Þjóðviljinn - 27.04.1989, Page 13
ERLENDAR FRETTIR
Kenískur veiðiþjófur heggur skögultönn af felldum fíl - um 70.000 er slátrað árlega.
Afríka
Fflar og veiöiþjófar
Vegna mikillar eftirspurnar áfílabeini eru ólöglegar fílaveiðar arð-
vœnleg - en að vísu ekki áhœttulaus - atvinnugrein. Líkur benda til
þess að um aldamótin verði Afríkufíllinn kominn í röð útdauðra
dýrategunda
Fílarnir áttu sér enjprar undan-
komu auðið, er veiðiþjófarnir
komu að þeim óvörum, þar sem
þeir voru að baða sig í fljóti einu.
Vciðiþjófarnir voru vopnaðir
sjálfvirkum rifflum af gerðinni
AK-47 og lögðu á skammri stund
að velli heila stórfjölskyldu fíla.
Þetta átti sér stað í Tsavo, stærsta
þjóðgarði Keníu. Túristar í bú-
stöðum í aðeins fimm kílómetra
fjarlægð heyrðu skothríðina og
hrinurnar, sem dýrin gáfu frá sér
í dauðastríðinu.
Skömmu síðar komu þjóð-
garðsverðir á vettvang. Þeir hittu
fyrir sér ellefu dauða fíla, þar á
meðal kálffulla kú og lítinn kálf.
Veiðiþjófarnir höfðu höggvið
höggtennurnar af dýrunum með
sveðjum og öxum. Öðru af
skepnunum höfðu þeir ekki
áhuga á. Sjakalar og hrægammar
voru þegar farnir að gera sér gott
af hræunum, en veiðiþjófarnir á
hraðri leið til hafnarborganna,
þaðan sem fflabeininu er smyglað
úr landi.
Fflabein hefur svo að segja frá
upphafi verslunarsögunnar verið
með eftirsóttustu lúxusvörum, og
svo er enn. Meðan arabar stund-
uðu mannaveiðar og þrælaversl-
un sem ákafast um austanverða
Afríku (og sá bisniss þeirra varð
álfunni að líkindum til öllu meiri
skaða en þrælaverslun Evrópu-
og Ameríkumanna vestan megin
á henni), þá var fflabein sú vara,
er arabísku höndlararnir (hverra
helsta bækistöð var Zanzibar)
sóttust mest eftir, að svörtum
þrælum einum frátöldum. Var sá
háttur hafður á að láta þrælana
bera fflabeinið til strandar. Þótti
aröbum það bera vott um mikið
kaupsýsluvit, að láta þannig aðra
vöruna flytja hina.
Stóraukin skotvopnaeign Afr-
íkumanna síðustu áratugi hefur
haft í för með sér að fflunum er
enn hættara en fyrr, gífurleg
fólksfjölgun leiðir af sér að
mannskepnan gengur stöðugt á
lífsrými annarra dýra, ffla sem
annarra, og opinber spilling er
líka með í spilinu (þannig kváðu
síðasta kona Jomos gamla Keny-
atta og frændur hennar hafa þén-
að drjúgum á ólöglegri verslun
með fflabein). Fflar hafa nú víð-
ast verið friðaðir, þar sem enn er
eitthvað eftir af þeim, en eftir-
spurnin á fílabeini er söm og fyrr
og vegna takmarkaðs framboðs
hækkar verðið. Veiðiþjófar, sem
leggja fyrir sig ffladráp, eru því
orðin aílfjölmenn atvinnustétt í
Afríku. í Keníu eru margir þeirra
liðhlaupar úr her grannríkisins
Sómalílands, þar sem hagur fólks
er stórum bágari en í Keníu.
Ríkir túristar frá Vestur-
löndum fá leyfi stjórnvalda til að
skjóta nokkra ffla árlega gegn
ærnu gjaldi, og ekki síst vegna
þeirrar gjaldeyrislindar er
stjórnvöldum mjög í mun að
vernda fflastofninn. Daniel arap
Moi Keníuforseti lét því þá
skipun út ganga s.l. ár að veiði-
þjófar þar í landi skyldu héreftir
skotnir umsvifalaust, væru þeir
staðnir að verki. Skærur milli
veiðivarða og veiðiþjófa eru nú-
orðið hversdagslegir viðburðir
þarlendis og er eitthvað um
mannfall á báða bóga.
