Þjóðviljinn - 29.10.1988, Page 11
/
Santeria breiðist út
Blótmenn og dýravinir
í hár saman
Israelsku kosningarnar:
Obreytt áfram eða hörð hægristjóm?
Flokkum lengst til hœgri og vinstri spáð fylgisaukningu
Eitt afþvísem sýnir aukin rómanskamerísk áhrifí bandarísku
r
Urslitanna í þingkosningunum í
ísrael, sem fara fram 1. nóv.
n.k., er beðið með verulegri eftir-
væntingu, eins og eðlilegt má
kalla, með hliðsjón af ástandinu
þarlendis, á svæðum hersetnum
af ísraelum og í Austurlöndum
nær yfírleitt. Kosningaspár eru
ekki á eina lund, en einna lík-
legast er þó talið að stóru flokk-
arnir tveir, Verkamannaflokkur-
inn og Likud, muni tapa fylgi til
flokka á köntunum.
Verkamannaflokkurinn er
stærsti flokkurinn til vinstri í ísra-
elskum stjórnmálum, Likud (sem
að forminu til að minnsta kosti er
flokkabandalag) hinsvegar helsti
hægriflokkurinn. Þeir hafa
stjórnað í félagi síðan 1984 og oft
verið brösótt milli þeirra, eins og
vænta mátti. „Þjóðareiningar-
stjórnin", eins og stóru flokkarn-
ir kölluðu samsteypustjórn sína,
hefur af almenningi verið kölluð
„þjóðaróeiningarstjórn“. Fæstir
Israela virðast vilja hafa slíka
stjórn áfram, hvað svo sem þeir
hugsa um stjórnmálin að öðru
leyti.
Engu að síður eru verulegar
líkur á því, samkvæmt niðurstöð-
um skoðanakannana, að kosn-
ingaúrslitin leiði til þess að lands-
menn verði að búa við sam-
steypustjórn Verkamannaflokks-
ins og Likud áfram, hvort sem
þeim líkar betur eða ver. En hitt
er engu síður líklegt að staðan
verði sú eftir kosningar að Likud
myndi stjórn með flokkunum til
hægri við sig, sem eru ýmist mjög
þjóðernissinnaðir eða strangtrú-
aðir.
Sennilegast þykir að stóru
flokkarnir báðir muni tapa ein-
hverju fylgi, Likud til hægri og
Verkamannaflokkurinn til
vinstri, það er að segja til flokka
sem eru kommúnískir og/eða
njóta einkum fylgis araba. Þetta
fylgistap myndi að líkindum leiða
til þess, að Likud færði sig til
hægri en Verkamannaflokkurinn
til vinstri, bæði til að vinna upp
tapið og af því að hvor þeirra um
sig yrði að koma til móts við smá-
flokkana á kantinum sín megin.
Fari svo að næsta ísraelsstjórn
verði samsteypustjóm Likud og
flokka á hægri kantinum, eru lík-
ur á því að meiri hörku verði beitt
til að bæla niður óeirðimar í
Vesturbakkahéruðunum og
Gaza og að fleiri nýbyggðir gyð-
inga verði stofnaðar þar. Þess-
konar gallhörð hægristjórn gæti
líka átt það til að þverneita að
verða með á alþjóðlegri friðar-
ráðstefnu til að binda enda á ill-
deilur ísraels og araba, en undan-
farið hafa þótt aukast líkur á að
hægt yrði að koma deiluaðilum
saman á slíka ráðstefnu, sem
væntanlega yrði haldin á vegum
Sameinuðu þjóðanna.
Yrði niðurstaðan hinsvegar sú
eftir kosningar að Verkamanna-
flokkurinn myndaði stjóm með
flokkunum til vinstri við sig,
myndi varla standa á ísraelum að
friðarráðstefna yrði haldin, enda
er Shimon Peres, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, því sjálfur mjög
fylgjandi. En líkurnar á vinstri-
sigri, sem gerðu myndun slíkrar
stjórnar mögulega, eru taldar litl-
ar.
dþ.
lýði hjá þeim og eru einna helst
blanda úr kaþólsku og afrískum
trúarbrögðum, sem flutt voru til
nýja heimsins svokaltaða með
þrælunum á sínum tíma. Af þeim
er Voodoo Haitimanna þekktast,
en önnur trú svipaðs eðlis, kölluð
Santeria, nýtur um þessar mundir
vaxandi útbreiðslu og athygli í
Bandaríkjunum.
Kúbanskt Voodoo
Santeria mun upphaflega eink-
um hafa verið útbreidd á Kúbu,
en þarlandsmenn eru að verulegu
leyti af afrískum uppruna. Þar
hefur trúin einnig gengið undir
nafninu Lucumi. Goð sín hafa
þessarar trúar menn að sögn
einkum fengið frá Jorúbum, sem
eru meðal fjölmennustu þjóða
Nígeríu. Vestan hafs voru þess-
um afrísku ásum gefin nöfn ka-
þólskra dýrlinga og ýmis ytri ein-
kenni þeirra, enda þýðir spænska
orðið Santeria einfaldlega „dýrl-
ingatrú.“
Grundvallaratriði í Santeria
eru dýrablót, og það eru einmitt
þau, sem í Bandaríkjunum hafa
vakið mesta athygli á trúnni og
um leið gagnrýni á henni. Þetta
telja margir lögfróðir menn og
dýravinir að brjóti í bága við
bandarísk lög. Eitt sveitarfélag í
Flórída, Hialeah, hefur þegar
bannað slík blót og yfirvöld í Los
Angeles hafa til athugunar að
gera slíkt hið sama. Dýravinir
halda því fram að dýr, sem Sant-
eriamenn hafa valið til blóts, sæti
illri meðferð, séu illa fóðruð og
stundum grálúsug. Einnig séu
dýrin oft pynduð grimmúðlega í
blótveislunum sjálfum, hænsni til
dæmis særð mörgum sárum með
eggjárnum og fætur þeirra brotn-
ir áður en þau séu aflífuð að fullu.
