Þjóðviljinn - 13.12.1988, Side 5
Samgönguráðuneytið
Áhættumat fyrir
Reykjavíkurflugvöll
Slysa- og mengunarhætta metin
Steingrímur J. Sigfússon sam-
gönguráðherra hefur skipað
nefnd sem skal vinna að gerð
áhættumats fyrir Reykjavíkur-
flugvöll. Slfkt áhættumat á að
segja fyrir um líkur þess að slys
verði í tengslum við flug til og frá
vellinum og vegna reksturs hans.
Einnig á að meta áhrif af rekstri
vallarins á mannlíf og dýralíf í ná-
grenni, svo scm loftmengun og
hávaðamörk.
Að sögn Steingríms J. Sigfús-
sonar er þessi vinna unnin nú
vegna þeirrar umræðu sem að
spannst út frá flugslysi því sem
átti sér stað í ágúst sl. þegar
kanadísk flugvél hrapaði til jarð-
ar aðeins 50 metra frá Hringb-
rautinni. Sú umræða hafi farið
fram meðal almennings og í fjöl-
miðlum, auk þess sem málið hafi
verið tekið til umræðu í borgarr-
áði, flugráði og almannavernd
Reykjavíkur.
1 nefndinni eru Þórður Þ. Þor-
bjarnarson, borgarverkfræðing-
ur og Guðjón Petersen, fram-
kvæmdastjóri Almannvarna sem
tilnefndir eru af borgarstjóranum
í Reykjavík, Pétur Einarsson,
flugmálastjóri og Jóhann H.
Jónsson frícvst. tilnefndir af flug-
ráði og Álfheiður Ingadóttir, líf-
fræðingur sem verður formaður
nefndarinnar og tilnefnd af ráð-
herra.
phh
BOKAKLUBBUR
áskrifenda Þjóðviljans
Tilboð vikuna 13.-20. desember
Skuggabox eftir Þórarin Eldjárn
Tilboð okkar að þessu sinni er
ný skáldsaga eftir Þórarin Eld-
járn, Skuggabox. Útgefnadi er
Gullbringa.
Þórarinn hefur um langt skeið
verið einn vinsælasti höfundur
þjóðarinnar, allt frá því hann ung-
ur tók upp á því að róa gegn
straumi í kveðskap með því að
nýta sér kveðskaparhefðina á
skopvísan hátt til ádrepu og ann-
arrar skemmtunar. Hann orti
meira að segja rímur - um Walt
Disney og son hans Mikka mús.
Þórarinn hefur og gefið út tvö
smásagnasöfn - og var í öðru
þeirra hin sérstæða ástands-
þjóðsaga um Tilbury, sem breytt
hefur verið í sjónvarpsmynd. í
skáldsögunni Kyrr kjör dró Þórar-
inn upp eftirminnilega mynd af
kramarmanni og allsleysingja
sem ræður galdri skáldskapar-
ins.
Skuggabox greinir frá íslend-
ingi sem gerir sig líklegan til að
verða eilífðarstúdent í Svíþjóð yfir
fáránlegri kenningu um tungu-
málið og skrýtnum uppfinning-
um. En fær boð um að hann hafi
fengið arf og heldur heim svam-
landi á sel sem Sæmundur forð-
um og byrja þá ýmsar uppákom-
ur undarlegar með margskonar
undirfurðulegum skeytum á siði,
hugsunarhátt, kenningasmíð og
tungutak í samtímanum.
Okkar verð kr 2200
Venjulegt verð kr 2480.
JOLAUMFERÐ I REYKJAVIK
- engin gjöld í stöðumæla á laugardögum í desember né á Þorláksmessu -
* Fjölgað verður um 640 gjaldfrjáls bílastæði frá 10.-24. des.
1. í bílakjallara á horni Vesturgötu og Garðastrætis (ekið inn frá Vesturgötu)
4. Á lóðinni við Skúlagötu 4
5. Á svæði miili Skúiagötu og Sætúns, vestan bensínst. Olís
6. Á lóðum Eimskips við Vitastíg/Skúlagötu
7. Á opnu svæði norðan Vitatorgs
8. Á svæði við Mjölnisholt/Brautarholt
80 stæði
60 stæði
150 stæði
150 stæði
100 stæði
100 stæði
* Bakkastæði (ekið inn frá Kalkofnsvegi) og Kolaport (nr. 2 og 3), frítt á laugardögum 450 stæði
* Á laugardögum í desember og á Þorláksmessu verður ókeypis í stöðu-
mæla, bílastæði og bílastæðahús á vegum Reykjavíkurborgar.
* Ökumenn, sýnið lipurð og tillitssemi í umferðinni. Akið varlega og fækkið
þannig umferðarslysum.
BÍLASTÆÐASJÓÐUR REYKJAVÍKURBORGAR