Þjóðviljinn - 25.05.1989, Blaðsíða 12
Sigurður Gísli Bjarnason
sölumaður:
Nei, ætli það. Ég er lítið fyrir
svona trúarkjaftæði, þó maður
verði örugglega var við það.
—SPURNINGIN-
Ætlar þú aö fylgjast með
komu páfa?
Jóna Sigurdórsdóttir
sendiherra:
Nei, alveg örugglega ekki. Ég hef
engan áhuga á trúarleiðtogum.
Þórður Þórsson
sendiherra:
Já já þó það nú væri. Ætli ég kíki
ekki á hann.
Magdalena Ólafsdóttir
sjúkraliði:
Það held ég ekki. Ég geri ekki ráð
fyrir því að fara á Þingvöll eða
reyna að sjá hann annars staðar.
Arndís Níelsdóttir
erindreki:
Já, svo framarlega sem ég verð
ekki í útlöndum.
lÓÐVILIINN
Fimmtudagur 25. maí 1989 93. tölublað 54. örgangur
SÍMI 681333
Á KVÖLDIN
C040^0
ÁLAUGARDÖGUM
681663
(hljómsveitinni Júpíters er blásið í lúðra, saxófóna, trompeta og básúnu, og slegið á gítara, kontrabassa,
trommu og orgel.
Friðarmál
Faimiði til fríðar
Next Stop Soviet-Nœsti áfangi Sovétríkin -fjáröflunartónleikar í
kvöld. Sigríður Hulda Richards: Áætlunin hefurþegar haft áhrifí
Sovétríkjunum
Iscptcmbcr ætla mörg þúsund
ungmenni frá Norðurlöndum
til Sovétríkjanna undir slagorð-
inu Next Stop Soviet - Næsti
áfangi Sovétríkin - eins og við
skýrðum frá í Þjóðviljanum í
mars. Þetta er friðar- og um-
hverfisverndarhreyfing sem fór í
fræga ferð til Nevada í Bandaríkj-
unum árið 1987 í sama tilgangi og
nú verður farið til Sovétríkjanna.
Frá íslandi fara um hundrað
ungmenni sem nú eru að safna
upp í ferðakostnað með ýmsum
ráðum. f kvöld kl. 22 halda þrjár
hljómsveitir sem ætla austur í
haust tónleika á Hótel Borg.
Þetta eru Júpíters, Október og
E-X. En hvernig gengur að
skipuleggja ferðina?
„Við fórum á stórfund í Kaup-
mannahöfn í apríl til að undirbúa
ferðalagið. Þangað komu 800
manns, þar af 200 Rússar sem
voru flestir í útlöndum í fyrsta
skipti á ævinni," segir Sigríður
Hulda Richards. „Þeir voru frá
flestum stöðum sem Next Stop
ætlar til, allt austur fyrir
Novo-sibrisk, en lengra nær glas-
nost ekki ennþá. Þetta var skrít-
inn kokteill, sem Rússar sendu,
ballettdansarar, leikhúsmenn og
aðrir listamenn sem hafa unnið
neðanjarðar en eru að koma upp
á yfirborðið núna. Það er mikil
gróska í frjálsum leikhópum í So-
vétríkjunum, einkum Hvíta
Rússlandi og Eystrasaltslöndun-
um. ■ ------
En Svíar hleyptu fundinum Sigríður Hulda Richards
eiginlega upp. Þeir komu seint
inn í hreyfinguna og vantaði sam-
bönd við Rússa, því allt byggist á
að við höfum einhvern til að taka
á móti okkur eða vera hjá, við
ætlum ekki að búa á hótelum.
Þeir stukku á Rússana og tóku
svo mikinn tíma fyrir sig að þegar
fundinum átti að vera lokið og við
vorum að fara heim, þá var hann
fyrst að komast í gang!
Við höfðum okkur ekki nógu
mikið í frammi við Rússana, en
kynntumst þó mönnum frá Vilni-
us í Litháen sem reka bygginga-
fyrirtæki - byggja íbúðir fyrir
ungt fólk og reka svo félagslíf í
blokkunum, sjónvarpsstöð, ung-
lingaklúbba og svoleiðis. Við
hittum þá í haust og ætlum svo að
bjóða þeim hingað. Þá langar til
að skoða fjölmiðla og fyrirtæki
hér á landi.“
Þetta er þá allt í góðu standi?
„Svíar eru komnir með bréf
upp á vasann frá Gorbatsjov með
loforði um hjálp og fyrirgreiðslu,
en samt er komið eitthvert bak-
slag í afgreiðslu visa sem vonandi
lagast. Kannski ofbýður Rússum
bara allur þessi fjöldi sem er að
hellast yfir þá.
Þeir vita líka að í Semipalant-
insk er ætlunin að mótmæla eins
og í Nevada um árið. Þar er til-
raunasvæði Rússa með kjarnork-
usprengjur, og meiningin er að
sama daginn verði slíkum tilraun-
um mótmælt á báðum stöðum,
austan hafs og vestan.“
Hvernig líkaði Sovétmönnun-
um við Norðurlandabúa á fund-
inum?
„Þeir voru rólegir og íhugulir,
horfðu á og hlustuðu en töluðu
ekki mikið. Þeir horfðu hissa á
allt sem til var í búðunum í Kaup-
mannahöfn og spurðu svo hvers
vegna sumir væru svona skítugir
og illa klæddir og hefðu enga at-
vinnu. Þeim fannst undarlegt að
Danir skyldu ekki eiga allt úr því
það var til í verslunum. Þeir
héldu að það væri miklu meiri
jöfnuður á vesturlöndum. Þetta
voru mjög almennilegir krakkar
sem kunnu ýmis tungumál, ekk-
ert endilega ensku, heldur allt
eins þýsku, frönsku og spönsku."
Hvernig gengur að safna upp í
ferðina?
„Það gengur hægt. Við erum
með flóamarkað í Kolaportinu,
svo höfum við boðist til að sjá um
unglingadansleik í Laugardals-
höll 17. júní og fáum fasta upp-
hæð fyrir það. Við ætlum að gefa
út blað um friðar- og umhverfis-
mál, og svo höldum við styrktart-
ónleika í kvöld á Borginni. Danir
seldu fyrir ferðina til Nevada
miða sem þeir kölluðu Farmiða
til friðar á götum úti og fólk
keypti þá til að styrkja hreyfing-
una. Eg veit ekki hvort slíkt
myndi ganga hér á landi.
En við teljum að starf okkar
hafi strax borið árangur í Sovét-
ríkjunum. Þegar Danir byrjuðu
að funda með sovéskum embættis-
mönnum var fulltrúum leikhópa
og hljómsveita í Sovétríkjunum
ekki leyft að vera með. Núna sitja
embættismenn og pönkarar hlið
við hlið og allir tala saman.“
SA
Þeir sögðu að
það væri í góðu
lagi þó ég tæki
lúðurinn með mén)
-------
Ég verð víst bara
einn á hótelinu.