Þjóðviljinn - 23.07.1988, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 23.07.1988, Blaðsíða 11
við Grunnskólann á Djúpavogi árið 1986 var hann ráðinn skóla- stjóri Grunnskólans. Eysteinn hafði áhuga á fé- lagsmálum, hvort sem þau tengd- ust ungmennafélaginu, slysa- varnarfélaginu, málefnum sveitarfélagsins eða landsmála- pólitík. Það var því engin tilviljun að hann var kosinn oddviti hreppsnefndar Búlandshrepps 1986. Jafnframt gegndi hann starfi skólastjóra og var hrepps- stjóri. Það má segja að þessi þrjú embætti séu lykilembætti í litlu byggðarlagi, og segir það allt um það traust, sem íbúar Djúpavogs báru til Eysteins. Sá sem þetta ritar, átti því láni að fagna, að vinna með Eysteini að málefnum Búlandshrepps. Það var gott samstarf, enda málefni sveitarfé- lagsins, og velferð íbúa þess, hans hjartans mál. Það er sárt að sjá á eftir vini, en minningin lifir. Um leið og ég kveð góðan félaga að sinni, og þakka samstarfið, sendi ég hug- heilar samúðarkveðjur til eigin- konu, Sigríðar J. Magnúsdóttur, barna, móður og systkina og bið Guð að styrkja þau í sorg sinni. Ólafur Ragnarsson Andlátsfregn Eysteins Guð- jónssonar kom eins og reiðarslag. Þrjátíu og níu ára var hann fallinn í valinn frá stórri fjölskyldu mitt í önn dagsins. Fyrir Sigríði Magn- úsdóttur, eiginkonu hans, og börnin fjögur er missirinn sárast- ur, sem og aðra aðstandendur. En heimabyggð hans sér einnig á bak dugmiklum manni sem leitað hafði verið til með fjölmörg trún- aðarstörf. Eysteinn var kennari að mennt og hóf sem slíkur störf við Barna- og unglingaskólann á Djúpavogi 1970, en kenndi síðar sitt hvort árið í Sandgerði og Kópavogi. Hann var farsæll og traustur kennari, og þegar Ingimar Sveinsson hætti skólastjórn á Djúpavogi tók Eysteinn við af honum. Mikil uppbygging hefur verið við skólann undanfarin ár, og átti Eysteinn sinn hlut í henni sem kennari og skólastjóri, en einnig sem sveitarstjórnarmaður. Áhugi á félagsmálum fylgdi Eysteini úr foreldrahúsum, þar sem ríkti víðsýni og róttækar skoðanir á þjóðmálum. Hann gerðist ungur að árum eindreginn sósíalisti, og stuðningsmaður Al- þýðubandalagsins, og síðar for- ystumaður þess heima fyrir. Ég kynntist honum sem slíkum í starfi í kjördæminu um og eftir 1970 og liðsinni hans og stuðning- ur hélst óslitið til dauðadags. Þegar Alþýðubandalagsfélag var stofnað á Djúpavogi fyrir um tíu árum var Eysteinn kosinn for- maður þess. Til hans var síðan alltaf leitað af forystu í kjördæm- isráði og okkur þingmönnum, þegar við vorum á ferð eða leituðum liðsinnis í kosningabar- áttu. Þá var Eysteinn ætíð boðinn og búinn til starfa og heimili hans og Sigríðar stóð okkur opið sem þar knúðum dyra. Ég heimsótti þau í vikunni sem dauðann bar að garði. í samráði við Eystein hafði ég boðað til op- ins fundar á Djúpavogi 1. júní síðastliðinn, og eins og svo oft áður stjórnaðí hann fundi, þar sem meðal annars voru rædd hagsmunamál byggðarlagsins. Einnig á þeim vettvangi var Eysteinn í forystu sem oddviti hreppsnefndar eftir síðustu sveitarstjórnarkosningar. Hér verða ekki rakin fjölmörg trúnaðarstörf önnur sem Eysteinn tók að sér og rækti af eðlislægri samviskusemi. í huga mér nú að skilnaði er minningin um góðan dreng