Þjóðviljinn - 26.11.1988, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 26.11.1988, Blaðsíða 7
Fl.JÓTT ■ FI.JÓTT - ACCI.ÝSINGASMIDJA MINNING Hinn 17. nóvember síð- astliðinn andaðist á St. Jósefs- spítala í Hafnarfirði Finnbogi Hallsson, trésmíðameistari. Bogi, eins og hann var kallaður af vinum og vandamönnum, var fæddur 25. nóv. 1902 á Stóra- Fljóti í Biskupstungum. Hann var sonur Halls Guðmundssonar og Járngerðar Jóhannsdóttur. Hann ólst upp á Þórarinsstöðum hjá föðursystur sinni, Jóhönnu, og manni hennar Ögmundi Sveinbjörssyni. Bogi fluttist til Hafnarfjarðar 1924 og árið 1926 fluttist móðir hans til hans og bjó hjá honum og konu hans alla tíð þar til hún lést. Hann reyndist móður sinni hinn besti sonur. Bogi hóf nám í smíðum hjá Lárusi Lárussyni 1928, fékk sveinsbréf í iðninni 15. feb. 1932 og meistarabréf í húsasmíði 21. mars 1945. Árið 1932 steig Bogi mikið gæ- fuspor er hann kvæntist Ástveigu Finnbogi Hallsson F. 25. nóvember 1902 - D. 17. nóvember 1988 S. Einarsdóttur, ættaðri frá Ólaf- svík. Hún var dóttir hjónanna Ef- emíu Vigfúsdóttur frá Kálfár- völlum í Staðarsveit og Einars Jónssonar frá Skammadal í Mýrdal. Bogi og Ásta bjuggu alla sína búskapartíð í Hafnarfirði. Börnin þeirra 6 eru: 1. Garðar, húsasmiður, var kvæntur Grétu Kristjánsdóttur, sem er látin. 2. Einar Emil, blikksmíðameistari, kvæntur Sesselíu Guðrúnu Þor- steinsdóttur. 3. Ingveldur Guðr- ún, gift Pálma Viðari Samú- elssyni. 4. Auður Hanna, gift Birgi Rafni Gunnarssyni. 5. Si- gurður Ágúst, húsasmiður, kvæntur Guðríði Einarsdóttur. 6. Hulda Kolbrún, gift Davíð Birni Sigurðssyni. Ásta lést 5. apríl 1959 og höfðu þau Bogi þá búið saman í farsælu hjónabandi í 27 ár. Bogi og Ásta voru einstaklega samhent hjón, því var það honum mikill missir þegar hún féll frá. Bogi átti miklu barnaláni að fagna og naut hann þess í ríkum mæli í ellinni. Hann var einstaklega hjálp- samur maður og nutum við hjón- in þess á okkar fyrstu hjúskapar- árum, því hann var ætíð boðinn og búinn til hjálpar þegar við vor- um að reisa okkur þak yfir höfuð- ið. Ég get ekki látið hjá líða að minnast þess hve Bogi var léttur í lund og hafði einstakt lag á að koma fólki í gott skap. Hann hélt kímnigáfu sinni allt fram í and- látið. Þó var hann alvörumaður en notaði kímnina þegar við átti. Ég minnist fjölskyldufundanna þar sem hann var hrókur alls fagnaðar og gerði öllum glatt í geði. Þeir voru ófáir laugardags- eftirmiðdagarnir sem við hjónin og elstu dætur okkar tvær ásamt tengdaforeldrum mínuin eyddum á heimili Boga og Ástu og var þar oft glatt á hjalla, þrátt fyrir heilsuleysi húsmóðurinnar sem ágerðist mjög seinni árin. Þetta eru ógleymanlegar stundir. Bogi bjó einn öll sín ekkju- mannsár þar til fyrir rúmu ári að heilsan bilaði og hann naut um- önnunar á Hrafnistu í Hafnar- firði. Nú er hann kominn til Ástu sinnar og veit ég að þar hafa orðið fagnaðarfundir. Ég og fjölskylda mín öll erum þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast Boga. Blessuð sé minning hans. Holger Clausen og fjölskylda Utför Finnboga var gerð í gær, föstudag. Kristinn Rúnarsson og Þorsteinn Guðjónsson F. 25. janúar og 10. apríl 1961 - D. 18. október 1988 Hinn 24. október síðastliðinn bárust hingað til lands þau sorg- artíðindi frá Nepal að tveir ís- lenskir fjallgöngumenn, þeir Þor- steinn Guðjónsson og Kristinn Rúnarsson, væru taldir af. Síðast sást til þeirra 18. október hátt í hlíðum fjallsins Pumo