Þjóðviljinn - 28.07.1988, Qupperneq 13

Þjóðviljinn - 28.07.1988, Qupperneq 13
ERLENDAR FRETTIR íraklíran Irakar afla sér fanga Báðir stœra sig afstórvirkjum á suðurvígstöðvum. írakar kosta kapps um að verða sér úti um stríðsfanga Iraskir ráðamenn sögðu her- menn sína hafa hrundið árás- um ijenda sinna á suðurvígstöðv- unum f gær og valdið miklu mannfalli og tjóni á hergögnum. Frá þessu var skýrt í daglegri fréttatilkynningu herforingjar- áðsins í Bagdað. Hefðu íranskir hermenn, með byltingarverði í broddi fylkingar, sótt að Þriðja her íraka en farið offari, og „flúðu í dauðans ofboði eftir að hafa goldið mikið afhroð.“ Til dæmis um hergagnamissi írana var nefnt að íraskir loft- varnarliðar hefðu hæft F-5 orrustu/sprengjuþotu óvinarins sem sést hefði falla til jarðar í ljósum logum íransmegin Iandamæranna. Þriðji her íraka kvað hafa það hlutverk með höndum að verja landssvæðin austan Basraborgar í suðri. íranska fréttastofan IRNA greindi einnig frá þessum atburð- um. Að sögn hennar sóttu bylt- ingaverðir djarfmannlega að fjendum sínum og léku þá grátt á Shalamcheh svæðinu. Hefðu þeir gereytt heilu herfylki, stráfellt mannskapinn og rústað tugum skriðdreka og herflutningabifr- eiða. Svo aftur sé vitnað í íraka þá sögðust þeir hafa sent orrustu- þotur sínar og sprengjuþyrlur í alls 278 skemmri og lengri árás- arleiðangra gegn óvininum. Upp- skeran hefði verið ríkuleg. Til dæmis að taka hefði fjöldi banda- rískra Hawk eldflaugapaila verið lagður í rúst austan árinnar Karo- Sovét-Armenía (ranskir stríðsfangar í Basra. Betur má ef duga skal. un og sömu örlög hefðu nokkrar vígvallarhöfuðstöðvar hreppt. Allar árásarvélar hefðu snúið heim heilu og höldnu. írakar segjast hafa tekið 12.207 stríðsfanga á síðustu dögum. Ráðamenn í Bagdað vita sem er að frá því styrjöldin hófst fyrir átta árum hafa fjendur þeirra tekið miklu fleiri hermenn til fanga en þeir og því kosta þeir kapps um að jafna metin áður en sests verður niður við samninga- borð. Ef marka má tölur Rauða krossins þá hafa írakar nú um 35 þúsund íranska hermenn í haldi. En betur má ef duga skal því fangnir írakar munu vera um 50 þúsund talsins í íran. Reuter/-ks. Geymt en ekki gleymt Allt með ró ogspekt íJerevan en landslýðurinn bíður átekta Ibúar Sovét-Armeníu hafa látið af mótmælum og verkföllum, í bili að minnsta kosti, en þeir hafa ekki sætt sig við þá ákvörðun Kremlverja að bræður þeirra og systur í Fjalla-Karbakh skuli þurfa að lúta stjórn Azera í Bakú. Þessar staðreyndir voru viðr- aðar í Prövdu í gær. Blaðamaður hennar hafði brugðið sér til Jere- vanborgar og punktað hjá sér það helsta sem bar fyrir augu og eyru. Hann greindi frá því að atvinnu- lífið væri lífs á ný eftir allsherjar- verkfall borgarbúa en hinsvegar væri deginum ljósara að „í sið- ferðilegum og sálrænum efnum er allt miklu mun flóknara." Allur þorri manna væri ósáttur við forsætisnefnd Æðsta ráðsins sem ákvað á aukafundi fyrir skemmstu að skella skollaeyrum við kröfum ermskra íbúa Fjalla- Karabaks. „Það væri synd að segja að yfirgnæfandi meirihluti Armena fengi botn í ákvörðun forsætisnefndarinnar,“ skrifar hinn háttvísi gestur. Hann bætti því við að starfsmenn stóriðju- vers í Jerevan hefðu hafnað ályktun Kremlverja og færu fram á að fullskipað Æðsta ráð tæki mál Fjalla-Karabakhs til umfjöll- unar. „Fjölmargir vísindamenn og menntamenn eru sama sinn- is,“ stóð ennfremur í Prövdu í gær. Reuter/-ks. Grafarmenn Heimta skammabætur Formaður Félags starfsmanna í kirkjugörðum og útfararfyr- irtækjum í einu ríkja Eyjaálfu, Viktóríu, á vandasömum við- ræðum við atvinnurekendur um kaup og kjör. Einkum er bitist um þá kröfu líkgrafara