Þjóðviljinn - 25.10.1988, Blaðsíða 6
þJÓÐVIUIHN Málgagn
sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar
Furður í
borgarstjóm
Níu Sjálfstæðismenn samþykktu á borgarstjórnarfundi í
síðustu viku að lækka verulega styrk frá borginni til barna-
heimila sem rekin eru af foreldrum og öðru framkvæmda-
fólki utan opinbera kerfisins.
Þessi samþykkt borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins snertir
foreldra barna á heimilunum Ósi og Sælukoti til dæmis
þannig að nú blasir við þeim að borga 24 þúsund fyrir barn á
mánuði í stað 16 þúsund áður.
Með ákvörðun sinni eru Sjálfstæðismennirnir í borgar-
stjórn Reykjavíkur raunar ekki aðeins að gera foreldrum
barna á tveimur heimilum eða þremur slæman óleik. Þeir
eru líka að skella hurðum á eina af þeim leiðum sem halda
þarf opnum til að nálgast einhverskonar lausn á hallærinu í
dagvistarmálum. Aðstandendur á þeim barnaheimilum sem
hér um ræðir helst hafa miðað við að kostnaður foreldra yrði
ekki meiri en hjá dagmæðrum, - sumsé um sextán þúsund.
Ákvörðun Sjálfstæðismannanna kippir nú undan því fótun-
um að foreldrar í vandræðum geti hugað að sjálfstæðum
rekstrarkosti frammyfir dagmæðrakerfið, og er raunar verð-
ugt verkefni fyrir nýju hugmyndafræðinefndina í Sjálfstæðis-
flokknum að átta sig á hinu röklega samhengi þessarar
flokksstefnu. Heimatökin eru hæg, formaður hugmynda-
fræðinefndarinnar er einmitt Davíð Oddsson, leiðtogi Sjálf-
stæðismannanna í borgarstjórninni.
Þetta er satt að segja stórfurðuleg ráðstöfun. Árlegur
sparnaður við breytingarnar sem samþykktar voru í dagvist-
armálunum mun vera um miljón krónur. Það er nánast ekki
neitt á mælikvarða borgarinnar - til dæmis aðeins um einn
fimmhundruðasti af kostnaðinum við skopparakringluna -,
og þessvegna ekki furðulegt þótt borgarbúar spyrji hvort
stjórn dagvistar í borginni fari eftir persónulegri heift ein-
hverskonar í garð aðstandenda þeirra barnaheimila sem
fyrir verða, eða hvort Sjálfstæðisfulltrúarnir níu þjáist af
einhverri hingaðtil ókunnri tegund mannfjandsamlegrar
geðsóttar.
Þegar litið er á frásagnir af því sem sagt var og gert á
borgarstjórnarfundinum á fimmtudagskvöldið kemur í Ijós
að sennilega er það ekki mannvonska eða barnhatur sem
ræður gerðum Sjálfstæðismannanna og borgarstjórans í
málinu, heldur miklu frekar þekkingarleysi og þröngsýni.
Þar sagöi Anna K. Jónsdóttir, sem Sjálfstæðisflokkurinn
hefur sett til að stjórna dagvistarmálum fyrir borgarbúa, til
dæmis frá því að niðurskurðurinn á rekstrarstyrkjunum væri
liður í að beina börnum á leikskóla þarsem þau væru aðeins
rúman hálfan daginn í stað heilsdagsvistunar.
Anna K. Jónsdóttir og félagar hennar úr Sjálfstæðis-
flokknum telja einnig að með því að skera niður styrk til
heilsdagsheimila sé verið að stemma stigu við vinnuþrælk-
un ungra foreldra, bæta samskipti foreldra og barna og
stuðla að fyllra og ástúðlegra heimilislífi á Reykjavíkursvæð-
inu.
Það eru sumsé fagrar hugsjónir sem ráða aðförinni að
börnum og foreldrum á Ósi, Sælukoti og víðar.
Anna K. Jónsdóttir virðist sumsé ekki haldin mannvonsku
á mjög háu stigi, og full ástæða til að óska henni og félögum
hennar til hamingju með það.
Gallinn við Önnu K. Jónsdóttur og flokksfélaga hennar í
borgarstjórn Reykjavíkur er hinsvegar sá að veruleiki þeirra
er annar en meginþorra íbúa í borginni. Veruleiki Önnu K.
