Þjóðviljinn - 26.11.1988, Page 1
Laugardagur 26. nóvember 256. tölublað 53. órgangur
Guðlastað á Natófundi
Ingi Björn Albertsson lýsti stuðningi við kjarnavopnabann á Natófundi.
Natómenn: Er þetta kommúnisti?
í ræðu á þingmannasamkomu
Nató í Hamborg fyrir rúmri viku
lýsti Ingi Björn Albertsson þing-
maður Borgaraflokks því yfir að
stefna ætti að algeru banni við
bæði efnavopnum og kjarnorku-
vopnum.
Umræðuefni fundarins var
hvernig Natómenn ættu að
bregðast við frumkvæði Gorbat-
sjovs í afvopnunarmálum og öðr-
um sambúðarmálum austurs og
vesturs, og töluðu þarna meðal
annars Kohl kanslari í Bonn og
hinn nýi framkvæmdastjóri hern-
aðarbandalagsins, Manfred
Wörner, og varð þeim félögum
tíðrætt um efnavopn og æskilegt
bann við þeim.
Ingi Björn sagði í sinni ræðu að
fyrir sér væri það mótsögn að
vilja banna efnavopn en styðja
hervæðingu með kjarnavopnum,
sem væru helsta ógnin við tilvist
mannkyns.
„Lokatakmark okkar á að vera
bann við báðum tegundum slíkra
vopna,“ sagði þingmaðurinn.
„Slíkt bann er ef til vill ekki tíma-
bært nú um stundir, en Nató ætti
þrátt fyrir það að lýsa þeim skoð-
unum. Á þann hátt gætum við
svarað Gorbatsjov.“
Þá lagði Ingi Björn áherslu á að
ísland væri og yrði kjarnorku-
vopnalaust svæði („a nuclear free
zone“), og styðst þar við sam-
þykkt alþingis frá ‘85 og yfirlýs-
ingar ráðherra síðan. Borgara-
flokkurinn tók strax upp aðra
tóna en gamli íhaldsflokkurinn í
afvopnunarmálum og öðrum
utanríkismálum, og hefur meðal
annars lýst stuðningi við kjarn-
orkuvopnalaus Norðurlönd.
Sem kunnugt er hefur Nató þá
stefnu að eingöngu öflugt kjarn-
orkuvopnabúr geti tryggt valda-
jafnvægið með svokallaðri fæl-
ingu, og í herbúðum Nató hljóm-
ar allt tal um kjarnorkuvopnalaus
svæði einsog guðlast í dómkirkju.
Enda fylgir sögu af ræðu Inga
Björns að brúnaþungir áheyr-
endur hefðu komið að máli við
viðstadda íslendinga og spurt af-
hverju kommúnisti væri hafður
með í sendinefndinni.
Nær allir fulltrúar á 36. þingi
Alþýðusambandins höfnuðu í
gær boði félagsmálaráðherra um
móttöku eftir þingslit.
í ályktun sem fjölmargir for-
ystumenn í verkalýðshreyfing-
unni úr öllum flokkum, lögðu
fram er ráðherra þakkað boðið
sem sýni góðan hug til þingsins.
„Því miður geta þingfulltrúar
ekki þegið þetta góða boð. Á-
stæðurnar eru þær, að forysta
verkalýðshreyfingarinnar getur
ekki sótt boð stjórnvalda á með-
an í gildi eru lög, sem svipta ís-
lenska verkalýðshreyfingu samn-
ingsrétti."
Þessi ályktun var samþykkt
nær einróma, en athygli vakti að
forystumenn Verkamannasam-
bandsins greiddu atkvæði gegn
henni. Ráðherraboðið sem átti
að vera í Fóstbræðraheimilinu
varð því aldrei.
-lR-
Afvopnun
Leitun er að viðskiptum sem
vakið hafa jafnmikla athygli hér-
lendis á jafnskömmum tíma, og
fréttir af hraustlegum áfengis-
kaupum forseta Hæstaréttar
flugu um heimsbyggðina í gær í
skeytum Reuters-fréttastofunn-
ar. Phh
Sjá síðu 2
ASÍ-bingið
Raðherraboöi
hafnað
Engar veislur meðari
hreyfingin er hlekkjuð
og er beðið greinargerðar Magn-
úsar um ástæður kaupanna.
Magnús er enn dómari við Hæst-
arétt svo líta verður þannig á að
sú staða hans kunni að vera óviss.
Magnús virðist hafa tekið
sinnaskiptum í gær því þegar
Þjóðviljinn ræddi við hann fyrir
fundinn með Halldóri sagði
Magnús að ekki hvarflaði að sér
að segja af sér sem forseti Hæst-
aréttar: „Mér verður ekki vikið
úr starfi nema með dómi.“
Sagðist Magnús þá ekki sjá
neitt siðferðilega né lagalega
rangt við áfengiskaupin, en hann
haft það sem þumalfingursreglu
að kaupa áfengi fyrir þau laun
sem honum hafi verið greidd sem
handhafa forsetavalds hverju
sinni. Þessu hafi hann skýrt
Steingrími Hermannssyni, forset-
isráðherra frá þegar þeir voru á
leið út á Keflavíkurflugvöll að
taka á móti forseta íslands 19.
nóvember. Steingrímur hefði
ekki gert neinar athugasemdir af
þessu tilefni.
Magnús greiddi um 230 þúsund
fyrir 1000 flöskur af rússneskum
vodka og 400 hundruð flöskur af
viskíi. Sami skammtur hefði kost-
að venjulegan íslending rúmlega
2 miljónir króna.
„Vínið cr í minni vörslu, ég hef
góðar geymslur,“ sagði Magnús
Thoroddsen við Þjóðviljann í gær
nokkrum tímum áður en hann
sagði af sér embætti forseta Hæst-
aréttar um kvöldmatarlcytið.
Magnús lagði fram uppsagnar-
beiðni „vegna hinnar opinberu
umræðu sem um hann hafi orðið“
á fundi dómara Hæstaréttar, sem
boðað var til i skyndi síðdegis í
gær. Við forsetaembættinu tekur
Guðmundur Jónsson, varaforseti
Hæstaréttar sem hefði að öðru
óbreyttu tekið við embætti for-
seta um áramótin.
Áfengismál forseta Hæstarétt-
ar voru rædd á ríkisstjórnarfundi
í gærmorgun og var þar ákveðið
að fela dómsmálaráðherra og
fjármálaráðherra framhald máls-
ins. Halldór Ásgrímsson dóms-
málaráðherra ræddi síðan við
Magnús í gær, og sagði eftir þann
fund að málinu væri ekki lokið,
Hœstiréttur
Hef góðar
geymslur
Magnús Thoroddsen forseti Hœstaréttar segir af sér vegna
„opinberrar umrœðu“. Dómari áfram. Vínið áfram í
kjallaranum. Telur áfengiskaupin hvorki siðferðilega né
lagalega ámœlisverð. Keypti 1440flóskuraf vodka og viskíi
fyrir „handhafa4aunin“