Þjóðviljinn - 26.07.1988, Qupperneq 4
FLÖAMARKAÐURINN
3 hjól
til sölu á góðu verði. Upplýs. í síma
77054.
Herbergi
Kona utan af landi óskar að taka á
leigu herbergi með aðgangi að eld-
húsi og baði, helst í Norðurbænum í
Hafnarfirði. Meðmæli ef óskað er.
Uppl. í síma 51432. Sigurbjörg.
Sem ný leðurblússa
til sölu. Meðalstærð. Uppl. í síma
76657.
ísskápur
fæst gefins gegn því að vera sóttur.
Uppl. í síma 612227.
Til sölu
13 innbundnar bækur af tímaritinu
SATT. Uppl. í síma 40060.
Búslóð til sölu v/flutninga
Allt mögulegt í boði. Hlunnavogur
11, kj. Sími 35963.
Atvinna
Vantar laghentan mann til
trésmíðavinnu. Lágmarksaldur 16
ára. Uppl. í síma 622680.
Til sölu Daihatsu Charade
árg. 80, skoðaður '88. Útvarp/
segulband. Verð 70 þús. staðgreitt.
Einnig ársgamalt Nordmende lit-
sjónvarpstæki, 27" m/fjarstýringu,
verð 60 þús. og Candy þvottavél á
7000 kr. Á sama stað óskast ódýr
ísskápur. Sími 45196.
Til sölu
sófaborð og hljómtækjaskápur.
Uppl. í síma 16328.
Eftirtaldir hlutir eru til sölu:
70 lítra heitavatnsgeymir, 6 stk. 13"
felgur þar af 2 með vetrardekkjum,
sófaborð, forn skíði á 200 kr., nýrri
skíði með bindingum og stöfum,
reykborð, hljómtæki með hátölur-
um og innbyggðu kassettutæki,
hljómtækjaskápur, ónotuð bílaryk-
suga, innihurð úr tekki 80x200 sm,
þvottabalar úr blikki. Ennfremur
gardínubrautir af ýmsum lengdum
sem fást fyrir það sem viðkomandi
vill greiða. Allar nánari upplýsingar
er að fá að Langholtsvegi x12A.
Skoda 110 R
„Pardus" árg. '78 ekinn rúmlega 60
þús. km, selst hræódýrt i varahluti
eða til endurreisnar. Áragrúi auka-
hluta fylgir. Sími 41289.
Ferðatöskur
til sölu á vægast sagt mjög vægu
verði. Sími 41289.
Kattavinir
2 fallegir 9 vikna kettlingar þurfa að
komast á góð heimili. Uppl. að Fífu-
hvammi 13, Kópavogi. Sími 40496.
Til sölu
24” litsjónvarpstæki, tvöfaldur
svefnsófi, Necchi Lydia saumavél,
svefnbekkur. Uppl. í síma 688561.
aðgangi að baði, helst í Kópavogi.
Uppl. í síma 41209 á kvöldin.
Húsnæði
Óskum eftir að taka íbúð á leigu,
helst í mið- eða Vesturbæ. Erum 3 í
heimili. Reglusemi og skilvísar
greiðslur. Uppl. í síma 11394.
Til sölu
tvöfaldur stálvaskur, blómakassi,
kaffivél, kringlótt stofuborð úr pal-
esander, notuð Rafha eldavél. Eld-
húsinnrétting fæst gefins, þarf að
taka niður. Uppl. í síma 40631 e.kl.
19 í kvöld og annað kvöld.
Sláttuvél óskast
Er einhver sem vill gefa mér eða
selja á vægu verði handsláttuvél.
Uppl. í síma 612064. Bergþóra.
Til sölu
lítill ísskápur og 2 kassagítarar.
Uppl. í síma 17112 e.kl. 20.
Til sölu
barnadót; leikgrind, tágavagga,
barnastóll og barnabílstóll. Uppl. í
síma 17112 e.kl. 20.
Til sölu
vel með farið Ijóst furusófasett
ásamt 2 furuborðum og svartur sófi.
Allt frá IKEA. Einnig hvítir fata-
skápar m/skúffum, spegli og Ijósak-
appa. Uppl. í síma 34001 e.kl. 18.
Gerist áskrifendur
að Tanzaníukaffinu frá Ideele Im-
port. Áskriftarsími 621309. Gott mál
í alla staði. Kaffið sem berst gegn
Apartheid.
Ford Escort GL 1300
Fallegur, vel útlítandi Ford Escort
GL 1300 árg. '83 til sölu. Innfluttur
frá Þýskalandi fyrir ári. Ekinn
52.000 km. Ný sumardekk og ágæt
nýleg vetrardekk fylgja. Útvarp. Bíll
í toppstandi. Verðtilboð. Upplýsing-
ar í síma 681310 eða 681331 á
daginn.