Jónsdóttur er greinilega ekki sá sami og þeirra foreldra sem
tugþúsundum saman vilja eiga kost á góðu og traustu dag-
heimilisrými allan daginn, bæði vegna nauðsynlegrar at-
vinnu og til að firra börn sín flandri og þeytingi.
Veruleiki Önnu K. Jónsdóttur og félaga hennar er veru-
leiki forréttinda og ríkidæmis, veruleiki yfirstéttarklíkunnar.
Þetta lið skilur einfaldlega ekki hvernig daglegt líf er í
landinu, og þessvegna heldur Anna K. og kó að það sé
snjallt ráð til að bæta samskipti foreldra og barna að loka
bara dagheimilunum.
Þessi skilningur á högum fólksins í borginni minnir eigin-
lega helst á söguna frægu af drottningunni Maríu Antonettu
þegar hún horfði fyrir tvö hundruð árum tæpum á þegna sína
biðja um brauð og spurði afhverju aumingjans mennirnir
fengju sér ekki kökur. _m
ivijir x x wvj oivuiviir
Samræmdur
hugsunarháttur
Þjóðfélög eru náttúrlega hvert
öðru ólík. En hvort sem okkur
líkar betur eða verr, þá stækkar
jafnt og þétt sá samnefnari sem
stundum er kallaður „alheims-
þorpið".
Þetta á ekki síst við í pólitík.
Menn hafa fjasað tölvert um
það í sambandi við kosningaslag í
Bandaríkjunum nú, að forseta-
efnin forðast sem mest þau mega
að tala um leiðindamál eins og
gífurlegan halla á fjárlögum.
Greinarhöfundur í Time sagði að
þetta væri ósköp eðlilegt: Repú-
blikanar vildu ekki hækka skatta
og Demókratar vildu ekki draga
úr útgjöldum ríkisins. Og kjós-
endur væru á sama máli og báðir
aðilar.
Þetta er að breyttu breytanda
ósköp íslensk staða mála - eða þá
dönsk eða frönsk. Dæmið gengur
náttúrlega ekki upp - og því fara
menn að tala um eitthvað annað.
Sá sem ætlar að taka á málunum -
hann verður áreiðanlega brennd-
ur.
Áhrifamáttur
auglýsinga
Áhrifamáttur auglýsinga teygir
margar rætur niður í samfélagið
og greinast þær vítt og breitt. Ein
slík rót nærist á þeirri hugmynd
manna að þeir eigi gott skilið eftir
unna þraut. Þess vegna sýna
margar auglýsingar vinnugarp
nokkurn sem hefur plægt stóran
akur eða ausið upp mörgum
tonnum með vélskóflu. Hann
strýkur hörðum höndum yfir
sveitt enni sitt og fær sér sígarettu
með hreinum svip hinnar góðu
samvisku, því skrifað stendur:
Nú á hann skilið að fá Camel.
Aðrar auglýsingar eru eins-
konar hermigaldur. Kvikmynd-
astjörnur nota Lúxsápu og því
skalt þú kaupa hana til að líkjast
þeim - í anda ef ekki sannleika. I
rauninni er sú aðferð að tengja
fræg nöfn við það sem selja þarf
ein sú útsmognasta og öruggasta
sem til er. Þess vegna kemur eng-
um mjög á óvart frétt í Morgun-
blaðinu á dögunum þar sem þetta
hér kemur fram:
Nancy í lánsflíkum
„Bandaríska vikuritið Time
segir frá því í þessari viku að
Nancy Reagan, eiginkona Ron-
alds Reagans Bandaríkjaforseta,
hafi brotið loforð sitt frá árinu
1982 um að hætta að fá lánuð dýr
föt og skartgripi hjá þekktum
tískuhönnuðum...
Fyrir sex árum hét Nancy Re-
agan því að hætta að þiggja dýrar
tískuvörur að láni eftir að sú
venja hennar komst í hámæli og
olli pólitísku hneyksli.Time vitn-
ar í David Hayes, tískuhönnuð í
Los Angeles, sem segist hafa lán-
að Nancy milli 60 og 80 kjóla und-
anfarin átta ár og hafi það haft
mjög góð áhrif á söluna hjá hon-
um. Starfsmenn hjá tískufyrir-
tæki James Galamos hafa svipaða
sögu að segja.“
Frú Reagan skilaði svo þessum
lánsfötum sjaldnast, en það er
önnur saga. Það sem skiptir máli í
því dæmi sem nú var nefnt er bar-
asta þetta: salan óx að miklum
mun um leið og húsfreyjan í
Hvíta húsinu lét sjá sig í flíkum
tiltekins fyrirtækis. Og það gerist
vegna þess, að menn draga ekki
ótilneyddir dám af sínum sessun-
aut - helst vilja þeir (og þær)
draga dám af höfðingjum. Hvað
höfðingjarnir hafast að...
