Þjóðviljinn - 10.08.1988, Page 11
IÞROTTIR
I kvöld
Mjólkurbikarkeppnin, undanúrslit:
kl. 20.00 Leiftur-ÍBK
kl. 20.00 Víkingur-Valur
Bikarkeppnl kvenna, undanúrslit:
kl. 19.00 Stjarnan-ÍA
4.d. kl. 20.00 Skotfélag-Árvakur
4.d. kl. 20.00 Snæfell-Ernir
4.d. kl. 20.00 Efling-Kormákur
4.d. kl. 20.00 Æskan-HSÞ b
4.d. kl. 20.00 Vaskur-íþr. Neisti
Fótbolti
Valsstúlkur
í úrslit
fimmta árið
i roð
Sigruðu KR 3-0
Fyrri undanúrslitaleikurinn í
bikarkeppni kvenna var háður í
gær og sigruðu þá Valsstúlkur
KR-inga með þremur mörkum
gegn engu. Asamt því að vera
langefstar í 1. deildinni eru Vals-
stúlkur nú komnar í úrslit bikar-
keppninnar og er þetta fimmta
árið í röð sem það tekst hjá þcim.
Valur byrjaði leikinn af mikl-
um krafti og strax á 1. mínútu
komst Bryndís Valsdóttir inn
fyrir vörn KR-inga en skaut fram-
hjá í opnu færi. Þær héldu áfram
að sækja og þegar um 17 mínútur
voru liðnar af leiknum skoruðu
þær fyrsta markið. Ingibjörg
Jónsdóttir dró þá varnarmenn
KR-inga og markvörðinn líka til
sín alveg út við vítateigshorn,
sendi boltann svo fyrir markið
þar sem Magnea Magnúsdóttir
skoraði auðveldlega í autt mark-
ið. Aðeins fimm mínútum síðar
bættu þær við öðru marki. Magn-
ea átti þá fast skot að marki en
markvörður KR-inga hélt ekki
boltanum og Bryndís Valsdóttir
fylgdi vel á eftir og skoraði.
Eftir þetta jafnaðist leikurinn
töluvert og KR-stúlkur komu
meira inn í leikinn. Helena Óm-
arsdóttir komst m.a. ein inn fyrir
vöm Vals en Sigrún Norðfjörð
bjargaði vel með úthlaupi. Þegar
um fimm mínútur voru til leikhlés
skoruðu Valssúlkur síðan sitt
þriðja mark og gerðu þar með út
um leikinn. Cora Barker einlék
þá skemmtilega upp völlinn og
skoraði sjálf með góðu skoti.
Valsarar voru áfram sterkari
aðilinn í síðari hálfleik þótt þeim
tækist ekki að bæta við mörkum.
KR, sem hefur verið helsti keppi-
nautur Vals í deildarkeppninni,
er því úr Ieik en Valur mætir sig-
urvegara úr viðureign Stjörnunn-
ar og ÍA sem fram fer í kvöld.
-kb/þóm
Sigurður Sveinsson skoraði þrjú mörk með þrumuskotum í leiknum við Frakká í gær.
Handbolti
Frakkar ratuðu Islendinga
í fyrri hálfleik
Preytt lið Islendinga steinláfyrir Frökkum sem eru B-þjóð í faginu
íslendingar máttu þola tap
fyrir Frökkum, 22-20, í landsleik
þjóðanna í gær. Frakkar eru mun
lægra skrifaðir á handknatt-
leikssviðinu og eru nú að hefja
undirbúning sinn fyrir B-
keppnina á næsta ári. Það má
segja að Frakkar hafi veitt íslend-
ingum rothögg í fyrri hálfleik og
náðu þeir þá sex marka forskoti.
Þreytt lið Islendinga, eftir erfiða
keppni á Spáni, náði sér aldrei
verulega á strik í leiknum.
Frakkamir skomðu fyrsta
markið en Kristján Arason svar-
aði að bragði. Síðan var jafnt 2-2
og 3-3 en þá komu þrjú mörk í röð
frá heimamönnum, 6-3, og verst
var það 11-5. íslendingar náðu
aðeins að minnka muninn fyrir
leikhlé en þá var staðan 12-9.
Alfreð Gíslason skoraði strax í
upphafi síðari hálfleiks og var
munurinn þá aðeins tvö mörk. Þá
fór allt í baklás aftur og Frakkar
juku forskotið í 15-10. Þá skoraði
Sigurður Sveinsson úr vítakasti
en mörk víti höfðu farið forgörð-
um í leiknum. Það dugði ekki til
og Frakkar höfðu yfirhöndina til
leiksloka. Lokatölur urðu síðan
22-20 sem áður sagði.
