Þjóðviljinn - 06.09.1989, Side 10
VIÐ BENDUM Á
Geir
Krisljánsson
og tilvistar-
stefnan
Rás 1 kl. 10.30
Á Rás 1 í dag verður fluttur
þáttur sem nefnist Geir Krist-
jánsson og tilvistarstefnan. Um-
sjónarmaður er Oddný Jónsdótt-
ir og lesari Snæbjörg Sigurgeirs-
dóttir, báðar bókmenntanemar
við Háskólann. Geir Kristjáns-
son varð einn af frumkvöðlum
nýs sagnastfls í íslenskum bók-
menntum með smásagnasafni
sínu, Stofnuninni, árið 1956 og
sýndi þar firringu nútímamanns-
ins í listrænum prósa á undan
flestum öðrum höfundum okkar.
í þættinum er fjallað um sögurnar
í bókinni í ljósi kenninga tilvistar-
stefnunnar og lesið úr þeim. Geir
er einnig kunnur sem þýðandi og
hefur m.a. þýtt allmikið af ljóð-
um úr rússnesku.
Á vetlvangi
Rás 1 kl. 18.10
í þættinum Á vettvangi, sem er
á dagskrá Rásar 1 alla virka daga
vikunnar kl. 18.10, er leitast við
að fá tvo sérfróða menn til að
skiptast á skoðunum um ýmis á-
litamál - einkum þau sem snerta
atvinnu- og efnahagslífið. í þætt-
inum í dag munu hagfræðingarnir
Gunnlaugur Júlíusson hjá Stétt-
arsambandi bænda og Sigurður
Snævarr hjá Þjóðhagsstofnun
fjalla um nýútkomna skýrslu um'
fyrirkomulag landbúnaðarmál-
anna á Norðurlöndum og vfðar,
og hverjir séu helstu gallar á því
kerfi - bæði þar og í löndum Evr-
ópubandalagsins. Umsjónar-
menn Vettvangs eru þeir Bjarni
Sigtryggsson og Páll Heiðar Jóns-
son.
Tekið á rás
- ísland-
A ustur-Þýskaland
Rás 2 kl. 18.03
Vonir íslendinga um að kom-
ast í úrslitakeppni heimsmeistar-
amótsins í knattspyrnu á Ítalíu
dofnuðu verulega þegar landslið
okkar beið lægri hlut fyrir
Austurríkismönnum í Salzburg
fyrir stuttu. Ekki tókst þá að tefla
fram öllum reyndustu leik-
mönnum okkar, þar sem Ásgeir
Sigurvinsson og Arnór Guðjohn-
sen áttu ekki heimangengt frá lið-
um sínum, auk þess sem fyrirlið-
inn, Atli Eðvaldsson, var
meiddur. í leiknum gegn Austur-
Þjóðverjum á Laugardalsvelli í
dag stendur þetta til bóta því
bæði Ásgeir og Arnór mæta til
leiks og vonandi tekst að velgja
Þjóðverjum undir uggum. Skipst
hafa á skin og skúrir í leikjum
okkar við Austur-Þjóðverja, í
fersku minni er sigurleikurinn
1975 þar sem Jóhannes Eðvalds-
son og Ásgeir Sigurvinsson
skoruðu tvö mörk fyrir ísland.
Hins vegar var ekki hátt risið á
leikmönnum íslendinga á
Laugardalsvelli 1986 eftir að hafa
hirt boltann sex sinnum úr eigin
marki. Ástæða er hins vegar til
bjartsýni nú, því lið Austur-
Þjóðverja er í neðsta sæti riðils-
ins, er í mikilli lægð um þessar
mundir og tvívegis hefur verið
skipt ‘um þjálfara á skömmum
tíma. Það er Arnar Björnsson
sem lýsir leiknum á Rás 2 sem
hefst kl. 18.00.
DAGSKPÁ ÚTVARPS OG SJÓNVARPS
SJÓNVARPIÐ
17.50 Sumarglugginn Endursýndur
þáttur frá sl. sunnudegl.
18.50 Táknmálsfréttlr
18.55 Poppkorn Umsjón Stefán Hilmars-
son.
19.25 Barðl Hamar Bandarískur gaman-
myndaflokkur.