Viltu gefa mér einn
gráfeldinn?
Allt er þetta löngu vitað og
væri ekki upp rifjað hér, ef ekki
væri hægt að sýna fram á það með
skýru dæmi, að íslenskir menn
hafi ótrúlega snemma áttað sig á
mætti auglýsinganna, og þá ein-
mitt þess auglýsingagaldurs sem í
nafni er fólginn. Dæmið er að
finna í Heimskringlu Snorra
Sturlusonar og fer sú saga hér á
eftir: „Haraldur konungur sat
oftast á Hörðalandi og Rogalandi
og svo þeir fleiri bræður. Þeir
sátu oftliga í Harðangri. Það var á
einu sumri að hafskip kom af ís-
landi er áttu íslenskir menn. Það
var hlaðið af vararfeldum og
héldu þeir skipinu til Harðan-
gurs, því að þeir spurðu að þar
var fjölmenni mest fyrir. En er
menn komu til kaupa við þá, þá
vildi engi kaupa vararfeldina. Þá
fer stýrimaður á fund Haralds
konungs, því að honum var hann
áður málkunnugur, og segir hon-
um til þessa vandræða. Konung-
ur segir, að hann muni koma til
þeirra og gerir hann svo. Harald-
ur konungur var maður lítillátur
og gleðimaður mikill. Hann leit á
vaming þeirra og mælti við stýri-
mann. Viltu gefa mér einn grá-
feldinn? Gjarna, segir stýrimað-
ur, þótt fleiri sé. Þá tók konungur
einn feldinn og skikkti. Síðan
gekk hann ofan í skútuna. En
áður þeir röru á brot, hafði hver
hans manna feld keyptan. Fám
dögum síðar kom þar svo margt
manna, þeirra er hver vildi feld
kaupa, að eigi fengu hálfir þeir er
hafa vildu. Síðan var hann kallað-
ur Haraldur gráfeldur.“
Víða má fá efni í þjóðarstolt, ef
menn kæra sig um. Armenskur
blaðamaður sagði eitt sinn í
þjóðajöfnuði við rússneska
starfsbræður sína, sem ekki
nenntu að hlusta á það hve
merkilega sögu land hans ætti: Já
- og við áttum lækna á þeim tíma
þegar þið áttuð ekki einu sinni
sjúklinga. Við gætum okkur til
huggunar í hvalaraunum og öðru
viðskiptafári sagt við þá í Amer-
íkunni: við kunnum markaðs-
setningu jafnvel áður en við fund-
um þetta land ykkar, sem aldrei
skyldi verið hafa.
Eða þannig.
-ÁB
Þjóðviljinn
Síðumúla 6 • 108 Reykjavík
Sími 681333
Kvöldsími 681348
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Mörður Árnason, Óttar Proppé.
Fróttastjóri: Lúðvík Geirsson.
Blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson,
Heimir Már Pétursson, Hjörleifur Sveinbjörnsson, Kristófer
Svavarsson, Magnús H. Gíslason, LiliaGunnarsdóttir, Olafur
Gíslason, Páll Hannesson. Sigurður A. Friðþjófsson, Sævar
Guðbjörnsson, Þorfinnur Omarsson (íþr.).
Handrita-og prófarkalestur: ElíasMar, HildurFinnsdóttir.
Ljósmyndarar: Einar Ólason, Jim Smart.
Útlitsteiknarar: Kristján Kristjánsson, KristbergurO.Pétursson
Framkvæmdast jóri: Hallur Páll Jónsson.
Skrifstofustjóri: Jóhanna Leópoldsdóttir.
Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pétursdóttir.
Auglýsingast jóri: Olga Clausen.
Auglysingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Unnur
Ágústsdóttir, Sigurrós Kristinsdóttir.
Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, ÞorgerðurSigurðardóttir.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Húsmóðir: Anna Benediktsdóttir
Útbreiðslu-og afgreiðslustjóri: Björn Ingi Rafnsson.
Afgreiðsla: Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir.
Innheimtumaður: Katrín Bárðardóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, símar: 681333 & 681663.
Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasolu: 70 kr.
Nýtt helgarblað: 100 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 800 kr.
.6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 25. október 1988