Þjóðviljinn - 28.09.1988, Síða 6

Þjóðviljinn - 28.09.1988, Síða 6
þJÓÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Tímamót Þegar menn spyrja frétta af því hvaö sé aö gerast á stjórnmálasviðinu, eiga þeir oftast við hinar dagiegu fréttir, sem stundum verða nokkuð æsilegar vegna þess að at- burðirnir gerast mjög hratt. Miklu sjaldnar er fréttaefnið djúp- tækar breytingar eða gagnger uppstokkun á stjórnmála- sviðinu. Þannig hefur fréttaflutningur af þeim tilraunum til stjórnarmyndunar, sem hafa staðið yfir nú um hríð, aðallega snúist um atburði líðandi stundar og vangaveltur um hvaða menn settust í ráðherrastóla. Miklu minna hefur verið um það rætt hvort þeir atburðir, sem hér hafa orðið á vettvangi stjórnmálanna, séu kannski til marks um grundvallar- breytingar á pólitískum veruleika á íslandi. Ekki er að efa að menn munu lengi líta til þeirra atburða er urðu innan ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar og velta því fyrir sér hvað þar hafi eiginlega gerst. Atburðarásin, sem leiddi til falls þeirrar ríkisstjórnar, er með ólíkindum miðað við öll fyrri tíðindi í íslenskri stjórnmálasögu. Ríkisstjórn Þorsteins var studd af þremur rótgrónum stjórnmálaflokkum. Þrír elstu flokkar landsins, Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og Alþýðuflokkur, eiga samtals 41 þingmann af 63. Sú óvissa og spenna, sem upp getur komið í naumum meirihluta, átti ekki að vera fyrir hendi. Enginn einn stjórnarþingmaður gat haft þá tilfinningu að líf eða dauði ríkisstjórnarinnar hvíldi í hendi hans eins, og því gæti hann, ef hann kærði sig um, reynt að setja fram úrslitakröfur. Þótt fæðing stjórnarinnar stæði yfir lungann úr síðasta sumri, var síður en svo unnt að benda á eitthvert eitt atriði í samkomulagi flokkanna þriggja sem líklegt væri til að sprengja stjórnina. Það er því engin furða að menn leita skýringa á endalokum hennar. Vegna þess að menn hafa ekki komið auga á skýr merki þess að fráfarandi ríkisstjórn hafi endilega þurft að bera dauðann í brjósti sér þegar hún komst til valda fyrir rúmu ári, hafa margir viljað skýra örlög hennar með því að telja stærsta mein hennar hafa stafað af persónulegum væring- um milli ráðherranna. Sú skýring gerir ráð fyrir því að skap- ferli einstakra ráðherra hafi ráðið úrslitum og hún kallar því á útleggingar sálfræðinga. Enn er of snemmt að kveða upp úr með það hvað varð raunverulegt banamein ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonaren margt bendir til að það hafi verið gjaldþrot þeirrar efnahags- stefnu sem hún framfylgdi. Sú stefna hefur einkennst af ofurtrú á að markaðsöflin færðu alla hluti til hins besta vegar, að besta stjórnunaraðferðin væri að gera sem minnst og helst ekki neitt. Þegar ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar nennti ekki að lifa lengur, voru ráðherrarnir flestir farnir að koma auga á það sem almenningur um allt land hafði verið að keppast við að benda þeim á: óheftur markaðsbúskapur með tilheyrandi vaxtafrelsi og athafnafrelsi okraranna var að leggja íslenskt efnahagslíf í rúst. Svo gæti farið að þau kaflaskil, sem sagn- fræðingar framtíðarinnar telja að afsögn Þorsteins Páls- sonar hafi markað í stjórnmálasögu íslendinga, verði einmitt þetta gjaldþrot frjálshyggjunnar. Nú tekur við völdum ný ríkisstjórn en hún er að stórum hluta til skipuð mönnum sem sátu einnig í fráfarandi ríkis- stjórn. Bæði Alþýðuflokkkurinn