19.50 Tomml og Jennl
20.00 Fréttir og veður
20.35 Grœnlr fingur Lokaþáttur - Haust-
laukar Þáttur um garðrækt í umsjón Haf-
steins Hafliðasonar.
20.55 Broddi broddgöltur Bresk
fræðslumynd um broddgölt. Fylgst er
með dýrinu í tiu mánuði, lifnaðarháttum
þess og hvernig því tekst að sleppa frá
öllum þeim hættum sem felast í um-
hverli þess.
21.45 Ekkert heilagt Bandarisk gaman-
mynd frá 1937. Blaðamaður gerir unga
stúlku sem er með sjaldgæfan sjúkdóm
að þjóðhetju. Hann lendir I hinu mesta
basli með þessa frétt sína því stúlkan
reyndist ekki eins sjúk og fyrst var talið.
Leikstjóri William Wellman. Aðalhlut-
verk Carole Lombard, Frederic March
og Charles Winninger.
23.00 Ellefufréttir
23.10 ísland - Austur-Þýskaland Sýnt
verður úr landsleik í knattspyrnu sem
fram fór á Laugardalsvelli fyrr um dag-
inn.
00.10 Dagskrárlok
STÖÐ 2
16.45 Santa Barbara
17.30 Heimur konunnar Woman's
World. Gamansöm mynd frá sjötta árat-
ugnum sem greinir frá framkvæmda-
stjóra stórfyrirtækis sem boöar þrjá af
starfsmönnum sínum á sinn fund. Til-
efnið er að véita einum þeirra stöðu-
hækun. Þar er úr vöndu að ráða og ekki
bætir úr skák að eiginkonur kandídata
fylgja herrum sínum á fundinn og eru
ekki síður áhugasamar um starfið.
19.00 Myndrokk
19.19 19.19
20.00 Sögur úr Andabæ Tilvalin teikni-
mynd fyrir alla fjölskylduna.
20.30 Falcon Crest Bandariskur fram-
haldsmyndaflokkur
21.25 Bjargvætturinn Vinsæll banda-
rískur spennumyndaflokkur.
22.15 Tfska Það haustar í tískuheiminum
eins og annars staðar.
22.40 Sögur að handan Hryllingur og
spenna sem ómögulegt er að missa af.
23.05 Fingur Fingers Ungur maður á í
miklu sálarstríði vegna ósamræmis er
gætti i uppeldi hans; móöirin er kons-
ertpfanisti en faðirinn glæpamaður.
Með þetta veganesti heldur hann út í
lífið og óhjákvæmilega kemur til upp-
gjörs. Stranglega bönnuð börnum.
00.35 Dagskrárlok.
RÁS 1
FM,92,4/93,5
6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Arnfríður
Guðmundsdóttir flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 I morgunsárið með Ingveldi Ólafs-
dóttur. Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir
kl. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Fréttir á
ensku að loknu fréttayfírliti kl. 7.30. Les-
ið úr forustugreinum dagblaðanna að
loknu fróttayfirliti kl. 8.30. Tilkynningar
laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og 9.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatiminn: „Júlíus Blom
veit sinu viti“ eftir Bo Carpelan Gunnar
Stefánsson les þýðingu sína (7). (Einnig
útvarpað um kvöldið kl. 20.00).
9.20 Morgunleikfimi með Halldóru
Björnsdóttur.
9.30 Landpósturinn — Frá Norðurlandi
Umsjón: Kristján Guðmundur Arngríms-
son.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Geir Kristjánsson og tilvistarstefn-
an Fjallað um smásagnabók Geirs,
„Stofnunina". Umsjón: Oddný Jóns-
dóttir. Lesari: Snæbjörg Sigurgeirsdótt-
ir.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur Umsjón: Bergþóra
Jónsdóttir. (Einnig útvarpaö að loknum
fréttum á miðnætti).
12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar.
12.20 Hádeglsfréttir
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tón-
list.
13.05 í dagsins önn - Norðlensk byggð-
aþróun Umsjón: Ásdís Loftsdóttir. (Frá
Akureyri)
13.35 Miðdegissagan: „Ein á ferð og
með öðrurn" eftir Mörthu Gellhorn Anna
María Þófisdóttir þýddi. Sigrún Björns-
dóttir les (11).