Ri (7145 m), sem þeir höfðu ætlað að klífa ásamt tveimur félögum, Jóni Geirssyni og Steve Aisthorpe. Þeir Jón og Steve höfðu þá orðið að hætta við frekara klifur vegna veikinda. Ég átti því láni að fagna að kynnast þeim Kristni og Þorsteini og ferðast með þeim á undan- förnum árum og mig langar að þakka þau kynni í fáeinum orð- um. Þeir félagar voru í fremstu röð íslenskra fjallamanna, brautryðj- endur á mörgum erfiðustu klifur- leiðum hérlendis í klettum og ís og höfðu klifið mörg há fjöll og erfið erlendis í Ölpunum og í Suður-Ameríku og tekið þátt í leiðöngrum til Himalajafjalla. Nöfn þeirra munu ávallt verða tengd hinum miklu framförum í íslenskri fjallamennsku, sem orð- ið hafa hin síðari ár. Ást þeirra til fjalla kviknaði þegar á unga aldri og samrýndari og samhentari vin- um hef ég aldrei kynnst. Fjalla- mennskan var þeim meira en tómstundagaman, hún var þeim lífsfylling og sífelld uppspretta nýrra ævintýra. Þorsteinn Guðjónsson var ein- lægur, hlýr og ör í lund og geis- landi af lífsgleði. Kristinn Rún- arsson var örlítið seinteknari, hæglátur, staðfastur og traustur. Betri, hjálpsamari og nærgætnari ferðafélögum hef ég ekki kynnst. Þó að aldursmunur á okkur væri allnokkur og munur á getu í fjallamennsku ennþá meiri, fannst mér ég ávallt vera velkom- inn félagi í för með þeim. Nú verða þær ferðir ekki fleiri. En þó að kynni mín af. þeim félögum hafi ekki orðið löng, munu minn- ingarnar ylja mér á ókomnum árum, minningarnar um góða drengi og félaga, tvo óaðskiljan- lega vini, sem saman héldu í hinstu för. Ég votta aðstandendum þeirra og vinum innilega samúð. Guðmundur Pétursson Þann 23. október sl. fengum við, vinir og klifurfélagar strák- anna, þá harmafrétt frá Nepal að Steini og Kiddi hefðu horfið á fjallinu Pumo Ri og væru taldir af. Þessum upplýsingum fylgdi einnig sú þungbæra skylda að til- kynna nánustu ættingjum um hvað hefði gert. Þessi dagur og þeir næstu voru átakanlegir í sorg okkar og missi, þegar tilfinning- arnar neituðu að gefa upp alla von þótt öll rök og reynsla segðu •okkur að það þýddi ekki að vona, þeir kæmu ekki heim aftur. Þeir eru dánir. Kiddi og Steini fengu ungir áhuga á fjöllum og fjalla- mennsku. Strax sem unglingar fóru þeir að heiman í gúmmístíg- vélum, með samloku og þvotta- snúru í poka, til að klífa (ganga á) Esjuna og töldu að sennilega væru þeir tveir af þeim tíu fyrstu sem það gerðu. Mörgum árum seinna hlógu þeir dátt er þeir lýstu vonbrigðum sínum þegar þeir sáu vörðuna á toppnum og hvað hún var stór. Því samkvæmt upplýsingum Kidda setti hver fjallgöngumaður, sem kæmi á toppinn, einn stein í vörðuna og þar með gætu þeir ekki verið tveir af tíu fyrstu. Áhugi þeirra á fjöllum dvínaði ekki með aldrinum heldur jókst, þeir lásu allt sem þeir gátu náð í um fjallamennsku og smám sam- an öðluðust þeir meiri reynslu og kynntust fleiri hliðum fjalla- mennskunnar. Þeir náðu góðum tökum á öllum gerðum klifurs, þeir klifruðu í klettum, á ís og snjó, í fjöllum og á fossum, en alltaf stóð hugur þeirra til að klífa há fjöll. En þó er það ekki þessi mikli klifuráhugi sem er minnis- stæðastur, þegar upp er staðið, heldur ást þeirra á fjallaumhverf- inu í heild sinni og hvernig þessi ást var samofin lífi þeirra beggja. Að fara á fjöll var ekki bara að fara út og klifra eitthvað, heldur skipti náttúran öll og umhverfið máli. Þeim fannst að það að vera fjaliamaður fæli í sér bæði rétt- indi og skyldur, þau