Þjóðviljinn - 15.11.1988, Blaðsíða 1
_______________________________Þriðjudagur 15. nóvember 1988 247. tölublað 53. árgangur
Hafskips- og Útvegsbankamálið
Sextán ákærðir
Fjórir bankastjórar, fjórir bankaráðsmenn og endurskoðandi Útvegsbanka íslands ákœrðirfyrir aðgœsluleysi.
Haf skipsmenn ákœrðirfyrir skjalafals ogfjárdrátt
Jónatan Þórmundsson, sér-
stakur saksóknari í Hafskips- og
Útvegsbankamálinu hefur sent
Sakadómi Reykjavíkur ákærur á
hendur 16 mönnum; 7 fyrrver-
andi forsvarsmönnum Hafskips
hf., fjórum fyrrum bankastjórum
og fjórum bankaráðsmönnum í
Utvegsbanka íslands og löggilt-
um endurskoðanda hans.
Bankastjórarnir fyrrverandi,
Lárus Jónsson, fyrrum alþingis-
maður, Halldór Guðbjarnason
og Ólafur Helgason og Axel
Kristjánsson aðstoðarbanka-
stjóri eru allir sakaðir um brot í
opinberu starfi, og að hafa
óhlýðnast fyrirmælum bankaráðs
en Axel er talinn hafa óhlýðnast
fyrirmælum bankastjórnar. Þá
eru þeir sakaðir um að hafa gerst
sekir um vanrækslu og hirðuleysi
í viðskiptum við Hafskip.
Síðasta bankaráð Úí er dregið
til ábyrgðar en formaður þess var
Valdimar Indriðason og Jóhann
Einvarðsson, núverandi þing-
maður, var varaformaður. Máls-
höfðun á hendur Jóhanni er háð
samþykki efri deildar Alþingis.
Aðrir í bankaráðinu voru þeir
Garðar Sigurðsson, Kristmann
Karlsson og Arnbjörn Krist-
mundsson. Eru bankaráðsmenn
taldir hafa sýnt saknæma van-
Álnefndir
Mótmæli í
ríkisstjóm
Þingflokkur Alþýðubanda-
lagsins hefur falið Svavari Gests-
syni, ráðherra flokksins, að koma
á framfæri hörðum mótmælum á
ríkisstjórnarfundi nú árdegis,
vegna þeirrar ákvörðunar Jóns
Sigurðssonar iðnaðarráðherra að
skipa í gær tvær nefndir vegna
undirbúnings fyrir hugsanlegt
nýtt álver í Straumsvík.
Iðnaðarráðherra upplýsti fyrst
um þessa ætlan sína á ríkis-
stjórnarfundi sl. fimmtudag, en
ráðherrar Alþýðubandalagsins
neituðu þá að afgreiða málið. Jón
Sigurðsson leggur hins vegar of-
urkapp á að koma nefndunum á
fyrir landsfund Alþýðuflokksins
um næstu helgi og tilkynnti því
skipan þeirra í gær.
Skipaskiptin
Sambandinu snýst hugur
Ákvað að ganga til viðrœðna við Eldey hf. um sölu á hlut Sambandsins í Hraðfrystihúsi
Keflavíkur. Jón Norðfjörð: Gleðiefnifyrir Suðurnesjamenn. Togaraskiptin íbið
rækslu við yfirstjórn bankans.
Fyrrum endurskoðandi Útvegs-
banka íslands og núverandi
endurskoðandi Útvegsbankans
hf. Ingi R. Jóhannsson er ákærð-
ur og gefið að sök að hafa látið
undir höfuð leggjast að koma á
framfæri við stjórn bankans að-
finnslum sem honum hafi verið
kunnugt um í viðskiptum Úí og
Hafskips.
Af Hafskipsmönnum eru þeir
Ragnar Kjartansson, fyrrum for-
stjóri og stjórnarformaður,
Björgólfur Guðmundsson,
fyrrum forstjóri, Páll Bragi Krist-
jónsson, framkvæmdastjóri
fjármálasviðs Hafskips, og Helgi
Magnússon, endurskoðandi fé-
lagsins ákærðir, en að auki þeir
Árni Árnason, fyrrum deildar-
stjóri fjárreiðusviðs Hafskips og
núverandi framkvæmdastjóri
Álafoss, Þórður Hilmarsson,
deildarstjóri skipulags- og hag-
deildar Hafskips og nýráðinn for-
stjóri Glóbus, og Sigurþór Char-
les Guðmundsson, fyrrum aðal-
bókari Hafskips.
