Þjóðviljinn - 22.11.1988, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 22.11.1988, Blaðsíða 2
Kvennaathvarfið Fengu 500 þús. - Þetta er ómetanleg aðstoð og skiptir okkur öilu núna þegar lok- un hefur staðið fyrir dyrum, sagði Sigrún Valgeirsdóttir sem sæti á í framkvæmdanefnd Kvennaathvarfsins, en Hjálpar- stofnun kirkjunnar hefur veitt at- hvarfinu ijárstuðning upp á hálfa miljón króna. Sigrún sagði að um þrjú hundr- uð þúsund krónur hefðu borist frá einstaklingum eftir að bert varð að Kvennaathvarfið ætti í al- varlegum fjárhagskröggum. Hún sagði að það yrði ekki ofmetið hve mikilvægt það væri að finna hvað hlýhugurinn i garð starf- seminnar kæmi úr mörgum stöð- um. Samtök um Kvennaathvarf gangast fyrir tónleikum á Hótel Islandi 4. desember n.k. og er sú samkoma öðrum þræði fjölskyld- uskemmtun. Þar kemur fjöldi listamanna fram endurgjalds- laust og sagði Sigrún að vonir stæðu til að þá mætti takast að rétta fjárhaginn við. HS Sveitarfélögin Ráðstefna um fjármálin Samband íslenzkra sveitarfé- laga stendur fyrir ráðstefnu um fjármál sveitarfélaganna, og stendur hún í dag og á morgun á Hótel Sögu. Jóhanna Sigurðardóttir, fé- lagsmálaráðherra, ávarpar ráð- stefnugesti og Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, hefur framsögu um fjármálaleg samskipti ríkis og sveitarfélaga. Þá hefur Gunnar Hilmarsson, formaður stjórnar Atvinnutrygg- ingarsjóðs, framsögu um sveitar- félögin og atvinnurekstur. FRETTIR Ríkisstjórnin Genginu hakflið óbreyttu Steingrímur Hermannsson: Staðan verði metin í vor ogþá ákveðið hvortþurfi að breyta genginu. Bjarni Lúðvíksson: 20% gengisfelling á undanförnum misserum hefur ekki bœtt hag fyrirtœkjanna Eg er ekkert að neita því að það geti komið að því ein- hverntíman að það þurfi að fella gengið, ef ekki verða verðhækk- anir á okkar afurðum erlendis eða ef aðstæður batna ekki. Við verðum að horfast í augu við það, en það er ekki á næsta leiti, sagði Steingrímur Hermannsson, for- sætisráðherra við Þjóðviljann í gær. Valur Arnþórsson, stjórnar- formaður SÍS, sagði á flokksþingi Framsóknarflokksins um helg- ina, að nauðsynlegt væri að leiðrétta gengið og talaði hann um 15% gengisfellingu. Steingrímur sagðist sammála Val að raungengið væri of hátt skráð en það væri ýmislegt hægt að gera til þess að lækka það. „Raungengið lagast t.d. ef það dregur mjög úr yfirborgunum á launum eða ef hráefniskostnaður lækkar og ef fjármagnskostnaður lækkar. Það lagast líka ef verðlag erlendis hækkar. Með hagræð- ingu og fleiru er hægt að gera at- vinnuvegunum að þola hærra gengi. Eg held að alla þá hiuti verði að skoða vandlega og meta síðan stöðuna í vor og gera það þá upp hvort þarf að breyta genginu. Bjarni Lúðvíksson, fram- kvæmdastjóri SH, sagði við Þjóð- viljann í gær, að það færi allt eftir hliðarráðstöfunum hvort 15% gengisfelling dugi til þess að koma rekstrargrundvelli útflutn- ingsatvinnuveganna á réttan kjöl. Hann benti á að á undan- förnum misserum hafi gengið verið fellt um 20% án þess að hagur útflutningsgreinanna hafi skánað til lengdar. -hmp/grh Loðna Góð veiði ef viðrar Heildarveiðin orðin 125.640 tonn. Félagfiski- mjölsframleiðenda og Síldarverksmiðjur ríkisins komin íhár saman vegna verðhækk- ana á loðnutonninu úr3.200 í4þúsund. Stjórn SR sökuð um að hafa rifið verðið upp Loðnuvertíðin hefur verið mjög góð síðustu daga og heildaraflinn kominn í rúmlega 125 þús. tonn. BOKAKLUBBUR áskrifenda Þjóðviljans Tilboð vikuna 22.