Þjóðviljinn - 07.12.1988, Blaðsíða 3
FRÉTTIR
Hitaveitan
Glerhýsið kostar erlend lán
Akveðið að taka 300 miljóna erlent lán til Hitaveitu Reykjavíkur.
279 miljónum á áœtlun tilframkvœmda við glerhýsið á Öskjuhlíð á nœsta ári
Framkvæmdir við glerhús Hit-
aveitu Reykjavíkur á Öskju-
hlíð munu kosta samkvæmt áætl-
unum 279 miljónir á næsta ári.
Nýlega var samþykkt í stjórn
Veitustofnunar Reykjavíkur að
taka 300 miljóna krónu lán til
framkvæmda, fastlega er gert ráð
fyrir að lánið verið tekið erlendis.
Að sögn Eysteins Jónssonar
skrifstofustjóra Hitaveitunnar er
þetta lán tekið vegna fram-
kvæmda við Nesjavallavirkjun.
Hann sagði að kostnaður við
hana hefði farið þó nokkuð fram
úr áætlun og nauðsynlegt hefði
því verið að taka lán til að tryggja
að virkjunin verði tilbúin þegar
hennar verður þörf, en hann
sagði að það mætti ekki dragast
lengur en til 1990 að koma henni í
gagnið. í upphaflegum áætlunum
hefði verið gert ráð fyrir að ljúka
við framkvæmdir á Nesjavöllum
vorið 1990, fyrir næstu borgar-
stjórnarkosningar, en nú hefur
verið ákveðið að fresta því fram á
haustið 1990.
Það vekur athygli að Hita-
veitan skuli nú þurfa að taka er-
lend lán til framkvæmda. Að
sögn Eysteins hefur ekki komið
til tals að hægja á eða fresta fram-
kvæmdum á Öskjuhlíð. Sagði
hann að of seint væri að gera
breytingar á framkvæmdaáætlun
við byggingu glerhýsisins þar sem
búið væri að gera samninga við
verktaka fyrir næsta ár. Það hefði
þurft að skera niður framkvæmd-
aáætlunina mun fyrr til að koma í
veg fyrir að Hitaveitan þurfi að
taka lán, sagði Eysteinn.
-sg
Kópavogur
Óbreytt
gjöld
Útsvar áfram 6,7% og
óbreytt álagning fast-
eignagjalda
Bæjarráð Kópavogs hefur
samþykkt samhjóða álagningu
helstu gjalda fyrir næsta ár. Ut-
svarsálagning verður óbreytt frá
fyrra ári 6,7% og engin hækkun
verður á fasteignagjöldum utan
hækkun fasteignainats.
Samkvæmt upplýsingum
Björns Þorsteinssonar bæjarrit-
ara í Kópavogi, verða fast-
eignagjöldin innheimt með 10 af-
borgunum 10 fyrstu mánuði árs-
ins. I fyrra var veittur 15% af-
sláttur til þeirra sem borguðu
gjöldin upp á fyrsta gjalddaga en
nú verður veittur 10% afsláttur.
Þá fá þeir sem borga 5 fyrstu af-
borganir fyrir 25. janúar og 5
síðari afborganirnar fyrir 15 júní,
4% afslátt gjalda í hvort skipti.
- Þessi dreifing á innheimtu
fasteignagjalda sem tekin var upp
í fyrra, hefur mælst vel fyrir og
einnig komið vel út fyrir bæjarfé-
lagið. Þess vegna höldum við
þessu áfram, sagði Björn.
Áætlað er að útsvarstekjur
bæjarsjóðs Kópavogs á næsta ári
verði um 630 miljónir króna.
-lg
Vertíðin
Sfldarfrystingin í jámum
Síldarfrystingu lokiðfyrir Japansmarkað. SHfrysti 3500 tonn en
Sambandið aðeins 1200 tonn af2400. Verið aðfrysta á Evrópumarkað
Síldarfrystingu fyrir Japans-
markað er lokið hjá fisk-
vinnslustöðvum SH og Sam-
bandsins á vertíðinni. Hjá SH
náðist að frysta upp í samninga
eða 3500 tonn en hjá Sambandinu
aðeins 1200 tonn af 2400 tonnum
sem áætlað var að frysta fyrir
Japan.
Að sögn Páls Maríssonar hjá
sjávarafurðadeild Sambandsins
hefur vertíðin verið hálfleiðinleg
með tilliti til síldarfrystingar.
Mikið hefur verið af smá. síld í
afla bátanna og auk þess áta í
henni af og til. Sambandshúsin
einbeita sér nú að frysta síld fyrir
Evrópumarkað og hafa þegar
fryst um helmingin af því sem
áætlað er eða um þúsund tonn.
Þá er einnig verið að frysta síld
fyrir Evrópumarkað hjá SH-
húsum og að sögn Helga Þór-
hallssonar hefur það gengið von-
um framar. Helgi sagði verðin
góð og ef eitthvað er þá færu þau
hækkandi. Hann sagði að afurða-
verð á frystri síld til Japans hefði
hækkað um 30% frá síðustu ver-
tíð í dollurum talið.
Hjá báðum þessum aðilum er
þegar búið að skipa út svo til allri
framleiðslunni af frystri síld en
hún hefurfarið jafnóðum. Japan-
Síldarfrystingu fyrir Japansmarkað er lokið og frysting fyrir Evrópumarkað er langt komin. Mynd frá
Neskaupstaö: H.B.
ir hafa verið með eftirlitsmenn í framleiðslunni. Þeir hafa mestan °8 aö h“n sé teit og um 300
stöðvunum og fylgst vel með áhuga á stærstu sfldinni um 33 cm grömm að þyngd. -grh
Ríkisstjórnin
Jafnvægis-dans í neðri deildinni
Óvissa um afgreiðslu tekjuöflunarfrumvarpa. Stjórnarandstaðan ekki á einu máli.
