Þjóðviljinn - 28.07.1988, Side 4
FRETTIR
FLÖAMARKAÐURINN
Til sölu
mjög gott, vel með farið 5 manna
tjald með fleyghimni, IVá metri
framyfir. Gott verð. Uppl. í síma
44218.
Til sölu v/brottflutnings
ónotuð jöklaúlpa, SCARPA göngu-
skór, mjúkir Goritex, no. 41 og 45,
svotil ónotaðir, Silver Reed ritvél,
bókahillur, reyr-ruggustóll, grill- og
bakarofn, frístandandi og vagga á
hjólum. Uppl. gefa Anna eða Egill
í síma 44169 eftir kl. 19.00.
Dýravinir athugið!
Kettlingar af góðu kyni fást gefins.
Sími 84023.
Hjól til sölu
Kalkhof 3 gíra hjól með öllum fylgi-
hlutum, þ.e. brúsa, speglum, flautu
o.fl. og Kettler BMX hjól. Uppl. í
síma 43439.
Hvít kommóða
fæst ódýrt. Uppl. í síma 12062 eftir
kl. 18.00.
Vinnubíll
Óska eftir litlum sendibíl eða Lödu
station í þokkalegu ástandi. Hringið
í síma 73351, Ólafur.
Óska eftir
fullorðinsreiöhjóli
á kr. 3.000. Á sama stað er til sölu
Citroen GS station árg. ‘78. Skipti
möguleg. Selst mjög ódýrt. Uppl. í
síma 12687.
Til sölu v/flutninga
sófaborð, Happy-stóll, bókahillur, 3
stólar, frystikista, hjónarúm, vídeó-
skápur, barnaborð m/áföstum stól
og kommóða. Uppl. í síma 46289
eftir kl. 17.00.
Óska eftir
ísskáp og þvottavél ódýrt eða gef-
ins. Vinsamlegast hringið í síma
45196.
(búðaeigendur
Óska eftir 2 herbergja íbúð frá 1.
september. Er góður leigjandi.
Uppl. í síma 681042.
Til sölu Ford Econoline
árg. ‘77,6 cylindra, 150 týpa. Þarfn-
ast lagfæringa á húddi og brems-
um. Nýtt útvarp og segulband og 2
nýleg dekk. Nýr síls fylgir. Uppl. í
síma 28238 eftir kl. 19.00.
Til sölu
hringlaga eldhúsborð, dökkbrúnt og
fjórir stólar á samtals 5.000 kr. Skatt-
hol á 1.000 kr. Uppl. í síma 24974 eftir
kl. 17.00.
Til sölu
stórt furuborð. Uppl. í síma 40022.
Kennsla
Háir takmörkuð stærðfræðikunn-
átta þér í starfi eða ert þú náms-
maður sem vilt nota sumarið til að
rifja upp eða undirbúa næsta vetur?
Ef svo er, þá tek ég fólk í einkatíma í
stærðfræðinámsefni grunn- og
menntaskóla. Nánari upplýsingar í
síma 612064, Palli.
Vil kaupa
notaða þvottavél. Uppl. í síma
15289 eftir kl. 17.00.
Sófasett til sölu
Vel með farið, lítið, rautt plusssófa-
sett til sölu á 8.000 kr. Sími 45379.
Barnavagn
Allt í einu! Vagn, kerra og burðar-
rúm, til sölu. Uppl. i síma 20953.
Svartur hornsófi
til sölu á 15.000 kr. Vel útlítandi.
Sími 46418.
Skodi
Skodi 120 LS, árg. ‘85, keyrður
30.000 km til sölu. Vel með farinn.
Gott verð. Uppl. í síma 20189.
Herbergi - lítil íbúð
Kona utan af landi óskar eftir að
taka á leigu herbergi með aðgangi
að baði og eldhúsi eða litla íbúð.
Helstu í Norðurbæ í Hafnarfirði.
Meðmæli ef óskað er. Uppl. í síma
51432, Sigurbjörg.
Gegn Apartheid
Suður-Afríkusamtökin minna á
söfnunina til handa börnum og ung-
lingum í S-Afríku sem sætt hafa
fangelsun og pyntingum. Gírónúm-
er söfnunarinnar er 3030 í Alþýðu-
bankankum. Eigum til sölu boli og
barmmerki á skrifstofu okkar,
Klapparstíg 26, sími 19920.
Prentari
Óskum eftir ódýrum prentara fyrir
IBM, samhæfða tölvu. Uppl. í
símum 19920 á daginn eða 656757
á kvöldin. - Suður-Afrikusamtökin.
Tröppur yfir girðingar
til sölu. Uppl. í síma 91-40379.
Húsnæðl
Roskinn, reglusamur maður sem
reykir ekki óskar eftir herbergi með
aðgangi að baði, helst í Kópavogi.
Uppl. í síma 41209 á kvöldin.
