Þjóðviljinn - 28.09.1988, Síða 4

Þjóðviljinn - 28.09.1988, Síða 4
Styrkir til bifreiðakaupa Tryggingastofnun ríkisins veitir hreyfihömluöum styrki til bifreiöakaupa. Nauðsyn bifreiöar vegna hreyfihömlunar skal vera ótvíræð. Umsóknir vegna úthlutunar 1989 fást hjá greiðsludeild Tryggingastofnunar ríkisins Laugavegi 114 Reykjavík og hjá umboðs- mönnum hennar um land allt. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember. Frá Grunnskóla Tálknafjarðar Ennþá vantar okkur kennara í ýmsar kennslu- greinar næstkomandi vetur. Húsnæðishlunnindi í boði. Upplýsingar gefa skólastjóri í síma 94-2538 og formaður skólanefndar í síma 94-2541. Lausasölu- böm óskast Hafið samband við afgreiðslu Þjóðviljans í síma 681333 milli kl. 9:00-12:00 virka daga og 9:00- 17:00 laugardaga. þJÓÐVILJINN Auglýsið í Þjóðviljanum ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Takið þátt í stefnumótun Fundir starfshópa Alþýðubandalagsins Málefnahópar Alþýðubandalagsins munu á næstu vikum efna til funda með flokksmönnum og stuðningsmönnum flokksins. Fundir þessir eru haldnir til undirbúnings umræðu og afgreiðslu í miðstjórn Alþýðubandalagsins. 28. september: Fjölskyldu-, uppeldis- og menntamálanefnd Alþýðubandalagsins kynnir drög að stefnumótun á fundi í Reykjavík. Flokksmenn og stuðningsmenn flokksins eru eindregið hvattir til að mæta á þessa fundi og tala þátt í stefnumótun Alþýðubanda- lagsins. Alþýðubandalagið Alþýðubandalagið á Austurlandi Aðalfundur kjördæmaráðs Aðalfundur kjördæmaráðs Alþýðubandalagsins á Austfjörðum verður haldinn laugardaginn 8. október en ekki dagana 1 -2. októ- ber eins og sagt var í Þjóðviljanum á þriðjudag. Fundurinn stendur einungis í einn dag en auglýst dagskrá verður áður færð til sam- ræmis við það. ÆSKIJLÝPSFYLKINGIN Æskulýðsfylkingin Landsþing ÆFAB verður haldið 7.-9. október nk. að Hverfisgötu 105 í Reykjavík. Dagskrá: Föstudagur 7. október: Kl. 20.00. Setning. 21.00 Skýrslur fluttar — um- ræður. 22.00 Lagabreytingar kynntar. Laugardagur 8. október: Kl. 10.00. Lagabreytingar, fyrri umræða. 11.00 Stjórnmálaályktun - umræða. 12.00 matur. 13.00 Stjórnmálaumræðu fram haldið. 14.00 Hópvinna: a) Efnahagshóp- ur, b) Menntamálahópur, c) Utanríkismálahópur, d) Verkalýðsmálahópur, e) Jafnréttismálahópur, f) Allsherjarhópur, g) Lagabreytingar. 16.00 Kaffihlé. 16.30 Hópvinna framhald. 18.30 Hlé. 20.30 Borðhald/kvöldbæn. Sunnudagur 9. október: 10.00 Lagabreytingar, lokaumræða, afgreiðsla. 11.00 Hópavinna framhald. 12.00 Matarhlé. 13.00 Afgreiðsla mála. 15.00 Kosningar. 18.00 Fundarslit. - Framkvæmdaráð. FRÉTTIR Ólafsfjörður Bætur greiddar Viðlagatrygging hefur greitt bœtur til52 einstaklinga. Langflestirsáttir við bœturnar. Viðreisnarstarfið í bænum gengur vel Viðlagatrygging hefur greitt 52 einstaklingum á Ólafsfirði samtals um 13 milljónir króna vegna þess tjóns sem þeir urðu fyrir þegar aurskriður runnu yfir bæinn 28. og 29. ágúst. Geir Zo- ega framkvæmdastjóri Við- lagatrygingar segir að ennþá eigi eftir að ganga frá bótum 3-4 ein- staklinga en greiðslur til þeirra verði tilbúnar í næstu viku. Tryggingarbætur vegna tjóns á eignum kaupstaðarins verða ekki að fullu greiddar fyrr en heildart- jónið liggur fyrir. Geir Zoega sagði í samtali við Þjóðviljann að bætur hvers ein- staklings væru ákaflega misjafnar enda hefði tjón verið mis mikið, allt frá skemmdum á lóðum til húseigna og innbús. „Ég held að í heild hafi allir verið sáttir við af- greiðslu Viðlagatryggingar og hún gekk mjög hratt fyrir sig,“ sagði Geir. Hann sagði þá sem orðið hefðu fyrir tjóni hefðu get- að komið umkvörtunum á fram- færi við Viðlagatryggingu og ef þær hefðu reynst á rökum reistar hefði verið tekið