Þjóðviljinn - 25.05.1989, Blaðsíða 2
Hollustuvernd
Sala van-
meiMra vara
stöðvuð
Hollustuvernd ríkisins undir-
býr nú aðgerðir til að stöðva sölu
á þeim matvörum sem framleidd-
ar eru hérlendis og uppfylla ekki
ákvæði um merkingu umbúða.
Stofnuninni er kunnugt um að
nokkur fyrirtæki eru með mat-
vörur á markaði án þess að um-
búðir séu rétt merktar og án þess
að sótt hafi verið um undanþágur
til leiðréttinga á merkingum.
Vegna umræðna um ónógar
innihaldsmerkingar á umbúðum
utan um innflutt smjörlíki hefur
Hollustuvernd upplýst að þrjár
íslenskar smjörlíkisverksmiðjur
eru á undanþágu vegna ófull-
kominna umbúðamerkinga.
KEA á Akureyri hefur fengið
undanþágu til 1. júlí n.k. vegna 4
vörutegunda og Akra smjörlíkis-
gerðin í Hafnarfirði undanþágu
til sama tíma vegna 5 tegunda. Þá
hefur Mjólkurbú Flóamanna á
Selfossi fengið undanþágu vegna
einnar tegundar tii ársloka. _4g.
Bankamenn
Þokkalegur
samningur
Þetta eru þokkalegir samning-
ar í líkum dúr og ASÍ/BSRB
samningarnir, sagði Yngvi Orn
Kristinsson, formaður Sambands
íslenskra bankamanna, við Þjóð-
viljann í gær.
Að sögn Yngva stóð megin-
styrinn um fæðingarorlof að
þessu sinni. Bankamenn vildu að
vinnuveitendur greiddu mismun
tryggingarfjár og daglauna
kvenna í fæðingarorlofi í 5
(bráðum 6) mánuði en ekki í 3
einsog nú tíðkast. Málamiðlun
hefði orðið um 25 þúsund króna
„fæðingarstyrk“ fjórða og
fimmta mánuð sem bættist við
tryggingarféð.
Helstu atriði samningsins að
öðru leyti eru 3,6% kauphækkun
frá 15. febrúar, 2,5% 1. septemb-
er, 2,4% l.nóvember. 10-11 þús-
und króna orlofs- og „desember-
uppbót“ verður greidd í júní.
Aætluð kjarabót er um 10 af
hundraði en taxtahækkunin ein
og sér um 8,5%. Samningurinn
gildir fram að áramótum. ks
Þjóðleikhússlög
endurskoðuð
Menntamálaráðherra hefur
skipað nefnd til að endurskoða
lög um Þjóðleikhúsið. Nefndinni
er falið að fjalla um tillögur sem
liggja fyrir frá Leiklistarráði
varðandi lög Þjóðleikhússins og
fjalla um framtíð íslenskrar óp-
eru og Iistdansa, þe. íslenska
dansflokkinn. Formaður nefnd-
arinnar er Stefán Baldursson en
aðrir nefndarmenn eru Þórhallur
Sigurðsson, Guðrún Stephensen,
Þórhildur Þorleifsdóttir, Nanna
Ólafsdóttir, Sveinn Einarsson og
Kristinn Hallsson. Ritari nefnd-
arinnar er Sigrún Valbergsdóttir.
Lítill verðumunur
á framköllun
Athugun Verðlagsstofnunar á
verðlagningu framköllunarfyrir-
tækja á höfuðborgarsvæðinu
sýnir að fremur Iítill verðumunur
er á þjónustu fyrirtækjanna. Al-
gengt verð fyrir framköllun og
stækkun á 12 mynda filmu 10x15
cm. er 555 kr. Þó hefur eitt fyrir-
tæki sérstöðu hvað verðlagningu
snertir, en hjá Ljósmyndabúð-
inni, Laugavegi 118 var verðið
lægst í 13 atriðum af 15 sem
könnuð voru. Var verðmunur allt
að 40-65%.
FRETTIR
Þjóðhagsstofnun
Verðbólgan á uppleið
Skuldbindingar ríkissjóðs til að
greiða fyrir kjarasamningum
á hinum almenna markaði kosta
um 1,1 miljarð króna og kostnað-
ur rikisins vegna kjarasamninga
við opinbera starfsmenn auk
hækkana á lífeyrisgreiðslum al-
mannatrygginga nemur um ein-
um miljarði. A móti koma auknar
skattatekjur svo heildarkostn-
aður ríkissjóðs vegna kjarasamn-
inga, að BHMR frátöldu, nemur
um tveimur miljörðum króna.
