Þjóðviljinn - 08.06.1989, Blaðsíða 1
Ólqfsfjörður
Svikull er máttur töfrabragða
Verkalýðsfélagið: Neitun stjórnar Fiskveiðasjóðs um aðstoð er verulegtáfallfyriratvinnulífið íbœnum.
Geturhaftfordœmisgildi fyrir aðra. Sitjum nánast í sömu óvissunni ogfyrr
- Satt best að segja áttum við
ekki von á þessari neitun frá
stjórn Fiskveiðssjóðs og hún kom
heldur betur flatt uppá menn.
Það sem menn hræðast mest er
fordæmisgildið sem þetta getur
haft og að fleiri aðilar ss. Lands-
bankinn kippi að sér hendinni,
sagði Ágúst Sigurlaugsson for-
maður verkalýðsfélagsins Eining-
ar á Óiafsfirði.
Stjórn Fiskveiðssjóðs hafnaði
nýlega tillögum Hlutabréfasjóðs
um þátttöku sjóðsins í fjárhags-
legri endurskipulagningu Hrað-
frystihúss Ólafsfjarðar. Á þess-
um sama stjórnarfundi Fisk-
veiðasjóðs var einnig hafnað allri
aðstoð við Hraðfrystihúss Stöðv-
arfjarðar en aðstoð var samþykkt
við Búlandstind hf. á Djúpavogi.
Þessi ákvörðun stjórnar Fisk-
veiðasjóðs er verulegt áfall fyrir
atvinnulífið á Ólafsfirði sem og á
Stöðvarfirði. Á báðum þessum
stöðum hafa verið miklir erfið-
leikar í rekstri hraðfrystihúsanna
og voru td. hátt í 100 manns á
atvinnuleysisskrá á Ólafsfirði frá
síðasta hausti og rættist ekki úr
því fyrr en eftir páska. Búist er
við að ríkisstjórnin fjalli um af-
greiðslu stjórnar Fiskveiðssjóðs á
fundi sínum í dag.
Að sögn Ágústar Sigurlaugs-
sonar má ljóst vera að töfrabrögð
ríkisstjórnarinnar til lausnar
svæðisbundnum kreppueinkenn-
um hjá sjávarútvegsfyrirtækjum
með aðstoð Atvinnutryggingar-
sjóðs og Hlutabréfasjóðs
hrökkva skammt þegar á reynir.
Ágúst sagði að nokkru fyrir áður-
nefndan stjórnarfund hjá Fisk-
veiðasjóði hafi' þau boð komið frá
Hlutabréfasjóði um vilyrði um
aðstoð og hvort verkalýðsfélög
og lífeyrissjóðir gætu hugsað sér
að kaupa hlutabréf í Hraðfrysti-
húsinu. Áður en ráðrúm gafst til
að boða tíl fundar í stjórnum við-
komandí hafi' þessari beiðni verið
kippt til baka.
Fœðingar
Ungmömmum
feekkar
Töluverðar breytingar hafa
orðið á fæðingatíðni ungra
stúlkna og kvenna á miðjum
aldri. Þannig fækkaði barnsfæð-
ingum stúlkna undir 18 ára aldri
umtalsvert á árunum 1976-80
¦nið'að við fyrri hluta þess ára-
tugar.
Þessar upplýsingar koma fram
í mannfjöldaskýrslum Hagstof-
unnarfyrirsl. áratug. Þáereinnig
athyglisvert að á þessum sama
tíma lækkaði hæsti fæðingaaldur
kvenna úr 48 árum í 47 ár.
A fyrri hluta áratugarins ólu
stúlkur innan 15 ára aldurs alls 16
börn en þeim fækkaði í 10 á síðari
hluta áratugarins. Sömuleiðis
fækkaði fæðingum hjá stúlkum
allt að tvítugsaldri. Hins vegar
voru flestar fæðingar hjá 21 árs
stúlkum á síðari hluta áratugar-
ins, en hjá 23ja ára stúlkum á
þeim fyrri. -lg.
