Þjóðviljinn - 22.02.1989, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 22. febrúar 1989 37. tölublað 54. órgangur
Ríkisstjórnin
Höggvið á flugvallarhnútinn
Ríkisstjórnin ákvað að leysa varaflugvallarmálið án þátttöku Nató. Akureyrarflugvöllurgerður að
varaflugvelli á árinu. Forkönnun að Natóflugvelliyrði hernaðarframkvœmd
Ríkisstjórn íslands ákvað í gær
að Akureyrarflugvöllur
skyldi á þessu ári bættur og búinn
til þess að þjóna sem varaflugvöll-
ur fyrir millilandaflug. Sam-
kvæmt þessu hefur verið höggvið
á „flugvallarhnútinn“ í ríkis-
stjórn og allar gefnar forsendur
utanríkisráðherra fyrir nauðsyn
Natóflugvallar fyrir almennt
millilandaflug á íslensku flug-
Framkvæmdastjórn Verka-
mannasambandsins sam-
þykkti á fundi sínum á mánudag
að beina þeim tilmælum til Sam-
bands almennra lífeyrissjóða að
sett verði þegar í gang sérfræðileg
og fagleg könnun á því hvað það
myndi þýða að semja við ríkis-
stjórnina um að lækka vexti á
skuldabréfum Húsnæðisstofnun-
ar í 5%.
stjórnarsvæði fyrir bí. Ríkis-
stjórnin hefur sem sé með sam-
þykkt sinni í gær lýst því yfir að
flugvöllur á kostnað Mannvirkja-
sjóðs Nató yrði hernaðarmann-
virki og ekkert annað.
Afgreiðsla ríkisstjórnarinnar á
stefnumörkun samgönguráð-
herra var í 3 liðum. Akureyrar-
flugvöllur verður „betur í stakk
búinn“ til þess að þjóna sem vara-
í tillögunni segir að ljóst sé að
stöðugt safnist stærri hluti af
sparnaðinum í þjóðfélaginu í líf-
eyrissjóðina og því ljóst að áhrif
þeirra í hagkerfinu fari vaxandi.
„Þau áhrif og hvernig með þau er
farið getur haft meiri þýðingu
þegar til lengri tíma er litið fyrir
sjóðfélaga og launþega alla en
það eitt hvort eitthvað hærri eða
lægri vextir fást í þjóðfélaginu,"
segir svo orðrétt. Því telur fram-
flugvöllur fyrir millilandaflug.
Flugvöllurinn á Egilsstöðum
verður lengdur í 2700 metra á ár-
unum 1992-1994 svo hann geti
ennfremur gegnt þessu hlutverki
(auk flugvallanna í Keflavík og
Reykjavík einsog kunnugt er).
Og gengið verður frá vali sam-
gönguráðherra á svonefndum að-
altollhöfnum.
Sem kunnugt er urðu miklar
kvæmdastjórnin tímabært að
verkalýðshreyfingin endurmeti
stöðu sjóðanna og hvernig þeim
verði best beitt til hagsbóta fyrir
félagsmenn.
Þórir Daníelsson fram-
kvæmdastjóri VMSÍ sagði við
Þjóðviljann í gær að SAL hefði
tekið þessu erindi mjög vel og að
ákveðið hefði verið að fara í
þessa könnun. SAL hefur þegar
umræður um þetta mál á alþingi í
fyrradag og fyrrinótt. Þá kom
fram að Jón Baldvin Hannibals-
son utanríkisráðherra hyggst hei-
mila svonefnda forkönnun
Mannvirkjasjóðs Nató á hag-
kvæmni flugvallarlagningar hér-
lendis.
Ýmsir alþingismenn er Þjóð-
viljinn kom að máli við í gær
sögðu að efasemdamenn hlytu nú
snúið sér til ASÍ og VSÍ, en stefnt
er að því að könnun þessari ljúki
sem fyrst.
Þórir sagði að tilgangurinn
með þessu væri sá að athuga
hvort lífeyrissjóðirnir gætu haft
áhrif á vaxtastigið í landinu með
því að lækka vexti sína, en það
hljóti að vera kappsmál verka-
lýðshreyfingarinnar að ná þeim
niður.
-Sáf
að sannfærast um að Natóflug-
völlur yrði hernaðarmannvirki og
ekkert annað, hver yrði þörfin
fyrir varaflugvöll í Aðaldal þegar
slíkir vellir væru komnir í Kefla-
vík, Reykjavík, á Akureyri og
Egilsstöðum?
Þessir sömu alþingismenn
segja alveg Ijóst að sé lagning
flugvallar á kostnað Mannvirkja-
sjóðs Nató hernaðarframkvæmd
sé forkönnun á hagkvæmni slíks
fyrsta stig þeirrar hernaðarfram-
kvæmdar. Þetta sögðu bæði Páll
Pétursson, formaður þingflokks
Framsóknarmanna, og Birna K.
