Þjóðviljinn - 27.04.1989, Side 3
_______FRETTIR________
Húsbréf
Gagntilboð
frá Kvennó
ígœrkveldi ákvað þingflokkur Kvennalistans
að samþykkja húsbréfafrumvarp svo fremi fé-
lagslega íbúðarkerfið verði stóreflt ogfjár-
framlag til þess tvöfaldað í ár
Samtök um kvennalista hyggj-
ast greiða götu húsbréfafrum-
varps Jóhönnu Sigurðardóttur
félagsmálaráðherra á alþingi fall-
ist ríkisstjórnin á að efla félags-
lega íbúðakerflð og tvöfalda fjár-
framlög til þess. Félagsmálaráð-
herra sagði við Þjóðviljann í gær-
kveldi að þessar hugmyndir væru
í anda stjórnarsamstarfsins og
gæti hún fyrir sitt leyti fallist á
þær, þó með þeim fyrirvara að
ríkisstjórnin sæi sér fært að auka
fjárframlagið um helming.
Einsog kunnugt er höfðu verið
lögð drög að tillögu um sættir
stjórnarliða og Kvennalista um
húsbréfafrumvarpið á þá lund að
það yrði samþykkt nú í vor, milli-
þinganefnd skæri úr um ágrein-
ingsmál og st'ðan gengi húsbréf-
akerfið í gildi tveim mánuðum
Rás tvö
Útvarp að
handan
Skyggnilýsing í beinni út-
sendingu á rásinni
Það eru ekki farnar troðnar út-
varpsslóðir á rás tvö þessa daga
heldur en endranær, og síðdegis í
dag verður enn brotið blað með
skyggnilýsingu í bcinni útsend-
ingu.
Kanadískur miðill á vegum
Guðspekifélagsins verður gestur
dægurmálamanna á rásinni og
verður rætt við hana í morgunút-
varpi, en þegar fer að halla í
kvöldfréttir sér hún um skyggni-
lýsinguna með þátttöku þess
fólks sem inn hringir. Útvarpið
að handan í dag mun vera hið
fyrsta sinnar tegundar á íslandi
og þótt víðar væri leitað. Haf-
steinn Björnsson hélt þó eitt sinn
miðilsfund í sjónvarpi.
-m
síðar erí áætlað hefði verið í
haust; 1. nóvember í stað 1. sept-
ember. Höfðu Alþýðuflokks-
menn gert sér vonir um að þetta
nægði og að húsbréfin væru í
höfn.
En lykilmanneskjan í þessu
húsbréfamáli og oddamaður í fé-
lagsmálanefnd neðri deildar,
Kristín Einarsdóttir, tók því
fjarri í gærdag að hún myndi fall-
ast á ofannefnda málamiðlunar-
tillögu. Og í gærkveldi sömdu
Kvennalistakonur gagntilboð á
þingflokksfundi.
Þær segja húsbréfin hafa margt
til síns ágætis en það sé bara ekki
á allra færi að eignast þak yfir
höfuðið um slíkt kerfi. Síst nú
þegar þrengir að í þjóðfélaginu.
Því setji þingflokkur Kvennalist-
ans þau skilyrði fyrir samþykki í
vor að hið félagslega íbúðarkerfi
verði stórum eflt.
Kröfur Kvennalistkvenna eru
þrjár:
1) Félagsmálaráðherra skipi
nefnd til þess að endurskoða fé-
lagslega íbúðakerfið.
2) Ríkisstjórnin tvöfaldi fram-
lag sitt í Byggingasjóð verka-
manna þannig að það verði 600
miljónir í ár.
3) Að hækkun vaxta verði ekki
afturvirk á Byggingasjóð ríkisins
þegar eða ef þeir hækka.
Félagsmálaráðherra hrósaði
Kvennalistakonum í gærkveldi
fyrir málefnalega afstöðu. Ríkis-
stjórn vildi efla félagslega íbúð-
arkerfið og sjálf hefði hún nefnd
að störfum til þess.
