Þjóðviljinn - 09.11.1988, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 09.11.1988, Blaðsíða 3
FRETTIR Skák Eitt af tíu efstu íslenska skáksveitin heldur utan á ólympíumótið í Þessalóníku sem hefst um helgina íslensku Ólympíufararnir. Neðri röð frá vinstri: Þráinn fararstjóri, Karl, Þröstur, Jón L. Efri röð: Helgi, Margeir, Jóhann og Kristján liðsstjóri. Mynd: ÞÓM. Sjálfstæðisflokkur Guðmundur í Valhöll Guðmundur Magnússon, fyrrum aðstoðarmaður fyrrver- andi menntamálaráðherra, Birg- is ísleifs Gunnarssonar hefur ver- ið ráðinn til starfa á flokksskrif- stofu Sjálfstæðisflokksins i Val- höll. Verkefni Guðmundar verður að undirbúa nýtt starfsskipulag á skrifstofum flokksins, samkvæmt samþykkt miðstjórnar, og endur- skoða alla starfshætti Sjálfstæðis- flokksins. Naflaskoðunarnefnd Sjálf- stæðisflokksins komst að þeirri niðurstöðu eftir slæma útkomu flokksins í síðustu alþingiskosn- ingum að breyta þyrfti öllu starfs- skipulagi og starfsháttum, ekki síst á flokksskrifstofunni í Val- höll. Á flokksráðs- og formannaráð- stefnu Sjálfstæðisflokksins um næstu helgi verða þessi mál einn- ig til umfjöllunar, þar sem Inga Jóna Þórðardóttir formaður framkvæmdastjórnar ræðir sér- staklega um störf og starfshætti flokksins. Læknar vilja snjómokstur Aðalfundur Læknafélags Austurlands hefur skorað á ráðu- neyti vegamála og fjármála að Oddskarði verði haldið opnu all- an veturinn vegna legu Fjórð- ungssjúkrahússins í Neskaups- stað. Samkvæmt gildandi snjómok- stursreglum er skarðið mokað tvisvar í viku og kemur oftlega fyrir að ófært er yfir það milli Neskaupsstaðar og Eskifjarðar. Islenska skáksveitin stefnir ótrauð á eitt af tíu efstu sætun- um á ólympíuskákmótinu í Þess- alóníku í Grikklandi sem hefst um næstu helgi. Kristján Guðmunds- son liðsstjóri taldi á blaðamanna- fundi skákmannanna í gær ekki ástæðu til annars en hóflegrar bjartsýni þar eð flestir sveitar- manna hefðu tekið stórstígum framförum á tveim umliðnum árum og væri skemmst að minn- ast sigurgöngu Jóhanns Hjartar- sonar. Sveitin er að mestu skipuð sömu einstaklingum og gerðu garðinn frægan í Dubaí í hittið- fyrra, hrepptu fimmta sæti. Þeir eru (tölur tákna borða- röð): 1. Jóhann Hjartarson (2610 elóstig) 2. Jón L. Árnason (2535). 3. Margeir Pétursson (2530). 4. Helgi Olafsson (2525). Varamenn: Karl Þorsteins og Þröstur Þórhallsson. Auk kepp- enda verða þeir Þráinn Guð- mundsson, forseti Skáksam- bands íslands, og dr. Kristján Guðmundsson með í för. Þegar ólympíumótið verður komið vel á veg hefst þing FIDE, Alþjóðaskáksambandsins, í Þessalóníku. Þótt Campomanes, hinn umdeildi forseti, þurfi ekki að óttast embættissviptingu að þessu sinni er búist við erjum og illindum. Forsetinn hefur krafist þess að Garríj Kasparov heimsmeistari biðjist opinber- lega afsökunar á ýmsum niðrandi ummælum um sambandið. Þráinn sagði þetta mál sýna í hnotskurn hina hatrömmu tog- streitu FIDE og Stórmeistara- sambandsins um forystu fyrir skákhreyfingunni. Jóhann upp- lýsti að Stórmeistarasambandið hefði orðið til vegna þess að FIDE Campomanesar hefði snið- gengið óskir og þarfir öflugustu skákmanna. Hann skýrði einnig frá því að sú ákvörðun FIDE að efna til heimsmeistarakeppni í „atskák" („active chess“, umhugsunartími hálf klukkustund per skák) ork- aði mjög tvímælis. Einkum þó að veita mönnum nafnbætur og el- óstig fyrir árangur í þess háttar tafli. Slíkt yki rugling og misskiln- ing. Ekki bætti úr skák að mun léttara verk yrði að afla sér stór- meistaranafnbótar í „atskák“ en í alvöru keppnisskák. Þetta mál yrði rætt í þaula á FIDE þinginu. En hvað sem þessu líður voru keppendur hinir hressustu í gær eftir uppbyggilega þjálfun Boris Spasskíjs. Við óskum þeim góðs gengis. -ks. Albert Guðmundsson: „A ekki von á ákæmm“ „Get ekki ímyndað mér á hvaða hátt ég er riðinn við Hafskipsmálið. Hef aldrei staðið stjórn Hafskips að neinu óheiðarlegu“ Eg get ekki ímyndað mér á hvaða hátt ég er riðinn við Hafskipsmálið, því að þessi vandamál sem að Hafskip komst í eru vandamál sem komu meira en tveimur árum eftir að ég er hætt- ur þar. Þessi vandamál voru ekki til staðar þegar ég var þar, en ég sat í stjórn til 1983, sagði Albert Guðmundsson, þegar Þjóðviljinn ræddi við hann í tilefni af væntan- legum ákærum í Hafskipsmálinu og Utvegsbankamálinu. Segist AI- bert hvorki eiga von á að hann né aðrir stjórnarmenn í Hafskip verði ákærðir. En nú hefur Jónatan Þór- mundsson sagt að rannsókn taki jafnvel aftur til ársins 1981? „Já, hún hlýtur þá að ná eitthvað lengra aftur, þvíHafskip var jú í miklum vanda þegar þess- ir drengir tóku við Hafskip á sín- um tíma og vandamálin sem hvíldu á Hafskip voru eldri en frá árinu 1981.