Þjóðviljinn - 24.12.1988, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 24.12.1988, Blaðsíða 15
■ ÖRFRÉTTIRH Nýr utan- ríkisráðherra ERLENDAR FRETTIR Víetnam Lengi getur vont versnað Forsætisrábherra slítur löggjafarsamkomunni eftir að hafa beðist afsökunar á afturför í efnahagslífi landsins Utvarpið í Hanoi, höfuðborg Víetnams, skýrði frá því í gær að þjóðþingi landsins hefði verið slitið fyrr um daginn með næsta dramatískum hætti. Forsætisráð- herrann, Do Muoi, hefði lokið lestri svartrar skýrslu um ástand og horfur í efnahagsmálum og beðið þingheim þvínæst forláts á því að ríkisstjórnin skyldi ekki hafa haft erindi sem erfiði í efna- hagsmálum. Útvarpað var völdum köflum úr ræðu ráðherrans sem klykkti út með því að heita á landsmenn að auka ráðdeild og sparsemi. Do Muoi mælti: „Því fer óra- fjarri að hægt sé að una við niður- stöðu og afrakstur þess sem bryddað hefur verið uppá... gífurlegt verk er óunnið og því er ekki að neita að hagstjómin hef- ur verið slakleg og á ýmsum svið- um gjörsamlega í molum. í áheyrn þjóðþingsins viður- kenni ég fyrir hönd ríkisstjórnar- innar að mjög margt hefur farið aflaga og heiti því að verkefni framtíðarinnar verði betur af hendi leyst.“ Löggjafarsamkoma Víetnama hefur fremur haft orð á sér fyrir undirgefni við forystumenn kommúnistaflokksins en hitt. Því Og þótt mönnum áskotnist fé eru neysluvörur af skornum skammti í verslunum Hanoiborgar. þykir sæta tíðindum að fundir þess uppá síðkastið hafa verið all róstusamir og háværir. Ljóst þyk- ir að þingmenn hafi knúið fram játningar forsætisráðherrans með harkalegri gagnrýni. Do Muoi kvað lítils jafnvægis gæta í víetnömsku efnahagslífi, fólksfjölgun væri slík að til stór- felldra vandræða horfði og atvinnuleysi ógurlegt, miljónir vinnufærra manna fengju ekki handtak að gera. „Lífskjör mikils meirihluta verkafólks hafa versnað dag frá degi.“ Erlendum fréttaskýrendum og víetnömskum heimildamönnum ber saman um að tekist sé á af mikilli hörku í stjórnmálaráði kommúnistaflokksins um ný- sköpunarstefnu í efnahagslífi. Do Moui vék að þessu í ræðunni með diplómatísku orðfæri: „Þegar ráðist er í nýjungar er hætt við að ýms vandamál komi upp og ekki óeðlilegt að skoðanir séu skiptar um skeið. Okkur ber þó í lengstu lög að forðast illindi og gífuryrði hvert í annars garð.“ Reuter/-ks. Sri Lanka Neyðarastandslög úr gildi Hafa gilt ífimm ár - stjórnvöld vonast eftir sáttum við singhalska skœruliða Kúbanir Ánægðii með samning fCnvtrÁ na fólnctnr (sraelsríkis segir að „arabískir hryðjuverkamenn" hafi grandað Pan Am þotunni yfir Skotlandi og að Bandaríkjamenn beri óbeina ábyrgð á því með því að virða PLO viðlits. Moshe Arens er flokksbróðir Yitzhaks Shamírs forsætisráðherra og lét þessi orð falla í ísraelska ríkisútvarpinu. Hann er fyrrum sendiherra (sra- els í Washington. „Eitt sinn sneru Bandaríkjamenn og ísraelsmenn bökum saman í baráttunni gegn hryðjuverkamönnum og er mér tregt tungu að hræra nú þegar vinir mínir vestra virðast hafa gleymt því að PLO er höfuðból hryðjuverkastarfseminnar. Hverskonar viðurkenning á lög- sögu og rétti PLO hvetur þau til óhæfuverka." „Sundraðir föllum vér“ sagði Najíbullah um daginn í reiðilestri yfir hausamótum flokksbræðra sinna og -systra í Alþýðuflokki Afganistans. Tass fréttastofan skýrði frá þessu í gær og hermir að leiðtoginn hafi látið svo ummælt að áróöursmál flokksins væru í hinni mestu ó- reiðu. „Hann hvatti til einingar í röðum félaga og sagði að flokk- urinn gæti því aðeins verið öflgur að þeir settu niður deilur sínar." „Gleðilegt jól!