Þjóðviljinn - 07.12.1988, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 07.12.1988, Blaðsíða 8
MENNING Mynd Hauks af kútter Haraldi. Skip á Skaganum Haukur Halldórsson mynd- listarmaður sýnir rúmlega fjöru- tíu grafíkmyndir í Bæjar- og hér- aðsbókasafni Akraness. Er upp- istaða sýningarinnar gömul og ný skip, ásamt myndum frá og tengdum Akranesi. Allar mynd- irnar eru gerðar í takmörkuðu upplagi, númeraðar og áritaðar af höfundi. Ef áhugi og undirtektir Akur- nesinga reynist nægur hefur lista- maðurinn í hyggju að vinna 25-30 sérstakar grafík möppur með fjórum til sex myndum frá og um Akranes. Sýningin stendur til 12. desember og er opin virka daga kl. 15-18:30, og kl. 14-20:30 um helgar. Flautuleikur Kolbeinn Bjarnason flautu- eráHáskólatónleikumíNorræna leikari flytur verk eftir Leeuw, húsinu kl. 12:30 í dag. Hjálmar H. Ragnarsson og Ruit- Kammermúsík í Bústaðakirkju Kammermúsíkklúbburinn heldur aðra tónleika starfsársins í Bústaðakirkju í kvöld kl. 20:30. Á efnisskránni er Tríó fyrir pí- anó, fiðlu og lágfiðlu (Kegelstatt- tríóið) eftir Mozart, Tríó í B-dúr, fyrir píanó, klarínettu og selló eftir Beethoven, og Kvintett í B- dúr fyrir klarínettu og strengja- kvartett eftir Weber. Laufey Sigurðardóttir, Sean Bradley og Helga Þórarinsdóttir sjá um fiðluleikinn á tónleikun- um, Ólöf Sesselja Óskarsdóttir leikur á selló, Jón Aðalsteinn Þorgeirsson á klarínettu og Þor- steinn Gauti Sigurðsson á píanó. Fimm af sex tónlistarmönnum sem koma fram á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins í Bú- staðakirkju í k'völd. Alþýðubankinn á Akureyri kynnir Ijósmyndir Harðar Geirssonar. Kynning á myndum Harðar Alþýðubankinn á Akureyri og Menningarsamtök Norðlendinga kynna þessa dagana ljósmyndir Harðar Geirssonar, sem er 28 ára Akureyringur og áhugaljós- myndari. Hörður er lærður rafvirki, og hefur haldið tvær einkasýningar á ljósmyndum, auk þess sem hann hefur unnið að ýmsum ljósmynd- averkefnum. Hann starfar nú við ljósmyndadeild Minjasafnsins á Akureyri. Á kynningunni, sem er í af- greiðslusal bankans að Skipagötu 14, Akureyri, eru 13 litmyndir teknar á undanförnum 4 árum, og hefur Hörður sótt myndefni í íslenska náttúru og evrópska menningu. Sýningunni lýkur 6. janúar 1989. Á leið Hjáverk sf hefur sent frá sér ljóðabókina Á leið til þín, eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur blaða- mann. Guðrún er blaðamaður við Morgunblaðið, en vann áður til þín við dagskrárgerð og frétta- mennsku hjá Ríkisútvarpinu, hljóðvarpi. Bókin er til sölu í bókaverslunum og hjá höfundi. Tónlist Áskell á geisladisk Fyrsti geisladiskurinn með tónlist eftir íslenskt tónskáld gefmn út hér á landi Áskell Másson ÁSKELL MÁSSON TRÍÓ PRÍM • PARTÍTA SÓNATA KLARINETTKONSERT Listaverk eftir Sigurð Örlygsson prýðir umslag geisladisksins. klarinett og hljómsveit. Hafa flest verkin verið flutt víða um lönd. Klarinettkonsertinn fékk sérstaka viðurkenningu á þingi útvarpsstöðva í París, og var eftir það útvarpað í fjölmörgum Evr- ópulöndum, í Japan og í fsrael. Einnig hefur Fílharmóníusveitin