Þjóðviljinn - 25.10.1988, Page 16
—SPURNINGIN-
Hvað finnst þér um
frammistöðu íslensku
skákmannanna á heims-
bikarmóti Stöðvar 2?
Bragi Bjarnason
leigubílstjóri:
Hún er nokkuð góð, og þá sér-
staklega hjá Jóhanni.
Selma Dóra Þorsteins-
dóttir fóstra:
Ég er alsæl með frammistöðu Jó-
hanns, enda mikill aðdáandi
hans. Ég hef trú á að hann eigi
eftir að ná langt i skákinni.
Pétur Már Halldórsson
nemi:
Mér finnst hún glæsileg, enda
ekki við neina smákalla að etja.
Jóhann gefur staðið sig afburða-
vel og Margeir komið skemmti-
lega á óvart.
Róbert Gunnarsson
nemi:
Mér finnst Jóhann hafa staðið sig
ágætlegaog Margeirframarvon-
um.
Helga Kristjánsdóttir
húsmóðir:
Mér finnst hún alveg sæmileg,
sérstaklega hjá Jóhanni; honum
tekst alltaf að koma á óvart.
SIMI 681333
Á KVÖLDIN
681348
Á LAUGARDÖGUM
681663
/V/iV.VK
’&y/z&MÁ
WMmm
Einar Örn Einarsson sem leikur Manna, Ágúst Guðmundsson leikstjóri og Garðar Þór Cortes sem leikur Nonna í hljóðveri ásamt
tæknimönnum, þar sem nú er unnið að því að lesa íslenskan texta inn á Nonna þættina. Mynd ÞÓM.
Sjónvarp
Nonna þættimir íslenskaðir
Fyrstiþátturinn sýndur á jóladag íSjónvarpinu. Síðan einnþáttur á dagframtil30. desember.
Agúst Guðmundsson: Menn stilltu sig inn á fjölskyldumynd
Þessa daga er verið á vegum
Sjónvarpsins að tala íslcnskan
texta inn á myndaflokknum
Nonna sem sýndur verður um jól-
in í Sjónvarpinu. Þættir eru sex
um það bil klukkustunda langir
hver. Fyrsti þátturinn verður
sýndur á jóladag og verður síðan
sýndur einn þáttur á dag.
Eins og kunnugt er voru þessir
þættir tekir upp hér á landi í
fyrrasumar og byggja á bókum
Jóns Sveinssonar um Nonna og
Manna. Það er Ágúst Guð-
mundsson sem leikstýrir þeim, og
sér hann einnig um að setja ís-
lenskt tal inn á þá fyrir Sjónvarp-
ið. í stuttu viðtali við Árna Berg-
mann sem tekið var í Flatey í
fyrra þegar upptökur stóðu sem
hæst sagði Ágúst þegar hann var
spurður hvers konar meðferð þær
sakleysislegu Nonnabækur fái
áður en þær verða að framhalds-
söga í sjónvarpi á okkur dögum:
- Vissulega er farið frjálslega
með. Til dæmis er Haraldur sem
þeir Nonni og Manni rekast á
gerður að heilmikilli persónu.
Hann hefur orðið manni að bana
en við sýknum hann af því og
komum - með aðstoð Nonna sem
er viss um sakleysi hans - ábyrgð-
inni yfir á Magnús Hansson. Það
má segja já, að við skerum morð-
ið sundur og skeytum það saman,
sagði Ágúst,
-Frumkvæðið að gerð þessarar
myndar kemur frá Þjóðverjum.
Joachim Hamman gerði handrit-
ið og svo fór Bretinn Richard Co-
oper yfir það og kom að ýmsum
breytingum og ég hefi síðan reynt
að taka burt úr því ýmislegt sem
mér fannst óíslenskt. Þessir menn
höfðu hvorugir komið til íslands,
en það gerir ekkert til. Þeir settu
inn ýmislegt sem mér hefði aldrei
dottið í hug, til dæmis lenda
strákarnir og Haraldur í nokkr-
um háska í eldgosi. Jón Sveinsson
hefur vissulega auga fyrir ýmsum
spennuþáttum, hann lætur allt
koma fyrir Nonna sem strákar
gátu lent í - sjávarháska, slag við
ísbirni, kynni af útilegumönnum
og fleira, en eldgosi sleppi hann.
En ég held að eldgosið hafi tekist
mjög vel - við fórum út í Ber-
serkjahraun með heyblásara og
blésum gráu sagi í gríð og erg með
tilheyrandi eldglæringum og
þetta kom vel út, sagði Ágúst.
- Ég held, sagði Ágúst, að
menn hafi frá upphafi stillt sig inn
á fjölskyldumynd. Handritið frá
Hamman var þannig að góðir
menn voru firnagóðir og vondir
menn alillir, en Cooper hefur
eins og dregið úr þeim mun, kom-
ist nær veruleikannum, sagði Ág-
úst Guðmundsson um þátta-
röðina í viðtali við einn leika-
rann, Árna Bergmann, þegar
filmað var á fullu í Flatey á
Breiðafirði í fyrra.
Nonna og Manna leika þeir
Garðar Þór Cortes og Einar Órn
Einarsson, en þeir eru nú á
leiðinni til Múnchen ásamt
leikstjóranum. Þar verður í vik-
unni stór kynning á þessari þátt-
aröð sem vafalaust á eftir að fara
víða. Þannig mun vera ákveðið
að sýna þættina um jólarleytið í
V-Þýskalandi, Sviss og Austurr-
íki.
Síðast liðið sumar var Flatey á Breiðafirði undirlögð um tíma, vegna
töku á Nonna þáttunum. Mynd: ÁB