Eftirtaldir hlutir eru til sölu:
70 lítra heitavatnsgeymir, 6 stk. 13”
felgur þar af 2 með vetrardekkjum,
sófaborð, forn skíði á 200 kr., nýrri
skíði með bindingum og stöfum,
reykborð, hljómtæki með hátölur-
um og innbyggðu kassettutæki,
hljómtækjaskápur, ónotuð bílaryk-
suga, innihurð úr tekki 80x200 sm,
þvottabalar úr blikki. Ennfremur
gardínubrautir af ýmsum lengdum
sem fást fyrir það sem viðkomandi
vill greiða. Allar nánari upplýsingar
er að fá að Langholtsvegi 112A,
sími 30672.
Skoda 110 R
„Pardus“ árg. '78 ekinn rúmlega 60
þús. km, selst hræódýrt í varahluti
eða til endurreisnar. Aragrúi auka-
hluta fylgir. Sími 41289.
Ferðatöskur
til sölu á vægast sagt mjög vægu
verði. Sími 41289.
Gerist áskrlfendur
að Tanzaníukaffinu frá Ideele Im-
port. Áskriftarsími 621309. Gott mál
í alla staði. Kaffið sem berst gegn
Apartheid.
Ford Escort GL 1300
Fallegur, vel útlítandi Ford Escort
GL 1300 árg. '83 til sölu. Innfluttur
frá Þýskalandi fyrir ári. Ekinn
52.000 km. Ný sumardekk og ágæt
nýleg vetrardekk fylgja. Útvarp. Bíll
í toppstandi. Verðtilboð. Upplýsing-
ar í síma 681310 eða 681331 á
daginn.
Kiðafell í Kjós
Hestaleiga
Skemmtilegur reiðtúr á góðum ;
hestum í fallegu umhverfi. Opið alla j
daga. Barnagæsla. Ibúð til leigu til
styttri dvalar á staðnum. Góð fyrir
ferðafólk. Sími 666096.
íbúð óskast
Eldri maður, snyrtimenni sem reykir
ekki óskar eftir lítilli íbúð á Reykja-
víkursvæðinu. Skilvísar mánaðar-
greiðslur. Upplýsingar í síma
651686 eftir kl. 20.00.
Róðskonustaða
Óska eftir ráðskonustöðu eða hús-
hjálp gegn húsnæði. Er með 2
stálpaðar stúlkur, snyrtilegar og
reglusamar. Upplýsingar í síma
29713.
Húsnæði óskast
fyrir tónllstarkennslu
Upplýsingar í síma 29105.
Nissan Sunny 1500 SLX
árg. '87, ekinn 17.000 km til sölu.
Bíllinn er hvítur að lit, 5 dyra, með
útvarpi/kassettu, sílsalistum og
grjótgrind. Upplýsingar í síma
681310 kl. 9-5 og 13462 á kvöldin.
Húsnæðl óskast
Ung og reglusöm snyrtileg og reyk-
laus hjón með 2 börn, 8 og 11 ára,
óska eftir að taka á leigu 4-5 her-
bergja íbúð frá 1. okt. n.k. Upplýs-
ingar í síma 16249 á kvöldin og
11640 á daginn. Margrét.
Búslóð til sölu v/flutninga
Allt mögulegt í boði. Hlunnavogur
11, kj. Sími 35963.
Notaðu
endurskinsmerki
og komdu heil/l heim.
Ráðhúsið
Enn kæit til Jóhönnu
Byggingarnefnd úthlutar landi sem borgin á ekkert tilkall til. íbúar við
Vonarstrœti kœra stœkkun lóðarinnar að Tjarnargötull og
Vonarstrœtill
íbúar við Tjarnargötu telja að
bygginganefnd Reykjavíkurborg-
ar hafi farið út fyrir sitt valdsvið
með því að stækka lóðina að
Tjarnargötu 11 um 34% og út-
hluta Reykjavíkurborg viðbótar-
svæðinu undir ráðhúsbyggingu.
íbúarnir hafa því kært lóðaút-
hlutunina og stækkunina til fé-
lagsmálaráðherra.
í greinargerð með kæru íbú-
anna, segjast þeir ekki geta fallist
á gerð byggingamefndar að sam-
eina lóðirnar að Tjarnargötu 11
og Vonarstræti 11 og stækka sam-
einaða lóð úr 1268 fermetrum í
4333 fermetra. Þeir benda á að
viðbótarland lóðanna um 3065
fermetra út í tjörnina geti ekki
talist borgarland. Lóðir við
Tjarnargötu séu eignarlóðir og
engar skráðar eignarheimildir
séu á Reykjavíkurtjörn. Alkunna
er hins vegar að eigendur húsa
við Tjarnargötu hafi ávallt verið
taldir eiga land að tjörninni og
þeim beri allur réttur sem því
kann að fylgja.
Vísa íbúarnir til 3. og 4. kafla
byggingarlaga þar sem talað er
um rétt annarra og samþykki
meðeigenda að sameign, sem
viðbót lóðanna að Tjarnargötu
og Vonarstræti hljóti að falla
undir.
-rk
Matvœli
Aukaefni ekki eiturefni
Félag íslenskra iðnrekenda: Fréttaflutningur um
aukaefni ímatvœlum villandi. Aukaefni nauðsynleg.
