Þjóðviljinn - 09.08.1988, Blaðsíða 14
Ættartengsl
Hann kom hér inn í kompuna til
mín meö talsverðumfyrirgangi.
Hann var „hress í bragði og glað-
ur“ að vanda en þó leyndi sér
ekki, að honum var talsvert niðri
fyrir.
- Hvaðertítt?spurði ég.
- Títt, svaraði hann, - það er
nú ekkert lítilræði. Kunningi
minn, sem ég var aðspjallaviðí
gær, sagði mér að nú væru menn
búnir að uppgötva það, að Borg-
araflokkurinn hans Alberts míns
væri skilgetið afkvæmi Jónasar
frá Hriflu. Já, það ætlar lengi að
gæta áhrifa gamla mannsins. Ég
hef nú alltaf verið linur í ættf ræð-
inni og verð að játa, að ég áttaði
mig ekki á hvernig þessum ætt-
artengslum væri varið. Þess-
vegna kom ég hingað til að hitta
hana Guðrúnu mína Guðvarðar,
hún er svo sleip í ættf ræðinni, en
þá var mér sagt að hún væri hætt
að vinna hér. Mikið helvíti varfyrir
ykkur að missa hana.
Nú, en þegar maður fer nú að
hugsa sig um þá er þetta líklega
bara alveg rétt ályktað. Sjáðu til, í
raun og veru geta allir
stjórnmálaflokkar á íslandi -
Kvennalistinn segist ekki vera
stjórnmálaflokkur- rakið ættir
sínar til Jónasar og eiga honum
tilveru sína að þakka. Hann
stofnaði Framsóknar- og Alþýð-
uflokkinn. Kommúnistaruxu af
Alþýðuflokknum og þannig var
Jónas afi þeirra. Sósíalistaflokk-
urinn varð svo til úr kommúnist-
um og Alþýðuflokksmönnum.
Þannig er Jónas bæði afi og lang-
afi Sósíalistaflokksins. Sósíalist-
arog Alþýðuflokksmenn mynd-
uðusvo Alþýðubandalagið. Og
þannig er Jónas bæði afi og
langa-langafi þess.
Og nú skulum við líta til hinnar
áttarinnar. Stofnun Framsóknar-
og Alþýðuflokksins hlaut að kalla
á andsvar. Það svar var íhalds-
flokkurinn - Sjálfstæðisflokkur-
inn, eins og hann hefur nefilt sig
frá 1929. Það er kannski rétt að
orða það þannig, aö Sjálfstæðis-
flokkurinn sé óskilgetið afkvæmi
Jónasar. Síðan æxlaðist Borgar-
aflokkurinn af Sjálfstæðisflokkn-
um. Þannig er Jónas í raun og
veru afi hans. Já, mikið fjandi hef-
ur karlinn verið seigur. Það má
með fullum sannindum segja að
hann hafi, beint eða óbeint,
stofnað alla þá stjórnmálaflokka
á íslandi, sem komist hafa til vits
og ára s.l. 70 ár. Og ég segi nú
bara:geri aðrirbetur.
Jæja, þú skalt nú ekki gera
þessar hugleiðingar mínar hljóð-
bærar fyrr en ég er búinn að bera
þærundirGuðrúnu. Þaðerallur
varinn góður þegar ættfræðin er
annarsvegar.
- mhg
Idag
er 9. ágúst, þriðjudagur í sex-
tándu viku sumars, sautjándi
dagurheyanna, 222. dagurárs-
ins. Sól kemur upp í Reykjavík kl.
5.00 en sest kl. 22.04. T ungl
minnkandi á fjórða kvartili.
Viðburðir
Þjóðfundi slitiö 1851 (Vérmót-
mælum allir). Þjóðhátíðardagur
Singapúr. Kaupstaður í Mosfells-
bæ 1987.
Þjóðviljinn
fyrir 50 árum
Jökull hæstur með 8672 mál.
Saltsíldin litlu minni en á sama
tíma í fyrra, bræðslusíldin nálega
helmingi minni.
