Þjóðviljinn - 23.07.1988, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 23.07.1988, Blaðsíða 13
HEIMURINN Persaflói Irakar styrkja stöðu sína írakar sóttufram á öllum vígstöðvutn ígœr. Hyggjastendurheimta land og taka stríðsfanga áður en vopn verða kvödd r Iraskar hersveitir réðust með offorsi miklu að írönskum fjendum sínum í gær og sögðu ráðamenn í Bagdað að tilgangur sóknarinnar væri að styrkja víg- stöðuna áður en farið verður að semja um vopnahlé. Iranir báru sig illa; kváðu Iraka hafa haldið austur yfir landamæri ríkjanna og hertekið þorp. Þeir staðhæfðu ennfremur að Irakar hefðu beitt efnavopnum í árásum sínum og hefði fiöldi óbreyttra borgara látið lífið. f fréttatilkynningu skýrðu stríðsherrarnir í Bagdað frá því að dátar þeirra sæktu fram á öllum vígstöðvum. Þeir hygðust endurheimta allt íraskt land og taka eins marga stríðsfanga og auðið væri áður en gengið yrði tíl vopnahléssamninga. Hinsvegar gátu þeir ekki urn neina herferð yfir landamærin. Þegar írökum vegnaði illa í þessari maraþonstyrjöld fullyrtu þeir þrásinnis að þeir ættu aðeins eina ósk heita, nefnilega þá að slíðra sverð og friðmælast. I fvrra samþykktu þeir undireins kröfu Öryggisráðs Sameinuðu þjóð- anna um tafarlaust vopnahlé. Þá vildu íranir hinsvegar ekki heyra minnst aukateknu orði á frið. Nú er annar uppi. Að undan- förnu hefur írökum vaxið ás- megin en óvinir þeirra farið hall- oka. Á mánudaginn féllust ráða- Hvalveiðár Eftir að hafa haftíhótunum við Norðmenn kúvenda Bandaríkjamenn ogfallast á „vísindaáœtlun“ um hrefnuveiðar Bandaríkjastjórn hyggst ekki refsa Norðmönnum fyrir að veiða 30 hrefnur i „vísindaskvni" í ár. Það er alkunna að Alþjóða hvalveiðiráðið hefur lýst hrefnur alfriðaðar. Norðmenn hafa, eins- og vér mörlandar, gengið í ber- högg við fyrirmæli ráðsins og veitt hrefnur í „vísindaskyni.“ Einsog íslendingum er kunn- ugt eru Bandaríkjamenn mikil hvalvinaþjóð og ekki er stjórn þeirra minni hvalvinastjórn. Því gáfu þeir í skyn að það myndi koma Norðmönnum í koll að veiða hrefnurnar. Kom jafnvel til álita að Bandaríkjamenn bönn- uðu fiskinnflutning frá Noregi en þeir éta norskan fisk fyrir tæpa 8 miljarða á ári. En allt kom fyrir ekki. Þá var sett nefnd í málið vestra. Fló hún til Oslóar og fór ofan í saumana á „hrefnuvísindaveiðiá- ætlun“ stjórnavalda. Og sann- færðust um ágæti hennar. Því fá Norðmenn að veiða þessar 30 hrefnur sínar, alls óáreittir af bandaríska viðskiptaráðuneyt- inu. Reuter/-ks. menn í Teheran á ályktun Örvgg- isráðsins um að binda strax endi á vopnaskak. Þá komu írakar með vífilengjur um að fyrst þyrfti að undirbúa beinar viðræður stríðs- aðila af kostgæfni, þvínæst að hefja þær og loks að ljúka þeini. Þá loks væri orðið tímabært að þagga niður í byssukjöftunum. Forseti írans, Ali Khamenei, sagði í gær að til greina kænti að eiga beinar viðræður við Iraka, án milligöngu friðflytjenda frá aðalstöðvum Santeinuðu þjóð- anna. í New York kvaðst aðalrit- ari samtakanna, Javier Perez de Cuellar, hafa boðið valdhöfum styrjaldarríkjanna að efna til fundar með utanríkisráðherrum þeirra. í fréttatilkynningu sinni í gær sögðust írakar öldungis ekki hafa lagt friðaráform sín fyrir róða. Það þyrfti einvörðungu að „leiðrétta" ýmsa hluti áður en vopnahlé hæfist, endurheimta landssvæði og taka stríðsfanga