Þjóðviljinn - 29.12.1988, Síða 13

Þjóðviljinn - 29.12.1988, Síða 13
_____________________ERLENDAR FRÉTTIR______________________ Flugslysið í Skotlandi Sprengja grandaði PanAm-vél Bandaríkjamenn höfðu verið aðvaraðir -breski flutningamálaráðherrann lét ekki Heathrow vita-PFLP-GCogAbu Nidal undir grun Rannsóknarmenn á vegum breska flutningamálaráðu- neytisins hafa komist að þeirri niðurstöðu, að öflug plast- sprengja hafí grandað banda- rísku farþegaþotunni frá Pan Amflugfélaginu, sem fórst í Skot- landi 21. des. s.I. í slysi þessu fór- ust 259 farþegar og áhafnar- menn, sem með flugvélinni voru, og talið er að brak úr henni, sem féll niður á skosku smáborgina Lockerbie, hafi orðið 11 mönnum þar að bana. Líklegt er að sprengjan hafi verið í farangursrými flugvélar- innar, enda þótt ekki sé það fullvíst enn. Málmflísar, sem fundust í braki og líkamsleifum, munu hafa orðið til þess að rannsóknarmenn komust að áð- urgreindri niðurstöðu. Flugvélin, sem var af gerðinni Boeing 747, var á leiðinni frá Frankfurt am Main til John F. Kennedyflug- vallar við New York, millilenti á Heathrowflugvelli við Lundúna- borg og var lögð af stað þaðan fyrir klukkustund, er sprengingin varð um borð. Vitað er að arabi nokkur hafði hringt í bandaríska sendiráðið í Helsinki og sagt að til stæði að granda Pan Amvél, sem legði upp frá Frankfurt. Sendiráðið hafði látið önnur bandarísk sendiráð í Evrópu vita af þessu, en engin viðvörun hafði verið birt opinberlega. Bresk stjórnvöld höfðu þó frétt þetta, og er nú Paul Channon, flutningamála- ráðherra Breta, harðlega gagnrýndur fyrir að hafa ekki varað stjómendur Heathrowflugvallar við. Talið er að flugvélin hafi verið í um 9500 metra hæð er sprengingin varð í henni. í tilkynningunni frá breska flutningamálaráðuneytinu um orsakir slyssins er ekkert vikið að hugsanlegum tilræðismönnum, en ekki er ólíklegt að nánari rannsókn á afleiðingum spreng- ingarinnar gæti leitt eitthvað í ljós um það. ísraelskur embættis- maður, sem ekki vildi láta nafns síns getið við fréttamann, sagði ísraela gruna andstæðinga Jass- ers Arafat meðal Palestínu- manna um ódæðið, og myndi til- gangur þeirra með því hafa verið sá, að spilla fyrir friðarumleitun- um Arafats. Embættismaðurinn nefndi í þessu sambandi sérstak- lega PFLP-GC og kvað einn liðs- manna þeirra samtaka hafa verið handtekinn í Frankfurt í s.l. mán- uði. Væri sá grunaður um að hafa haft tilræði við flugvélar í huga. Maður sá, sem hringdi í banda- ríska sendiráðið í Helsinki, sagði þá hinsvegar að hópur venjulega kenndur við Abu Nidal, for- sprakka sinn, hefði hermdarverk gegn Pan Am í undirbúningi. Talsmaður hópsins ber aftur á móti af honum sakir og hefur vottað samúð hans venslafólki þeirra sem fórust. Lítt þekkt samtök, sem nefnast Varðliðar íslamsbyltingar, hafa lýst hryðjuverki þessu á hendur sér og segja það hefnd fyrir ír- önsku farþegaþotuna, sem bandarískt herskip skaut niður í ógáti yfir Persaflóa í júlí s.l. Pá fórust 290 manns. Vafi mun leika á sannleiksgildi þessarar yfirlýs- ingar og íranir þvertakó fyrir það að þeir hafi átt nokkurn hlut að hryðjuverkinu. Reuter/-dþ. Gígur og rústir í Lockerbie í Suðvestur-Skotlandi eftir brak úr Pan Amþotunni, sem hrapaði logandi til jarðar á hús og bíla. Afganistan Skæmliðar vísa kóngi á bug Burhannudin Rabbani, leiðtogi þess afganska skæruliðabanda- lags sem hefur griðland og bæki- stöðvar í Pakistan, lýsti því yfir í Teheran i gær að ekki kæmi til greina að Zahir Shah, fyrrum konungur Afganistans, fengi nokkra hlutdeild í völdum þar í landi. Júlí Vorontsov, aðstoðar- utanríkisráðherra Sovétríkjanna og ambassador þeirra I Kabúl, ræddi nýlega við konung á Ítalíu, þar