Lárusdóttir, málsvari Kvenna-
lista, í umræðunni um þetta mál.
Alkunna er að þingmenn Al-
þýðubandalagsins eru og þessa
sinnis.
Hvalamálið
íslendingar
landgöngulið-
ar Japana?
Arni Gunnarsson: Hvort
eigum við að semja við
Japani eða EB?
ru íslendingar að verða
leiksoppar Japana í hval-
veiðimálinu? Er það ætlan ís-
lendinga að binda trúss sitt við
Japani og sigla með því samn-
ingaviðræðum við Evrópubanda-
lagið í strand?
Árni Gunnarsson alþingismað-
ur sagði í viðtali við Þjóðviljann í
gær að honum stæði stuggur af
því að íslendingar færu að gera
einhverja „möndulsamninga" við
Japani til að tryggja hagsmuni
sína gagnvart öðrum Evrópu-
þjóðum, einkum og sérílagi í Ijósi
þess að nú væru viðræður okkar
við EB í fullum gangi vegna
áforma bandalagsins um innri
markað frá og með 1992.
Árni kvaö hugmyndir um lag-
metiskaup Japana hérlendis afar
draumkenndar og vitaskuld
breyttu þær engu um flutning
þingsályktunartillögu sinnar um
bann við hvalveiðum í vísinda-
skyni. Japanir hefðu hingaðtil
ekki etið niðursoðinn fisk, hvorki
rækju né annað, og þar við
bættist að erindrekinn sem hér
var á ferð fyrir skemmstu hafði
klén umboð til samningagerðar.
Árni sagði íslenskan lagmetis-
iðnað vera í rúst og að hann ótt-
aðist mjög að fiskmarkaðir okkar
vestra hryndu í kjölfar fyrirhug-
aðra áróðursaðgerða hvalfriðun-
arsinna. Vegna þessa væri afar
brýnt að haga viðræðum við EB
skynsamlega.
Hann sagði illt til þess að vita
að íslendingar yrðu leiksoppar
Japana í hvalveiðimálinu og
tækju á sig alla skelli hvalfriðun-
arsinna. Menn skyldu hugleiða
hvort þeir kærðu sig um að verða
landgönguliðar fyrir umsvifa-
miklar hvalveiðiþjóðir á borð við
Norðmenn og Japani. ks.
Málsókn Flugleiða
Tillaga um
frávísun
Mál Flugleiða gegn Verslunar-
mannafélagi Suðurnesja verður
tekið fyrir á ný fyrir Bæjarþingi
Keflavíkur í dag. Samkvæmt
heimildum Þjóðviljans mun verj-
andi VS, Ragnar Aðalsteinsson,
gcra kröfu um að málinu verði
vísað frá á grundvelli þess að það
hafi verið „vanreifað“, þ.e. að
málatilbúnaður sé svo óljós og ó-
markviss að málið sé ekki dóm-
tækt. T.d. er talað um „ofbeldi
VS“ en ekki tíundað hver hafi
beitt því, hvenær né hver hafi
orðið fyrir því.
f gær barst VS svo bréf frá Jóni
Magnússyni, hdl. og varaþing-
manni Sjálfstæðisflokksins, þar
sem hann krefst á annað hundrað
þúsund króna í skaðabætur fyrir
skjólstæðing sinn, tannréttinga-
sérfræðing sem ekki komst á ráð-
stefnu í tíma vegna verkfalls VS.
Er VS ráðlagt að borga innan fár-
ra daga, annars neyðist Jón til að
fara með málið fyrir dómstóla.
Það vekur athygli að Jón stflar
bréfið á „Verslunar- og skrif-
stofumannafélag Suðurnesja“.
Það félag er ekki til, en á hinn
bóginn kallaði Þórarinn V. Þór-
arinsson, frkvst., VSÍ, félagið
þessu nafni í DV á dögunum þeg-
ar hann boðaði að aðrar mál-
sóknir og jafnmikilvægar mál-
sókn Flugleiða á hendur VS væru
í vændum. Það viðtal var tekið
nokkru áður en Jón Magnússon
hdl. stflar sitt bréf til Verslunar-
mannafélags Suðurnesja. pjjjj
Grýlukerti skreyta þakskegg húsa víða um þessar mundir. Einsog nafn þeirra gefur til kynna geta þau
verið viðsjárverð og fólki er ráðlagt að vara sig á þeim því það getur verið stórhættulegt að fá þau í höfuðið.
Best væri þó ef húsráðendur fjarlægðu kertin. Mynd Þóm.
VMSÍIlífeyrissjóðirnir
Vaxtastefnan í endurskoðun
SAL verður við tilmœlum Verkamannasambandsins um að kanna hvaða
áhrif það hafi ívexti ílandinu aðþeir lœkki eigin vexti