Þjóðviljinn - 22.09.1988, Síða 3
DRAMATÍSK
HLÞRIF
í BEINNI
ÚTSENDINGU
Páll Magnússon fréttastjóri Stöðvar 2:
„Hlutimir gerast fyrr og hraðar hjá okkur
-sáermunurínn.“
Fréttastofa Stöðvar 2 hefur unnið marga glæsta sigra á skömmum
tíma. Hún er fyrr á ferðinni en keppinauturinn og oftar en ekki hefur hún
skotið kollegum sínum ref fyrir rass með vandaðri umfjöllun um
stórviðburði. Fréttastofan hefur ekki síður farið á kostum í beinum
útsendingum. Tilþrif hennar hafa jafnvel vaidið dramatískum
þáttaskilum í íslenskum stjómmálum. Hver man ekki yfirheyrsluna yfir
Þorsteini Pálssyni sem leiddi til stofnunar Borgaraflokksins? Eða
sögulegan fund þeirra Jóns Baldvins og Steingríms í beinni
útsendingu á „kvöldi hinna löngu hnífa“? Og hver man ekki einvígi þeirra
Jóhanns Hjartarsonar og Kortsnojs, þar sem Stöð 2 gekk iengra en
aðrir og varð fyrst allra í veröldinni til þess að sýna skákkeppni í beinni
útsendingu heimsálfa á milli.
Páll Magnússon hefur verið fréttastjóri Stöðvar 2 frá upphafi. Hann
kom heim frá Svíþjóð með Phil Cand próf í stjómmáiasögu og hagsögu
fyrir níu árum síðan. Ferill Páls í blaðamennskunni hefur verið jafn
hraður og fréttimar hans eru á Stöð 2. Hann gerðist blaðamaður á Vísi,
varð fréttastjóri Tímans, síðan aðstoðarritstjóri lceland Review,
annaðist fréttaskýringaþætti í ríkisútvarpinu, sló síðan í gegn á
skjánum með „seinni fréttir" ríkissjónvarpsins og starfaði sem
varafréttastjóri á þeim bæ þar til hann réðist tii starfa á Stöð 2 sem
fréttastjóri.
„ Ég kom hérað tómu húsi 1986, staðráðinn í að gera fréttastofu
Stöðvar2að bestu fréttastofnun landsins. Til þess þurfti ég að ná til
mín hæfasta fréttafólkinu. Það tókst. Kosningasjónvarp okkar í fyrra
færði fólki heim sanninn um að við vorum ekki aðeins komin til að vera,
heldurtilaðgerabetur. Um mannaráðningar, fréttamatogannað, sem
snertirhina faglegu hlið hefég frelsi. Ég erblessunarlega laus við
stirðbusalegarákvarðanirofanfráogpólitísktskrifræði. Þess vegna
erum við komin lengra á 2 árum en keppinauturinn hefur náð á 20
árum“.
APRÍL’86 JÚLÍ’88
10% 40%
I