Litvinoff leggur fram tillögur út
af landamæraskærum Sovétríkj-
anna og Japana. Hann krefst
þess að fast verði haldið við
kínversk-rússnesku samþykkt-
ina frá 1886, enda munu sovét-
þjóðirnarkennajapanska hern-
um að virða lögfest landamæri.
UM ÚTVARP & SJONVARP
7
Dagstund í Metró
Rás 1, kl. 22.30
í kvöld verður endurfluttur
þáttur Ragnheiðar Gyðu Jóns-
dóttur: Dagstund í Metró, en
hann var á dagskrá 10. apríl s.l.
Rakin er saga neðanjarðarlesta
(Metró) Parísarborgar, fjallað
um hið sérkennilega neðanjarð-
arlíf og það, sem þar er brallað.
Inn í þáttinn er fléttað franskri
tónlist og lýsingu á ýmis konar
uppátækjum listafólks í Metró.
- mhg
Tónlist
Rás 1, kl. 17.03 og kl. 20.15
Það eru þeir Hándel, Mozart
og Haydn, sem sjá um síðdcgis-
tónlistina í dag. Efnisskráin er: a)
Sónata í A-dúr fyrir fiðlu og fylg-
iraddir, eftir Hándel. Iona
Brown leikur á fiðlu, Denis Vig-
ay á selló og Nicholas Kraemer á
sembal. b) Píanósónata nr. 11 í
A-dúr K 331, eftir Mozart. Zolt-
án Kocsis leikur á píanó. c)
Strengjakvartett í d-moll op 76
nr. 2 eftir Haydn. Amadeus
kvartettinn leikur.
Og svo er það kirkjutónlistin
kl. 20.15:
Hamingjan
Líf eða dauði
Stöð 2, kl. 23.25
Myndin er byggð á sannsögu-
legum atburðum og fjallar um
viðamestu mannaveiðar í sögu
kanadísku riddaralögreglunnar.
Veiðarnar fara fram árið 1931, í
kaldranalegum óbyggðum nálægt
norðurheimskautsbaug. Flótta-
maðurinn og þjóðsagnapersónan
Johnson hefst þarna við í hálfan
annan mánuð í 40 stiga frosti og
yfirstígur alla erfiðleika. - Stg.
Edgars stjórnar leitinni. Hann er
botnlaus wiskysvelgur en leggur
það á sig að gerast bindindismað-
ur um sinn, ef það mætti
auðvelda honum eftirleitina. -
Kvikmyndahandritið var unnið
upp úr blaðafréttum, lögreglu-
skýrslum og dagbókum. - mhg
Rás 1 kl. 19.35
„Órór gests ég úti beið / inn
hann skyldi leiða / hamingjan um
hlaðið reið / hafnaði öllum
greiða“. Ekki man ég betur en
hún væri á þessa leið vísan eftir
hann Grím frá Jökulsá á Flat-
eyjardal sem Karl heitinn Krist-
jánsson, fyrrv. alþingismaður,
hafði yfir eitt sinn þegar við vor-
um samnátta hjá Snorra á Hótel
Blönduósi. Og í kvöld verður á
dagskrá Rásar eitt þáttur um
hamingjuna- sem hafnaði greiða
Gríms á Jökulsá - í umsjá Ásdísar
Skúladóttur. Flutt verður hug-
leiðing skáldkonunnar Þuríðar
Guðmundsdóttur og lesið upp úr
ritgerðum unglinga um þetta
efni. - Hamingjuhugtakið á sér
langa og fróðlega sögu í
heimspeki, siðfræði, sálfræði og
stjórnmálafræði. Spurningin um
hamingjuna vitjar hvers manns
og hver verður að svara fyrir sig.
- Á s.l. vori stóðu samtök fél-
agsmálastjóra fyrir málþingi um
þetta efni. Erindum þeim, sem
fluttir voru á þinginu, verður út-
varpað á Rás 1 næstu þriðjudags-
kvöld kl. 19.35.
-mhg
GARPURINN
KALLI OG KOBBI
Hún rekur út útfrymisanga sem
líkist fæti; frumdýrið lykst utan um
pakka af hafrakexi.
FOLDA
14 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 9. ágúst 1988