Málsókn gegn
blótbanni
Santeriamenn vitna sér til
varnar í bandarísku stjórnar-
skrána, þar sem kveðið er á um
trúfrelsi. Þeir segja það lygimál
að þeir fari illa með dýr ætluð til
blóts, enda sé það trúaratriði að
slíkar skepnur séu að öllu leyti vel
á sig komnar. Þeir sem fari illa
Fólki af rómanskamerískum
uppruna fjölgar hraðar í Banda-
ríkjunum en nokkrum öðrum
þjóðcrnishópi þarlendis. Þegar
Bandaríkjamenn lögðu Iaust fyrir
miðja 19. öld undir sig svæði það,
sem nú er suðvesturríki þeirra,
var þar þegar fyrir nokkur mex-
íkönsk byggð, og síðan hefur
alltaf verið talsvert um mexík-
anska fólksflutninga norður yfír
landamærin, vegna betri lífskjara
og atvinnumögulcika í Banda-
ríkjunum en Mexíkó.
Síðustu áratugina hafa þessir
fólksflutningar stóraukist af ýms-
um ástæðum. Auk þess sem fleiri
Mexíkanar koma en nokkru sinni
fyrr, er í innflytjendastraumi
þessum sægur af fólki frá Mið-
Ameríku, Vestur-Indíum og
jafnvel Suður-Ameríku. Ýmis-
legt veldur þessum aukna fólks-
straumi norður yfir Rio Grande
og Flórídasund. Gífurleg fólks-
fjölgun ásamt áframhaldandi lé-
legum lífskjörum í Rómönsku
Ameríku er sennilega veigamesta
orsökin. Þótt innflytjendurnir
sjái fram á það að verða að lifa lífi
sínu í nýja landinu í felum um
ófyrirsjáanlega framtíð vegna
ótta við að verða vísað úr landi og
að þeir flestir geti ekki gert sér
vonir um annað en miklu verr
borgaða vinnu en aumustu
Bandaríkjamenn sætta sig við, þá
finnst þeim það skárra en eymdin
heima fyrir.
Bandaríkin að
„rómaníserast“
Byltingar, óöld og borgarastríð
í löndum eins og Kúbu, Haiti,
Gúatemala, Salvador, Níkaragva
og Kólombíu hafa og átt drjúgan
þátt í auknum straumi fólks það-
an til Bandaríkjanna.
Enda þótt Hispanics, eins og
rómanskir Ameríkanar eru opin-
berlega kallaðir í Bandaríkjun-
um, „ameríkaníserist" auðvitað
smátt og smátt að meira eða
minna leyti, eru þeir orðnir það
fjölmennir og áberandi þarlendis
að ekki fer hjá því að Bandaríkin
sjálf séu tekin að „rómaníserast“
í verulegum mæli. Þessa gætir
mest í suðvesturríkjunum, Flór-
ída og stórborgum ýmsum. Hisp-
anics flytja auðvitað með sér
menningu sína, trúarbrögð þar á
meðal, kaþólskuna auðvitað,
sem út á þetta er í hraðri sókn í
þessu ríki, sem stofnað var af
strangtrúuðum mótmælendum
og þar sem mótmælendatrú hefur
síðan verið ríkjandi. En innflytj-
endurnir að sunnan koma einnig
með einskonar neðanjarðartrú-
arbrögð, sem lengi hafa verið við
I augum þessa fólks, sem hér leitar að einhverju ætilegu á sorphaug
við rómanskameríska stórborg, eru Bandríkin draumalandið, sama
hversu kröpp kjör bíða þess þar. Og það flytur með sér siði sína og
trúarbrögð.
Dreypt á blóði fórnardýra á voodooblóti - þannig fara menn einnig að í
Santeria.
með blótdýr séu engir sannir
Santeriamenn, heldur djötla-
dýrkendur og aðrir, sem kannski
með óréttu kenni sig við Santer-
ia.
Einn af goðum Santeriamanna
(santeros eru þeir klerkar kallað-
ir) heitir Ysamur Flores Pena og
er frá Púertóríkó. Hann kveður
Santeria geta Ieyst allan vanda
nema dauðann. „Hversvegna
skyldi ég láta einhverja, sem ég á
ekkert upp að unna, segja mér
fyrir um hvernig ég eigi að nálgast
guð?“ sagði hann nýlega við
fréttamann. í verslunum á vegum
trúflokksins er til sölu ýmislegt,
sem kvað vera trúuðum öruggt til
heilla, þar á meðal reykelsi og
ilmvötn. Flores heldur því fram,
að í Los Angeles og nágrenni séu
nú starfandi ekki færri en um
3000 santeriagoðar og að margir
aðrir en innflytjendur sunnan að
hafi tekið trúna.
Santeriamenn í Hialeah hafa í
hyggju að reyna að hnekkja blót-
banni yfirvalda þar með mál-
sókn.
dþ.
Laugardagur 29. október 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11