með staðfastar skoðanir og ríka réttlætiskennd. Á bak við rólegt yfirbragð hans ríktu næmar tilfinningar og við- kvæm lund. Um leið og ég þakka Eysteini samfylgdina votta ég aðstand- endum hans, Sigríði og börnun- um, mína dýpstu samúð. Hjörleifur Guttormsson ÍÞRÓTTIR 2. deild Öm með fjogur Fjórir leikir voru í gærkvöldi og ber hæst stórsigur Fylkis á Víði, 5-1. Örn Valdimarsson var svo sannarlega á skotskónum því hann gerði fjögur marka Fylkis í leiknum. Jón Bjarni Guðmunds- son skoraði í fyrri hálfleik ásamt einu marki Arnar. f síðari hálf- leik bætti Örn síðan þremur við en Björn Ingimundarson skoraði eina mark Víðis. Þróttur og ÍBV gerðu jafntefli í Laugardalnum, 2-2, eftir að Þróttur hafði verið yfir í leikhléi, 1-0. Sigurður Hallvarðsson skoraði í fyrri hálfleik en Her- mann Arason skoraði annað mark Þróttara. Tómas Ingi Tóm- asson skoraði bæði mörk Glaðbeittur hópur eftir frækna frammistöðu ásamt verðlaunagripum sínum. Handbolti Konur á uppleið íslensku kvennalandsliðin náðu glœsilegum árangri erlendis Vestmannaeyinga. Selfyssingar tóku á móti ÍR- ingum og fóru Breiðhyltingar með þrjú stig heim. Bragi Björns- son skoraði eina mark leiksins í síðari hálfleik. Þá sigraði Tindastóll erkifjend- urna KS 2-0 eftir að staðan í hálf- leik hafði verið 1-0. Guðbrandur Guðbrandsson og Ólafur Adolfs- son skoruðu mörk heimamanna. Leik FH og UBK sem vera átti í kvöld var frestað til mánudags vegna bikarleiks FH-inga síð- astliðinn fimmtudag. -þóm Handbolti Tveir leikir við V-Þjóðverja íslenska landsliðið leikur á morgun og mánudag landsleiki við V-Þjóðverja en liðin áttust einmitt við í Þýskalandi fyrir skömmu. íslendingar undirbúa sig sem kunnugt er fyrir Ólym- píuleikana í Seoul en V- Þjóðverjar taka þátt í B- keppninni seinna í vetur. Leikirnir hefjast kl. 18.00 á sunn- udag og kl. 20.00 á mánudag. Þess má geta að leikur liðanna um þriðja sætið í A-Þýskalandi á dögunum verður sýndur í Sjón- varpinu í dag. -þóm Fótbolti Urslit pollamóts Undankeppni Pollamóts KSÍ er nú lokið og hafa 16 af þeim 85 liðum sem hófu keppni tryggt sér sæti í úrslitum. Úrslitakeppnin verður haldin í dag og á morgun á Fylkisvelli en keppt er á tveimur völlum á svæðinu. Keppnin byrj- ar á laugardag kl. 13.00 og verður framhaldið á sunnudag kl. 10.00. Keppt er í A- og B-liðum og eru eftirtalin lið í úrslitum: A-lið: KR, Bolungarvík, Þróttur N., UBK, Valur, FH, Fylkir, KA. B-lið: ÍBK, Bolungarvík, Þróttur N., UBK, Stjarnan, FH, Víkingur, KA. -þóm ísienska A-landsIið kvenna og 19 ára iandsliðið náðu glæstum árangri á keppnismótum crlendis nú fyrir skömmu. A-liðið, sem undirbýr sig af kappi undir C- keppnina, tók þátt í handknatt- leiksmóti í Portúgal og gerðu stúlkurnar sér lítið fyrir og sigr- uðu á mótinu. Þetta er væntan- lega bara byrjunin á nýrri gullöld í kvennahandbolta en mikið átak á sér stað innan iandsliðsnefndar kvenna um þessar mundir. C-keppnin verður í Frakklandi 26. október til 2. nóvember og hefur A-landsliðið verið við stanslausar æfingar undir stjórn þjálfarans Slavko Bambir í allt sumar. Slíkar æfingar hafa aldrei áður þekkst hjá kvennaliði hér á landi og mættu svo sannarlega fleiri aðilar gefa stúlkunum gaum. Mótið sem liðið tók þátt { var haldið í Frakklandi og léku stúlk- urnar við Portúgal, Sviss, Spán auk heimamanna og sigruðu þær í öllum sínum leikjum. Portúgalir, Spánverjar og Frakkar eru með íslendingum í riðli í C-keppninni og koma tvær síðartöldu þjóðirn- ar til íslands í september og leika nokkra landsleiki við stúlkurnar. Auk þess eru Grikkir einnig í sama riðii og íslendingar en það er að sjálfsögðu stefnan að vinna C-keppnina og komast upp í B- grúppu. Aðeins eitt Iið fer upp úr C-grúppu og því verður róðurinn erfiður hjá stúlkunum. Um möguleika íslendingá sagðist Bambir vera nokkuð bjartsýnn þar sem liðið er í mikilli framför. „Ef við vinnum í okkar riðli er ég sannfærður um að við vinnum keppnina einnig," sagði Bambir á blaðamannafundi í gær. Guðríður Guðjónsdóttir var ekki eins bjartsýn og minnti á að þegar stúlkurnar léku við Svía í febrúar voru þær sænsku tveim klössum fyrir ofan þær, en Svíar eru ein- mitt í hinum riðli C-keppninnar. Unglingalandsliðið skipað 19 ára stúlkum og yngri tók þátt í 3. og 4. deild Urslit tveimur mótum á Italíu og náðu einnig ágætum árangri, lentu í fjórða sæti á báðum stöðum. Þess verður að gæta að liðin sem léku á mótunum voru ýmist landslið eða altént lið skipað miklu eldri leik- mönnum þannig að árangurinn er sérlega góður. Unglingastarf hef- ur aldrei verið betra innan HSÍ og er nú eigum við nú einnig landslið 16 ára og yngri. Það væri óskandi að stúlkurnar fengju meiri athygli og ættu stuðningsaðilar íþrótta að athuga að nú er í nánd fyrsta blómaskeið kvennahandboltans í 24 ár, eða síðan íslendingar urðu Norður- landarmeistarar 1964. En stúlk- urnar verða líka að sýna að þær séu vel að heiðrinum komnar, og það skyldi enginn efast um það. -þóm Utboð - hengiloft og lampar Samband íslenskra samvinnufélaga, Sölv- hólsgötu 4, 101 Reykjavík, óskar eftir tilboöi í útvegun og uppsetningu á hengilofti, lampa- brautum og afhendingu á lömpum í væntanlegt skrifstofuhús Sambandsins að Kirkjusandi í Reykjavík. Um er að ræða m. a. eftirtalda verkþætti: - Hengiloft, efni og uppsetning um 4.300 m2 - Lampabrautir, efni og uppsetning um 1.500 rn - Flúrlampar í hengiloft um 500 stk. Verkið skal hefjast í október 1988, og skal því lokið í janúar 1989. Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu Sig- urðar Thoroddsen hf, Ármúla 4, Reykjavík, gegn 5.000,- kr. skilatryggingu. Tilboðum skal skila til VST hf., Ármúla 4, 108 Reykjavík, fyrir kl. 11.00 föstudaginn 12. ágúst 1988 en þá verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. VERKFRÆÐISTOFA SIGURÐAR THORODDSEN sf ÁRMÚU 4 REYKJAVlK SlMI 84499 Grindavík-Afturelding 3-1 Dalvík-Magni 2-0 Sindri-Einherji 0-1 Haukar-Augnablik 2-4 Viltu breyta til? Á Þórshöfn eru eftirtaldar stöður lausar til um- sóknar: 1. Hjúkrunarforstjóri. 2. Heilsugæslulæknir. 3. Ljósmóðir. 4. Héraðsdýralæknir. 5. Tónlistarkennari (skólastjóri) 6. Fóstra (forstöðumaður) 7. Grunnskólakennari. Æskilegar kennslugreinar raungreinar - íþróttir. Einnig vantar á staðinn iðnaðar- og tæknimenn. Gott húsnæði í boði. Upplýsingar eru veittar hjá viðkomandi fagráðuneyti. Skólastjóri Grunnskólans og sveitarstjórinn á Þórshöfn Laugardagur 23. júlf 1988 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.