Þjóðviljinn - 20.12.1988, Blaðsíða 10
Nýjar bækur — Nýjar bækur — Nýjar bækur — Nýjar bækur — Nýjar bækur
Cuðjón Sveinsson
Hamingju-
blómin
Mcð mynduin eflir Pétur Behrens
íslenskt ævintýri
Hamingjublómin heitir ævin-
týri eftir Guðjóns Sveinsson sem
Bókaforlag Odds Bjömssonar
gefur út.
Þetta litla ævintýri er fullt af
lífi, lit og söng íslenskrar náttúru.
Þar segir frá lítilli stúlku, sem er á
ferð með undarlegan blómvönd,
viðbrögðum fólks við heimsókn
hennar og óvæntum endi.
Ævintýrið um litlu stúlkuna
með blómvöndinn er heillandi,
það fjallar um hæfileikann til að
höndla lífshamingjuna. Bókin er
rituð á góðu og blæbrigðaríku
máli.
Bókin er prýdd litmyndum
eftir listmálarann Pétur Behrens
á Höskuldsstöðum.
Prentun og bókband: Prent-
verk Odds Bjömssonar hf.
Barnaljóö
Jóhannesará
ensku
Nýlega sendi bókaútgáfa Máls
og menningar frá sér enska þýð-
ingu á bókinni Saga af Suðumesj-
um, Ijóð eftir Jóhannes úr
Kötlum sem gefið var út á síðast-
liðnu ári myndskreytt af Ragn-
heiði Gestsdóttur. Enska þýðing-
in ber nafnið The Fisherman’s
Boy and the Seal og ritaði Vigdís
Finnbogadóttir forseti formála
um uppmna ljóðsins og íslenska
menningu.
Saga af Suðumesjum er byggð
á íslenskri þjóðsögu og segir frá
dreng sem rær til fiskjar en
steypist útbyrðis. Á hafsbotni
hittir hann selinn Kobba, sem
reyndar er sonur Faraós. Hann
tekur drenginn með sér í höll sína
á hafsbotni þar sem verða
óvæntir fagnaðarfundir en sagan
endar á því að selurinn skilar
honum heim á jólakvöldi.
í bókinni em litmyndir á hverri
síðu.
THE FISHERMANS BOY
ANDTHESEAL
Jóh»-i?mos »t Kötium
FLÓAMARKAFHJRINN
Tanzanfukafflð komlð!
Áskrífendur hafið samband sem
fyrst. Nýir áskrífendur velkomnir.
Upplýsingar f síma 621309.
Tll aölu
sem ný, svört mótorhjólastígvól nr.
43, ísskápur á 4.000 kr., einstakl-
ingsrúm, Olympus myndavól og
klassískur gítar. Upplýsingar f sfma
33424 eftir kl. 19.00.
Ný fótaaðgerða8tofa
Guðríður Jóelsdóttir fótaaðgerða-
sórfræðingur hefur opnað fótaað-
gerðastofu að Borgartúni 31, 2.
hæð til hægrí. Tímapantanir alla
virka daga kl. 9.30-10.30 f sfma
623501.
Vantar þlg ekki
góðan bíl?
Er með SAAB 99 árg. ’80 sem fæst
á góðu verði. Sími 34597.
Tll sölu
Bama- og unglingahúsgögn:
Svefnbekkur, skrifborð og hillur.
Einnig Playmobil-leikföng. Uppl. í
sfma 688569 eftir ki. 19.
Tll sölu
herðaslá úr Ijósbrúnu minkaskinni.
Tilvalin jólagjöf. Sfmi 52029.
Herbergl tll lelgu
fyrir bamgóðan einstakling. Sfmi
52029.
Mýs óskast
Getur einhver selt mór mýs? Hafið
samband f síma 681384.
Svart/bvftt sjónvarp
fæst gefins. Sími 19679 kl. 19-20.
Plusssófasett
f mjög góðu lagi til sölu. Sfmi 41660
á kvöldin.