Stjórnarliðar óhrœddir við að láta kjósa. Miklar líkur á þinghaldi milli jóla og nýárs
Olafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra hefur nú lagt
fram fimm tekjuöflunarfrum-
vörp á þingi, og eiga þau saman-
lagt að tryggja ríkissjóði tekjur
upp á tæpa 5 miljarða króna.
Vegna stöðunnar á þingi verður
ríkisstjórnin að treysta á hjásetu
eða stuðning að minnsta kosti
eins þingmanns úr stjórnarand-
stöðunni í neðri deild.
Stjórnarandstaðan er ekki
sameinuð í andstöðu við þessi
frumvörp og er ljóst að ríkis-
stjórnin hefur þegar stuðning
fyrir sumum þeirra og fyrir hluta
annarra. Fundum fulltrúa stjórn-
arflokkanna með fulltrúum
stjórnarandstöðuflokkanna er
sjálfsagt ætlað að tryggja fram-
gang frumvarpa stjórnarinnar, en
ljóst er að ríkisstjórnin á fyrir
höndum mikinn jafnvægisdans í
þessum efnum og verður vafa-
laust að gefa eitthvað undan fyrir
stjórnarandstöðunni.
Eitt frumvarpanna sker sig úr
að því leyti að það virðist eiga
tryggan stuðning allra þing-
flokka, en það er frestun á gildis-
töku virðisaukaskatts, sem gefur
ríkissjóði 1,2 miljarða í tekjur.
Sjálfstæðisflokkurinn og Borgar-
aflokkurinn hafa lýst yfir and-
stöðu við hækkun á sérstökum
skatti á verslunar- og skrifstofu-
húsnæði, en skatthlutfall er í
frumvarpi hækkað úr 1,1% í
2,2% og á að gefa ríkissjóði 410
miljónir króna. Aðalheiður
Bjarnfreðsdóttir þingmaður
Borgaraflokksins er talin ætla að
sitja hjá við afgreiðslu þessa
frumvarps, og myndi það nægja
stjórninni til að fá málið fram.
Deilt um vörugjald
Það frumvarp sem gæti valdið
ríkisstjórninni mestum vand-
ræöum er frumvarp um vöru-
gjald. Þær breytingar voru gerðar
á þessum stofm um síðustu ára-
mót, að ýmis gjöld voru felld nið-
ur og tekið upp eitt almennt vöru-
gjald upp á 14%. Nú er lagt til að
vörugjaldsflokkarnir verði þrír;
10%, 20% og 25%. Hæsta gjald-
ið verður sett á öl og sælgæti, sæta
ávaxtasafa og sætt kex. Þennan
hluta frumvarpsins styður
Kvennalistinn út frá hollustu-
sjónarmiðum, en hefur sett sig
upp á móti öðrum vörugjalds-
flokkum eins og 20% vörugjaldi á
heimilistæki og byggingarvörur
og 10% á timbur, sement, hús-
gögn og innréttingar. Borgarafl-
okkurinn og Sjálfstæðisflokkur-
inn eru andvígir frumvörpunum í
heild.
Eftir fyrstu viðræður Ólafs
Ragnars, Jóns Baldvins Hanni-
balssonar og Halldórs Ásgríms-
sonar við fulltrúa stjórnarand-
stöðunnar á mánudagskvöld,
sagði Ólafur að fundurinn sýndi
að þessi vinnubrögð væru skyn-
samleg. Þessar viðræður myndu
halda áfram næstu daga. En í
gærkveldi sat þríeyki stjórnar-
flokkanna á fundi um þessi mál.
Happdrættin
sloppin?
Tvö tekjuöflunarfrumvörp
hafa ekki litið dagsins ljós á Al-
þingi. Það eru frumvarp um
tekju- og eignaskatt og um svo
kallaðan happdrættisskatt. Mikil
andstaða er við happdrættisskatt-
inn í þingflokki Framsóknar-
flokksins og telja sumir að fjár-
málaráðherrann muni ekki leggja
frumvarpið fram, þó hann hafi
sjálfur ekki gefið það til kynna.
Bráðabirgðalögin eru enn í nefnd
í efri deild og gætu reynst stjórn-
inni þung í skauti. Kvennalistinn
sættir sig ekki við frystingu kjara-
samninga og að fjármagn skuli
tekið úr Atvinnuleysistrygginga-
sjóði og fært til hins nýja At-
vinnutryggingasj óðs.
Jólaleyfi þingmanna á að hefj-'
ast þann 22. desember. Flestir
telja ólíklegt að svo geti orðið og
eru líkur á að þingfundir verði á
milli jóla og nýárs. Einnig hefur
heyrst að afgreiðslu fjárlaga-
frumvarpsins verði frestað fram
yfir áramót en enginn stjórnar-
liða hefur viljað staðfesta það.
Nokkur biðstaða er í þessum mál-
um á meðan viðræður fara fram á
milli stjórnar og stjórnarand-
stöðu, og voru til dæmis engir
fundir í fjárveitinganefnd í gær og
á mánudag. En það er afarsjald-
gæft að ekki séu haldnir fundir í
þeirri nefnd tvo daga í röð á þess-
um árstíma. Stjórnarþingmenn
virðast óhræddari við kosningar
nú en fyrr í haust og sagði einn
þeirra við Þjóðviljann, að ei
stjórnarandstaðan ætlaði að
standa hörð á móti ríkisstjórninni
við afgreiðslu fjáröflunarfrum-
varpanna, væri ekkert annað að
gera en bjóða henni í kosningar.
-hmp
< Miðvikudagur 7. desember 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3