjölgað um helming sem kvarta
yfir streitu í könnunum sent
Hjartavernd gerði meðal 2000
karla og kvenna fyrst árin 1967 til
1969 og síðan 1983 til 1985. Sam-
fara þessari auknu streitu í
þjóðfélaginu fylgir hækkandi
tíðni margra annarra sjúkdóma
eins og maga- og gigtarsjúkdóma
og auknar fjarverur frá vinnu
vegna veikinda.
- Það er alveg á hreinu, að við
losum ekki fólk við streitu með
því að fjölga læknum. Hér verða
að koma til önnur ráð. Þegar í
dag kostar það þjóðfélagið 15000
krónur á dag að hafa fólk á
sjúkrahúsum. Takist okkur að
draga úr streitu væri hægt að
spara mikla fjármuni, sagði
Olafur.
-sg
Það er mjög brýnt fyrir þjóðfélagið að leitað verið ráða til að draga úr streitu meðal fólks. Ólafur Ólafsson
landlæknir lýsir eftir góðum ráðum. Mynd Ari
, Velferðarþjóðfélagið “
Vamaðarorð landlæknis
Lenging vinnutímans leysir ekki vandamálfjölskyldunnar. Forgangsverkefni að leiðrétta misrétti íþjóðfélaginu. Bœta þarfhag
smábarnaforeldra með stórauknum barnabÓtufn. AðVorun til stjórmálamanna
í gær kynnti landlæknir
nýútkomið rit um
heilbrigðismál. En heiti þessa
rits er: Mannvernd í
velferðarþjóðfélagi. í riti
þessu er varpað nokkru Ijósi á
mannvernd og eru þar birtar
nokkrar niðurstöður úr
athugunum
landlæknisembættisins,
Hjartavernd, og prófessors
Sigurjóns Björnssonar á
lífsháttum og aðbúnaði
foreldra og barna.
ílok ritsins ritarólafur
Ólafsson landlæknir
samantekt sem birtist hér á
eftiríheild sinni.
Gerbreyttar þjóðfélagsaðstæð-
ur hafa dregið úr samvistum for-
eldra og barna. Atvinnuþátttaka
kvenna utan heimilis, aðallega
giftra kvenna, meir en fjórfaldað-
ist á tímabilinu 1960-1985.
Jafnréttisbaráttan hefur fært
konum meiri menntun og sjálf-
stæði en jafnframt mun lengri
vinnutíma. Kjarnafjölskyldan
riðar til falls því að hjónaskilnuð-
um hefur fjölgað gífurlega. Ungu
fólki í sambúð með börn úr fyrri
hjónaböndum hefur fjölgað
mikið, og er þetta að verða ein
algengasta fjölskyldugerðin. Ein-
stæðum foreldrum fjölgar einnig
mikið, en þeir eru nú 24% af
barnafjölskyldum.
Erfiðleikar foreldra, hjóna-
skilnaðir og minnkandi fjöl-
skyldufesta auka á óöryggi og þar
með vanlíðan margra barna.
Börnum sem koma frá sund-
ruðum heimilum fer fjölgandi.
Vegna mikils vinnuálags ekki síst
á mæðrum, eru tengsl foreldra og
barna mun minni en áður. Börnin
verða oft útundan vegna strang-
rar lífsbaráttu eða vegna óska um
aukna velmegun. Einstæðir for-
eldrar eiga við mesta erfiðleika
að etja þar eð afkoma heimilis
krefst nú tveggja fyrirvinnandi
aðila. Stjórnvöld veita þessum
fjölskyldum ekki nægilega að-
stoð. Verulegur fjöldi barna
gengur nær sjálfala á daginn og
skortir leiðandi hönd og dagvist-
un. Börn verða sjálfstæð yngri en
fyrr, og í umbrotum gelgjusk-
eiðsins týna sum þessara barna
áttum. Börn eru mjög háð for-
eldrum sínum og heimilum. Þeim
börnum sem lítil tengsl hafa við
foreldra er mun hættara við t.d.
vímuefnaneyslu en hinum sem
góð tengsl hafa. „Á misjöfnu
þrífast börnin best“ er í raun mót-
sögn. Góðar gáfur einar sér virð-
ast ekki duga mörgum unglingum
til þess að ná góðu takmarki. Lé-
leg hjúskaparaðlögun foreldra,
lítil umhyggja og hlýja, ósam-
ræmi foreldra í uppeldi tengjast
andlegri vanlíðan, lélegum náms-
árangri og slæmum lífsstíl barna
og unglinga. Börn sem koma frá
sundruðum heimilum verða frek-
ar sjúkdómum að bráð og vistast
mun meira á stofnunum en þau
börn sem eiga trausta að. Nú fer
fæðingum fækkandi og er svo
komið að íslendingum er hætt að
fjölga. í mörgum tilfellum endur-
speglar þessi staðreynd erfiða
lífsbaráttu foreldra en í öðrum til-
fellum auknar menntunarkröfur,
vaxandi kröfur um velmegun og/
eða tísku. Fleiri ástæður geta
legið að baki þessari þróun. Hér
er verðugt rannsóknarefni fyrir
stjórnvöld.