Á s.l. 15 árum hefur fflum í
Keníu fækkað úr 130.000 niður í
20.000, í Tansaníu úr 300.000 í
100.000 og í óöldinni í Úganda á
ríkisárum Idi Amins og á árunum
þar á eftir var dýrategund þessari
nærfellt útrýmt þar. Giskað er á
að um 1970 hafi enn verið um
tvær miljónir fíla f Afríku, en nú
eru þeir ekki yfir 700.000 talsins í
álfunni. Um 70.000 af stofninum
er slátrað árlega. Haldi svo
áfram, verður Afríkufíllinn út-
dauður um aldamótin.
dþ.
Hjúkrunarfræðingar Almennur félagsfundur veröur haldinn föstu- daginn 28. apríl n.k. kl. 20.30 aö Grettisgötu 89. Fundarefni: Kjarasamningar. Mætum vel. Stjórn Hjúkrunarfélags íslands.
Minningarspjöld
Sigfúsarsjóðs eru afgreidd á skrif-
stofu Alþýðubandalagsins, Hverfis-
götu 105, sími 17500.
Það er nægilegt að hringja í síma
17500 og sér þá skrifstofan um send-
ingu minningarspjaldanna.
Sjóðstjórn
FLÓAMARKAÐURINN
íbúð óskast keypt
Vil kaupa 2-3 herb. íbúð á 1. hæð
(eða jarðh.) í steinhúsi, helzt ná-
lægt biðstöð strætisv., gjarnan í
Vesturbænum, Norðurmýri eða
Laugarnesi. Mikil útborgun fyrir-
liggjandi, fullnaðargreiðsla innan
árs (Húsnæðisstj.-lán). Uppl. í s.
38218 (e. 681333 Elías).
Ég vil gjarnan þiggja
gömlu húsgögnin þín áður en þú
hendir þeim á haugana. Sófi, stólar,
borð - margt kemur til greina. Sími
621290. Steven.
Peningar í boði
Húsnæði óskast í Reykjavík handa
um 30 erlendum stúdentum frá 16.
júlí - 17. ágúst n.k. Þeir sem hafa
áhuga á að leigja þeim herbergi,
íbúð eða jafnvel hús, hafi samband
við Úlfar Bragason í síma 26220
eða 21281.
Tölva
Armstrad PC 1512 með s/h skjá, 20
mb hörðum diski, 2 drifum og mús
til sölu. Upplýsingar í síma 622618.
íbúð óskast
Feðgin óska eftir að taka á leigu 2-3
herbergja íbúð í Hólunum eða Vest-
urbergi. Upplýsingar í síma 79216
eftir kl.19.00.
Kettlingur til söiu
Upplýsingar í síma 17243 eða
621440.
Myndlistarmaður
og söngvari
Þessa menn vantar íbúð. Helst 3
herbergja sem næst miðbæ, sem
fyrst eða fyrir 1. júní. Meðmæli og
öruggar greiðslur. Upplýsingar í
síma 23404.
Flóamarkaður
Opið mánudaga, þriðjudaga og
miðvikudaga frá kl. 14- 18. Enda-
laust úrval af góðum og umfram allt
ódýrum vörum. Gjöfumv eitt mót-
taka á sama stað og tíma. Flóam-
arkaður SDÍ Hafnarstræti 17,
kjallara.
Ný fótaaðgerðarastofa
Veiti almenna fótsnyrtingu, fjarlægi
líkþorn, meðhöndla inngrónar negl-
ur, fótanudd. Guðríður Jóelsdóttir
med. fótaaðgerðarsérfræðingur
Borgartúni 31, 2. h.h., sími
623501.
íbúð óskast
Ung hjón með barn vantar 3ja her-
bergja íbúð frá 1. júní. Vinsam-
legast hafið samband í síma 32814.
Framhaldsskólanemar
athugið!
Tek að mér að kenna framhalds-
skólanemum ensku og frönsku í
aukatímum. Tala íslensku. Hafið
samband við David Williams í síma
686922 eða 33301.
Fjallahjól til sölu
Hvítt og blátt, 18 gíra, 7 mánaða
gamalt. Tegund: KYNAST. Upplýs-
ingar í síma 75990.
Tll sölu
2ja sæta sófi + 2 stakir stólar kr.
15.000. Upplýsingar í dag til kl. 15
og eftir kl. 16.00 á morgun í síma
45269.
BMX
2 ára gamalt BMX hjól fyrir 5-9 ára
til sölu. Vel með farið. Upplýsingar í
síma 79017.
Óskast keypt
Barnarúm, baðrúm og burðarrúm
óskast keypt. Upplýsingar í síma
76805.
Hjónarúm með svampdýnum
til sölu. Stærð 170x200. Rúmið er
úr dökkum viði með áföstum nátt-
borðum, hillum og innbyggðu út-
varpi með vekjurum. Upplýsingar í
síma 38509 í dag til kl. 19.30 og á
morgun eftir kl. 13.00.