sem notaðir yrðu sem skiptimynt. „Við viljum að stríðinu ljúki með öllu...við óskum eftir rammger- Sigurreifir íraskir hermenn. Þeir eru ekki á þeim buxunum að hætta. World Veldi sem var. í öndvegi sitja frú Viktóría og Leóníd sjálfur. Að baki þeim standa börnin Galína og Júrí en fyrsti varainnanríkisráðherrann stendur yst til vinstri. Syndir feðranna Brésnevsbömin um friði sem varir en gefum lítið fyrir ótraust vopnahlé." Að sögn starfsmanna Rauða krossins eru nú um 50 þúsund íraskir hermenn í írönskum stríðsfangabúðum en írakar hafa um 20 þúsund írani í haldi. Reuter/-ks. Útboð Endurbygging á gatnamótum Reykjanesbrautar - Lækjargötu/ Lækjarbergs w Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint ~ verk. Malbik 8.300 m2. Verki skal lokið 1. október 1988. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 26. þ.m. Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þann 8. ágúst 1988. Vegamálastjóri hýrudregin Stöðugt er þrengt að frœndgarði Leóníds heitins Brésnevs. Sé œttmennum hans ekki stungið í steininn er þeim gert að lepja dauðann úr skel Afkomendur og frændfólk Leóníds heitins Brésnevs mega muna fffll sinn fegurri á heimaslóðum. Á dögunum bárust nýjustu fréttir að austan af smá- sálarhætti núverandi valdhafa gagnvart þessu prýðisfólki. Pravda greindi sumsé frá því, og hafði eftir ekki ómerkari manni en Viktori Kaznasjojev, félagsmálaráðherra Rússneska lýðveldisins, að það væri búið að afnema allar auka- og viðbótar- greiðslur, sporslur, umframbita, smábita, bitlinga og þóknanir til barna og bróður ofannefnds Brésnevs. Að sönnu fengi fólkið sín lögákvörðuðu eftirlaun hér- eftir sem hingaðtil en ekki kóp- eka umfram það. Hér væri um „félagslegt réttlætismál" að ræða. Prinsípmál. Blaðamaður Prövdu, sem er einsog kunnugt er fyrrum mál- gagn ofannefnds Brésnevs og söng honum lof og pris, fra degi til dags, ár og síð, þar til fyrir skömmu, saumaði að félaga Kaznasjojev uns hann nefndi nöfn „sníkjudýranna". Þetta væru þau Júrí og Galína Leóní- dsbörn, Jakov, bróðir hins látna þjóðhöfðingja, og ígor, faðir Júr- ís Tsjúrbanovs, eiginmanns Ga- línu. Það má geta þess til gamans að Tsjúrbanov þessi situr nú á bak við lás og slá og bíður þess að réttarhöld hefjist í máli sínu. Er honum gefið að sök að hafa þegið mútur á meðan hann gegndi störfum sem fyrsti varainnanrík- isráðherra Sovétríkjanna. Svo enn sé höggvið í sama knérunn þá skal hér greint frá því að einkarit- ari ofannefnds Brésnevs, Genna- dí Brovin, var dæmdur í 9 ára betrunarhússvist í janúar síð- astliðnum fyrir sama glæp: mútu- þægni. Reuter/-ks. Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd Garðyrkjudeildar borgarverkfræðings óskar eftir tilboðum í framkvæmdir við gerð hverfis- og SDarkvallar við Skeljagranda. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri að Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík gegn kr. 10.000 skila- tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 11. ágúst nk. kl. 11. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Simi 25800 Húsnæði óskast Lektor við Háskóla íslands óskar eftir 3-4 her- bergja íbúð til leigu í vesturbæ eða miðbæ sem fyrst. Vinsamlegast hafið samband við Martin Regal í síma 19649. Laugardagur 23. júli 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.