Þjóðviljinn - 22.08.1989, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 22.08.1989, Blaðsíða 9
FLOAMARKAÐURINN Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og tæki sem verða til sýnis þriðjudaginn 22. ágúst 1989 kl. 13-16, í porti bak við skrifstofu vora að Borgartúni 7, Reykjavík og víðar. Tegundir Árg. 1 stk. Saab 900 turbo fólksb. 1986 5stk. Volvo244fólksb. 1983-85 3stk.Subaru 1800stations4x4 1985-86 1 stk. Mazda 929-2000 fólksb. 1985 1 stk. Nissan Sunny Van 1985 1 stk. Fiat 127 Panorama 1985 1 stk. Peugeot 505 diesel station 1983 1 stk. Mitsubishi Pajerodiesel4x4 1984 1 stk. Ford Bronco 4x4 1979 1 stk. Suzuki Fox Samurai. Sk. e. umf. óhapp 1989 1 stk. MMC L300 sendif .b. 4x4 1984 1 stk.ToyotaHi Acesendib. 1983 1 stk. Ford Econoline E-150 sendif.b. 1981 1 stk. Chevrolet Scottsdale 1978 3 stk. Harley Davidson bifhjól 1967-74 1 stk. Mercedes Benz 1719 vörubifr. m/krana 1977 1 stk. Ford F-4550 Dráttarvél m/framsk. 1975 Til sýnis hjá Rafmagnsveitum ríkisins, Akureyri. 1 stk. Chevrolet pick up diesel 4x4 1984 Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins Akureyri. 1 stk.MMCL-300Minibus4x4ógangfær 1984 Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins Reyðarfirði. 1 stk. VolvoLapplander4x4 1981 Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16:30 að viðstöddurh bjóðend- um. Réttur er áskilinn til að hafna tilboðum sem ekki teljast viðun- andi. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS Borgartuni 7, sími 26844 MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ: Lausar stöður við framhaldsskóla. Framlengdur umsóknarfrestur: við Fjölbrautaskóla Vesturlands, Akranesi, er laus til umsóknar kennarastaða í rafeindavirkjun. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 4, 150 Reykjavík fyrir 25. ágúst n.k. Notkun lyfja 1984-1988 Heilbrigöis- og tryggingamálaráðuneytið gefur nú í 3ja sinn út rit, er hefur að geyma ýmsar upplýsingar um lyf og skyld málefni. Tilgangur ráðuneytisins með ritinu er að gera upplýsingar um þennan málaflokk aðgengilegri, en verið hefur. Ritinu er skipt í fjóra meginkafla og fjallar sá fyrsti um skráningu sérlyfja, innkaupsverð þeirra og heildsöluverðmæti. Útgjöld almanna- trygginga fyrir lyf og læknisþjónustu eru nefnd, sem og hlutdeild almennings í lyfjakostnaði. í öðrum kaflanum er tilgreind lyfjanotkun í DDD/ 100 íbúar/dag og g/1000 íbúar/ár. DDD stendur fyrir skilgreindan dagsskammt (Defined Daily Dose), sem er reiknuð stærð, sem gerir saman- burð á lyfjanotkun milli landa eða landshluta auðveldari. Einnig eru þar fjölmörg súlurit til að auðvelda yfirsýn. í þriðja kaflanum er lyfjaflokk- unarkerfið ATC. Getið er allra skráðra sérlyfja og viðkomandi DDD, ef til er. í fjórða kaflanum er að finna upplýsingar um heildsöluverðmæti skráðra sérlyfja hinna mismunandi ATC-flokka. Við lestur ritsins má m.a. sjá, að 1. Ástæða er til að fylgjast grannt með nýjum lyfjum, sem notuð eru til að lækka kólesteról í blóði. 2. Notkun lyfja við sársjúkdómi eykst enn. 3. Ráðstafanir til að draga úr notkun svefnlyfja virðast hafa borið tilætlaðan árangur. 4. Hlutur sjúklinga í lyfjakostnaði jókst um 1,5% frá maí til júní, en ný reglugerð um gjald sjúklinga fyrir lyf tók gildi 1. júní sl. Það er von ráðuneytisins, að ritið veki menn til umhugsunar um notkun lyfja og stuðli þannig að aukinni hagsýni í notkun lyfja. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, í ágúst 1989 Austur-Pýskaland Hætt að skjóta á flóttamenn Austurþýsk stjórnvöld vilja koma afsér óorði og þar að auki flýja nú margirfrá þeim til vesturs yfir Ungverjaland Austurþýskir hermenn, sem nýlega flýðu til Vestur- Þýskalands, hafa staðfest fyrri fréttir um að austurþýsk stjórnvöld hafl bannað landa- mæravörðum sínum á skjóta á þá þegna sína, sem reyna að flýja yfir landamærin til Vestur- Þýskalands, nema í vissum tilfell- um. Skipun þessi tekur einnig til Berlínarmúrsins alræmda. Erich Honecker, æðsti valds- maður Austur-Þýskalands, til- kynnti á blaðamannafundi í júní s.l. að skipuninni um að skjóta á flóttamenn, er þeir reyndu að komast vesturyfir landamærin, hefði verið breytt, og austur- þýsku liðhlauparnir hafa nú stað- fest að nýja tilskipunin hafi borist hereiningum þeirra 6. apríl. Áfram verður þó skotið á lið- hlaupa úr hernum, í sjálfsvarnar- skyni og ef flóttamenn reyna að komast yfir landamærin á fyrir- ferðarmiklum ökutækjum. Áðurnefndir hermenn nefna sem ástæðu fyrir hinni nýju til- skipun að regían um að skjóta á flóttamenn hefði komið slíku óorði á austurþýsk stjórnvöld, að þeim hefði ekki þótt borga sig að framfylgja henni lengur, þótt af- námi hennar fylgdi að fleiri kæm- ust undan en fyrr. Þar að auki væri nú orðið algengt að Austur- Þjóðverjar, sem flýja vildu vest- uryfir, færu einfaldlega til Ung- verjalands og þaðan yfir landa- mærin til Austurríkis. Það er til- tölulega auðvelt núorðið, þar sem á landamærum þessara ríkja er járntjaldið fyrir bí. Við þessar nýju aðstæður virtist austurþýsk- um ráðamönnum að meiningar- lítið væri að halda uppi jafn strangri gæslu á landamærunum milli sín og Vestur-Þjóðverja og hingað til hefur verið gert. Ekki er þó þar með sagt að austurþýsk yfirvöld hafi alveg gefist upp við að reyna að stöðva flóttamannastrauminn frá sér vestur yfir tjald. Frá því að skot- tilskipunin var úr gildi numin hef- ur verið bætt í gæsluna við Berlín- armúrinn um 200 hundum, sér- þjálfuðum í að elta uppi fólk á flótta. Svo segir a.m.k. einn lið- hlaupanna, sem sjálfur hefur hundatamningu sem sérgrein. Reuter/-dþ. Sænska akadem- ían á íslandi Tíu af átján meðlimum Sænsku akademíunnar komu hingað til lands í gær mánudag, til að fræðast um íslenska menningu, einkum bókmenntir og tungu. Sætir ferð akademíunnar nokkr- um tíðindum, því þetta er önnur utanlandsferð hennar á rúmlega tvöhundruð árum. Akademían var stofnuð 1786 til eflingar sænskri tungu og bók- menntum, en hefur auk þess frá aldamótum séð um að úthluta bókmenntaverðlaunum Nóbels. Fjórir íslenskir fræðimenn, þeir Baldur Jónsson, Heimir Pálsson, Jónas Kristjánsson og Njörður P. Njarðvík, munu fræða meðlimi akademíunnar um íslenskt mál og bókmenntir á meðan á heimsókninni stendur, en henni lýkur sunnudaginn 27. ágúst. LG Kattavinir Tæplega 2 ára fresskött vantar ástríkt heimili. Hann er geðgóður og þrifinn. Uppl. í síma 27117. Markaður Hlaðvarpans Tökum í umboðssölu handgerða muni, t.d. skartgripi, útskurð, keram- ik, föt, vefnað, leikföng og margt fleira. Til sölu 2 dekkjagangar undir Fiat 