forréttindi að geta farið á vit fjallanna og gert það sem þá lysti og þær skyldur að bera ábyrgð á sjálfum sér á fjöllum, ganga vel um, virða og vernda náttúruna. Vinátta þeirra var einstök, þeir kynntust í barnaskóla og voru afar samrýmdir upp frá því. Að verða vitni að vinskap þeirra var einstakt. Þeir gjörþekktu hvor annan, einsog tveir menn eða bræður geta þekkt hvor annan, og samskipti þeirra einkenndust alltaf af gagnkvæmri virðingu og umhyggju. Auðvitað var hægt að þrasa og rífast út í það óendan- lega yfir einhverjum smámunum, en alltaf á þann hátt að hlýjan og væntumþykjan fóru aldrei á milli mála. Sú hlið sem sneri að okkur hinum í vinahópnum var ekki síður djúp og einlæg, fólk sem ferðast saman og bindur sig sam- an í klifurlínu tengist traustum böndum. Samvistir við strákana einkenndust af lífsgleði, djúpum samræðum, hlátri og skemmti- legum uppákomum. Þær eru ekki fáar minningarnar sem koma upp í hugann þegar hugsað er til baka til samverustundanna - og mikill er okkar missir. En dýrlegar eru minningarnar um góðar ferðir, kaldar frostnætur í bívakki eða dansæfingar til sjö á morgnana, svo ekki sé minnst á allt annað þar fyrir utan. Enn er ógetið um þátttöku Steina og Kidda í íslenska Alpa- klúbbbnum. Þeim skaut upp í klúbbnum eftir að hafa verið tveir að lóna í nokkur ár og án þess að nokkrir klúbbfélaga vissu af því, en flestir kynnast fjalla- mennsku á einn eða annan hátt í gegnum björgunarsveitirnar. Þeir komu með ferskan blæ og mikla starfsorku sem klúbburinn hefur notið síðan. Strákarnir komu með nýjar hugmyndir og hressandi andrúmsloft á fundi og opin hús, en léðu útgáfustarfsemi klúbbsins mest af tíma sínum. Þar voru þeir í ritnefnd, fyrst við Alp- aklúbbsblaðið en síðan við ársritið, eftir að það fór að koma út fyrir fjórum árum. Er það ekki síst þeirra verk að ársritið er eins vandað og fallegt rit og raun bar vitni. Er nú skarð fyrir skildi í ritnefndinni er Þorsteinn og Kristinn eru fallnir frá. Það er alltaf harmleikur fyrir eftirlifendur þegar svona ungir og efnilegir menn falla frá, í blóma lífsins aðeins 27 ára gamlir. Það er óbætandi missir fyrir okkur öll, þó sérstaklega fyrir foreldra þeirra, unnustur og systkini, að missa ástvin svona langt í burtu og undir svona framandi kring- umstæðum. Þó er örlítil huggun, úr því að þeir urðu að yfirgefa þetta jarðlíf svona ótímabært, að þeir fengu að fara við kringum- stæður sem þeir unnu mest. Á fjöllum meðal risanna í Himala- ya, í návígi við Hinn Mikla Fjalla- anda, sem þeir ræddu svo oft um. Því að fjallamennska var þeim ekki íþrótt heldur lífsform. Við sendum foreldrum Krist- ins og Þorsteins, systkinum, Önnu (unnustu Þorsteins) og Hildi (unnustu Kristins) og ófædda barninu, okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Vinur þinn er þér allt. Hann er akur sálarinnar, þar sem samúð þinni er sáð og gleði þín upp- skorin. Þú skalt ekki hryggjast, þegar þú skilur við vin þinn, því að það, sem þér þykir vœnst um í fari hans, getur orðið þér Ijósara í fjarveru hans, eins og fjallgöngumaður sér fjallið best af sléttunni. Kahlil Gibran Um vináttuna Björn, Snævarr og Salbjörg Tónlist, skop og fréttir hafa tekið völdin á Stjörnunni. Sjúklegur heimsóknartími Laddi fær óheilbrigðar heimsóknir Arnar Arnasonar og Sigurðar Sigurjónssonar daglega á Stjörnunni klukkan 11 og 17. Greyið! FIVl 102,2 & 104 . . . ennþá hetri

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.