í Osló flutt konsertinn á Norræn- um músíkdögum og á næsta ári er fyrirhugað að spila hann í Banda- ríkjunum. Ýmsir hljóðfæraleikarar hafa flutt einleiksverkin Prím og Són- ötu fyrir marimbu víða um Evr- ópu. Partítan var frumflutt á veg- um Musica Nova hér á landi, og hefur einnig verið flutt í nokkrum borgum í Noregi og Svíþjóð. Trí- óið var frumflutt á tónleikum helguðum tónlist Áskels Más- sonar í London, og eftir það með- al annars á Listahátíð 1984. Hljóðfæraleik á diskinum ann- ast Sinfóníuhljómsveit íslands undir stjórn Páls P. Pálssonar, ásamt einleikurunum Einari Jó- hannessyni, Guðnýju Guð- mundsdóttur, Unni Sveinbjarn- ardóttur, Gert Mortensen, Jósefi Ka Cheung Fung og Roger Carls- syni. LG Grammið hefur gefið út geisla- disk með tónverkum eftir Áskel Másson tónskáld, og mun það vera fyrsti geisladiskurinn sem út kemur hér á landi með tónlist eftir íslcnskt tónskáld. Á diskinum eru fimm tónverk: Tríó fyrir klarínett, fiðlu og víólu, Prím fyrir litla trommu, Partita (Nocturne) fyrir gítar og slag- verk, Sónata fyrir einleiksmar- imbu og Klarinettkonsert fyrir 8 SÍÐA ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 7. desember 1988 Leikhús Erum við svona? Leikfélag Keflavíkur sýnir Erum við svona? Höfundur og leikstjóri Hulda Ólafsdóttir Föstudaginn 19. nóvember frumsýndi Leikfélag Keflavíkur revíuna „Erum við svona" á veitingahúsinu Glóðinni. Verk þetta sem skiptist í fimm laustengda þætti ásamt söngv- um er flutt af 17 manna leikhópi ásamt fjögurra manna hljóm- sveit. Höfundur og leikstjóri er Hulda Ólafsdóttir en hún hefur áður stjórnað sýningum hjá Leikfélagi Keflavíkur og víðar um land auk þess sem Ríkisútvarpið hefur flutt verk eftir hana. Sú var tíðin að revíusýningar stóðu með miklum blóma í Kefla- vík og voru fastir punktar í menn- ingartilveru bæjarins. Þetta var á þeim gullaldarárum er þeir fj and- vinirnir Helgi S. og Kristinn Reyr stóðu við stjórnvölinn bæði í lista og skemmtanalífi bæjarins. Þess- ara dýrðartíma þegar hvorki voru bylgjur, stjörnur né fjallhressir plötusnúðar til þess að skemmta sér fyrir okkur, heyrir maður Keflvíkinga minnast með eftirsjá og trega og margur er sá Keflvíkingur, kominn yfir miðjan aldur sem á fimmta glasi upphef- ur raust sýna og kyrjar forna bragi um ýmsaf kátlegar uppá- komur í bænum, sem eru nú að öðru leyti löngu gleymdar. Hér skal engu um það spáð hvort aðstandendum sýningar- innar „Erum við svona“ tekst að endurvekja þennan ágæta þátt í bæjarlífinu. Þótt þess væri óskandi segir mér svo hugur, að það verði örðugt verk á þessum döpru sjónvarpstímum. En hitt duldist engum að þessi sýning var fagmannlega unnin og flutt af því fjöri og leikgleði, sem er piparinn í sérhvern leikhúsrétt. Áhorfendur kunnu enda vel að meta það sem fram var reitt og voru bæði höfundur og leikendur innilega hylltir í leikslok. Það er þvf ástæða til þess að hvetja Keflvíkinga til þess að sýna þessu framtaki þann sóma að sækja sýninguna. Hún er hin ágætasta skemmtun. -ÁÁ

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.