Þjóðviljinn - 08.06.1989, Blaðsíða 2
FRETTIR
Þrátt fyrir miklar auglýsingar
og mikia umfjöllun fjölmiðia
um fyrirhugað leiguflug verka-
lýðsfélaganna til Evrópu i sumar
reyndist áhugi fyrir orlofs-
ferðunum ekki meiri en svo að
hætta varð við leiguflugið sem
fyrirhugað var með Arnarflugi.
Þess í stað hefur væntanlegum
farþegum verið gefinn kostur á að
hætta við ellar þá fljúga til Lúx-
emborgar með áætlanaferðum
Flugleiða og Arnarflugs. Áður
hafði verið áætlað að fljúga til
Saarbrúcken. Þrátt fyrir þessar
breytingar mun verð haldast
óbreytt.
Hefur nokkuð borið á óánægju
meðal væntanlega farþega þar
sem margir hverjir höfðu gert
ákveðnar ráðstafanir þegar út
væri komið, svo sem bókað bílal-
eigubíla, en ekki hefur tekist að
láta áætlanaflugið standast á við
áður ákveðna flugtíma. Helgi Jó-
hannsson hjá Samvinnuferðum-
Landsýn sagði þó, að yfirleitt
hefðu farþegar sýnt þessum
breytingum skilning og enginn
þeirra sem haft hefði verið sam-
band við hefði hætt við þátttöku.
Byrjað var að hringja í farþega í
síðustu viku og tilkynna þeim
breytingar og væri nú búið að fá
allar ferðir í júní á hreint. Helgi
sagði að það hefði orðið ljóst í lok
maí að þátttaka væri minni en
áætlað var og hefðu aðeins 900
bókanir verið gerðar í stað 1400.
í stað þess að hætta við leigu-
flugið sem ekki var lengur talið
arðbært, hefði verið ákveðið að
leita annarra leiða og niðurstað-
an hefði orðið þessi. Eru Flug-
leiðir með rúmlega helming þess-
ara farþega, en sem kunnugt er
kom til heiftúðugra deilna milli
félagsins og verkalýðshreyfíngar-
innar vegna hótana Flugleiða um
málshöfðun á hendur Verslunar-
mannafélagi Suðumesja. phh
öðruvísi mér áður brá þegar fólk
jafnvel svaf á göngum í húsum
verkalýðsfélaganna til að verða
sér úti um ódýra miða í orlofs-
ferðir. Nú reyndist áhuginn svo
lítillað hættavarðvið
leiguflugið.
Loftmiðlar
Vaxandi vinsældir Rótarinnar
Tónlistarþættirnir vinna sér sess en fjárhagurinn erfiður
Vlð höfum orðið vör við að
vinsældir Rótarinnar eru að
aukast mikið og má það helst
marka af því að símhringingum
linnir ekki þegar hlustendum er
boðið að hafa samband. Sérstak-
lega er það ungt fólk sem hringir,
en þeir tónlistarþættir sem við
höfum boðið upp á með framsæk-
ið rokk i fyrirrúmi hafa notið
mikilla vinsælda, sagði Jón Rún-
ar Sveinson, stjórnarmaður Út-
varps Rótar í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær.
Jón sagði að meðal aðstand-
enda Rótarinnar ríkti nú hófleg
bjartsýni með framhaldið,
fjárhagurinn væri það erfiður að
ekki hefði reynst kleift að halda
úti starfsmönnum á launum. „Því
fer allt starf nú fram í sjálfboða-
vinnu, en hins vegar hefur tekist
að hafa hemil á föstum skuldum
og hafa þær ekkert aukist frá því
um áramót. En hlustun á stöðina
fer vaxandi og við höfum þegar
lifað af nokkrar útvarpsstöðvar
sem hafa orðið undir í samkepp-
ninni,“ sagði Jón.
Nafnið Útvarp Rót vísar til
þeirrar grasrótar sem stóð að út-
varpinu og því er ætlað að þjóna.
