Þjóðviljinn - 09.11.1988, Blaðsíða 7
MENNING
Leikhús
Gunnar heldur sína 21. einkasýningu í Nýhöfn. Mynd - Þóm.
21. sýning Gunnars Arnar
í sýningarsalnum Nýhöfn,
Hafnarstræti 18, sýnir Gunnar
Örn Gunnarsson málverk og
máluö einþrykk unnin á þessu
ári.
Gunnar Örn er fæddur 1946,
fór sautján ára til Danmerkur að
læra sellóleik en sneri sér fljót-
lega að málverkinu. Þetta er 21.
einkasýning Gunnars sem einnig
hefur tekið þátt í fjölda samsýn-
inga. Hann var fulltrúi íslands á
Feneyjatvíárinu sem nú er nýlok-
ið, en sýning á þeim verkum er
fýrirhuguð í New York í febrúar á
næsta ári.
Gunnar Örn á verk á mörgum
söfnum, svo sem Listasafni ís-
lands, Listasafni Háskólans, List-
asafni ASÍ, Saubu Museum í
Tókíó og Guggenheim Museum í
New York. Sýning Gunnars
stendur til 16. nóvember og er
opin virka daga kl. 10-18, og kl.
14-18 um helgar.
Klippimyndir
Örn Karlsson sýnir klippi-
myndir Undir Pilsfaldinum, í
kjallara Hlaðvarpans að Vestur-
götu 3 b. Myndirnar eru tuttugu
talsins, unnar á undanförnum
átta árum.
Örn Karlsson er fæddur ‘52 á
Snæfellsnesi. Þetta er þriðja
einkasýning hans, en auk þess
hefur hann tekið þátt í samsýn-
ingum og verið með fasta sýningu
á Hótel Búðum á hverju sumri.
Örn hefur einnig fengist við að
myndskreyta bækur, einkum
ljóðabækur.
í tengslum við sýninguna verða
ýmsar uppákomur í Undir
pilsfaldinum á sunnudagskvöld-
um. Sýningin stendur til 20. nóv-
ember.
Baltasar sýnir litógrafíur í galler Borg. Mynd-Jim Smart.
Litógrafíur Baltasars
í gallerí Borg stendur yfir sýn-
ing Baltasars á 26 litógrafíum
unnum á þessu ári. Sýningin
skiptist í fimm mismunandi þemu
sem lýsa tilfinningum Baltasars
til íslands sem nú hefur verið
heimkynni hans í tuttugu og fimm
ár. Þemun eru nátttröll, sigur-
bogar, verndargripir, ex libris og
úr Eddukvæðum.
Sýningin er tuttugasta og
þriðja einkasýning Baltasars, og
eru allar myndirnar prentaðar af
honum með aðstoð konu hans á
eigin verkstæði. Myndirnar verða
til sýnis í gallerí Borg til 15. nóv-
ember, galleríið er opið virka
daga kl. 10-18 og kl. 14-18 um
helgar.
Myndverk úr ull
Kristín Jónsdóttir frá Munka-
þverá sýnir myndverk úr ull í
Listasafni ASÍ að Grensásvegi
16, og eru verkin gerð á undan-
förnum tveimur árum.
Kristín stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskólann á
árunum 1949-52, og framhalds-
nám við Kunsthaandværker-
skolen í Kaupmannahöfn 1954-
57. Auk þess var hún um tfma við
nám í Frakklandi og á Ítalíu.
Þetta er hennar fyrsta einkasýn-
ing í Reykjavík, hún hélt sýningu
í Rauða húsinu á Akureyri árið
1981 og hefur einnig tekið þátt í
fjölda samsýninga.
Verk Kristínar eru meðal ann-
ars í eigu Listasafns íslands,
Bergens Kunstforening og Savar-
ia Muzeum Szombathely, Ung-
Kristín Jónsdóttir frá Munka-
þverá sýnir myndverk úr ull í List-
asafni ASÍ.
verjalandi. Sýningin í Listasafni
ASÍ stendur til 20. nóvember, er
opin virka daga kl. 14-20, og 16-
20 um helgar.
Ull í Stöðlakoti
íslensk ull 1988, nefnist sýning
Huldu Jósefsdóttur sem nú
stendur yfir í gamla steinbænum í
Stöðlakoti við Bókhlöðustíg 6.
Hefur bærinn hefur verið endur-
byggður sem sýningarsalur fyrir
íslenskan listiðnað.
Sýningunni, sem stendur til 20.
nóvember er ætlað að varpa ljósi
á stöðu íslenskrar ullar í dag, en
saga hennar er sem kunnugt er
samofin sögu íslensku þjóðarinn-
ar.
Skjaldbakan
komin hringinn
Leikfélag Akureyrar sýnir leikritið Skjaldbakan kemst þangað líka á
Litla sviði Þjóðleikhússins
Þá er Skjaldbakan komin
afturtil Reykjavíkur, nákvæm-
lega fjórum árum eftir frum-
sýninguna sem var í Nýlista-
safninu þann 9. nóvember
1984, en fyrsta sýning Leikfé-
lags Akureyrar á verkinu hér í
borg verður á Litla sviði Þjóð-
leikhússins í kvöld. Skjald-
bakan hefur gert víðreist á
þessum fjórum árum, brugðið
sér til Helsinki, til Dublin,
Kaupmannahafnar og Brig-
hton, - og nú síðast til Akur-
eyrar, þar sem hún var frum-
sýnd þann 7. október síð-
astliðinn. Er óhætt að segja
að þetta sé dálaglegur spotti
fyrir eina skjaldböku að leggja
að baki á ekki lengri tíma.