14.00 Fréttir. Tilkynningar.
14.05 Harmoníkuþáttur Umsjón: Sigurð-
ur Alfonsson (Endurtekinn þáttur frá
sunnudagskvöldi)
14.45 íslenskir einsöngvarar og kórar
Guðrún Á. Símonar, Jón Sigurbjörns-
son og Karlakórinn Geysir syngja ís-
lensk lög. (Af hljómböndum)
15.00 Fréttir.
15.03 Bardagar á íslandi - „Og urðu þá
manndrápin" Fjórði þáttur af fimm um
ófrið á Sturlungaöld: Haugsnesfundur.
Umsjón: Jón Gauti Jónsson. Lesarar
með honum: Erna Indriðadóttir og
Haukur Þorsteinsson. (Endurtekinn
þáttur frá mánudagskvöldi).
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið - Litið til allra átta
Bamaútvarpið stendur á öndinni uppi í
Hallgrímkirkjuturni. Umsjón: Sigurlaug
Jónasdóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegl - Haydn og Moz-
art Konsert nr. 4 í G-dúr eftir Joseph
Haydn. Andrea Cappalletti leikur með
Skosku kammersveitinni; James Blair
stjórnar. Sinfónía nr. 36 í C-dúr eftir
Wolfgang Amadeus Mozart. St. Martin
in-the-Fields hljómsveitin leikur; Neville
Mariner stjórnar. (Af hljómdiskum)
18.00 Fréttir.
18.03 Að utan Fréttaþáttur um erlend
málefni. (Einnig útvarpað að loknum
fréttum kl. 22.07).
18.10 Á vettvangi Umsjón: Páll Heiðar
Jónsson og Bjarni Sigtryggsson. (Einn-
ig útvarpað í næturútvarpi kl. 4.40) Tón-
list. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Tilkynningar.
19.32 Kviksjá Umsjón: Ragnheiður Gyöa
Jónsdóttir og Þorgeir Ólafsson.
20.00 Litli barnatíminn: „Júlíus Blom
veit sinu viti“ eftir Bo Carpelan Gunnar
Stefánsson les þýðingu sína (7).
(Endurtekinn frá morgni).
20.15 Frá norrænum tónlistardögum í
Stokkhólmi í fyrrahaust Jónas Tómas-
son kynnir verk eftir Þorkel Sigurbjörns-
son og Johns Persen.
21.00 ÚrbyggðumvestraUmsjón:Finn-
bogi Hermannsson. (Frá ísafirði)
21.40 „Barnið á tröppunum“, 'smásaga
eftir Anton Tsjekov Þórdís Arnljótsdóttir
22.00 Fréttir.
22.07 Að utan Fréttaþáttur um erlend
málefni. (Endurlekinn frá sama degi).
22.15 Veðurfregnir. Orð kvöldsins. Dag-
skrá morgundagsins.
22.30 Hvert stefnir íslenska velferðarr-
íkið? Annar þáttur af fimm um lífskjör á
Islandi. Umsjón: Einar Kristjánsson.
(Einnig útvarpað kl. 15.03 á föstudag).
23.10 Djassþáttur - Jón Múli Árnason.
(Einnig útvarpað í næturútvarpi aðfara-
nótt mánudags kl. 2.05).
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur Umsjón: Bergþóra
Jónsdóttir. (Endurtekinn frá morgni).
01.00 Veðurfregnir.
01.10 Næturútvarp á báöum rásum til
morguns.
RÁS 2
FM 90,1
7.03 Morgunútvarpið: Vaknið til llfsinsl
Leifur Hauksson og Jón Ársæll Þórðar-
son hefja daginn með hlustendum.
Fréttir kl. 8.00, veðurfregnir kl. 8.15 og
leiöarar dagblaöanna kl. 8.30.
9.03 Morgunsyrpa Óskar Páll Sveins-
son. Neytendahorn kl. 10.05. Afmælis-
kveðjur kl. 10.30. Þarfaþing með Jó-
hönnu Harðardóttur kl. 11.03. Gluggað i
heimsblöðin kl. 11.55.