„Okkur hefur tekist þetta ætlun-
arverk því þetta er sannkallað
grasrótarútvarp. Hér eru um 30
aðilar sem útvarpa. Það hefur
verið nokkur hreyfing á notend-
um stöðvarinnar og t.d. hætti
Borgaraflokkurinn tiltölulega
snemma við sína þætti. En félaga-
samtök sem útvarpa héðan þurfa
að borga mjög lágt gjald, eða um
2000 krónur fyrir klukkustund-
ina. Aðrar tekjur koma inn í
gegnum áskriftarkerfið og jafn-
framt er boðið upp á auglýsing-
ar.“ Sagði Jón Rúnar að nú þyrfti
Rótin að fara að huga að nýju
húsnæði, því leigusamningur
stöðvarinnar rynni út í haust.
Yrði væntanlega farið af stað
með fjáröflunarátak í því sam-
bandi og yrðu undirtektir von-
andi góðar. phh
Klofningstali liimi
Þjóðviljanum barst í gær eftir-
farandi ályktun frá undirbún-
ingsnefnd að stofnun Birtingar:
í tilefni af ályktun stjórnar
ABR frá 6. júní s.l. og vegna um-
mæla í fjölmiðlum undanfarið, -
allt þess efnis að hópur félaga í
Alþýðubandalaginu hafi eða sé í
þann veginn að kljúfa flokkinn
teljum við nauðsynlegt að eftir-
farandi komi fram:
Árið 1985 var lögum Alþýðu-
bandalagsins breytt á þann veg að
rýmkaðar voru til muna heimildir
til að stofna félög innan flokks-
ins, jafnt svæðisbundin félög og
félög bundin tilteknum viðfangs-
efnum. Fyrirmyndin að þessu
skipulagi var m.a. sótt til franska
sósíalistaflokksins og fleiri evr-
ópskra vinstri flokka. Einnig var
heimilað að óflokksbundið fólk
gæti átt aðild að málefnafélögun-
um, en flokksbundnir félagar
hefðu að sjálfsögðu einir þau
réttindi innan flokksins sem
fylgja formlegri flokksaðild. Þá
má geta þess að samkvæmt lögum
flokksins getur sami einstakling-
ur verið í fleiri en einu aðildarfé-
lagi flokksins, þó þannig að við
kjör fulltrúa á landsfund og við
kjör til kjördæmisráðs nýtist at-
kvæði hans aðeins á einum stað.
Hópur félaga í Alþýðubanda-
laginu hefur nú ákveðið, í sam-
vinnu við ýmsa óflokksbundna
vinstri menn, að stofna málefn-
afélagið Birtingu þann 18. júní
n.k. I drögum að lögum fyrir fé-
lagið sem nú liggja fyrir, segir
m.a. að Birging sé félag jafnaðar-
og lýðræðissinna og sé aðildarfé-
lag að Alþýðubandalaginu, -
markmið félagsins sé að efla
hreyfingu vinstri manna og stuðla
að umræðu um framtíðarverkefni
og samstarf þeirra.
í ljósi þessa er það von okkar,
sem nú undirbúum stofnun hins
nýja félags, að menn láti af yfir-
lýsingum um klofning flokksins
og taki höndum saman um að efla
hreyfingu íslenskra vinstri manna
til áhrifa í framtíðinni.
Skagamenn vilja
Hvalfjarðargöng
Bæjarráð Akraness hefur beint
þeirri eindregnu áskorun til sam-
gönguráðherra að það taki sem
fyrst jákvæða afstöðu til erindis
Sementsverksmiðjunnar og
Járnblendiverksmiðjunnar um
rannsóknir vegna hugsanlegra
jarðganga undir Hvalfjörð. Segir
bæjarráð að hér sé um að ræða
bæði hagkvæma framkvæmd og
gífurlega samgöngubót.