Til sölu sófasett
af Amigo gerð ca. 8-10 ára gamalt.
3+2+2 ásamt sófaborði. Uppl. f
sfma 53319.
Óskast geflns
Óska eftir litlum fsskáp og eldunar-
hellum. Hafið samband í síma
25372.
2 páfagaukar
f búri til sölu á kr. 3000. Uppl. f síma
36272 e. kl. 17.
Skföl óskast
Óska eftir að kaupa notuð vel með
farín skfði, 90 cm. löng, fyrír 3 ára.
Uppl. í síma 44465.
Jólasveinabúnlngar
til sölu. Upp. í síma 32497 e. kl. 20 á
kvöldin.
Eldavól m/gormahellum
til sölu, er f góðu lagi, verð kr. 5000,-
. Uppl. í síma 32251.
Tll sölu
Nordmende útvarp, plötuspilarí og
kassettutæki ásamt tveimur hátöl-
urum og skáp fyrir plötur og kas-
settur. Uppl. f síma 32098.
Harðfiskur
Hef til sölu léttvalsaðan steinbít.
Seldur í 600 króna pokum. Kflóverð
kr. 1800. Uppl. í síma 83677 á milli
kl. 9 og 12. Heimsendingarþjón-
usta.
Tll sölu
notað 12 manna matarstell og 6
manna kaffistell, brúnt að lit, selst
ódýrt. Einnig til sölu rautt raðsófa-
sett á kr. 7000. Uppl. f síma 40089
e. kl. 19.
Útidyrahurð
Til sölu er góð útidyrahurð úr furu.
Selst ódýrt. Uppl. í sfma 41831 e. kl.
Tll sölu
„Sessalong“ og nýtt ónotað BMX
hjól (fæst á góðu verði). Einnig
skíði, stafir og skíðaskór nr. 39-40.
Uppl. í síma 26069.
Gervljólatré
Stórt gervijólatré fæst gefins. Sími
84716.
Sófi óskast
Óska eftir gömlum 3ja sæta sófa
ódýrt eða gefins. Sími 21992.
Vantar ykkur
jólahrelngernlngu?
Við erum 2 stelpur sem tökum að
okkur að þrífa hjá ykkur fyrir jólin.
Hringið í síma 12364 milli kl. 7 og 9.
Borðstofuborð
Lítið ferkantað borstofuborð til söiu.
Tveir stólar fylgja. Uppl. í síma
611354.
Kettllngar
Tveir bröndóttir kettlingar fást gef-
ins. Uppl. í síma 35269 e. kl. 17.
Tll sölu
mjög fallegursnjógalli á 13-15 ára.,
dúnúlpa stærð L og kvenjakki nr.
38-46. Allt nýtt og keypt erlendis.
Uppl. í síma 20139.
Flóamarkaður
Opið mánudaga, þriðjudaga og
miðvikudaga kl. 14-18. Endalaust
úrval af góðum og umfram allt ódýr-
um vörum. Gjöfum veitt móttaka á
sama stað og tíma. Flóamarkaður
SDI, Hafnarstræti 17 kjallara.
Hjónarúm fæst gefins
stærð ca 150x120 án dýnu. Uppl. f
síma 12204.
Vél eða bfll óskast
Óska eftir 1500 eða 1600 vól úr
LÖDU eða gömlum bfl f heilu lagi.
Uppl. í síma 621633.
ísskópur óskast
Óska eftir að kaupa lítinn ódýran
ísskáp. Sfmi 30677.
Til sölu
ágættskrifborðselstódýrt,2gamlir .
hægindastólar fylgja með. Uppl. f
síma 29972 næstu kvöld.
Myndabækur
fyrir minnstu
börnin
Iðunn hefur gefið út fjórar litl-
ar myndabækur fyrir minnstu
bömin og nefnast þær Mikið að
gera: Góðan dag, Á morgnana, Á
daginn og Á kvöldin og eru eftir
Carol Thompson.