Kiðafell í Kjós
Hestaleiga
Skemmtilegur reiðtúr á góðum
hestum í fallegu umhverfi. Opið alla
daga. Barnagæsla. íbúð til leigu til
styttri dvalar á staðnum. Góð fyrir
ferðafólk. Sími 666096.
íbúð óskast
Eldri maður, snyrtimenni sem reykir
ekki óskar eftir iítilli íbúð á Reykja-
víkursvæðinu. Skilvísar mánaðar-
greiðslur. Upplýsingar í síma
651686 eftir kl. 20.00.
Ráðskonustaða
Óska eftir ráðskonustöðu eða hús-
hjálp gegn húsnæði. Er með 2
stálpaðar stúlkur, snyrtilegar og
reglusamar. Upplýsingar í síma
29713.
Húsnæði óskast
fyrlr tónlistarkennslu
Upplýsingar í síma 29105.
Er 17 ára menntaskólanemi
að byggja upp eigið heimili. Bráð-
vantar þvottavél á hagstæðu verði.
Uppl. í síma 28797.
Til sölu
rafmagnspottur (fínt fyrir slátur),
rafmagnsofn og þríhjól. Uppl. í síma
51643.
Tölva til sölu
Victor V-PC IIE 2ja drifa, nánast ó-
notuð, forrit fylgja. Sími 21604.
Húsnæði
Roskinn, reglusamur maður sem
reykir ekki óskar eftir herbergi með
Nissan Sunny 1500 SLX
árg. '87, ekinn 17.000 km til sölu.
Bíllinn er hvítur að lit, 5 dyra, með
útvarpi/kassettu, sílsalistum og
grjótgrind. Upplýsingar í síma
681310 kl. 9-5 og 13462 á kvöldin.
Húsnæðl óskast
Ung og reglusöm snyrtileg og reyk-
laus hjón með 2 börn, 8 og 11 ára,
óska eftir að taka á leigu 4-5 her-
bergja íbúð frá 1. okt. n.k. Upplýs-
ingar í síma 16249 á kvöldin og
11640 á daginn. Margrét.
DJÚÐVIIJINN
blaðið
sem
vitnað
^ r ' cP N5
eri
FRÉTTIR
Eftirlaunafólk
Skerðingarreglumar
koma fólki að óvömm
Greiðslur úr lífeyrissjóði skerðast 45% umfram viðmiðunartekjur.
Einstaklingur getur haft 438.000 kr. í tekjutryggingu og lífeyri á ári.
Lífeyrir hjóna 617.424 kr. á ári
Eftirlaunafólk hefur mikið
spurst fyrir um það hvaða
reglur gildi um skerðingu tekju-
tryggingar sinnar. Fólk vill fá að
vita hvað lífeyrir og laun umfram
frítekjumarkið lækkar tekju-
trygginguna. Fólki finnst einnig
að þær reglur sem nú eru í gildi
virki í raun þannig að verið sé að
refsa þeim sem geta unnið
eitthvað áfram þótt þeir séu
komnir á eftirlaunaaldur.
Samkvæmt upplýsingum frá
Tryggingastofnun ríkisins eru
tekjur umfram frítekjumarkið
skertar um 45%. Það sama gildir
fyrir hjón og einstaklinga hvað
þetta varðar. Frítekjumark ein-
staklings er eins og áður hefur
komið fram: 127.980 krónur á
ári. Frítekjumark hjóna er:
179.145 krónur á ári. Tekjur um-
fram þessi mörk skerðast alltaf
um sömu prósentutölu eða 45%.
Ef við tökum dæmi af einstakl-
ingi og skoðum hvað hann getur
haft úr tryggingunum, þá miðað
við óskertar bætur í öllum tilfell-
um, er það þannig: Tekjutrygg-
ing hans yrði 17.107 kr. á mán-
uði. Við þetta bætist ellilífeyrir
sem er 9.577 kr. á mánuði. Þetta
gera 26.684 kr. á mánuði og þar
við bætist heimilisuppbót sem er
óskert 5.816 krónur og þá erum
við komin í 32.500 kr. á mánuði.
Til viðbótar þessu er síðan mögu-
leiki á lyfjauppbótum sem ák-
varðast eftir læknisvottorðum.
Þá geta einstaklingar einnig feng-
ið svokallaða sérheimilisuppbót
sem er 4000 kr. óskert. Heildar-
upphæð sú sem einstaklingur get-
ur fengið úr tryggingakerfinu er
því um 36.500 kr. á mánuði. Þetta
eru því 438.000 kr. á ári.