Ráðherra sagði Kvennalista-
konur hafa fest hendur á ein-
hverju því jákvæðasta við hús-
bréfakerfið sem væri svigrúmið
sem það gæfi til þess að stórefla
félagslega kerfið umfram það
sem nú er. Húsbréfin myndu taka
til viðskipta með eldra húsnæði
og almennar nýbyggingar en til
þess að tryggja hag þeirra sem
lakar stæðu fjárhagslega yrðu í
framtíðinni öflugar vaxtabætur
og gott félagslegt íbúðakerfi.
ks
Alþingi
Skriður
á biðlaunum
Pingmenn á einu máli um að stemma stigu við
biðlaunasukki
Frumvarp fímm þingmanna
efri deildar um breytingar á fyrir-
komulagi biðlaunagreiðslna losn-
ar innan skamms úr fjárhags- og
viðskiptanefnd. Þingmenn eru al-
mennt áfram um að frumvarpið
verði að lögum fyrir þingslit svo
bundinn verðir endi á meinta mis-
notkun biðlaunafjárins.
Að sögn Margrétar Frímanns-
dóttur, eins af flutningsmönnum
frumvarpsins, nýtur mál þetta al-
mennrar samúðar meðal þing-
manna og reiknar hún ekki með
öðru en því að það verði að
lögum nú í vor. Einu andmælin
sem henni hafa borist séu þau að
þingmaður fái greiddan launa-
mun hverfi hann í lægra launað
starf en þingmennsku hjá hinu
opinbera.
Frumvarpið gerir sem kunnugt
er ráð fyrir því að ein málsgrein
bætist við 8. gr. laga um þingfar-
arkaup alþingismanna: „Afsali
þingmaður sér þingmennsku og
hverfi til annarra launaðra starfa
fellur réttúr hans til biðlauna nið-
ur.“
í greinargerð er hinsvegar
tekið fram að breyting þessi hafi
engin áhrif á biðlaunarétt að
kjörtímabili loknu, þrenn mán-
aðarlaun eftir eitt kjörtímabil en
6 eftir 10 ára eða lengri þingsetu.
ks
Fimmtudagur 27. apríl 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Alþýðuflokkurinn
Flokksforinginn
einn við völd
Kratar orðnir órólegir. Óánœgja með einleikiformannsins.
Fylgið tínist afflokki ogformanni. „Sitjum bara og bíðum
eins og Benedikt... “
Frammámenn í Alþýðuflokkn-
um eru ailt annað en hressir með
stöðu flokksins þessa dagana og
reyndar síðustu vikur og mánuði.
Almenn gremja ríkir einnig með-
al flokksmanna út í forystu-
sveitina og þá ekki síst formann-
inn, Jón Baldvin Hannibalsson,
sem þykir vera einfari í allri póli-
tískri stefnumörkum flokksins,
ekki síst í þessari og síðustu ríkis-
stjórn. Hann hafí lítið sem ekkert
samband við sitt fólk, megi ekki
vera að því að mæta á fundi í
flokksfélögum, eða beinlínis neiti
slíkum beiðnum. „Hann er alveg
týndur og virðist sjálfur vera búin
að týna flokknum“, sagði einn á-
hrifamaður í Alþýðuflokknum í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Óánægjunnar með forystu
flokksins og formanninn er ekki
síst að leita í röðum sveitar-
stjórnarmannaflokksins. Á þingi
þeirra fyrir skömmu komu fram
háværar raddir þess efnis að
flokkurinn yrði að vera búinn að
stokka upp hjá sér og helst að
tryggja nýjar þingkosningar áður
en sveitarstjórnarkosningar fara I
fram næsta vor. Miðað við stöðu
flokksins nú sæju menn fram á
stórtap í sveitarstjórnarkosning-
unum eftir mikla uppsveiflu víða
um land í kosningunum 1986.
Slæm útkoma
í könnunum
Það er ekki að undra þó uggur
sé í ýmsum forystumönnum
flokksins í sveitarstjórnum því
samkvæmt nýjustu skoðana-
könnunum hefur Alþýðuflokkur-
inn aldrei fengið eins slæma út-
komu frá því í kosningunum
sumarið 1987. Samkvæmt könn-
un Skáís á dögunum, fékk flokk-
urinn 9,3% atkvæða en hafði haft
12,8% í könnun í mars. Þessi út-
koma er sú lélegasta hjá Skáís frá
því í ágúst 1987. í DV-könnun í
mars fékk flokkurinn 8% at-
kvæða sem var það lélegasta sem
hann hafði fengið frá því í júní í
fyrrasumar.