Bækurnar em án texta en allar
segja þær sögu sína á lifandi
myndmáli og lýsa annasömum
dagstundum yngstu bamanna á
kunnuglegan og kankvísan hátt
frá því vaknað er á morgnana þar
til gengið er til náða á kvöldin og
aldrei er góði, gamli bangsinn
langt undan.
Fræg unglinga-
bók eftir
Jan Terlouw
Iðunn hefur gefið út unglinga-
bókina Strfðsvetur eftir hol-
lenska höfundinn Jan Terlouw.
Saga þessi gerist að vetrarlagi á
styrjaldarámnum síðari, þegar
Holland er hernumið af Þjóð-
verjum og hvarvetna ríkir ógn og
skelfing. Það kemur í hlut Micha-
els, fimmtán ára drengs, að leyna
særðum enskum fallhlífarher-
manni og sjá fyrir þörfum hans.
Sagan er áhrifarík og flytur boð-
skap um frið og réttlæti handa
öllum mönnum.
Höfundur bókarinnar ólst
sjálfur upp á söguslóðum bókar-
innar, sem að talsverðu leyti er
byggð á bernskuminningum
hans, en hann var fjórtán ára þeg-
ar styrjöldinni lauk. Hann var
víðkunnur fyrir frábærar ungling-
abækur áður en þessi bók kom út,
en Strfðsvetur hlaut þegar æðstu
verðlaun sem veitt em í Hollandi
fyrir barna- og unglingabækur.
Strfðsvetur kom fyrst út í ís-
lenskri þýðingu árið 1977, en hef-
ur verið uppseld í nokkur ár.
Úlfur Hjörvar þýddi.
Strákasaga eftir
Kormák Sigurðs-
son
Iðunn hefur gefið út bókina
Staðfastur strákur eftir Kormák
Sigurðsson. Sagan segir frá
ævintýmm og uppátækjum Jóns
Óskars.
Jón Óskar ólst upp hjá ömmu
sinni í litlum kofa rétt utan við
bæinn. Hann var einþykkur og
fór oft eigin leiðir, og gamla kon-
an hafði því talsverðar áhyggjur,
ekki síst þegar hann sagðist aldrei
ætla að fara f skóla.
En þegar til kom fannst Jóni
Óskari alls ekki leiðinlegt að
ganga í skólann. Hann eignaðist
þar félaga og vini og rataði í ýmis
ævintýri. Og hann var sannarlega
staðfastur strákur, hugrakkur og
ráðagóður, en hann var einnig
fjörmikill æringi.
Bókin kom fyrst út árið 1958 en
hefur verið ófáanleg um árabil.
Sýnisbók um
ferskeytlur
Hjá Almenna bókafélaginu er
komin út bókin Ferskeytlan. Vís-
ur og stef frá ýmsum tímum. Kári
Tryggvason valdi vísumar í bók-
ina.
í vísum hefur skáldum oft tek-
ist að orða hugsun sína svo eftir-
minnilega að þær hafa flogið um
allt land. Margt bendir til þess að
áhugi sé enn að vakna á þessu
kveðskaparformi og er það vel.
Þessi bók er fyrir þá sem vilja
kynnast vísnagerð eins og hún
gerist best. Hún á jafnt erindi til
unglinga sem öldunga. í henni
em hátt á annað hundrað vísur
sem allar eiga það sameiginlegt
að geta staðið stakar, án heimilda
eða skýringa, á sama hátt og
kvæði í bókum höfunda.
Annars er óþarfi að fara stór-
um orðum um efni þessarar
bókar. Vísumar segja allt sem
segja þarf:
Allt sem þjóðin átti og naut,
allt sem hana dreymir,
allt sem hún þráði og aldrei
hlaut,
alþýðustakan geymir.
(Steingrímur Baldvinsson
í Nesi)
Ferskeytlan er 174 bls. að
stærð. Setningu og prentun ann-
aðist Steinholt hf. Bókband:
Félagsbókbandið-Bókfell hf.