Ákærur á hendur þeim Ragn-
ari, Björgólfi, Páli Braga og
Helga eru í stórum dráttum þær
sömu og þegar Hallvarður Ein-
varðsson gaf út ákærur, þ.e. fyrir
fjárdrátt af sérstökum tékka-
reikningum og skjalafals.
Öðrum bankastjórum Útvegs-
bankans, sem hlutu ákærur þegar
Hallvarður Einvarðsson var með
málið sem ríkissaksóknari, er nú
sleppt við ákærum en það eru
þeir Ármann Jakobsson, núver-
andi aðstoðarbankastjóri Út-
vegsbankans, Bjarni Guðbjörns-
son og Jónas Rafnar.
Sjá síðu 2
Valdimar Indriðason, fyrrum formaður bankaráðs Útvegsbanka íslands, hefur nú verið ákærður í Hafskips-
málinu ásamt þremur öðrum bankaráðsmönnum. Varaformaður bankaráðsins var Jóhann Einvarðsson
þingmaður og ákveði Alþingi að svipta hann þinghelgi í næstu viku, vofir yfir honum ákæra, m.a. fyrir
vanrækslu í starfi. Ljósm. E. Ól.
Á stjórnarfundi Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga í gær var
samþykkt að fela Guðjóni B. Ól-
afssyni, forstjóra SÍS, Gunnari
Sveinssyni stjórnarformanni og
Ólafi Jónssyni, varaformanni
stjórnar Hraðfrystihúss Keflavík-
ur, að gangu til viðræðna við Út-
gerðarfélagið Eldey hf. á Suður-
nesjum um væntanleg kaup
þeirra á hlutabréfum Sambands-
ins í Hraðfrystihúsi Keflavíkur.
Hlutur Sambandsins í Hrað-
frystihúsinu er um 67% og er
nafnverð hlutabréfanna um 67
miljónir króna. í dag verður
fundur í Útgerðarfélaginu þar
sem þessi nýja staða verður rædd
og búast má við að fyrsti samn-
ingafundur Sambandsmanna og
Eldeyjarmanna verði ekki fyrr en
á morgun.
Að sögn Jóns Norðfjörðs,
stjórnarformanns í Eldey, er
þessi niðurstaða stjórnar Sam-
bandsins gleðiefni fyrir alla þá
. sem umhugað er um að halda út-
gerð áfram á Suðurnesjum. Jón
sagði að fyrirhuguð togaraskipti
við Útgerðarfélag Skagfirðinga
biðu að sjálfsögðu á meðan
samningaviðræður stæðu yfir.
Hversu lengi þær mundu standa
og árangur þeirra yrði tíminn að
leiða í ljós.
Hver framtíðin yrði í rekstri
Hraðfrystihússins, ef svo skyldi
fara að samningar næðust á milli
Sambandsins og Eldeyjarmanna,
vildi Jón ekki fjölyrða um á þessu
stigi málsins. Fari svo að samn-
ingar náist um kaup og kjör á hlut
Sambandsins munu Eldey,
Gæðafiskur hf. og Valbjörn hf. í
Sandgerði hafa samvinnu um
lausnir á vanda Hraðfrystihúss-
ins. Ekki er nákvæmlega vitað
um fjárhagsstöðu fyrirtækisins en
tölur þar um munu ekki liggja
fyrir fyrr en um næstu helgi. Þó er
talið að skuldir þess séu eitthvað í
kringum 400 miljónir króna.
-grh
Ólympíumótið í skák
Stórsigur og jafht
T vœr umferðir að baki
íslenska ólympíusveitin tefldi við Kanadamenn í gærkvöldi og fóru
leikar þannig að liðin skildu jöfn, hvor um sig hreppti einn og hálfan
vinning. Ein skák fór í bið.
í fyrradag var fyrsta umferð tefld. Þá sigruðu íslensku piltarnir sveit
Puerto Rico: 4-0.
Sjá síðu 12