og Framsóknarflokkurinn tóku fullan þátt í aðgerðum hennar og þessir flokkar bera því sinn hluta ábyrgðarinnar á því sem illa fór. Þjóðviljinn hefur áður bent á að ríkisstjórn verður ekki sjálfkrafa vinstri stjórn þótt Alþýðubandalagið taki þátt í henni. En seta Alþýðubandalagsmanna á ráðherrastólum vekur fyrirheit í brjóstum þeirra sem telja sig vinstrimenn. ÓP KLIPPT OG SKORIÐ Stjórnarkreppa og ólympíuvökur Hvort skyldi hleypa upp meiri geðshræringum í Nonna og Gunnu stjórnarkreppu- og stjórnarmyndunartíðindin unda- nfarna tíu daga eða þá ólympíu- fréttir? Líklega ná pólitískar geðshræringar til fleiri landsins barna - en þær eru kannski ekki sérstaklega sterkar hjá hverjum og einum, vegna þess hve hvunn- dagslega þær hljóma að mörgu leyti. Steingrímur forsætisráð- herra - ja séð hefur maður annað eins. Aftur á móti eru ólympíu- leikar bara fjórða hvert ár. Og þegar handboltaliðið okkar tapar fyrir Svíum þá gengur yfir snertur af þjóðarsorg - sem svo snýst í feiknafögnuð þegar jafntefli næst við Júgóslava nú um síðustu helgi. Paö er verst sem byrjar best En satt best að segja: það er furðumargt líkt með íslenskri stjórnarkreppu og íslenskri þátt- töku í ólympíuleikum. Og þá fyrst og fremst þetta: samkvæmt einhverju tiltölulega föstu mynstri sem menn hafa komið sér saman um, spana íslendingar sig upp í miklar vonir og bjartsýni fyrst í stað - til þess eins að detta niður í vonbrigði og svartagalls- raus þegar til alvöru keppnisdag- anna kemur skömmu síðar. Fyrir ólympíuleika skrifa og masa fjöl- miðlar sig og aðra upp í miklar væntingar, allir þeir sem stunda líkindareikning leggja sig fram um að fá sem hagstæðasta út- komu, menn reikna okkur verð- launasæti eins og að drekka vatn rétt eins Sölvi Helgason reiknaði börn í vinnukonur. En svo koma keppnisdagar og fyrst eru menn hissa á því að ekki skili nema sumir íslensku íþróttamannanna sínu besta, svo eru menn fullir með útskýringar (það var of heitt, maturinn vondur, dómar- inn ómögulegur). Og loks eru menn orðnir gramir og beiskir og fara með gamla vísu (og ágæta reyndar) eftir Jón Helgason pró- fessor um þátttöku íslendinga í ólympíuleikunum í Berlín 1936: í þeirri íþrótt að komast aftur úr öllum var enginn í heimi þeim jafn. Hættum þessu bara Næsta lota eru lesendabréfin um að það þýði ekkert að vera að þessu: eigi er við menn að eiga þar sem eru íþróttatröll stór- þjóða, sérhönnuð frá blautu barnsbeini og rekin áfram með fyrirheitum um fríðindi mikil og morð fjár. Við skulum sitja heima og fara hvergi. Svo sofa menn á þessu um stund. Svo byrja þeir aftur að blása til nýrra óskasigra á næstu leikum. Víkverji Morgunblaðsins er einn þeirra sem reynir að leggja út af ólympíutíðindum. Hann segir á þessa leið í gærdagspistli sínum: „Fólk liggur yfir sjónvarpinu að næturlagi um þessar mundir og fylgist með Ólympíuleikunum í Seúl. Frammistaða íslensku íþróttamannanna þar er íhugun- öarefni. Raunar mætti fremur segja að þær væntingar sem for- ystumenn íþróttahreyfingarinnar og fjölmiðlar byggja upp um hugsanlegan árangur þeirra séu til umhugsunar. Er þetta gert til þess að ná í meira fjármagn? Er þetta ástæðan fyrir því að þessir ungu menn virðast ekki hafa út- hald þegar til kastanna kemur, þótt þeir hafi náð frábærum ár- angri á öðrum mótum? Það er mikið sálrænt álag að vita af heilli þjóð bíða í ofvæni eftir því að menn komist á verðlaunapall". Ef kenningin sem felst