-2 9. nóv. Ekkert lát var á loðnuveiðinni um helgina og á miðnætti að- faranótt sl. mánudags höfðu Loðnunefnd borist tilkynningar um rúm 14 þúsund tonn. Heildar- veiðin er því orðin 125.640 tonn, en var á sama tíma í fyrra litlu minni eða I19þúsund tonn. Að sögn Astráðar Ingvars- sonar hjá Loðnunefnd var bræla á miðunum í gær en spáð er hægu veðri. Ástráður sagði nóg af loðnu vera á miðunum út af Kol- beinsey og ef veður spillti ekki fyrir yrði ekkert lát á mok- veiðinni sem byrjaði í seinni hluta síðustu viku. í harðindunum sem verið höfðu á miðunum þar á undan leiddi til harðnandi samkeppni verksmiðja um hráefnið og fór loðnutonnið vel yfir 4 þúsund krónur þá, en hefur eitthvað lækkað nú þegar framboðið er nóg, enda frjáls verðlagning á loðnu. Þessi samkeppni verksmiðja um hráefnið hefur farið fyrir brjóstið á Félagi fiskimjölsfram- leiðenda sem hafði búist við meiri samheldni innan félagsins um hráefnisverð til sjómanna og út- vegsmanna en oft áður. Hefur fé- lagið ma. sakað stjórn Síldar- verksmiðja ríkisins um að hafa rifið verðið upp og haft hagsmuni útvegsmanna að leiðarljósi frem- ur verksmiðjanna og gert þar með vonir þeirra um hagnað a vertíðinni að engu. Þessu neitar Jón Reynir Magnússon framkvæmdastjóri SR en játar jafnframt að fulltrúar LÍÚ hafi borið upp tillögu þess efnis að hráefnisverð til skipanna yrði hækkað en því hafi stjórnin ekki viljað fallast á. Jón sagði að verðið væri frjálst og aldrei verið samstaða um eitthvert sérstakt verð. „Að vísu höfðu menn verið sammála um að flýta sér hægt í verðhækkunum en það er svo annað mál,“ sagði Jón R. Magnússon. -grh Að þessu sinni er boðið upp á rit sem lengi hefur verið frægt meðal þeirra sem forvitnast hafa um möguleika manna á að sjá fyrir óorðna hluti og gera sér grein fyrir lífi eftir dauðann. Það heitir Himinn og hel eftir Emanúel Swedenborg, útgefandi er Bóka- kúbbur Arnar og Örlygs. Nú eru 300 ár liðin frá fæðingu þess fjölhæfa manns, Sweden- borgs. Hann var uppi fyrir daga verkaskiptingarinnar - fékkst við heimspeki og stærðfræði, líffræði og málmvinnslu og margt fleira. En hann varð ekki síst þekktur fyrir dulræna hæfileika sem svo eru nefndir - þótti hann vita ó- orðna hluti og sjá atburði sem gerðust í mikilli fjarlægð. Og með þeirri bók sem hér er út gefin leggur hann ekki í minna en að gefa nákvæmlega lýsingu á lífinu „hinum rnegin" - m.a. á uppeld- ismálum, hjúskaparsiðum, tungumáli og tómstundasiðum eilífðarvera. Þessar hugmyndir vildi Swedenborg og lærisveinar hans nýta til þess að gæða krist- inn boðskap meira lífskrafti og áhrifaafli - svo mikið er víst að þær hafa valdið mörgum ágæt- um mönnum og frægum heila- brotum og bókin Himinn og hel hefur verið þýdd á fjölda tungu- mála. Þessa þýðingu hér gjörði Sveinn Ólafsson. Himinn og hel eftir Emanuel Swedenborg Emanuel Swedenborg. Verö kr. 1.930 (Venjulegt verö kr. 2.450) Atvinnutryggingasjóður Óbyggð framtíð Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra sagði í umræð- um á Alþingi í gær að ríkisstjórn- in hefði enga tryggingu fyrir því að bráðabirgðalög ríkisstjórnar- innar færu óbreytt í gegn um þingið. En Kristín Halldórsdóttir Kvcnnalista sagði í upphafí utan- dagskrárumræðu að stjórn at- vinnutryggingasjóðs deildi nú út ímynduðu fjármagni þar sem bráðabirgðalögin hefðu ekki ver- ið samþykkt á þingi. Bráðabirgðalög ríkisstjórnar- innar hafa verið til umræðu í efri deild frá upphafi þings. Kristín spurði forsætisráðherra hvaða tryggingu hann hefði fyrir því að lögin kæmust óbreytt í gegnum þingið. Þó hún segðist full viss um að ákvæðið um launafrystingu færi í gegn þar sem Sjálfstæðis- flokkurinn gæti varla staðið gegn því. Steingrímur sagði ríkis- stjórnina ekki hafa neina trygg- ingu fyrir framgangi frumvarps- ins án breytinga en lýsti sig reiðu- búinn að ræða þær við aðra þing- flokka. Mikið væri þrýst á veitingar úr sjóðnum og því fé sem hefði verið veitt úr honum þegar og ef lögin um hann yrðu felld, stæði sem lánveiting en frekari lánveitingar kæmu þá ekki til greina. Albert Guðmundsson Borg- araflokki sagði svar forsætisráð- herra vekja spurningar um þær forsendur sem forseta íslands hefðu verið gefnar þegar hann skrifaði undir bráðabirgðalögin. Lét Albert að því liggja að forset- inn hefði kannski verið blektur Steingrímur sagði að forsetanum hefði verið full kunnugt um stöðu stjórnarinnar í þinginu þegar hann skrifaði undir bráðabirgða- lögin. -hmp 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 22. nóvember 1988

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.