Þjóðviljinn - 22.08.1989, Side 12

Þjóðviljinn - 22.08.1989, Side 12
“SPURNINGIN" Á aö láta erlenda ferða- menn greiða sérstakt tryggingargjald við kom- unatillandsins.tilað greiða kostnað við að leita að þeim ef þeirtýn- ast? Sólveig Jónsdóttir kennari: Erum við ekki svo hrædd um að fæla frá okkur ferðamenn. Mynd- um við þora það? Valdimar Flygenring leikari: Alveg hiklaust. Það væri mjög eðlilegt og almennt ætti að rukka erlenda ferðamenn fyrir afnot af landinu og setja peningana í landgræðslu. Arndís Níelsdóttir erindreki: Kannski væri það hugsanlegur möguleiki. Ég hef annars ekki hugleitt þetta. Hlöðver Sigurjónsson sjómaður: Já, annars ættu þeir að láta vita af sér og þeir mega líka alveg týnast, þannig að leitarmenn fái þjálfun. Magnús Aspelund framkvæmdastjóri: Mér finnst þetta fáránlegt. Mynd- um við vilja láta rukka okkur um slíkt? pJÓÐVILIINN Þriðjudagur 22. ógúst 1989 142. tölublað 54. árgangur SÍMI 681333 Á KVÖLDIN 681348 SÍMFAX 681935 Reykjavíkurborg Hugmyndasamkeppni um framtíoarskipulag í Viðey Borgarstjórn ákvað á 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar árið 1986 að efna til hugmynda- samkeppni um framtíðarskipulag og nýtingu Viðeyjar og hefur dómnefnd nú skilað úrskurði sín- um. Fyrstu verðlaun, sem voru 470 þúsund krónur fékk tillaga Bald- urs Svavarssonar, Egils Guð- mundssonar og Þórarins Þórar- inssonar. Önnur verðlaun, 265 þúsund krónur fékk tillaga Fríðu Bjargar Eðvarðsdóttur og Gunn- laugs Ó. Johnsons og þriðju verð- laun, 206 þúsund krónur fékk til- laga Þórólfs Jónssonar. Nokkur atriði voru lögð til grundvallar við mat á tillögunum og voru þau m.a. að litið var til samgangna milli lands og eyjar og var dómnefnd sammála um að samgöngur yrðu áfram með bát- um og hafnaði því öllum tillögum um gerð brúar og hugmynd um svifbraut sem samgöngutæki. í öðru lagi áleit nefndin að engin vélknúin ökutæki yrðu í eynni nema sem þjónustu- og öryggis- tæki, og því ætti að leggja áherslu á gerð göngustíga. Einnig áleit dómnefndin að í Viðey ætti að vera útivistarsvæði sem væri opið öllum og áhersla var lögð á nátt- úruvernd. Þá var nefndin þeirrar skoðunar að ný mannvirki skyldu vera í lágmarki, en þau sem reist yrðu gætu tengst þeim atriðum sem til grundvallar voru lögð. Verðlaunatillagan í tillögunni sem hlaut fyrstu verðlaun er gert ráð fyrir ferju sem tengist almenningsvagna- kerfi borgarinnar, og hest- Davíð Oddsson borgarstjóri afhendir höfundum verðlaunatillögunnar, þeim Baldri Svavarssyni, Agli Guðmundssyni og Þórarni Þórarinssyni 470 þúsund krónur. Mynd: Kristinn. vögnum sem samgöngutæki í eynni. Þá er lagt til að Viðeyjar- stofa, kirkjan og nánasta um- hverfi verði óbreytt og að ásýnd eyjarinnar frá Reykjavík verði óbreytt. Margar athyglisverðar tillögur komu fram og nýstárlegar hug- myndir um nýtingu eyjarinnar. Til dæmis hugmyndir um að reisa klaustur, hótel og bóndabæ, og hugmynd um neðansjávarað- komu að eynni. Ein tillagan gerði ráð fyrir verulegri uppbyggingu á eynni með byggingu þingborgar fyrir Alþingi og alþjóðastofnanir og samgöngur með svifbraut. Auk tillagnanna þriggja sem voru verðlaunaðar, voru fjórar hugmyndir verðlaunaðar sérstak- lega með 60 þúsund krónum hver. Sérstök athygli var vakin á einni tillögunni og þótti hugmynd að byggingu víkingabæjar athygl- isverð. AIls barst 21 tillaga í hugmyndasamkeppnina. ns.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.