- Það er búin að vera rífandi
atvinna hér frá því Hraðfrystihús-
ið fór í gang eftir páska og með
þessari ákvörðun Fiskveiðasjóðs
sitjum við nánast í sömu óviss-
unni um framtíð atvinnulífsins í
bænum og áður. Það er ljóst að
við verðum að fá botn í þetta mál
sem fyrst ef fyrirtækið á ekki að
stöðvast með tilheyrandi
atvinnuleysi sem því fylgir,"
sagði Ágúst Sigurlaugsson. -grh
Perlan á Listahátíð í Washington. Leikhópurinn
Perlan leggur upp íferðlag til Bandarikjanna á föstu-
dag þar sem krakkarnir ætla að taka þátt í Alþjóð-
legri listahátíð fatlaðra sem haldin verður í Was-
hington. Alls fara 10 leikarar og 3 aðstoðarmenn
utan, en leikararnir ætla að sýna tvö verk á hátíð-
inni, Síðasta blómið, sem vakið hefur mikla athygli
og hópurinn sýndi m.a. á Kvennaráðstefnunni í
Osló sl. sumar og einnig nýtt verk er nefnist Sólin og
vindurinn. Mikill tími hefur farið í æfingar og undir-
búning en leikið verður á ensku. Á meðan á hátíð-
inni stendur verður öllum boðið í heimsókn í Hvíta
húsið. Þessa mynd tók - Þóm í gær áður en hópurin
hélt á lokaæfingu í Bjarkarási.
Súgandafjörður
Ibúamir í blokk syöra?
Verkalýðsfélagið Súgandi: Harkalegar aðgerðir hjá sýslumanni. Vafasamt hvað
hœgt er að ganga langt í aðgerðum sem þessum þegar heilt byggðarlag er í veði
- Vissulega kom okkur þessi
aðgerð sýslumanns mjög svo á
óvart að innsigla vélar togarans
Elínar Þorbjarnardóttur ÍS
vegna vanskila útgerðarinnar á
staðgreiðslusköttum. Fólk hér
bíður með óþreyju að málið
leysist hið bráðasta. Ef ekki þá
bíður okkar ekki annað en að
verða pakkað niður og flutt i ein-
hverja blokk á höfuðborgarsvæð-
inu, sagði Lilja R. Magnúsdóttir
hjá verkalýðsfélaginu Súganda á
Suðureyri við Súgandafjörð.
Talið er að skuldir útgerðarfyr-
irtækisins Hlaðsvíkur hf. við rik-
issjóð nemi um 4-5 miljónum
króna en það hefur þó ekki feng-
ið staðfest í fjármálaráðuneytinu.
Eigendur þess eru mikið til þeir
sömu og eiga Fiskiðjuna Freyju á
Súganda sem er Samband ís-
lenskra samvinnufélaga. Fram-
kvæmdastjóri Freyju er farinn
suður til fundar við hæstráðendur
í SÍS á Kirkjusandi og binda íbúar
þorpsins vonir sínar við að Sam-
bandið sjái sóma sinn í að leysa
togarann út svo hann komist til
veiða á nýjan leik. Ef ekki, blasir
nánast við landauðn á Suðureyri
við Súgandafjörð en 90 manns
hafa verið á launaskrá hjá Freyju
og um 15 manns eru í áhöfn tog-
arans, mest heimamenn.
- Við ætlum að sjá til fram yfir
helgi hvernig málin þróast áður
en við boðum til almenns fundar í
verkalýðsfélaginu um ástandið.
En okkur er engin launung á því
að okkur finnst mikil harka vera í
þessum aðgerðum sýslumannsins
á ísafirði og vafasamt hvað á að
ganga langt í aðgerðum sem þess-
um þegar heilt byggðarlag er í
húfi, sagði Lilja R. Magnúsdótt-
ir.
-grh
Ríkisfjármálin
Auknar
álögur
Nú stefnir í að halli á fjárlögum
verði um 3,5 mujarðar króna i
stað 600 miljóna króna tekjuaf-
gangs. Ólafur Ragnar Grímsson,
fjármálaráðherra segir að þetta
þýði ekki að áætlanir um ríkis-
fjármálin hafi verið rangar, held-
ur hafl bætst við ófyrirséðir út-
gjaldaliðir, svo sem skuldbind-
ingar rfkisstjórnarinnar vegna
kjarasamninga, auk þess sem út-
gjöld vegna búvörusamninga séu
farin úr böndunum.
Til að rétta þennan halla af
mun Ólafur Ragnar viðra hug-
myndir á ríkisstjórnarfundi í dag
um tekjuaukningu ríkissjóðs,
m.a. að skattar verði hækkaðirog
að niðurskurður ríkisútgjalda
verði aukinn. Þriðju leiðina til að
rétta hallann af, þ.e. að ríkis-
stjórnin taki aukin erlend lán, tel-
ur fjármálaráðherra sísta kostinn
enda stríði hann gegn stefnu
ríkisstjórnarinnar.
phh