Þetta kemur fram í nýrri spá
Þjóðhagsstofnunar sem hún gaf
út í gær, um efnahagshorfur fyrir
árið 1989 eins og þær líta út eftir
nýgerða kjarasamninga og al-
menna þróun síðustu mánaða.
Telur Þjóðhagsstofnun Ijóst að
„erfitt verður að ná þeim mark-
miðum sem sett hafa verið í ríkis-
fjármálum á þessu ári“.
Ráðstöfunartekjur heimilanna
og kaupmáttur atvinnutekna
verður sennilega um 6-7% lægri í
ár en var í fyrra. Kaupmáttur
verður því um 10% lakari en
hann var 1987 en 12% meiri en
hann var 1986. f heild telur Þjóð-
hagsstofnun útlitið fremur dökkt,
allar hagtölur stefna niður á við
nema verðbólgan, sem hefur
færst í aukana og stefnir í 21% frá
upphafi til loka árs.
Þórður Friðjónsson, forstöðu-
maður Þjóðhagsstofnunar fylgdi
spánni úr hlaði og sagði m.a. að
hagvöxtur væri með hægasta
móti, væri 2,0-2,5% að meðaltali
á þessum áratug en hefði verið
um 6% að meðaltali frá 1970-80.
Hagvöxtur erlendis væri víða á
bilinu 3-4% og því þyrfti að verða
hér bót á ef íslendingar ættu ekki
að dragast hlutfallslega aftur úr
öðrum löndum efnahagslega.
Spáin gerir ráð fyrir því að lands-
framleiðslan verði tæplega 1,5%
minni í ár en í fyrra og þar sem
svipaður samdráttur varð á milli
áranna 1987 og 1988 muni lands-
framleiðsla dragast saman um
3% árin 1988 og 1989. Segir að
baki þessari þróun liggi samdrátt-
ur í útflutningi og þjóðarútgjöld-
um og því sé ljóst „að eitt brýn-
asta verkefnið framundan er að
auka framleiðsluna, ef takast á að
viðhalda sambærilegum lífs-
kjörum hér á landi og meðal
þeirra þjóða sem fremstar
standa.“ *
Olíuverð á heimsmarkaði hef-
ur hækkað úr 15-16 dollurum
1988 í 18-20 dollara á þessu ári og
þá er talið að lakara verð fáist
fyrir sjávarafurðir „en áður var
reiknað með“. Af þessu eru talið
geta leitt að þjóðartekjur dragist
saman á árinu um 3%. Þjóðarút-
gjöld dragast hins vegar saman á
sama tíma um 3% og því er talið
að viðskiptahallinn við útlönd
verði óbreyttur, eða 3,5% af
landsframleiðslunni. Sagði Þórð-
ur að meginskýringin á viðskipta-
hallanum lægi í hversu kaupmátt-
ur undanfarin ár hefði aukist um-
fram þjóðartekjur.
Minnkandi velta, hátt raun-
gengi og aukinn fjármagnskostn-
aður hefur gert afkomu atvinnu-
veganna og þá sérstaklega
útflutnings- og samkeppnisgreina
mjög erfiða. Sem dæmi nefndi
Þórður að raungengi milli áranna
1987 og 1988 hefði hækkað um
5-6% og raunfjármagns-
kostnaður hefði tvöfaldast á
sama tímabili. Ávöxtun eiginfjár
hefði árið 1987 verið engin og
minni en engin 1988. Því fari ekki
á milli mála að „eitt helsta við-
fangsefni efnahagsstjórnar á
næstunni verður að treysta undir-
stöður efnahagslífsins". Reyndar
telur Þjóðhagsstofnun að botnin-
um kunni hugsanlega að vera náð
og viss rök séu fyrir að þessi staða
atvinnuveganna kunni að skána.
Stofnunin spáir því að raungengi
muni lækka um 6% á árinu auk
gengissigs og vextir haldi áfram
að lækka og því sé útlit fyrir lægri
fjármagnskostnað fyrirtækjanna
en í fyrra.
Atvinnuleysi hefur aukist og
telur Þjóðhagsstofnun að það sé
að festast í um 1,5% um næstu
framtíð. Til samanburðar má
nefna að árin 1983-84 var
atvinnuleysi í 1,3% en eftir þann
tíma hefur það verið undir einu
prósentustigi að meðaltali. At-
vinnuhorfur skólafólks í sumar
séu ekki góðar, enda sé 2000 færri
störf í að ganga en var á sama
tíma í fyrra. phh
Alusuisse
Undrast
endurskooun
Fulltrúar Alusuisse auðhrings-
ins lýstu því yfir í gær á fundi í
Zúrich með ráðgjafarnefnd um
nýtt álver, að þeir undruðust þá
ákvörðun Landsvirkjunar að
ætla að nýta heimild í lögum um
endurskoðun raforkuverðs til
Isal-verksmiðjunnar í Straum-
svík.