Ef svipað dæmi er tekið fyrir
hjón þá lítur dæmið allt öðruvísi
út. Þau eiga ekki rétt á heimilis-
uppbót né sérheimilisuppbót.
Þau hafa hvort 17.107 kr. í tekju-
tryggingu en ekki nema 8.619 kr.
í ellilífeyri. Samanlagt eru þetta
25.726 kr. á mánuði eða 51.452
hjá þeim báðum. Við þessa upp-
hæð gæti lyfjauppbót að sjálf-
sögðu bæst við.
Það skal skýrt tekið fram að við
útreikning á skerðingu tekju-
tryggingar er greiðsla úr lífeyris-
sjóði ekki dregin öll frá viðmið-
unartekjunum. Segjum að ein-
staklingur hafi 240.000 kr. úr líf-
eyrissjóði á ári. Frítekjumark
hans er 127.980 kr. og það er
dregið frá þessari upphæð. Af
þeirri upphæð eða 112.020 kr.
eru síðan tekin 45% sem er
50.400 kr. Það er því þessi tala
sem er dregin af þessum 240.000
kr. sem viðkomandi einstakling-
ur hafði úr lífeyrissjóðnum.
Athygli vekur að tekjutrygg-
ingin að samanlögðum ellilífeyri
er í raun sú upphæð sem hið opin-
bera gerir ráð fyrir að eftirlauna-
fólk komist af með. Þetta eru
438.000 kr. á ári fyrir einstakling
sem býr alveg einn og er ekki í
vinnu og fær ekkert úr lífeyris-
sjóði. Hjá hjónum gerir þetta
hins vegar 617.424 kr. á ári.
Margir hafa síðan einhverja við-
bót úr lífeyrissj óði eða vegna
vinnu sinnar. Þó er sá hópur
alltof stór sem ekkert fær úr líf-
eyrissjóðum og verður því að
bjarga sér með vinnu, oft á tíðum
alltof mikilli vinnu.
-gís.
Eftirlaun aldraðra frá Tryggingastofnun: Tölurnar miðast við óskertar
bætur hverju sinni.
rétthafi tekju- líf- heimilis- sérheimil-
trygging eyrir uppbót isuppbót
á mán. á mán. á mán. á mán.
Einstakl. kr.17.107 9.577 5.816 4000
Hjón 34.214 17.238 engin engin
Ríkisspítalar
Skortur á starfsfólki
bagalegastur
DavíðÁ. Gunnarsson: Höfum haldið lygnan
sjó. Mest um vert að jafnvœgi náist íefna-
hagsmálum. Dýrtað reka sjúkrahúsin meira
og minna á eftirvinnu. Sjálfgert ímörgum
tilfellum að loka deildum yfir sumartímann
vegna skorts á hjúkrunarfólki
B járhagsstaða ríkisspítalanna er ekki að neita að skortur á
er svipuð og oftast á þessum
tíma árs. Við höfum átt í dálitlum
vandræðum með að launakostn-
aður er hærri en áætlanir stóðu
til, sagði Davíð Á. Gunnarsson,
forstjóri ríkisspítalanna í samtali
við Þjóðviljann í gær, þegar hann
var inntur eftir því hvort ríkis-
spítölunum hefði tekist að halda
sig innan þeirra marka sem fjár-
lög settu þeim, og því tækju þeir
ummæli fjármálaráðherra um sí-
brotastofnanir ekkert sérstaklega
til sín.
Davíð sagði að ríkisspítalarnir
hefðu að mestu haldið jöfnu í
fyrra. - Rekstrarstaða sjúkra-
húsanna á hverjum tíma ræðst þó
vitanlega mikið af efnahagsá-
standinu, - verðbólgu- og þen-
slustiginu og þar gildir það sama
um sjúkrahúsin og annan
atvinnurekstur í landinu. En því
starfsfólki hefur sett strik í
reikninginn varðandi allar rekstr-
aráætlanir.
Það segir sig vitanlega sjálft að
það er mjög dýrt að reka sjúkra-
húsin meira og minna á yfirvinnu
fólks. Ekkert skiptir okkur meira
máli en jafnvægi í efnahagslífinu,
sagði Davíð.
Aðspurður um hvort sjúkra-
húsin mættu rekstrarerfiðleikum
með niðurskurði á þjónustu yfir
sumartímann, s.s. lokun ein-
stakra deilda, sagði Davíð að það
væri í mörgum tilfellum sjálfgert.
- Þótt við vildum halda öllu
opnu getum við það einfaldlega
ekki sökum skorts á sérhæfðu
hjúkrunarfólki. Læknar eru eini
hópurinn í heilbrigðisstétt sem
nóg framboð virðist vera af, sagði
Davíð.
-rk