“ segir þingforseti íslamska bylt- ingarríkisins (rans við þjóðir heims og komum við því hér með á framfæri. íranska fréttastofan IRNA hefur það ennfremur eftir Alí Akbar Hashemí Rafsanjaní að hann óski þess að „harðstjórar sem þykjast kristnir" söðli um og fari að hegða sér í samræmi við það. „Á þessum merkisdegi sendum við guðhræddum mönnum um öll byggð ból bestu kveðjur." Jassír Arafat gekk á fund Jóhannesar Páls II páfa í gær með fríðu föruneyti og var margt skrafað þótt friðarmál Austurlanda nær væru vitaskuld efst á baugi. Páfi kvað hafa sagt að ísraelsmenn og Palestínu- menn ættu sama „grundvallar- rétt“ til eigin lands en hvorir tveggju yrðu að hætta að fremja ofbeldisverk. Fundurinn stóð í 20 mínútur og segir í yfirlýsingu Páfagarðs að hans heilagleiki hafi fallist á að eiga orðastað viö Arafat sökum þess ..að hann hefur staðið stöðugur í baráttunni fyrir réttindum fólks síns og þráð frið.“ Fyrr í gær ræddi Arafat drykklanga stund við Ciriaco de Mita, forsætisráðherra Ítalíu. Lét hann þá svo ummælt að nú væri lag fyrir Sameinuðu þjóðirnar að kveðja til ráðstefnu ríkja um frið í Austurlöndum nær. Þrír táningar fundu sviðið umslag skammt frá braki úr Pan Am þotunni sem fórst yfir Skotlandi á miðviku- dagskvöld. Þeir fóru náttúrlega með það heim á bæ og færðu föður sjnum sem opnaði og viti menn! í Ijós komu peningaseðlar og ferðatékkar, alls um hálf mjjj- ón dollnra. Einsog sönnum kalv- ínista sæmir lét faðirinn lögreglu vita sem sótti féð. Ríkisstjórn Sri Lanka tilkynnti í gær að neyðarástandslög, sem hafa verið í gildi síðan 1983, yrðu ekki framlengd er þau falla úr gildi 15. jan. n.k. Tilkynnti La- lith Athulathmudali, þjóðarör- yggisráðherra, þetta eftir fyrsta fund ríkisstjórnarinnar eftir for- setakosningarnar á mánudag s.l., er Ranasinghe Premadasa, for- sætisráðherra, var kjörinn for- seti. Athulathmudali sagði að stjórnin myndi gera sitt besta til að komast að samkomulagi við tamílska skæruliða á norðurhluta eyjarinnar og singhalska skæru- Samkvæmt niðurstöðum skoð- anakönnunar er meirihluti ísraela hlynntur því að ísrael taki upp samningaviðræður við Frels- issamtök Palestínu (PLO). Shim- on Peres, leiðtogi Verkamanna- flokksins, fráfarandi utanríkis- ráðherra og núverandi fjármála- ráðherra, gaf nýlega í skyn að ekki væri útilokað að hann gæti sæst á slíkar viðræður, en Likud- bandalag Shamirs forsætisráð- herra tekur það ekki í mál og sú stefna varðofan á er nefndir tveir stærstu flokkar ísraels mynduðu nýja stjórn. Niðurstöður skoðanakönnun- liða á suðurhlutanum. Hann kvað stjórnina og hafa í hyggju að opna í næsta mánuði skóla, sem lokaðir hafa verið í tæpar tíu vik- ur út af róstum. Að sögn iögreglu hefur sing- halska skæruliðahreyfingin, sem þekktust er undir skammstöfun- inni JVP, drepið yfir 700 manns frá því í ágúst 1987. En síðan á kosningadaginn hefur verið til- tölulega lítið um ofbeldi á eynni og er líklegt að stjórnin túlki það sem merki þess, að skæruliðar þessir séu teknir að þreytast á vígaferlum. Þjóðaröryggis- ráðherrann skoraði við þetta ísrael arinnar eru á þá leið, að 54 af hundraði ísraela vilji að stjórn þeirra taki upp viðræður við PLO, að því tilskildu að Arafat leiðtogi samtakanna standi við yfirlýsingar sínar gefnar í Genf og loforð sitt um að binda endi á hryðjuverk. 