Kápuútlit: Guðjón Ingi Hauks-
son.
Bókin um Minnu
Ég var að ljúka við að lesa þætti
úr lífssögu konu, áhrifaríka frá-
sögn. Bókin heitir Minna „engin
venjuleg mamma“ og er bæði um
Minnu og eftir Minnu. Dóttir
Minnu, Helga Thorberg, lýkur
hér að skrifa sögu móður sinnar
og koma til skila erindi því sem
Minna átti við samtíð sína. Helga
skrifar að mestu forsögu móður
sinnar og fyllir í eyður minninga-
brota hennar og tekst vel að
tengja frásögn sína þáttunum
sem Minna lét eftir sig.
Þegar ég lagði frá mér bókina
var mér ljóst að saga Minnu er
ekki öll, og ekki nærri öll, í rituð-
um táknum bókarinnar, hana
verður ekki síður að lesa á milli
línanna. Þetta er saga konu sem
vægast sagt var engin hversdags-
manneskja og alveg áreiðanlega
fædd á röngum tíma. Hið öra
skap hennar, lífsþorsti, listrænar
hneigðir og athafnaþörf féll ekki
að kvenímynd þess tíma og þess
umhverfis sem hún er sprottin úr.
Eilíf togstreita milli þess sem má
og á að vera að gera ásamt tilfinn-
ingalegum áföllum frá blautu
bamsbeini setja sín spor í huga og
hjarta Minnu og verða henni erf-
ið úrvinnslu.
Minna „engin venjuleg
mamma“ er saga konu sem árum
saman átti við svo erfið geðræn
vandamál að stríða að tólf ár af
sinni tiltölulega stuttu ævi var
hún Iokuð inni á stofnunum. Þar
var hún að sjálfsögðu undir
læknishendi, undir handarjaðri
sérmenntaðs hjúkrunarfólks.
Hún naut handleiðslu og var í
umsjá ábyrgra aðila en var svipt
sjálfræði og eigin ábyrgð að
mestu. Hún var einnig svipt þeim
umvefjandi kærleika sem hún
þráði mest án þess þó að geta tjáð
sig þar um. Aftur á móti fékk hún
í ríkum mæli alla vega litar pillur.
Hún var bæði háð þeim og óttað-
ist þær. Þegar hún loks komst
„út“, heim aftur, varð hún að
berjast við nýja erfiðleika, aðra
veröld, veröld sem hún þekkti
ekki. Heimurinn hafði breyst en
þó var eitt óbreytt: Fordómamir í
garð þeirra sem em, eða hafa ver-
ið, öðru vísi.
Bókin hennar Minnu á erindi
við okkur öll, það má margt af
henni læra og það gerir hver og
einn best við lestur hennar í ein-
rúmi. Þar má einnig lesa margt á
milli línanna þótt margt sé sagt
bemm orðum. Á hljóðri stund
talar hún til okkar og biður um
afstöðu án fordóma. Helga Thor-
berg skrifar til móður sinnar af
látleysi og hlýju. Hún lýkur bók-
inni á þessa leið: „Saga þín er hér
með komin á bók og vonandi
verður henni tekið eins og þú
væntir, hún á að vera innlegg í
umræðuna um breytt viðhorf til
fólks með geðræn vandamál.“
Hvlgn Thorbvxg lýkur sögu móðtir
hffac sinnar, Gufíhnnu Breiölförð
Og sem ég lýk þessari stuttu
umfjöllun um bókina hennar
Minnu heyri ég í útvarpinu erindi
um skáldið Ezra Pound. Ég
hrekk við er ég heyri lýsingu á
persónueinkennum hans, lýsingu
á hinu öra skapi hans, geðofsa,
sveiflum og tilfinningalegum við-
brögðum og þeim örlögum sem
hann varð að lúta. Lýsingin átti
að flestu leyti við Minnu, konuna
með heita hjartað, dirfskuna,
listhneigðina og stóm lundina.
Rannveig Eirfksdóttir
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 20. desember 1988