“ Þannig að þú átt sjálfur ekki von á ákæru í þessu máli? „Ég á alls ekki von á því og sé ekki að ég geti verið á einn eða annan hátt bendlaður við þau vandamál sem hafa verið í athug- un. Enda er búið að rannsaka það mál fram og til baka, m.a.s. með sérnefnd skipaðari af Hæstarétti sem rannsakaði sérstaklega út- vegsbankann. Ég er ekki neinn stór hluthafi f fyrirtækinu og verð ekki hluthafi fyrr en ég er beðinn að koma þarna inn sem formaður og þá með tíuþúsund krónum gömlum og ég hef aldrei aukið hlutafé mitt í Hafskip. Þannig að ég hef ekki neitt með það að gera að öðru leyti en því að ég varð við beiðni tveggja vina minna um að taka að mér formennsku." Átt þú von á því að það verði almennt ákœrt íþessu máli núna? „Ég veit það ekki. Ég trúi því ekki að það sé nein ástæða til að ákæra, því ég lít á þessa sam- starfsmenn mína sem voru á sín- um tíma í Hafskip, sem mjög heiðarlega menn. Ég hef aldrei staðið þá að því að gera nokkuð óheiðarlegt og ég get ekki ímynd- að mér að þeir verði ákærðir. Það er nú annað hvert fyrirtæki að fara á hausinn núna í landinu af sömu ástæðum og Hafskip og þar er oft um miklu hærri upphæðir að ræða en um var að ræða í Haf- skipsmálinu. Og í sambandi við Utvegsbankann skilst mér að rík- issjóður sé búinn að taka yfir miklu meira en Hafskip skuldaði þar, þannig að þetta mál er miklu stærra og öðruvísi en það hefur verð kynnt. Þetta er ekki bara Hafskipsmál," sagði Albert Guð- mundsson. phh MR Þröngt við Lækjargötuna Kennarafélag Menntaskólans í Rcykjavík hefur sent frá sér sam- þykkt þar sem vakin er athygli á þeim alvarlega húsnæðisvanda sem skólinn á við að stríða. Skólinn er tvísetinn, þrengsli eru mikil og víða er kennt við algerlega óviðunandi aðstæður. Segja kennarar brýna nauðsyn á skjótum úrbótum. Minna þeir jafnframt á marggefin loforð um úrlausn í húsnæðismálum skólans og skora á ráðamenn að vinda bráðan bug á því að sjá skólanum fyrir viðunandi húsnæði. Vernd Fangar móbnæla sýndarmennsku Fangar á Litla-Hrauni samþykktu ígœr harðorða ályktun um „einrœðisstjórn“ Verndar Trúnaðarráð fanga á Litla- Hrauni hélt fund í gær þar sem fjallað var um málefni Verndar. Mjög góð mæting var á fundinum, enda ofbýður föngum mjög þróun mála innan félagas- amtakanna Verndar. í síðustu viku mætti stjórnmálafræðingur austur á Litla-Hraun og sagðist hann vera sendur þangað af Jónu Gróu Sig- urðardóttur, sem hjálparmaður Björns Einarssonar, félagsmála- fulltrúa Verndar. í ljós kom seinna að Björp hafði ekki hug- mynd um að búið væri að ráða aðstoðarmann sinn. 40 manns sóttu fund trúnaðarráðs í gær og var þar samþykkt einróma eftir- farandi ályktun: „Almennur fundur fanga á Litla-Hrauni hinn 8. nóvember 1988. Fangar mótmæla hverskonar sýndarmennsku í fangahjálp og lýsa vanþóknun á þeim sem gera mannúðarmál að gróðavegi fyrir sig og sína og nota slíka aðstöðu til að ásælast frekari metorð. Fangar skora á fyrrverandi fram- kvæmdastjórn, félagsformann og framkvæmdastjóra félagasam- takanna Verndar að fara að lögum samtakanna og eðlilegum leikreglum lýðræðis; að víkja fyrir nýrri framkvæmdastjórn. Formaður trúnaðarráðs fanga var á aðalfundi samtakanna hinn 22. september þegar þáverandi stjórn var felld í atkvæðagreiðslu. Það er því undrunarefni að unt- boðslaus félagsformaður og framkvæmdastjórn skuli sitja nú- verandi og fyrrverandi föngum til hrellingar og samtökunum til skaða. Fangar sem átt hafa skjól á heimili Verndar að Laugateig 19 eru ofsóttir og reknir við minnsta tilefni. Þetta veldur miklum kvíða hjá þeim sem ekki eiga í önnur hús að venda fyrstu dagana eða vikurnar eftir lausn héðan. Fangar meta að verðleikum starf Björns Einarssonar, fé- lagsmálafulltrúa Verndar og and- mæla hverskonar tilraunum um- boðslausrar forystu samtakanna til að grafa undan Birni í þessu starfi með það fyrir augum að eigna sér það mikilvæga þjónust- uhlutverk sem Björn hefur um árabil gegnt með miklum sóma og er höfundur að. Við teljum okkur ekkert eiga vantalað við stjórnmálafræðing sem hingað er sendur af einræðisstjórn Vernd- ar.“ Ályktun þessi var send dómsmálaráðherra, núverandi og fyrrverandi stjórn Verndar og fjölmiðlum. ____________________ -Sáf_____________________________ Miðvikudagur 9. nóvember 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.