Skjaldbakan fjallar um sér-
stæða vináttu skáldjöfranna Wil-
liams Carlosar Williams og Ezra
Pounds. Þá greindi á um flest,
lífsstíl, skáldskap og pólitík, en
voru báðir trúir sjálfum sér,
skoðunum sínum og vináttunni
allt til æviloka. Leikritið er ekki
ævisögulegs eðlis, heldur er til-
gangur þess að kasta ljósi á þessa
óvenjulegu vináttu og lífshlaup
tveggja gjörólíkra manna, Wil-
liams, sem var heima og „ræktaði
garðinn sinn“ og Pounds sem
þeysti um heiminn og eirði
j hvergi.
Árni Ibsen skrifaði verkið upp-
haflega fyrir Egg-leikhúsið, og
var fyrsta uppfærsla þess í leik-
stjórn hans, en Viðhr Eggertsson
og Arnór Benónýsson léku þá
Williams og Pound. Síðan hefur
leikritið tekið ýmsum breyting-
um og sú útgáfa þess sem Leikfé-
lag Akureyrar sýnir á Litla svið-
inu er „farin að nálgast það að
vera „endanlegt horf“, ef slíkt er
mögulegt í sambandi við leikrit“,
eins og höfundur segir í leikskrá.
í uppfærslu Leikfélags Akur-
eyrar er Viðar Eggertsson
leikstjórinn, Theódór Júlíusson
leikur Williams og Þráinn Karls-
son Pound. Tónlist við verkið
samdi Lárus H. Grímsson, Guð-
rún Svava Svavarsdóttir gerði
leikmynd og búninga og lýsing-
una hannaði Ingvar Björnsson.
Skjaldbakan dvelst í Reykja-
vík í viku að þessu sinni, og verða
sex sýningar á þeim tíma, sú síð-
asta næstkomandi miðvikudags-
kvöld.
LG
Nemendur þriðja bekkjar ásamt umsjónarkennara sínum, Hilde
Helgason.
Leiklistarskólinn
Mávurinn kynntur
Nemendur þriðja bekkjar Leik-
listarskóla íslands hefja kynning-
ar á fyrsta leiktúlkunarverkefni
vetrarins annað kvöld kl. 20:00.
Kynningar fara fram í húsnæði
leikiistarskólans að Sölvhólsgötu
13.
Viðfangsefnið er Mávurinn
eftir Tsjekhov, í þýðingu Péturs
Thorsteinssonar, og er Pétur Ein-
arsson leiðbeinandi og leikstjóri.
Nemendur þriðja bekkjar eru
Baltasar Kormákur, Björn Ingi
Hilmarsson, Edda Arnljótsdótt-
ir, Eggert Arnar Kaaber, Erling
Jóhannesson, Harpa Arnardótt-
ir, Hilmar Jónsson, Ingvar E.
Sigurðsson og Katarína Nolsöe.
Kynningarnar verða tíu alls,
ein á dag fram til 19. nóvember,
og verða þær næstu á föstudaginn
kl. 15, laugardag og sunnudag kl.
20, á mánudaginn kl. 16, og á
þriðjudaginn kl. 20. Aðgangs-
eyrir er 200 kr. sem renna í nem-
endasjóð. Nánari upplýsingar
fást í Leiklistarskólanum á skrif-
stofutíma og utan hans í síma
Háskólatónleikar
Söngurí
Norræna
húsinu
Anders Josephsson baríton og
Anna Guðný Guðmundsdóttir
píanóleikari koma fram á há-
skólatónleikum haustmisseris
sem haldnir verða í Norræna
húsinu í dag kl. 12:30.
Á efnisskránni verða „Dýra-
bókin eða fylgdarlið Orfeifs"
eftir Poulenc og „Úr vísum Eiríks
konungs" eftir Ture Rangström.
Anders Jósepsson er fæddur og
uppalinn í Svíþjóð þar sem hann
hóf söngnám 14 ára að aldri.
Hann fluttist til íslands 1980 og
hefur stundað söngnám við Tón-
listarskóla Kópavogs og síðar við
söngdeild Tónlistarskólans í
Reykjavík þaðan sem hann lauk
einsöngvaraporófi síðastliðið
vor. Kennari hans var Elísabet
Erlingsdóttir. Hann hefur komið
fram á kammertónleikum og sem
einsöngvari með íslensku hljóm-
sveitinni og árið 1985 söng hann
hlutverk nautabanans í Carmen
eftir Bizet í uppfærslu íslensku
Óperunnar. Anna Guðný Guð-
mundsdóttir lauk burtfararprófi
frá Tónlistarskólanum í Reykja-
vík og stundaði framhaldsnám
við Guildhall School of Music
and Drama í London. Hún hefur
tekið virkan þátt í íslensku tón-
listarlífi auk þess sem hún kennir
við söngdeild Tónlistarskólans í
Reykjavík.
29582.
LG
Miðvikudagur 9. nóvember 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7