að þéim verði greiddur bónus fyrir andlegt álag í starfi. / Formaður kvað ekki óalgengt að syrgjendur veittust að grafar- mönnum með svívirðingum og skömmum og því væri það í hæsta máta sanngjarnt að þeir fengju 25 dala aukagreiðslu á mánuði. Þegar formaður ' var inntur nánar eftir því hverskonar aðkast þetta væri sem graftökumenn kirkjugarðanna yrðu fyrir þá eyddi hann því máli öllu. Fékkst hann þó í lokin til að fullyrða að ónotin væru svo slæm að það væri með öllu óþolandi að þau bættust ofan á hættu þá er grafarmönnum stafar af snákum, eitruðum kóngulóm, hvimleiðum kaktus- um og mislyndum veðurguðum. Án þess að sérstök greiðsla kæmi fyrir. Reutér/-ks. Palestína Verkföll á Gaza Palestínumenn á Gazasvœðinu lögðu niður vinnu ígœr eftirað ísraelsmenn drápu 13 ára stúlku ífyrrakvöld Palestínumenn efndu til verk- falla á Gazasvæðinu í gær í mótmælaskyni eftir að ísraelskir hermenn skutu unga stúlku til bana i fyrrakvöld. Hún var aðeins 13 ára gömul og bjó í Shatí búð- unum. Israelsk hernaðaryfírvöld óttuðust mjög að til óeirða kæmi í búðunum í gær og meinuðu íbú- um þeirra að stíga út fyrir hússins dyr. Því var allt með kyrrum kjörum á troðningunum milli íbúðarhreysa Palestínumanna í Shatí. Þar búa um 42 þúsund manns. Hinsvegar létu aðrir heimamenn á Gazasvæðinu reiði sína í ljós með því að skrópa í vinnu. Flestar verslanir á svæðinu voru lokaðar, almenningsfara- tæki gengu ekki og Palestínu- menn sem alla jafna sækja vinnu í ísrael sátu heima. Heimildamenn úr röðum Pal- estínumanna sögðu að stúlkan hefði verið skotin í kviðinn eftir að skarst í odda með nokkrum ungmennum og ísraelskum her- mönnum. Hún var flutt helsærð á Shifa sjúkrahúsið í Gazaborg þar sem hún lést skömmu síðar. Isra- elsmenn viðurkenndu að hafa drepið stúlkuna en sögðust ekki geta tjáð sig um dánarorsökina þar eð foreldrar hennar hefðu fjarlægt líkið af sjúkrahúsinu áður en fulltrúa þeirra gafst ráðrúm til þess að skoða það. Reuter/-ks. Kampútsea Viðræður í strand? Hvernig á að tryggja að Rauðir kmerar taki ekki völd á ný íKampútseu? Petta var bitbeinfundarmanna í Indónesíu ígær Viðræður um framtíðarskipan mála í Kampútseu virðast komnar í sjálfheldu vegna ágrein- ings um leiðir til þess að tryggja að Rauðir kmerar hefjist ekki til valda á ný. Einsog kunnugt er standa nú yfir í Indónesíu viðræður fulltrúa uppreisnarhreyfinga og ráða- manna Kampútseu. Að auki taka sendimenn ríkisstjórna Tælands og Víetnams þátt í fundinum. Það bar helst til tíðinda á þriðja fundardegi, eða í gær, að utan- ríkisráðherra Víetnama, Nguyen Co Thach, kom að máli við fréttamenn og sagði sínar farir ekki sléttar. Að sönnu væru fundarmenn á sama máli um margt það sem máli skipti en þeir gætu ekki náð saman um það hvernig koma ætti í veg fyrir að Rauðu Kmerarnir færðu sér í nyt tómarúm við brotthvarf víetn- amsks herliðs til þess að hrifsa til sín völd á ný. Thach greindi frá því að „nær“ allir fundarmenn stæðu einhuga gegn Rauðum kmerum og ásókn þeirra í völd en hinsvegar hefðu kröfur hans sjálfs um að ríki létu af stuðningi við þá fallið í grýtta jörð. Hann kvaðst hlynntur því að efnt yrði til stríðsglæparéttar- halda til höfuðs Pol Pot og nótum hans. Thach er ekki einn um að hafa áhyggjur af hugsanlegri valda- töku Rauðu kmeranna. Síanúk prins hefur einnig áhyggjur mikl- ar af þessum möguleika. Það er vitaskuld ekki ófyrirsynju því vígamenn Pols Pots eru alls um 35 þúsund talsins og langstærsta skæruliðafylkingin í Kampútseu. Ekkert heldur þeim í skefjum nú nema víetnamskir hermenn. Kváðu þeir vera um 100 þúsund talsins. Reuter/-ks. Fimmtudagur 28. júlí 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.