127 (vetrar og sumar). Uppl. i síma 34597 e.kl. 18, eða í sima 985-20325. Rússneskar vörur í miklu úrvali til sölu í Kolaportinu alla laugardaga. Uppl. í síma 19239. íbúð til leigu 3 herbergja íbúð í vesturbæ til leigu. Fyrirframgreiðsla. Uppl. í síma 27117 kl. 19-21 næstu daga. Tll sölu ritvél í tösku. Selst ódýrt. Uppl. í síma 686879. Góður ísskápur til sölu. Sími 84922. Óska eftlr að kaupa lítinn.notaðan ísskáp. Sími 91-39263 eftir kl. 20. Tjald óskast Vil kaupa vel með farið göngutjald eða annað litið tjald. Vinsamlega haf- ið samband í síma 681310 kl. 9-17 eða 675862 á kvöldin. Unnur. Dagmamma Get bætt við mig börnum. 12 ára stafsreynsla. Uppl. í síma 84319. Óska eftir stofuskáp, hillusamstæðu, sófasetti og sófaborði. Helst ódýrt. Uppl. í síma 674194. Fallegur kettlingur fæst gefins á gott heimili. Uppl í síma 36958. Innihurðir 6 notaðar innihurðir úr eik til sölu. 4 stk. 70 cm á breidd, 1 stk. 60 cm og 1 stk. 90 cm. Seljast ódýrt. Uppl. í síma 681267. Óska eftir Daihatsu Charade 81-82 módel með ónýtu krami. Á sama stað fæst gefins Peugeot station 404 árg. 76. Uppl. í síma 44919 e.kl. 16. Óska eftir 2 rúmdýnum, t.d. úr hjónarúmi. Uppl. í síma 20581. Húsnæði óskast Óskum eftir 3 herbergja íbúð. Erum 3 í heimili. Einhver fyrirframgreiðsla ef óskað er. Uppl. í síma 94-7457. ísskápur til sölu selst ódýrt. Uppl. í síma 621468. Frystikista Óska eftir frystikistu. Uppl. í síma 79470. Eldhúsborð óskast Óska efdtir kringlóttu eldhúsborði og stólum. Uppl. í síma 674797 (Björk). Westinghouse ísskápur til sölu mjög ódýrt. Uppl. í síma 34717. Tölvuspil Óska eftir að kaupa tölvuspil til að tengja við sjónvarp (Nintendo). Vins- amlega hringið í síma 76747 e. kl. 21. Barnarúm óskast Vantar barnarúm fyrir 2 ára strák, má vera snjáð, gamalt og lúið. Sigrún, sími 10271. Til sölu vélarlaus Skoda 120L árg. 86, ekinn 15000 km., lítur mjög vel út. Verð, tilboð. Uppl. í síma 687804. PÓST- OG SfMAMÁLASTOFNUNIN Rafeindavirkjanám Póst- og símamálastofnunin tekur nú í haust upp að nýju nám í rafeindavirkjun og óskar hér með eftir nemum á 7. önn. Umsækjendur skulu hafa lokið bóklegu námi á 6. önn í rafeindavirkjun. Námstími er 13 mánuðir,, bóklegt nám og starfsþjálfun hjá stofnuninni og lýkur með sveinsprófi. Laun eru greidd á námstimanum. Umsóknir, ásamt prófskírteini eða staðfestu af- riti af því, sakavottorði og heilbrigðisvottorði, berist Póst- og símaskólanum fyrir 15. sept- ember nk. Umsóknareyðublöð liggja frammi í Póst og símaskólanum Sölvhólsgötu 11, Reykjavík, hjá dyravörðum Landsímahúss og Múlastöðvar og ennfremur á póst- og símastöðvum. Nánari upplýsingar eru veittar í Póst- og síma- skólanum í símum 91-26000/ 336/ 385/ 386. Rekstrarstjóri V2 starf íslandsdeild Amnesty International auglýsir eftir rekstrarstjóra til afleysinga í eitt ár. Viðkom- andi verður að geta unnið sjálfstætt og átt auðvelt með að vinna með ólíkum aðilum. Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af vinnu við tölvu. Góð menntun og enskukunnátta er skilyrði. Umsóknir skulu vera skriflegar í umslögum auðkenndum REKSTRARSTJÓRI og berast stjórn samtakanna að Hafnarstræti 15 eða í Pósthólf 618,121 Reykjavík fyrir 15. september næstkomandi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.