Þjóðviljinn - 28.09.1988, Blaðsíða 14
/í dag/
Glóruleysi
í pistli mínum hér í blaöinu í
gær vék ég að því aö það þyrfti
engan að undra þótt drjúgan tíma
hafi tekið að koma saman ríkis-
stjórn á íslandi. Og þær eru bún-
ar að vera nokkuð margar við
völd þó að ekki sé litið lengra aft-
ur en til lýðveldisstofnunarinnar.
Fæstar þeirra hafa dáið eðli-
legum dauða, þ.e. enst heilt kjör-
tímabil.
Það er ekkert við þessu að
gera, segja menn, lýðræðið er nú
einu sinni svo og er það ekki það
stjórnarfar, sem við viljum búa
við? Jú, mikið rétt, en á hitt verður
ekki fallist, að óstööugt stjórnarf-
ar sé óhjákvæmilegur fylgifiskur
lýðræðislegra stjórnarhátta.
Mesta ólán íslenskra stjórn-
mála er hvað við skiptum okkur í
margaflokkaog flokksbrot. Þó
keyrði um þverbak við síðustu Al-
þingiskosningar. Voru það ekki
einir níu flokkar og samtök sem
stloðu þá að framboðum? Gömlu
flokkarnir fjórir, Kvennalistinn,
Þjóöarflokkurinn, Flokkur
mannsins, Borgaraflokkurinnog
samtök Stefáns Valgeirssonar.
Hvaða vit er í þessu fyrir þjóð,
sem ekki er fjölmennari en ein
smáborg úti í heimi? Svo margir
flokkar hafa engan eðlilegan
þjóðmálagrundvöll á að byggja.
Menn búa sér bara einfaldlega til
ágreiningsef ni og þegar svo er
komið eru stjórnmálin orðin ein-
berskrípaleikur.
Þegar ég by rjaði að hafa af-
skipti af stjórnmálum, þá innan
við tvítugt, voru uppi þrjár megin
stefnur í íslenskum stjórnmálum
og á þeim byggðist flokkaskipun-
in. Þessarstefnurvoru,-og nota
ég þá orð Jónasar frá Hriflu -
samvinnustefnan, sameignar-
stefnan og samkeppnisstefnan
og flokkarnir samkvæmt því þrír,
Framsóknarflokkur, Alþýðuflokk-
urog íhalds-ogsiðarSjálfstæð-
isflokkur. Síðarklofnuðu Komm-
únistar út úr Alþýðuflokknum, af
því að á milli bar um leiðir að
markinu. Alþýðuflokksmenn
vildu fara leið lýðræðis og þing-
ræðis. Kommúnistumvarhún
ekki föst í hendi. Síðar nálguðust
þessir flokkar hvor annan nokkuð
á ný en hafa þó aldrei getað vaxið
með öllu frá gömlum og
óskynsamlegum erjum. í áranna
rás hefur málið einfaldast. í raun-
inni eru ríkjandi
stjórnmálastefnur hérlendis að-
einsorðnartvær, félagshyggjan
og frjálshyggjan. Hvaða glóra er í
því að fylgismenn þessara
tveggja stefna skipti sér í níu
hópa? Hver hagnast á því? Eng-
inn. Hvertaparáþví?Allir. Er
ekki nluverandi ástand í íslensku
atvinnu- og þjóðmálalífi órækust
sönnun þessa?
-mhg
ÍDAG
er28.september, miðvikudagurí
tuttugustu og þriðju viku sumars,
sjöundi dagur haustmánaðar,
272. dagur ársins. Sól kemur upp
í Reykjavík kl. 7.28 en sest kl.
19.07. Tungl minnkandi á þriðja
kvartili.
VIÐBURÐIR
Dáinn Þorsteinn Erlingsson
1914. Stofnað Fyrsta alþjóðas-
amband verkalýðsins 1864.
ÞJÓÐVILJINN
FYRIR50 ÁRUM
England, Frakkland og Sovétr-
íkin munu standa meðTekkósló-
vakiu ef þýski herinn ræðst inn í
landið. Boðskapur Englendinga
til Hitlers áður en hann hélt ræð-
una.
Ferðalag Einarsog Héðins.
Góður fundur á Sauðárkróki.
Fundahöld í Húnavatnssýslu ó-
framkvæmanleg vegna mænu-
veikinnar.
Guðni Egilsson múrari sjö-
tugur.
UM ÚTVARP & SJÓNVARP #
Frá ísrael
Rás 1, kl. 22.30
Fyrir skömmu var fluttur í
Ríkisútvarpinu þáttur um ísra-
elsríki en það er 40 ára um þessar
mundir. Um þennan þátt sá Árni
Sigurðsson. í þættinum var leitast
við að varpa ljósi á söguna og þau
atvik, sem leiddu til stofnunar fs-
raelsríkis. Síðari hluti þessarar
dagskrá verður svo fluttur kl.'
22.30 í kvöld. Um hann segir
Árni:
„Þetta verður almenn umfjöll-
un, þar sem reynt verður að gefa
fólki innsýn í ástandið í ísrael eins
og það er nú. Fólk heyrir stöðug-
ar fréttir af mannvígum en veit
ekki hvað er að gerast á bak við
tjöldin."
Árni Sigurðsson ferðaðist um
ísrael í sumar og ræddi þá við
fjölmarga. Hvað segir þetta fólk
um heimaland sitt og framtíð
þess? Hver er t.d. staða kvenna í
þessu ríki? Þá verður enn sem
fyrr fjallað um samskipti íslands
og ísraels og leiknar upptökur frá
heimsókn Davíðs Ben Gurion
hingað árið 1962.
-mhg
Örlaga-
glíma
Rás 2 kl. 4.00 og Sjónvarp kl.
21.20.
Sovétmenn eiga nú á að skipa
einu besta handboltaliði heims-
ins. Allt um það fóru svo leikar,
er íslenska landsliðið lék við
Sovétmenn í Laugardalshöllinni
þann 24. ágúst s.l., að íslendingar
sigruðu með tveggja marka mun:
23 mörk gegn 21, óvænt úrslit og
ánægjuleg. Og nú mætast þessar
þjóðir aftur á ólympíuleikunum
og er nú meira í húfi en nokkru
sinni fyrr. Niðurstaðan frá 24. ág-
úst gefur vonir um að úrslitin nú
geti orðið tvísýn, takist íslending-
um að sýna ýtrustu getu, en
minna dugar heldur vart.
Leiknum var lýst í beinni út- verður síðan sýndur í Sjónvarp-
sendingu á Rás 2 kl. 4 í nótt og inu kl. 21.20 í kvöld. -mhg
Einka-
væðing
Stöð 2, kl. 21.30
Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son heldur áfram með þjóðmála-
þætti sína á Stöð tvö í kvöld. Að
þessu sinni verður fjallað um
„einkavæðinguna", sem svo er
nefnd. Rakin verður þróun þess-
ara mála bæði hérlendis og er-
lendis og rökrætt um hana. Boð-
að er að fjölmargir aðilar komi
fram í þættinum en sérstaklega
verði þó rætt við: Steingrím Ara
Arason hagfræðing, Birgi Árna-
son hagfræðing, Árna Vilhjálms-
son prófessor, Ingibjörgu Sól-
rúnu Gísladóttur borgarfulltrúa,
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra, Davíð Oddsson borgar-
stjóra og Jóhannes Nordal seðla-
bankastjóra. Spurningin er hvort
ekki sé farið yfir hleðslumörkin
með slíku fjölmenni í hálftíma
þætti?
-mhg
GARPURINN
KALLI OG KOBBI
FOLDA
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 28. september 1988