Flokkurinn hefur því tapað
verulegu fylgi á síðustu mánuð-
um á sama tíma og Alþýðubanda-
lagið hefur verið að auka sitt fylgi
á síðustu mánuðum og fékk
12,3% í könnun Skáís á dögun-
um.
Þó skoðanakannanir segi
aldrei allan sannleikann, þá sýna
þær óumdeilanlega hvert stefnir
hverju sinni. Það sem er þó einna
athyglisverðast í síðustu könnun
Skáís fyrir Stöð 2, er útkoman úr
vinsældakosningu stjórnmála-
manna. Sú könnun segir meira en
lítið um forystu Alþýðuflokksins,
því formaður flokksins, Jón
Baldvin Hannibalsson er þar
langt frá sínu besta hingað tií. Jón
lendir í 7. sæti, en bæði Ólafur
Ragnar Grímsson, Svavar Gests-
son og Jóhanna Sigurðardóttir
hljóta fleiri tilnefningar en for-
maður Alþýðufíokksins.
Eintómir
einleikir
Slæm málefnastaða formanns-
ins, segja margir Alþýðuflokks-
menn sem Þjóðviljinn hefur rætt
við, einmitt vera skýringuna á lé-
legri útkomu flokksins. Það
kraumi víða undir niðri í flokkn-
um, og menn séu farnir að rifja
upp í fullri alvöru, yfirlýsingar
formannsins forðum, um
skipstjórann og aflabrögðin og
hvenær menn eigi að víkja úr
brúnni.
Það eru ekki einungis einleikir
og einstrengingsháttur formanns-
ins í flokksstarfinu sem pirrað
hefur margan flokksmanninn,
I BRENNIDEPLI
heldur ekki síður síðustu hróker-
ingar hans á embættismönnum í
utanríkisþjónustunni. Mörgum
þótti nóg um þegar Jón Baldvin
var í forystu fyrir því að koma
Albert Guðmundssyni til Parísar,
en fleirum þótti undarleg vinnu-
brögðin við ráðningu Kjartans
Jóhannssonar til Brussel og hug-
myndir um að flytja Jón Sigurðs-
son í öruggt þingsæti í Reykjanes-
kjördæmi. Þessar tilfæringar
komu fram í dagsljósið án þess að
rætt hefði verið við einn eða
neinn, segja framámenn í flokkn-
um og bæta því að slík vinnu-
brögð verði ekki þoluð öllu
lengur.
Sitjum bara
og bíðum...
Ekki bætir úr skák, að á sama
tíma og Jón Baldvin tryggir for-
vera sínum á formannsstóli, gött
embætti í Brussel, á hann í úti-
stöðum við annan fyrrverandi
formann flokksins, Benedikt
Gröndal, sendiherra, sem situr
heima í Reykjavík og bíður eftir
því að núverandi formaður gefi
sér tíma til að ræða við hann um
framtíð hans innan utanríkis-
þjónustunnar.
- Við bara sitjum og bíðum
...við höfum ekki fengið neinar
skýringar. Það hefur ekki verið
talað við okkur um þetta. Ekki
eitt einasta orð, segir Benedikt
Gröndal í samtali við Alþýðu-
blaðið í gær, um þær hugmyndir
utanríkisráðherra og formanns
Alþýðuflokksins að leggja niður
embætti heimasendiherra, en
þeir Benedikt og Hannes Jónsson
gegna slíkum stöðum
stundina.
- Það er ekki að undra þó víða
séu sárindi og illindi innan flokks-
ins, þegar enginn veit hvað er að
gerast og enginn virðist mega
vera með í ráðum, sagði Alþýðu-
flokksmaður í samtali í gær.
- Við bara sitjum og bíðum
eins og Benedikt, bíðum eftir því
að formaðurinn megi vera að því
að tala við okkur, öðruvísi en í
gegnum fréttatilkynningar frá
utanríkisráðuneytinu.
-•g-
ITT
lítasjónvarp
erQárfestíng
ív-þýskum
gæðumog
fallegum
IT’IStum