Þjóðviljinn - 02.08.1989, Qupperneq 2
FERÐABLAÐ
Sumarbústaðir
íslendingar hafa veriö iðnir viö
þaö að koma sér upp sumarbú-
stöðum á undanförnum árum.
Sumarbústaðir hafa því átt sífellt
meiri vinsældum að fagna og
sprottið upp eins og gorkúlur víða
um land.
Á sumum stöðum standa þeir
einir og sér innan um tré og
runna, en annars staðar eru heilu
sumarbústaðahverfin, eins og til
dæmis í Þrastarlundi. Þeir sem
eiga sumarbústaði segja það
ótrúlega skemmtilegt að fara um
helgar í bústaðinn og dunda sér
við að mála, gera við, planta
trjám eða veiða. Alltaf eitthvað
við að vera. Segja það yndislega
hvfld frá daglegu amstri og stressi
borgarinnar að fara í tvo eða þrjá
daga upp í sveit og eiga náðuga
helgi með fjölskyldunni.
Það hefur líka færst í vöxt að
starfsmannafélög og fyrirtæki
kaupi sér sumarbústað og leigi fé-
lagsmönnum viku í senn eða
helgi. Slíkir bústaðir eru víða, til
dæmis á Laugarvatni.
En hvað ætli það kosti að koma
sér upp sumarbústað? Það éru
nokkur fyrirtæki á landinu sem
smíða og selja sumarbústaði og
verðið er mjög misjafnt eins og
gefur að skilja. Bústaðirnir eru
misjafnir að stærð og gæðum og
það skiptir líka máli hvar á
landinu þeir eru staðsettir. Sum
fyrirtæki sem smíða sumarbúst-
aði sjá einnig um að útvega
mönnum lóðir undir þá. Ýmist
eru lóðirnar leigulóðir eða
eignarlóðir.
Sumarbústaði er hægt að fá á
mismunandi byggingarstigum. Ef
tekið er dæmi af meðalstórum
bústað, til dæmis 38 fermetra, af-
hentum á 1. stigi kostar hann um
það bil 1.000.000. Á 1. stigi eru
bústaðirnir oftast fullbúnir að
utan, glerjaðir, með útihurðum,
einangraðir, með rakavarnarlagi,
spónarplötuparketti og verönd.
Það er þó aðeins mismunandi
eftir fyrirtækjum hvernig bústað-
urinn er á 1. stigi, en þetta eru
aðalatriðin.
Á 2. stigi er töluverður munur
á bústöðunum eftir fyrirtækjun-
um. Hjá sumum fyrirtækjum eru
aðeins tvö stig, en öðrum þrjú.
Hjá þeim sem eru með þrjú stig
eru hlutir á öðru stigi þeir sömu
og eru á fyrsta stigi hjá þeim sem
eru bara með tvö stig. Fyrirtæki
með tvö stig afgreiða bústaðinn á
2. stigi með milliveggjum og rúm-
stæðum, útveggir að innan eru
klæddir með panel, hurðir eru og
sólbekkir, áfellur í glugga, listar
með gólfum, rafmagnsrör og dós-
ir og rafmagnstafla. Hjá fyrir-
tækjum með þrjú stig eru bústað-
ir afhentir með svipuðum
hlutum, eða innihurðum, eldhús-
innréttingu og rúmstæðum. Bú-
staður á 3. stigi kostar á bilinu
1.300.000 til 1.500.000.
Þá eru lóðirnar eftir. Ef lóð
undir sumarbústaðinn er keypt,
er algengt verð á einum hektara
450-550 þúsund krónur. Sem fyrr
segir útvega sum fyrirtæki lóðir,
en einnig eru margar fasteigna-
sölur með lóðir til sölu. Leigulóð-
ir ganga á afar misjöfnu verði og
mjög erfitt að segja nokkurt
ákveðið verð. Oftast er gjald
greitt þegar bústaðurinn er flutt-
ur á staðinn, eins konar staðsetn-
ingargjald, og síðan ergreidd viss
upphæð á ári.
Fyrir þá sem langar til að eyða
helgum úti í sveit og sumarfríum
á íslandi, er upplagt að fara á
stúfana og afla sér upplýsinga um
sumarbústaði og öllu því sem
þeim tengist, því fjölbreytnin er
mikil og nánast óendanlegir
möguleikar fyrir hendi.
Á fimmtudag verður hæg Norð- og Norðvestanátt. Skýjað en þurrt að kalla á Norðurlandi, en lóttskýjað með köflum í
öðrum landshlutum.
Á miðvikudag verður ríkjandi norðvestlæg átt. Skýjað
annesjum. Léttskýjað með köflum á Suðurlandi og á Austfjörðum.
á Norður- og Vesturlandi og á stöku stað súld á
Gómsætir réttir og allt á einum stað
Ferðamarkaðurinn er eina verslunin á íslandi,
sem býður upp á alhliða ferðavörur eins og t.d.
PARADISO lellihysin, uppsett á 'Amínútu. Sérhðnnuð fyrir íslenskar aðstæður.
DALESMAN sumarhúsin, sem nú lást einnig uppsett á Spáni.
SAFARI MONZA hjðlhýsi - tjaldvagnar - kerrur.
Tjöld og allur viðlegubúnaður. NIKE-sportfatnaður og skón
Garðhusgögnfra SeglageröinniÆgi. Reiðhjól fráFálkanum.
Gasvörur frá Olíufélaginu Skeljungi. Fortjöld á hjólhýsi og fellihýsi - f lestar tegundir.
Fjölbreytt úrval af vörum í sportið og ferðalagið.
Sjón er sögu ríkari
Hvað er sérstakt viö
PARADISO-fellihýsið?
Opið til kl. 19 mánudaga-fimmtudaga.
Opið til kl. 22 föstudaga.
Opið kl. 10-18 laugardaga.
FERÐAMARKAÐURINN
Bíldshöföa 12 (viö sömu götu og Bifreiðaskoðun íslands).
Sími 674100.