sem hann býr í útlegð, senni- lega í von um að hann fengist til að reyna að koma á samninga- umleitunum með skæruliðum og Kabúlstjórninni. Zahir Shah var steypt af stóli 1973 af frænda sínum einum, sem þar með batt enda á sögu kon- ungdóms þarlendis. Rabbani, sem er í íran í viðræðum við af- ganska skæruliða, sem þar hafa griðland, sagði að algers sigurs skæruliða yrði skammt að bíða og einnig þess að þeir mynduðu rík- isstjórn. Orðrómur hefur verið á kreiki um ágreining milli skæru- liðasamtaka þeirra, sem bæki- stöðvar hafa í Pakistan, og hinna sem griðland hafa í íran, en tals- menn beggja þvertaka fyrir að nokkur hæfa sé fyrir því. Reuter/-dþ. Bandaríkin-Evrópubandalag Viðskiptastríð út af hormónakjöti Viðskiptahömlur og tollahœkkanir á döfinni Willy de Clercq, fuUtrúi sá í stjórnarnefnd Evrópubandalagsins sem sér um verslun og utanríkissambönd, sagði í gær að sú ráðstöfun Bandaríkjastjórnar að setja við- skiptahömlur á innflutning frá Evrópubandalaginu væri órétt- lætanleg með öllu og brot á regl- um um verslunarviðskipti, viður- kenndum um allan heim. Við- skiptahömlur þessar eru svar Bandaríkjastjórnar við þeirri ákvörðun Evrópubandalagsins að banna innflutning á hormón- akjöti frá Bandaríkjunum. Viðskiptastríð þetta hefur ver- ið á döfinni um nokkurt skeið. í Bandaríkjunum er mikið um það að hormónum sé blandað í fóður dýra, ætlaðra til slátrunar, en Evrópubandalagið bannaði inn- flutning á slíku kjöti vegna þrýst- ings frá neytendasamtökum. Kemur sú ráðstöfun illa niður á bandarískum bændum. Jacques Delors, forseti stjórn- arnefndar Evrópubandalagsins, kvað bandalagið ætla að bregðast við viðskiptahömlum Banda- ríkjamanna með því að setja 100% toll á fjóra flokka innfluttr- ar bandarískrar vöru. Þessar gagnkvæmu ráðstafanir munu stórlega draga úr verslun milli þessara tveggja risa í viðskipta- heiminum, ef nú fer fram sem horfir. Reuter/-dþ. 250 saknað eftir ferjuslys Yfir 250 manns er saknað eftir að fljótaferja sökk í Bangladesh í fyrradag. Varð slysið með þeim hætti að flutningaskip sigldi á ferjuna. Slys af þessu tagi eru al- geng þarlendis, enda ferjur og fljótabátar oft ofhlaðin og í lélegu ásigkomulagi. Farast að jafnaði um 2000 manns í slíkum slysum árlega þar í landi. Nanking lllindi Kínverja og afrískra námsmanna Þúsundir manna komu í gær saman á mótmælafund í Nanking, einni af helstu borgum Austur-Kína, og höfðu í frammi mótmæli gegn afrískum náms- mönnum þar í borg. Var þetta þriðja daginn í röð, sem mót- mælafundir af því tagi voru haldnir í Nanking. Yfirvöld bönnuðu mótmælafundina, en lögregla hefur þó látið þá af- skiptalitla. Mótmælafólkið var sagnafátt er fréttamenn spurðu hverju það væri eiginlega að mótmæla, en ljóst er þó að reiði fólksins stafar af illindum, sem urðu á laugardag í Hehaiháskóla milli afrískra námsmanna og starfsmanna há- skólans. Slagsmálin munu hafa hafist á dansleik, sem í háskólan- um var haldinn, er á fagnað þenn- an -komu afrískir stúdentar með kínverskar stúlkur með sér. Að minnsta kosti 13 manns meiddust í slagsmálunum, flestir þeirra háskólastarfsmenn. Orðrómur var á kreiki um að einn þeirra hefði látist af völdum meiðslanna, og virðast kröfur fólks á mótmælafundinum í gær hafa snúist að verulegu leyti um að þeir sem slösuðu hann yrðu látnir sæta refsingum. Afrískir námsmenn í Kína hafa oft kvartað yfir kuldalegu við- móti og jafnvel misrétti af hálfu þarlandsmanna. Einkum segja stúdentarnir að fólki mislíki ef þeir sjáist í fylgd með kínverskum konum. Reuter/-dþ. Fimmtudagur 29. desember 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13 Ol > V ■r i, v * v

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.