í þess- um spurningum er rétt, þá ætti það að verða notadrýgst íslensk- um íþróttamönnum á stærstu mótum, ef íslenska sjónvarpið skrópaði á leikunum og mör- landar kærðu sig kollótta um framgöngu þeirra. Ef engin býst við neinu þá er engin spenna og engin vonbrigði en þeim mun meiri gleði væntanlega yfir þeim týndum íþróttasauði sem snarar sér á verðlaunapall öllum á óvart. Kannski ættum við að koma okkur upp leynisportmönnum sem enginn veit um fyrirfram og láta þá keppa í leirdúfuskyttiríi eða einhverju þesslegu? Eitt eigum við samt Hugmyndir Víkverja um niðurfellingu ofvænis og vænt- inga stangast reyndar á við aðra merka kenningu, sem hefur nokkuð látið á sér kræla á íþrótta- síðum Tímans síðustu daga. En hún er sú, að hvað sem íþrótta- mönnum líður, þá megi ísland vera stolt af því að eiga merkileg- ustu áhorfendurna í Seúl. Fréttaritari blaðsins í Seúl segir að „íslensku áhorfendurnir vekja fádæma athygli hvar sem þeir koma“. Meira en svo - þeir ráða úrslitum í heilum handbolta- Ieikjum - að minnsta kosti ef aðr- ir eiga í hlut. Þeir komu, segir Tímin.i, á leik Ungverja og Suður-Kóreumanna og „hvöttu S-Kóreumenn af krafti og er það mál manna að hvatning þeirra hafí gert gæfumuninn í þeim leik“. Um frábæra frammistöðu áhorfenda í leik íslands og Bandaríkjanna segir svo: „Klæddir íslensku fánalitun- um, með lúðra, fána og veifur, stóðu þeir sig frábærlega. Sem dæmi um athyglina sem þeir vöktu má nefna, að danska press- an tók viðtal við félaga úr hópn- um og birti myndir af þeim í dönsku blöðunum.“ Sem sagt gott. Ef allt annað bregst gætum við - með táknrænum hætti náttúrlega - hlotið fyrstu verðlaun á ólympíu- leikum. Fyrir frábæra, samstillta og áhrifadrjúga áhorfendur. „Óþolandi að hafna alltaf í þrettánda sæti“ Þjóðviljinn Síðumúla 6 ■ 108 Reykjavík Sími 681333 Kvöldsími 681348 Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. RitstjórarrÁrni Bergmann, MöröurÁrnason, ÓttarProppé. Fréttastjóri: Lúövík Geirsson. Blaðamenn:DagurÞorleifsson,Guömundur RúnarHeiðarsson, Heimir Már Pétursson, Hjörleifur Sveinbjörnsson, Kristófer Svavarsson, Magnús H. Gíslason, Lilia Gunnarsdóttir, ólafur Gíslason, Páll Hannesson. SiguröurÁ. Friöþjófsson, Sævar Guðbjörnsson, ÞorfinnurÓmarsson (íþr.). Handrita-og prófarkalestur: Elías Mar, HildurFinnsdóttir. Ljósmyndarar: Einar Ólason, Jim Smart. Útlitstoiknarar: KristjánKristjánsson, KristbergurÓ.Pétursson FramkvæmdaetjórLHallurPáll Jónsson. Skrlfstofustjóri: Jóhanna Leópoldsdóttir. Skrifstofa: Guörún Geirsdóttir, Kristín Pétursdóttir. Auglýsingastjóri: Olga Clausen. Auglý8ingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Unnur Ágústsdóttir, Sigurrós Kristinsdóttir. Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, ÞorgeröurSigurðardóttir. Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Husmóðir: Anna Benediktsdóttir Útbreiöslu- og afgreiðslustjórl: Björn Ingi Rafnsson. Afgreiðsla: Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir. Innheimtumaður: Katrín Bárðardóttir. Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, símar: 681333 & 681663. Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310. Umbrotog setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 70 kr. Nýtt helgarblað: 100 kr. Áskriftarverð á mánuði: 800 kr. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Þriðjudagur 27. september 1988

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.