tillit til þeirra. Að sögn Geirs á eftir að ganga frá stærstu tjónaþáttunum sem eru eignir Ólafsfjarðarkaupstað- ar. Þar er um að ræða skemmdir á hitaveitulögnum, vatnslögnum, skólplögnum og fleiri lögnum. Geir sagði Viðlagatryggingu þeg- ar hafa greitt inn á viðgerðirnar en ekki yrði ljóst hvað um stóra upphæð yrði að ræða fyrr en við- gerðum væri lokið. Bjarni Gríms- son bæjarstjóri Ólafsfjarðar sagði erfitt að gera sér grein fyrir kostnaði við viðgerðir á eignum bæjarins en hann giskaði á 5-10 milljónir króna. Bjarni sagði viðgerðir ganga vel en veðrið hefði verið leiðin- legt og tafið viðreisnarstarfið. Ennþá mætti sjá í bænum hvað komið hefði fyrir. Bjarni sagði lang flesta einstaklinga sem urðu fyrir tjóni vera sátta við þær bæt- ur sem þeir hafa fengið frá Við- lagatryggingu. Hann vissi þó til þess að einhverjir væru óánægðir en hann vonaði að þeirra mál leystust á farsælan hátt. Bæturnar sem Viðlagatrygging greiðir út vegna aurskriðanna eru heldur lægri en greiddar voru út vegna hamfaranna á Patreksfirði 1983 og vegna sjógangsins á Akranesi 1984, tjónið á Ólafs- firði væri heldur minna ef hin tvö væru framreiknuð. -hmp Sjónvarpsbingó Vogs Styrktarfélag Vogs hleypti af stað öðru fyáröflunarbingói sínu á Stöð 2 sl. föstudag í þætti með skemmtunarívafi sem nefnist Þurrt kvöld. Undirtektir voru góðar. Aðalvinningur var Su- barubifreið frá Ingvari Helgasyni hf. sem verið er að afhenda á þessari mynd vinningshafa, Sigurlaugu Grétarsdóttur frá Vestmannaeyjum. Aukavinning- ar eru tíu myndavélar. Bingóið verður í 38 vikur alls. Ríkisútvarpið leggur þessari fjár- öflun fyrir Sjúkrastöðina Vog lið með því að lesa á Rás tvö bingó- tölurnar með léttri músík upp úr hálftíu á föstudagskvöldum. Sinfóníuhljómsveitin Tónleikar á Vesturlandi Dagana 8.-13. sept. s.l. fór Sin- hólmi í dag og í Borgarnesi á Á efnisskránni verða: ftalska fóníuhljómsveit íslands í tón- morgun. stúlkan í Alsír, eftir Rossini, Pí- leikaferð um Austurland. Nú eru Stjórnandi hljómsveitarinnar anókonsert í C-moll eftir Mozart, hafnir tónleikar hljómsveitarinn- er petr; Sakari en einleikarar þau Trompetkonsert eftir Hummel ar á Vesturlandi. Voru þeir fyrstu Ásgeir H. Steingrímsson og og Carmen svíta í útsetningu í Ólafsvík í gærkvöldi, í Stykkis- Anna Quðný Guðmundsdóttir. Schedrins. -mhg Einhverfa Allt öðni vísi kennsla Norrœn samtök um meðferð og kennslu einhverfra funda ífyrsta sinn hér á landi Rauði þráðurinn er kennsla; við fjöllum um einkenni ein- hverfra og hvernig beri að haga sérkennsiunni, en hún er mjög sérstök og allt öðruvísi en kennsla annarra barna, segir Ragna Freyja Karlsdóttir, skólastjóri barna- og unglingageðdeildar Landspítalans, um málefni ein- hverfra. Málþing var haldið í tengslum við 7. vinnuþing Norrænna sam- taka um meðferð og kennslu ein- hverfra, en það var haldið í Ölf- usborgum í síðustu viku. Samtök þessi voru stofnuð árið 1982, en árvisst vinnuþing þeirra var nú haldið í fyrsta skipti hér á landi. Samtökin eru vettvangur skoðanaskipta og setja sér að safna saman hugmyndum og ný- mælum um málefni einhverfra. Að loknum vinnuþingunum hafa því jafnan verið gefin út rit með greinum um þau efni sem hafa verið til umfjöllunar hverju sinni. Þingið hér á landi er að því leyti sérstakt að unnið verður að drögum að bók sem er samantekt þinganna sex undanfarin ár. Meðal þeirra málaflokka sem unnið hefur verið að má nefna einkenni og orsakir einhverfu og viðhorf til hennar, sérkennslu og aðferðafræði, líkamsþjálfun, mál og samskipti, og unglingsárin og kynlífið. HS 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 28. september 1988

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.