Það er ekki annað hægt en að
vera óánægður með þessi úrslit í
gær. Frakkar eru hreinlega mun
lakari þjóð í handbolta og ef við
ætlum að halda okkur sem A-
þjóð þá er það lágmarkskrafa að
vinna allar B-þjóðir. Að vísu eru
Vestur-Þjóðverjar B-þjóð en
þeir eru undantekning frá regl-
unni. Hins vegar er íslenska liðið
vafalaust mjög þreytt núna eftir
gífurlega erfiða keppni á Spáni
þar sem sterkustu þjóðir heims
áttust við. Þeir fengu nánast enga
hvíld fyrir þennan leik vegna fer-
ða á milli staða og því þreytan
augljós. En breiddin í íslenska
liðinu þarf að vera það mikil að
lið eins og það franska verði lagt
að velli.
Mörk íslands: Alfreð Gíslason 3,
Kristján Arason 3, Sigurður
Sveinsson 3, Guðmundur Guð-
mundsson 2, Karl Þráinsson 2,
Páll Ólafsson 2, Sigurður Gunn-
arsson 2, Þorgils Óttar Mathiesen
2 og Júlíus Jónasson 1.
-þóm
Breiðablik sigraði
í báðum flokkum
Yngstu stúlkurnar áttust við í
Kópavoginum um síðustu helgi
Breiðablik gekk um helgina til
samvinnu við Gull & silfur um
knattspyrnumót í yngstu aldurs-
flokkum stúlkna, 3. og 4. flokki.
Sextán félög tóku þátt í 3. flokks
keppninni en fjögur í 4. flokki.
Fóru gestgjafarnir vel út úr
keppninni því þeir unnu í báðum
flokkunum auk þess að eiga bestu
og markahæstu leikmenn kepp-
ninnar.
í þriðja flokki lék Breiðablik til
úrslita við KR og sigraði 1-0. Um
þriðja sætið léku Valur og ÍBK og
lauk leiknum með sigri Vals, 4-2.
Unnur María Þorvaldsdóttir,
Breiðabliki, var valin besti leik-1
maður flokksins en Hrafnhildur'
Gunnlaugsdóttir, félagi hennar,1
var markahæst með 13 mörk.
Aðeins 4 lið kepptu í 4. flokki
og léku allir við alla, tvöföld um-
ferð. Breiðablik hlaut 11 stig, ÍA
9, Grindavík 4 og Haukar ekkert
stig. Besti leikmaður flokksins
var valin Katrín Jónsdóttir og var
hún jafnframt markahæst með 24
mörk.
-þóm
Fótbolti
Archibald til
Wbemían
„Hibs var ákveðnara en Liverpool“, segirArchibald
Steve Archibald, Skotinn hjá
Barcelona, er nú floginn til síns
heima, nánar tiltekið til Hiberni-
an í Skotlandi. Johan Cruyff, nú-
verandi framkvæmdastjóri hjá
Barcelona, kærði sig ekkert um
Archibald í liði sínu og fékk sá
síðarnefndi 250 þúsund pund í
sinn hlut fyrir að fara hið fyrsta
frá liðinu. Hann á nefnilega tvö ár
eftir af samningi sínum hjá Katal-
óníuliðinu.
Englandsmeistarar Liverpool
voru einnig á höttunum eftir Arc-
hibald en Hibernian sýndi meiri
áhuga og varð því fyrir valinu.
Það er að vísu heldur ólíklegt að
Archibald ætti möguleika á að
komast í lið hjá Mersey-liðinu og
hefur það eflaust haft áhrif á
ákvörðun hans. Archibald, sem
verður 32 ára í næsta mánuði,
leikur nú í skosku úrvalsdeildinni
á ný eftir átta ára fjarveru en
hann fór frá Aberdeen til Totten-
ham á sínum tíma fyrir 800 þús-
und pund.
Keppnistímabilið í Skotlandi
hefst á laugardaginn kemur en
Archibald verður varla í liði Hi-
bemian vegna þess að liðið er enn
að bíða eftir formlegum félags-
skiptum frá Spáni. Þá hefur kem-
pan ekkert æft í langan tíma og er
að sjálfsögðu ekki í neinni leikæf-
ingu. -þóm
Úrslit
Áugnablik-Ægir............6-4
Ármann-Skallagrímur.......4-0
Hveragerði-Fyrirtak.......4-0
Mlðvlkudagur 10. ágúst 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11