Þjóðviljinn - 22.11.1988, Síða 1

Þjóðviljinn - 22.11.1988, Síða 1
SteingrímurHermannsson: Efbankarnir lœkka ekki vextifrekar munum við beita 9. grein Seðlabankalaga. Jón Sigurðsson: Öll rök standa tilþess að vextir lœkki enn frekar. ÓlafurRagnar Grímsson: Eðlilegt og nauðsynlegt að bankarnirbeitisérfyrirvaxtalœkkunnú. SverrirHermannsson: Óvissan í verðlagsþróun mikil Þeir Steingrímur Hermanns- son, forsætisráðherra og Jón Sig- urðsson, viðskiptaráðherra, hafa átt fundi með stjórn Seðlabank- ans, þar sem þeir kröfðust þess að Seðlabankinn beitti sér fyrir enn frekari lækkun vaxta. „Við höfum átt mjög ítarlegan fund með stjórn Seðlabankans, þar sem við fórum vandlega yfir málin og lögðum okkar stefnu vel fyrir,“ sagði Steingrímur við Þjóðviljann í gær. „Við munum gera þetta aftur og ef það gengur ekki verður 9. grein Seðlabanka- laga beitt, þannig að það verður ekki slakað á því,“ sagði forsætis- ráðherra einnig, en sú grein heimilar Seðlabankanum að ákvarða hámarksvexti. Jón Sigurðsson sagðist ekki ánægður með þær ákvarðanir sem bankarnir tóku í gær um vaxtalækkanir. „Ég tel að þeir hefðu átt að lækka meira vegna þess hvað verðbólgan hefur dott- ið skart niður núna í október og það sem af er nóvember. Mér sýnist að bankarnir hefðu átt að taka stærra skref og hef farið þess á leit við Seðlabankann að hann taki upp viðræður við þá að nýju Fullveldið Stórafmæli í kyrrþey Lítill viðbúnaður vegna 70 ára afmœlis fullveldisins 1. desember. Háskólanemar einir um hituna? „Fullvalda ísland í 70 ár“ verð- ur yfirskrift dagskrár háskóla- nema í Háskólabíói 1. desember næstkomandi, en ekki er að sjá að mikið verði um dýrðir að öðru leyti í tilefni þessa merkisaf- mælis. Magnús Torfi Ólafsson, blaða- fulltrúi ríkisstjórnarinnar, sagði að sér vitanlega stæði ekkert til. í krafti síns embættis er Magnús Torfi ritari á fundum ríkisstjórn- arinnar, og sagði hann að á þeim vettvangi hefði þessu máli ekki verið hreyft. í sama streng tók Guðmundur Benediktsson, ráðuneytisstjóri í forsætisráðu- neytinu. Ólafur Tómasson, póst- og símamálastjóri, sagði aðspurður að ekki yrði um frímerkjaútgáfu að ræða í tilefni dagsins, enda hefðu ekki borist nein tilmæli um slíkt. Árið 1968, þegar fullveldið varð fimmtugt, gaf Seðlabankinn út sérstakan fimmtíukall - heil- mikinn hlunk - í þartilgerðri öskju. Að sögn Stefáns Þórarins- sonar, rekstarstjóra bankans, er engin minnispeningaútgáfa í bí- gerð að þessu sinni. Sagði Stefán að útgáfa slíkra minnispeninga væri í miklum öldudal um þessar mundir vegna tregrar sölu. HS um frekari lækkun vaxta. Núna standa öll rök til þess að vextir lækki.“ Ólafur Ragnar Grímsson, fjár- málaráðherra er sama sinnis og sagði að það væru engin efnisleg rök fyrir því að vextir lækki ekki nú. »Ég er eindregið þeirrar skoðunar að það sé bæði eðlilegt og nauðsynlegt að bankarnir beiti sér fyrir lækkun vaxta nú, en við leggjum mikla áherslu á að bæði nafnvextir og raunvextir lækki.“ Mikil óvissa um skipan næstu forystusveitar Alþýðusambands- ins, setti mestan svip á þinghaldið fyrsta dag 36. þings sambandsins sem hófst í íþróttahúsi pigranes- skóla í gærmorgun. Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ, hefur enn ekki gefið formlega yfirlýsingu um hvort hann ætlar að gefa kost á sér áfram til forseta, en á fundi með Alþýðubandalagsfélögum í verkalýðshreyfingunni á sunnu- dag, sagðist hann tilbúin í fram- boð svo framarlega að ekkert óvænt komi uppá. Félagar og stuðningsmenn Ás- mundar líta ekki á þetta sem fullgilt svar. Búa menn sig jafnvel undir að nýr forseti verði kjörinn Ástæðan sem bankamenn bera fyrir sig eru yfirlýsingar forsætis- ráðherra um þjóðargjaldþrot og að grundvöllur atvinnuveganna verði kannaður á næstunni. „Óvissan í verðlagsþróuninni er mikil og ekki bætir það úr skák þegar forráðamenn þjóðarinnar eru með munninn fullan af gengisfellingum,“ sagði Sverrir Hermannsson, Landsbankastjóri við Þjóðviljann í gær. Hann sagði það rétt að vextir á þinginu á miðvikudagsmorgun og eru nöfn þeirra Grétars Þor- steinssonar, formanns Trésmíð- afélags Reykjavíkur og Guð- mundur Þ. Jónssonar formanns Iðju, einkum nefnd í því sam: bandi. Mikil kergja er í þingfulltrúum vegna þeirrar spennu sem mynd- ast hefur um skipan nýrrar foryst- usveitar og að allt of mikill tími þingsins fari í þessi mál. Páll Hall- dórsson úr Dagsbrún skoraði á Ásmund í gær að svara af eða á um framboð, en því var í engu svarað. Flestir telja þó að Ásmundur gefi kost á sér áfram en mun meiri óvissa er um skipan 2 varafors- væru háir miðað við verðlagsþró- un að undanförnu, „en við viljum vita hvað gerist eftir 1. febrúar." „Það er alltaf hægt að segja að það sé óvissa framundan. Hvers- vegúa talar Sverrir ekki um óvissu í júlí á næsta ári fyrst hann er að tala um óvissu í mars? Sverrir verður að átta sig á því að hann er ekki lengur þingmaður Sjálfstæðisflokksins heldur starfsmaður banka sem er í þjóð- areign,“ sagði Ólafur Ragnar. eta. Karl Steinar Guðnason segist ekki tilbúðinn í framboð en hann var nefndur sem fulltrúi Alþýðu- flokks í varaforsetastól. Er eink- um talað um Magnús Geirsson og Pétur Sigurðsson formann Al- þýðusambands Vestfjarða sem hugsalega frambjóðendur í stað Karls Steinars. Jón segist ekki ætla í framboð. Þóra Hjaltadóttir formaður Alþýðusambands Norðurlands sem fékk einróma áskorun kvenna á Landsfundi Framsókn- arflokksins um heígina, að fara í framboð, vildi í gær engu svara. Vilborg Þorsteinsdóttir formaður Snótar í Vestmannaeyjum hefur hins vegar lýst áhuga á framboði. Ljóst er að bankarnir munu lækka vexti enn frekar 1. des- ember og staðfesti Sverrir Her- mannsson það í gær í samtali við Þjóðviljann. „Ég vil ekki setja neina tölu á þá vaxtalækkun sem framundan er,“ sagði Jón Sigurðsson í gær. „Ég tel að mennirnir eigi að sjá þetta sjálfir og meta þetta út frá verðbólgustiginu nú og með hlið- sjón af því að það er verðstöðvun fram í febrúar á næsta ári.“ f stefnuræðu sinni við setningu þingsins í gær gangrýndi As- mundur Stefánsson stjórnvöld harðlega fyrir síendurteknar árásir á launþega og verkalýðs- hreyfinguna. Hann sagði jafn- framt að sú kreppa í efna- hagsmálum sem nú væri skollin á sýndi fyrst og fremst að kjara- skerðingarleiðin sem fylgt hefði verið undanfarin ár, væri orðin gjaldþrota. Hún tryggði ekki rekstur fyrirtækjanna og leysti ekki efnahagsvandann. -lg- - ■ -— Sjá nánar um ASÍ- þingið bls. 5 og baksíðu Sáf/hmp Auk tæplega 500 þingfulltrúa sem sitja 36. þing ASI eru fjölmargirinnlendir og erlendirgestir, þar á meðal þessir heiðursmenn og fyrrver- andi forsetar ASÍ. Frá v.: Helgi Hannesson, Hermann Guðmundsson og Snorri Jónsson. Auk þeirra þriggja var Hannibal Valdimarsson fyrrv. forseti ASÍ viðstaddur þingsetninguna í gær. Mynd-Jim Smart. ASÍ-þingið Mikil óvissa um nýja foiystusveit Ásmundur Stefánsson hefurenn ekki svaraðformlega um endurkjör. Tveir hugsanlegir eftirmenn nefndir.KarlSteinar trúlega ekkiíframboð. Þóra svarar engu enn

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.