44 af hundraði að- spurðra lýstu sig andvíga við- ræðum við PLO. ísraelskir borg- arar arabískrar ættar, sem eru um 650.000 talsins, voru ekki spurðir álits, en talið er víst að þorri þeirra kjósi stjórnmáiaflokka, sem hlynntir eru viðræðum. Talsmenn Dahafstofnúnarinn- ar, sem skoðanakönnunina. tækifæri á JVP að láta af mannvígum og taka þátt í þing- kosningum, sem eiga að fara fram á eynni 15. febr. n.k. Þrátt fyrir tiltölulega mikla friðsemd á eynni síðustu daga er loft þar enn mjög lævi blandið og margt í óvissu, meðal annars vegna þess að leiðtogi helsta stjórnarandstöðuflokksins, Sir- imavo Bandaranaike, hefur sak- að stjórnarflokkinn um kosning- asvindl í forsetakosningunum. JVP-hreyfingin hefur verið talin ívið vinsamlegri henni en stjórn- arflokknum. Reuter/-dþ. gerði, sögðu í viðtali við Yedioth Ahronoth, víðlesnasta blað landsins, að ljóst mætti vera af niðurstöðunum að undanfarið hefði þeirri skoðun, að ísrael ætti að taka upp viðræður við PLO, aukist fylgi að verulegum mun. Eins og kunnugt er ákváðu Bandaríkin, langmikilvægasti bandamaður ísraels, að hefja viðræður við PLO eftir að Arafat viðurkenndi tilverurétt ísraels, hafnaði hryðjuverkum og lýsti yfir samþykki við samþykíctir Sameinuðu þjóðanna viðvíkjandi illdeilum ísraels og araba. Reuter/-dþ. Kúbanir Ánægðir með samning Kastró ogfélagar hans á þingi spretta úr sœtumfagnandi Stjórnvöld á Kúbu þykjast hafa himin höndum tekið að loks náð- ist samkomulag fjcnda í sunnan- verðri Afríku um sjálfstæði Nam- ibíu og heimkvaðningu erlendra herja frá Angólu. Það er kunnara en frá þurfi að segja að undanfar- in 13 ár hafa um 50 þúsund kúb- anskir hermenn liðsinnt ráða- mönnum í Lúanda. Samkvæmt ákvæðum samningsins eiga hinir síðustu þeirra að vera horfnir á braut um miðbik ársins 1991. Allir fulltrúar á löggjafarþing- inu í Havana, nær 500 talsins, risu úr sætum og fögnuðu sætlega með forseta sínum, Fídel Kastró, þegar fréttir bárust um að máls- metandi fulltrúar fjandþjóðanna, utanríkisráðherrar Kúbu, Suður- Afríku og Angólu, hefðu lagt nafn sitt við samninginn í fyrra- dag. I fréttatíma sjónvarps var at- burði þessum gerð býsna góð skil, sýndar voru kvikmyndir af hátíðahöldum vegna samkomu- lagsins og fengu sjónvarpsáhorf- endur að auki að heyra ræðu síns utanríkisráðherra, Isidoros Malmiercas, frá upphafi til enda. Malmierca kom víða við. Hann bar Bandaríkjastjórn fláttskap á brýn, hún græfi undan friði í sunnanverðri Afríku og reyndi ekki að rekja rætur vandans því hún léti sem hún vissi ekki um aðskilnaðarstefnu ráðamanna í Pretóríu, „höfuðorsök ófriðar á svæðinu." Granma er málgagn yfirvald- anna á Kúbu. í því var farið mörgum orðum og fögrum um samninginn sem „.. .aflaði síðustu nýlendu Afríku frelsis.“ Reuter/-ks. Meirihluti vill viðræður við PL0 Viðrœðusinnum eykstfylgi - nýja stjórnin þvertekurfyrir að talað sé við samtökin Laugardagur 24. desember 1988 þjóÐVILJINN ~ SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.