Núpsstaöamerki
fallegast
Áhugamenn um frímerkjasöfnun
bæði innlendir og erlendir, hafa
valið frímerki með mynd af
Núpsstað í Fljótshverfí frá 1863
eftir Auguste Meyer, sem falleg-
asta íslenska frímerkið sem gefið
var út á sl. ári. í öðru sæti var
frímerki með mynd af jaðrakan
og í þriðja sæti merki með mynd
af hávellu. Þröstur Magnússon
teiknaði bæði þau merki. Alls
bárust atkvæðaseðlar frá 58
löndum í samkeppnina.
Listamenn
á Eyrarbakka
Uppi eru hugmyndir um að koma
fyrir íbúð til handa listamönnum í
gamla barnaskólahúsinu á Eyrar-
bakka. Eigandi hússins Bergljót
Kjartansdóttir hefur borið þessa
hugmynd undir Bandalag ís-
lenskra listamanna og Rithöf-
undasambandið sem bæði hafa
lýst stuðningi við málið.
Menning og tónvísindi
í tengslum við Tónvísindahátíð
íslensku hljómsveitarinnar
gengst Stofnun Sigurðar Nordals
fyrir pallborðsumræðum um ís-
ienska menningarstefnu í menn-
ingarmiðstöðinni Gerðubergi, í
dag kl. 17.00. Þátttakendur í ura-
ræðum verða þeir Árni Ibsen,
Einar Kárason, Gestur Guð-
mundsson, Gunnar Harðarson,
Halldór Bjöm Runólfsson,
Kristín Jóhannesdóttir og
Tryggvi Þór Aðalsteinsson. Úlfar
Bragason forstöðumaður Stofn-
unar Sigurðar Nordals stjórnar
umræðum en allir eru velkomnir
á fundinn.
IL0- þingið hefst í dag
76. þing Alþjóðavinnumálastofn-
unarinnar ILO, verður sett í
Genf í Sviss í dag. Meðal mála
sem liggja fyrir þinginu em drög
að alþjóðasamþykkt um meðferð
hættulegra efnasambanda á
vinnustöðum. Félagsmálaráð-
herra ávarpar þingið á föstudag.
Fulltrúar ASÍ á þinginu eru þeir
Ásmundur Stefánsson og Guð-
mundur J. Guðmundsson.
Ódýrara í fiskbúðum
Mikill verðmunur er á fiski í mat-
vöruverslunum á höfuðborgar-
svæðinu samkvæmt nýlegri at-
hugun Verðlagsstofnunar. Er
verðmunur allt að 124% á ein-
stökum tegundum. Minnstur
verðmunur var á nýjum ýsu-
flökum og nætursöltuðum 7-10%
en mestur á rauðsprettu, signum
fiski og eldislaxi, um og kringum
100%. Þá kom fram í könnuninni
að í flestum tilfellum er fiskur
seldur á lægra verði í fiskbúðum
en í matvöruverslunum.
helming
Fjármálaráðherra og forsvarsmenn Grindavíkur og heilsugæslu á
Suðurnesjum undirrita samning um nýju heilsugæslustöðina. Mynd-
Þóm.
Ný heilsugæsla
í Grindavík
Fjármálaráðherra hefur undirrit-
að samning um kaup á nýju hús-
næði fyrir heilsugæslustöð í
Grindavík. Byggingafram-
kvæmdir hefjast næstu daga en
ráðgert er að hefja rekstur í nýja
húsinu þegar á næsta ári. Stöðin
mun verða í um 500 ferm. hús-
næði en undanfarin ár hefur
heilsugæslan í Grindavík búið við
slæman húsakost.
Orlofsferðir verkalýðsfélaganna
Flugleiðir hrepptu
Áœtlunarflug ístað leiguflugs, en
þátttaka í leiguflugi reyndist ekki nœg.
Farþegum skipt á milli Flugleiða og
Arnarflugs
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 8. Júní 1989