Gefins
Svefnsófi, hansaskrifborð með 3
hillum og skrifborð, allt gamalt, fæst
gefins ef einhver vill hirða það.
Uþplýsingar í síma 626406.
Vinnubíll
Til sölu Lada station árg. ‘82. Verð
ca. kr. 10.000. Upplýsingar í síma
17574.
Reiðhjól óskast
Óska eftir að kaupa BMX hjól fyrir
ca. 7 ára og stórt karlmannshjól.
Upplýsingar í síma 622186.
Mold gefins
Mikil mold fæst gefins. Hægt að
komavið vinnuvélum. Upplýsingarí
síma 611487.
Hlutastarf óskast
Bandarískur maður óskar eftir
hlutastarfi, helst seinnipartinn eða
næturvinnu. Upplýsingar í síma
18403, Thomas.
Part time job
A male person seeks a job in the
afternoon or a nightjob. Please call
Thomas, tel. 18403.
Bókband
T ek bækur til að binda. Sími 73360.
Tvíburakerra
Óska eftir að kaupa tvíburakerru.
Upplýsingar í síma 42754.
Herstöðvaanstæðingar
Hittumst í morgunkaffi milli kl. 10 og
13 þann 1. maí að Mjölnisholti 14.
Upþlýsingar í síma 17966.
Til sölu vegna flutnings
Xenon 28“ litsjónvarpstæki og Ori-
on myndbandstæki til sölu. Tækin
eru 2 ára gömul. Upplýsingar í sima
75965 milli kl. 6 og 9.
Kvenreiðhjól
20" til sölu. Upplýsingar í síma
32088.
Takið eftir
Óska eftir gömlum hornsófa eða
raðstólum gefins eða fyrir lítinn
pening. Einnig kæmi gangfær
þvottavél sér vel. Á sama stað fæst
gefins gamall fataskápur. Upplýs-
ingar í síma 78883 og 24432 eftir kl.
19.00.
Hornsófasett
óskast, helst ódýrt. Upplýsingar í
síma 45228 eftir kl. 18.00.
Óskum eftir að kaupa
vel með farna barnakerru með
skermi og svuntu fyrir 11 mánaða
gamla dóttur okkar. Sími 16679.
Er að flytja inn
Vantar ísskáp gefins eða fyrir lítinn
pening. Takk fyrir. Sími 34598.
Heimilishjálp
Óska eftir að taka að mér heimilis-
hjálp í sumar. Barnapössun kemur
líka til greina. Upplýsingar í síma
687816 kl. 17-18, Kolbrún.
Óska eftir
notuðum listmálaratrönum. Vin-
samlegast hafið samband við
Helgu í síma 35103.
Pels
Svo til nýr, síður pels til sölu.
Dökkbrúnn úr heilu oppossum
skinni frá Nýja-Sjálandi. Frekar stór
stærð, 40-42. Hægt er að snúa
pelsinum við, og nota skinnið inn á
við utan á er svart regnhelt efni.
Fallegt snið, sterkt skinn. Einnig til
sölu stuttur pels. Selst á lítið sem
ekkert. Upplýsingar hjá Helgu í
sima 35103.
Bílskúrshurðarfleki
til sölu, rifflaður krossviður, stærð
2,20x2,24. Verð kr. 15.000. Upp-
lýsingar í síma 667293.
Til sölu
mjög góð gömul frystikista, 410
lítra, kostar ný 12.000. Upplýsingar
í síma 74288.
13-16 ára stelpur
Viljið þið passa 7 mánaða kríli
stundum um helgar fyrir smáaur.
Jóhanna, sími 15610.
Svalavagn óskast
Óska eftir ókeypis eða ódýrum
svalavagni, helst tvíburavagni,
samt ekki skilyrði. Upplýsingar í
síma 622304.
Peugeot 504 ‘78
Til sölu. Lítur nokkuð vel út, sama
og ekkert ryðgaður. Ný Ijós og ný-
leg dekk. Upplýsingar í síma 13656,
Sveinbjörn.
Til sölu
Ladastation ‘88, vínrauður. Sumar-
og vetrardekk. Upplýsingar í síma
52504.
ATH!
Vantar nokkrar gangstéttarhellur
gefins eða fyrir lítinn pening. Upp-
lýsingar í síma 17548, Birna.
Fiskabúr til sölu
Til sölu eru nokkur fiskabúr með
öllum búnaði. Uppl. í síma 76575,
Sigurður eða 73623, Sveinn - eftir
kl. 15.00.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13