Sögðu fulltrúar Alusuisse að
þessi yfirlýsing um endurskoðun
kæmi á undarlegum tíma þar sem
umræður um nýtt álver væru á
viðkvæmu stigi og fjárhagsstaða
Landsvirkjunar væri með besta
móti.
Nemendur Breiðholtsskóla ásamt foreldrum og kennurum fögnuðu í gær 20 ára afmæli skólans. Þrátt fyrir
hávaðarok og éljagang skemmtu allir sér hið besta enda skein sólin einnig af og til. í tilefni dagsins voru m.a.
gróðursett 20 myndarleg tré á skólalóðinni. Mynd - Þóm.
María Pétursdóttir heiðruð
Alþjóðaráð Rauða krossins hef-
ur sæmt frú Maríu Pétursdóttur,
skólastjóra Nýja hjúkrunar-
skólans, Florence Nightingale
orðunni. Þessi orða er æðsta
heiðursmerki sem hjúkrunarkon-
um er veitt og fer úthlutun fram
annað hvert ár eftir tilnefningum
frá landsfélögum Rauða krossins
og Rauða hálfmánans um allan
heim. Áður hafa þrjár íslenskar
hjúkrunarkonur hlotið sömu
viðurkenningu, þær Sigríkur
Eiríksdóttir árið 1949, Sigríður
Backmann árið 1957 og Bjarney
Samúelsdóttir árið 1977. María
Pétursdóttir hefur verið í forystu í
mennta- og hagsmunamálum
hjúkrunarfólks um langt árabil
og einnig tekið mikinn þátt í
starfsemi Rauða krossins.
Umferðarkönnun
vegna
Hvalfjarðarganga
Vegagerð ríkisins stendur í dag
og á laugardag fyrir umferðar-
könnum við vegnamót Akranes-
vegar og Vesturlandsvegar og
einnig á Suðurlandsvegi við Litlu
kaffistofuna. Tilgangurinn með
þessum könnunum er að afla
upplýsinga um umferðarþunga
vegna hugsanlegra jarðganga
undir Hvalfjörð. Allar bifreiðar
sem fara um þessar slóðir verða
stöðvaðar og bflstjórar spurðir
um ferðatilhögun og áfangastað.
Nicolai sýnir
í Gallerí Borg
Kristinn Nicolai myndlistarmað-
ur opnar í dag sýningu á verkum
sínum í Gallerí Borg í Pósthús-
stræti. Á sýningunni eru ný
olíuverk sem öll eru til sölu. Nic-
olai var við myndlistarnám í
Núrnberg en hefur um langt ára-
bil verðir búsettur í París og hald-
ið þar einkasýningar í Tokyo,
Madrid og Los Angeles. Hann
hefur aðeins einu sinni áður sýnt
hér heima, en það var á Kjarvals-
stöðum fyrir rúmum áratug.
Ákærður fyrir
rekstur vændishúss
Ríkissaksóknari hefur lagt fram
kæru á hendur liðlega fimm-
tugum Reykvíking, sem er gefið
að sök að hafa í ávinningaskyni
haft milligöngu um náin kynni
fólks og að hafa leigt út herbergi
til kynmaka. Maðurinn hafði að-
stöðu fyrir þessa starfsemi í bak-
húsi við Laugaveg í Reykjavík en
hann var fyrr á árinu úrskurðaður
í gæsluvarðhald fyrir auglýsingu í
dagblaði þar sem hann gaf sig út
fyrir að útvega karlmenn og
kvenmenn á aldrinum sextán ára
til sjötugs.
Tölvunám
í sumarfríinu
Menningar- og fræðslusamband
alþýðu býður félagsmönnum ASÍ
uppá tölvunámskeið á vildar-
kjörum nú í sumar. Námskeiðin
verða haldin í samvinnu við Tölv-
ufræðsluna í Reykjavík. Fyrstu
námskeiðin eru þegar hafin en
þau fara fram að degi til eða á
kvöldin og standa yfirleitt í 4 daga
hvert. Nánari upplýsingar eru
veittar hjá skrifstofu MFA s:
84233.
Guðjón Magnússon formaður Rauða kross íslands afhenti Maríu Pét-
ursdóttur heiðursorðuna við hátíðlega athöfn í fyrradag.
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 25. maí 1989