Órökstuddar staðhœfingar Heilbrigðiseftirlits
Reykjavíkur
sem gerð var í fyrrra, leiddi í ljós
að merkingum á matvælum og
drykkjarvörum var meira ábóta-
vant á erlendum neysluvarningi
en innlendri framleiðslu. Sýnu
verst var ástandið á erlendum
sætindum og drykkjarföngum.
Um þetta ætti Heilbrigðiseftirliti
Reykjavíkur að vera vel kunn-
ugt, segir í fréttatilkynningunni.
Eiturefni teljast til flokks efna
sem kallaður er eiturefni og
hættuleg efni. Til síðarnefnda
flokksins heyrir m.a. skordýra-
eitur og er með öllu óheimilt að
setja slík efni í matvæli. Auka-
efni, hins vegar, eru nauðsynleg
við matvælaframleiðslu, — þau
Fréttaflutningur fjölmiðla að
undanförnu um notkun auka-
efna og umbúðamerkingar mat-
væla er samhengislaus og villandi
og of algengt er að jafnaðarmerki
sé sett á milli aukaefna og eitu-
refna, segir í fréttatilkynningu
Félags íslenskra iðnrekenda.
Jafnframt bendir Félag iðnrek-
enda á að þær yfirlýsingar Heil-
brigðiseftirlits að íslenskir
matvælaframleiðendur falsi oft
innihaldslýsingar vísvitandi, séu
algerlega órökstuddar og óábyrg-
ar.
Athugun Neytendasamtak-
anna og iðnrekenda á ástandi
umbúðamerkinga neysluvara,
Umbúðamerkingum
sælgætis sem er á boðstólum
hérlendis er ábótavant.
hindra m.a. vöxt óæskilegra
baktería og hverskyns örvera sem
geta valdið alvarlegum sjúkdóm-
um.
„Nær óhugsandi væri að bjóða
margar neysluvörur til sölu sem
nú eru á markaðnum sökum
hættu á matareitrun og skemm-
dum af völdum örvera,“ segir í
fréttatilkynningunni. _rj.
Glatt verður á hjalla í Ólafsvík alla helgina, en þá ætla Ólsarar að efna til sérstaks sumarauka með
listsýningum og öðrum uppákomum. Hátíðahöldin hefjast í dag og standa allt til sunnudags.
Ólafsvík
Memingariegur sumarauki
Ólsarar efna til lista- og menningarhátíðar um helgina. List- og
leiksýningar og kassabílarallý
Sumarhátíð Ólafsvíkinga verð-
ur haldin dagana 11.-14. ágúst
næstkomandi. Það er að komast á
það hefð að slegið sé upp hátíð
þegar líða tekur á sumar og þá
reynt að sameina hinar ýmsu
uppákomur sem félög í bænum
standa fyrir. Sumarhátíðin er
haldin fyrir atbeina Lista- og
menningarnefndar Ólafsvíkur og
er það von nefndarmanna að hún
eigi eftir að verða árlegur við-
burður í bæjarlífinu.
Hátíðin verður sett fimmtu-
daginn 11. ágúst, með opnun
samsýningar þeirra níu aðila sem
reka Gallerí Grjót, en það eru
Gestur og Rúna, Jónína Guðna-
dóttir, Magnús Tómasson, Óf-
eigur Björnsson, Páll Guð-
mundsson frá Húsafelli, Ragn-
heiður Jónsdóttir, Þorbjörg
Höskuldsdóttir og Örn Þorsteins-
son. Allt landsþekktir og viður-
kenndir listamenn og koma þeir
allir til Ólafsvíkur í tilefni sýning-
arinnar. Sýningin verður opin í
húsnæði Grunnskólans í Ólafsvík
fram á sunnudaginn 14. ágúst.
Sýnd verða olíumálverk, grafík,
vatnslitamyndir, teikningar,
skúlptúrar unnir í grjót, járn og
leir, silfurskartgripir og ýmsir
leirmunir. Öll verkin eru til sölu.
Föstudaginn 12. ágúst kemur
Alþýðuleikhúsið í heimsókn og
verður með tvær sýningar. Sú
fyrri verður kl. 17:00 á barnaleik-
ritinu „Ævintýrið á ísnum“ en sú
seinni verður kl. 21:00 en þá
verður sýnt leikritið „Eru tí-
grisdýr í Kongó“? Að lokinni
síðari sýningunni kemur fram
söngtríóið „Heklur", en það
skipa Erla Skúladóttir, Hanna G.
Sigurðardóttir og Guðrún Gunn-
arsdóttir, undirleikari með þeim
er Magnús Einarsson.
Laugardaginn 13. ágúst verður
Kvenfélag Olafsvíkur með hina
árlegu útigrillveislu í Sjómanna-
garðinum. Kassabílarallý og ýms-
ar uppákomur verða fyrir börnin.
Einnig stendur til að kaffihúsið
„Kaldilækur“ verði opið, svo og
byggðasafnið í gamla pakkhús-
inu. Um kvöldið verður dans-
leikur í félagsheimilinu á Klifi og
þar verða engir aðrir en Stuð-
menn sem halda uppi fjöri langt
fram á nótt. Hátíðinni lýkur svo á
sunnudeginum 14. ágúst.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 28. júlí 1988