Þjóðviljinn - 27.08.1988, Síða 16
Sigríður H. Pálsdóttir
starfsm. á barnaheimili:
Nei ég hef nú ekki tekið sérstak-
lega eftir því enda fylgist ég ekki
svo grannt með verðlaginu.
Birna Sigþórsdóttir, nemi:
Nei ég hef lítið verið að versla
undanfarið en ég gæti vel trúað
að einhverjir seljendur hafi not-
fært sér ástandið og hækkað
vörur sínar.
Þorri Hringsson,
myndlistarnemi:
Já ég hef orðið var við það. Ég
hef þurft að kaupa inn til heimilis-
ins undanfarnar vikur, mamma er
nefnilega í útlöndum. Ég get
nefnt sem dæmi að ég keypti
majones áðan fyrir 64 krónur en
sams konar krukka kostaði 50
krónur fyrir skömmu.
Lúðvík Gizurarson,
lögfræðingur:
Ég hef ekkert fylgst með því. Það
hefur nú verið rætt um það síðan,
ég man eftir mér að verðlag sé
alltaf að hækka og það er eflaust
alveg rétt en ég er löngu hættur
að fylgjast með því.
-SPURNINGIN—
Hefur þú oröiö var (vör)
við verðhækkanir síö-
ustu daga?
Anna Hjartardóttir,
verslunarmaður:
Jú það er nú líkast til. Til dæmis
hefur allt sælgæti í versluninni
sem ég vinn í hækkað í vikunni.
þJÓÐVIUINN
Laugardaour 27. ógúst 1988 191. tölublað 53. órgangur
SÍMI 681333
Á KVÖLDIN
681348
ÁLAUGARDÖGUM
681663
Ekki verður betur séð en að Gotti, skemmti sér vel við æfingar í hindrunarbrautinni. Hann á kannski eftir að slá í geng, þegar íslenskir
ihundar keppa t fyrsta sinn í hundafimi.
Hundasýning
Fyrsta keppnin í hundaf imi
Sœnskur leiðbeinandi spáir íslenskafjárhundinum góðumframa í
þessari nýju hundaíþrótt
Metþátttaka verður á hunda-
sýningu Hundaræktarfélags
íslands í Reiðhöllinni næsta
sunnudag, þar sem 2 erlendir
dómarar munu dæma 170 hunda
af 10 mismunandi hundakynum.
A sýningunni verða með í fyrsta
sinn hundakynin enskur Springer
Spaniel og stríðhærður lang-
hundur.
í Reiðhöllinni verður einnig
haldin fyrsta keppnin í nýrri
hundaíþrótt, sem hlotið hefur
nafnið hundafimi. Gunnilla
Lundbom frá Svíþjóð hefur
leiðbeint íslenskum hundum og
eigendum þeirra í hundafimi og
segir hún mjög mikinn áhuga
vera á íþróttinni hér á landi.
Hefur hún aðstoðað við að
smíða sérstaka hindrunarbraut,
sem 12 hundar munu fara í gegn-
um í keppninni í hundafimi á
sunnudaginn. Þurfa þeir að klifra
yfir „trébrekku", ganga á slá,
Hundar af öllum stærðum og gerðum geta spreytt sig á hindrununum.
Hór fara þær Vala Ósk með Hólu og Ragnheiöur Ásta með Córu í
hindrunarstökk og er það Héla sem fer fyrir.
skríða í gegnum rör og poka,
hoppa í gegnum dekk og feta sig
áfram í eins konar svigi milli
stanga.
Gunnilla sagði við Þjóðvilj-
ann, að í slfkum keppnum væri
venjan að sá hundur sigraði sem
fljótastur væri í gegnum brautina.
í fyrstu keppninni hér mun hins
vegar sá sigra, sem fer brautina á
sem næst 90 sekúndum, því hinu
forminu fylgir of mikið stress
fyrir lítið þjálfaða hunda.
Gunnilla spáði því að íslenskir
fjárhundar gætu orðið fremstir í
þessari íþrótt hér, líkt og sænskir
fjárhundar í hennar heimalandi.
- íslensku hundarnir eru snöggir,
gott jafnvægi í líkamsbygging-
unni og svo eru þeir samstarfsvilj-
ugir og fljótir að læra, sagði
Gunnilla sem á sjálf 4 hunda, sem
þjálfaðir eru í að sýna alls kyns
sirkuskúnstir.
mi