Þjóðviljinn - 22.09.1988, Blaðsíða 16
“SPURNINGIN"
Hefurðu trú á þjóðstjórn-
arhugmyndum Kvenna-
listans?
Guðjón Andersen
málari:
Nei það hef ég ekki þar sem ég
hef enga trú á stefnu Kvennalist-
ans. Þær eru með yfirlýsingar um
hitt og þetta en þegar á reynir
guggna þær á liminu.
fósmundur Bernódusson
bílstjóri:
Nei. Ég tel að ef kjörnir fulltrúar á
Alþingi geta ekki komið sér sam-
an um nauðsynlegar efnahags-
aðgerðir eigi að kjósa upp á nýtt.
Það er lýðræðisreglan að mínu
mati.
húsmóðir:
Nei. Ég hef aldrei haft trú á pólitík
Kvennalistans. Staðan í dag er
að vísu slæm og til að greiða úr
henni hef ég mesta trú á getu
Steingríms Hermannssonar.
húsmóðir:
Nei. Ég hef enga trú á stefnu
Kvennalistans. Eg hef það á til-
finningunni að þær séu að teygja
lopann með því að fara einhvern
tímann í ríkisstjórn. í raun ætti að
kjósa upp á nýtt.
Soffía Eiríksdóttir
verslunarkona:
Já það hef ég. Ég held að þær
hafi meira rétt fyrir sér nú en aðr-
ir. Aftur á móti sýnist mér að það
muni reynast þeim erfitt að ná
;sínu fram án kosninga.
SÍMI 681333
Á KVÖLDIN
£04040
ÁLAUGARDÖGUM
681663
Það hefur viljað brenna við oftar en einu sinni að sjóslys hafa orðið
vegna ófullnægjandi stöðugleika skipa og þeim hvolft fyrir bragöið. Til
að bæta úr brýnni þörf hefur Siglingamálastofnun gefið út sérrit um
stöðugleika fiskiskipa til halds og trausts fyrir skipstjórnarmenn. Mynd:
Jim Smart.
Siglingamálastofnun
Áhersla á stöðugleika skipa
Siglingamálastjóri: Besta björgunartœkið hlýtur ávallt að vera skipið sjálft.
Námskeið um grundvallaratriði stöðugleika skipa haldið á nœstunni í
Vestmannaeyjum, Stykkishólmi, Isafirði og Dalvík. Athuganirstanda yfir
á stöðugleika smærrifiskiskipa
Stöðugleiki er tvímælalaust
einn mikilvægasti öryggisþátt-
ur hvers fiskiskips. Þrátt fyrir að í
umræðum um öryggi fiskiskipa
verði mönnum oft tíðrætt um
þann öryggis- og björgunarbúnað
sem í skipunum er, þá skipta hin-
ar fyrirbyggjandi aðgerðir gegn
slysum að sjálfsögðu höfuðmáli
og besta björgunartækið hlýtur
ávallt að vera skipið sjálft, sagði
Magnús Jóhannesson siglingam-
álastjóri í tilefni af útgáfu sérrits
stofnunarinnar um stöðugleika
fiskiskipa.
Siglingamálastofnun ríkisins
hefur í samráði við samgöngu-
ráðuneytið og hagsmunaaðila í
sjávarútvegi, undanfarin 2 til 3
ár, beitt sér fyrir margháttuðum
aðgerðum til þess að auka stöð-
ugleika fiskiskipa og nýlega kom
út á vegum stofnunarinnar bæk-
lingur er nefnist Kynning á stöð-
ugleika fiskiskipa og hefur hon-
um verið dreift um borð í öll ís-
lensk skip. f þessum bæklingi,
sem Siglingamálastofnun ríkisins
hefur unnið í samráði við stýri-
mannaskólana í Reykjavík og
Vestmannaeyjum er leitast við að
skýra nokkur grundvallaratriði
stöðugleika skipa, ásamt al-
mennum varúðarreglum við
hleðslu og siglingu þeirra.
Stöðugleiki, sem er hæfni skips
til að rétta sig við þegar því hefur
verið hallað, er annarsvegar háð-
ur gerð skipsins og hins vegar
þeim almennu varúðarráðstöf-
unum sem áhöfnin gerir við dag-
lega vinnu sína eins og við hleðslu
skipsins, sjóbúnað, frágang
farms og veiðarfæra svo og al-
menna forsjálni við siglingu
skips.
A næstunni verða haldin á veg-
um samgönguráðuneytisins í
samvinnu við Stýrimannaskólann
í Reykjavík vikulöng námskeið
um grundvallaratriði stöðugleika
skipa fyrir starfandi sjómenn víðs
vegar um landið. Þessir staðir eru
Vestmannaeyjar, Stykkishólm- ’
ur, ísafjörður og Dalvík. Einnig
má geta þess að tekin hefur verið
upp, í námsefni til 30 tonna
skipstjóraréttinda, kennsla í
stöðugleika skipa. Nú standa yfir
að tilhlutan Siglingamálastofnun-
ar ríkisins athuganir á stöðug-
leika smærri fiskiskipa er stunda
togveiðar á Vestfjörðum.
Rannsóknir á sjóslysum sýna
að algengasta orsök þess að skip
farast er ófullnægjandi stöðug-
leiki, sem fyrst og fremst má
rekja til ófullnægjandi þekkingar
skipstjórnarmanna. Þessu eru
sjómenn ekki alveg sammála og
telja að ekki séu fullnægjandi rök
fyrir því hvort orsakir sjóslysa
stafi af ófullnægjandi eigin stöð-
ugleika skips eða af völdum ó-
fullnægjandi hleðslu viðkomandi
skips.
I umræðum sem fylgt hafa í
kjölfar sjóslysa sem hafa orðið af
völdum ófullnægjandi stöðug-
leika skipa hefur komið fram að
handhægt rit um þennan öryggis-
þátt skipa hefur vantað fyrir skip-
stjórnarmenn og með útgáfu
þessa sérrits Siglingamála-
stofnunar er bætt úr brýnni þörf
sem vonandi kemur öllum skip-
stjórnarmönnum til góða í fram-
tíðinni. -grh