Samfara miklu vinnuálagi hef-
ur vinnustreita aukist gífurlega
og margs konar sjúkdómsástand
(svo sem háþrýstingur, maga-
bólgur og gigt) fylgir í kjölfarið.
Þar eð stéttarfélögin virðast ekki
hafa bolmagn til aðgerða gegn
þessu sýnist mér vera verkefni
fyrir t.d. foreldrafélögin í
landinu. Skólinn verður að sinna
mun meira fræðslu um uppeldi,
mannvernd og um kosti trausts
fjölskyldulífs. Margir ungir for-
éldrar virðast ekki þekkja grund-
vallaratriði í uppeldis- og fjöl-
skyldumálum. Uppeldismál eru
háð efnahags- og félagsmálum og.
engu auðleystari. Fagna ber því
sem vel er gert svo sem tillögum
félagsmálaráðuneytisins um
lausn húsnæðisvandans fyrir þá
verst settu. Upplausn heimila er
vaxandi vandamál og ungt fólk
óttast að það verði enn stærra
vandamál í náinni framtíð.
■ Við leysum ekki vandamál
fjölskyldunnar með lengingu
vinnutímans.
■ Við leysum ekki unglinga-
vandamál með stofnanabyggingu
„úr alfaraleið“.
■ Við hömlum ekki gegn vax-
andi upplausn heimila með því
eingöngu að fjölga sérfræðingum
í sálar-, uppeldis- og læknisfræði.
Börn og unglingar þarfnast ör-
yggis, hlýju og leiðandi handar.
■ Við leysum þessi vandamál
frekar með aðgerðum er styrkja
fjölskyldu og heimili. Ung börn
og unglingar sem eru í skóla
verða að eiga öruggan samastað.
Auðveldara er að fá fjárstuðning
til þess að byggja og reka með-
ferðarstofnanir fyrir unglinga og
gamalt fólk en að fá fjárstuðning
eða aðra aðstoð við fjölskyldur
sem er vitaskuld mannúðlegri og
ódýrari leið. Við búum nú við
meira stofnanarými en nokkup
önnur Evrópuþjóð.
i
ungs fólks að eignast íbúðir sínar
þráttjfyrir áralangar afborganir.
2. Launamunur kvenna og
karla.s
Konur vinna lengur en karlar,
enda „aukavinna" þeirra marg-
faldast síðustu árin þó tillit sé
tekið til vinnu þeirra á heimilum
og bera minna úr býtum en þeir.
3. Efnahags- og félagastaða
einstæðra foreldra. Stóraukin
efnahagsleg aðstoð til að tryggja
húsnæði og lenging fæðingaror-
lofs, því að núverandi reglur
bjóða upp á misrétti milli stétta.
4. Hagur smábarnaforeldra.
Til dæmis má stórauka barnabæt-
ur.
5. Dagvistunarmál. T.d. er
mikill skortur á „tómstundaat-
hvarfi“ fyrir börn og unglinga.
Skattamál: Samkvæmt nýjum
skattalögum mun vaxtaafsláttur
og húsnæðisbætur trúlega bæta
nokkuð hag ungs fólks en ekki er
fjölskyldustefna nægilega vel
mörkuð varðandi barnabætur,
umönnun forskólabarna o.fl.
Trúlega mun vinnutími styttast
og er það af hinu góða en jafn-
framt minnka líkur manna að
bæta hag sinn með aukavinnu
vegna skattlagningar á auka-
vinnu.
Stjórnmálamenn verða að
huga betur að þessum málum en
hingað til. Ef ekki verður
breyting á verður í framtíðinni að
gera ráð fyrir meiri aðstoð við
unglinga, börn og foreldra og
fleiri stofnanarýmum vegna sjúk-
leika og vanlíðanar.
Leiðrétta verður
misrétti I
þjóðfélaginu
1. Húsnæðisvandamál ungs
fólks. Steituvandamál og ýmsir
sjúkdómar virðast mjög tengd
erfiðleikum ungs fólks vegna
vinnuálags við að koma þaki yfir
höfuðið. Leiguíbúðir með örugg-
um kjörum fást ekki. Lánamál-
um er þannig á veg komið að nán-
ast er útilokað fyrir megin þorra
111 Droplaugarstaðir
"1" heimili aldraðra, Snorrabraut 58
Yfirsjúkraþjálfari
Óskast í 70% stöðu frá og með 1. september
næstkomandi. Starfið felst í endurhæfingu aldr-
aðra. Möguleikar eru á sjá[fstæðri starfsemi.
Upplýsingar gefyr forstöðumaður og yfirsjúkra-
-þjálfarrTsímá 25811 á milli kl. 9.00-12.00 alla
virka daga.
Laugardagur 23. júlf 1988 ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA 5
Frá Grunnskóla
Tálknafjarðar
Fyrir næsta skólaár vantar okkur:
1. Skólastjóra
2. íþróttakennara
3. Handmenntakennara
4. Almenna kennara.
Hlunnindi í boði. Upplýsingar í síma 94-2538.