12.00 Fréttayfiriit. Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Umhverfis landið á áttatíu með
Margréti Blöndal.
14.05 Milli mála Magnús Einarsson á út-
kíkki og leikur nýju lögin.
16.03 DagskráDægurmálaútvarp. Stefán
Jón Hafstein, Sigurður Þór Salvarsson,
Lísa Pálsdóttir og Sigurður G. Tómas-
son. - Kaffispjall og innlit upp úr kl.
16.00. -Stórmál dagsins á sjötta tíman-
um.
18.03 íþróttarásln - ísland - Austur-
Þýskaland íþróttafréttamenn lýsa
leik liðanna f undankeppni
Heimsmeistaramótsins í knatt-
spyrnu á Laugardalsvelli.
20.00 Áfram ísland Dægurlög með fs-
lenskum tónlistarmönnum.
20.30 Útvarpungafólksins Viðhljóðne-
mann eru Sigrún Sigurðardóttir og
Oddný Ævarsdóttir.
22.07 Á rólinu með önnu Björk Birgis-
dóttur.
01.00 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
01.00 „Blítt og létt..." Ólafur Þórðarson.
(Elnnlg útvarpað f bftið kl. 6.01) .
02.00 Fréttir.
02.05 Slægur fer gaur með gígju Magn-
ús Þór Jónsson rekur feril trúbadúrsins
rómaða, Bobs Dylans. Fyrsti þáttur af
sex. (Endurtekinn þáttur frá sunnudegi
á Rás 2).
03.00 Næturnótur
04.00 Fréttir.
04.05 Glefsur Úrdægurmálaútvarpi mið-
vikudagsins.
04.30 Veðurfregnir.
04.40 Á vettvangi Umsjón: Páll Heiðar
Jónsson og Bjarni Sigtryggsson.
(Endurtekinn þátturfrá Rás 1 kl. 18.10)
05.00 Fréttir af veðri og flugsamgöngum.
05.01 Áfram ísland Dægurlög með fs-
lenskum flytjendum.
06.00 Fréttlr af veðri og flugsam-
göngum.
06.01 „Blftt og lótt...“ Endurtekinn sjóm-
annaþáttur Olafs Þórðarsonar á nýrri
vakt.
BYLGJAN
FM 98,9
07.00-10.00 Þorgeir Ástvaldsson og
Páll Þorsteinsson með morgunátt full-
an af fróðleik, fréttum og ýmsum gagn-
legum upplýsingum fyrir hlustendur. í
bland við góða morguntónlist.
10.00-14.00 Jón Axel Ólafsson Leikir.
tónlist og ýmislegt létt spreil með hlust-
endum. Jón Axel leikur nýjustu lögin og
kemur kveðjum og óskalögum hlust-
enda til skila. •
14.00-18.00 Gunnlaugur Helgason
Leikur hressa og skemmtilega tónlist
við vinnuna. Gunnlaugur tekur hress
viðtöl viö hlustendur, leikur kveðjur og
óskalög í bland við ýmsan fróðleik.
18.10-19.00 íslenskir tónar Gömul og
góö íslensk lög leikin ókynnt í eina
klukkustund.
19.00-20.00 Freymóður T. Sigurösson
Meiri tóniist - minna mas.
20.00-24.00 Sigurður Helgi Hlöðvers-
son Ný og góð tónlist, kveðjur og
óskalög.
24.00-07.00 Næturstjörnur.
STJARNAN
FM 102,2
07.00-10.00 Þorgeir Ástvaldsson og
Páll Þorsteinsson með morgunþátt
fullan af fróðleik, fréttum og ýmsum
gagnlegum upplýsingum fyrir hlustend-
ur, í bland við góða morguntónlist.
10.00-14.00 Valdis Gunnarsdóttir Val-
dís er með hlutina á hreinu og leikur
góöa blöndu af þægilegri og skemmti-
legri tónlist eins og henni einni er lagið.
14.00-18.00 Bjarni Ólafur Guðmunds-
son Óskalögin, kveðjurnar, nýjustu lög-
in, gömlu góðu lögin - allt á sínum stað.
18.10-19.00 Reykjavik síðdegis/Hvað
finnst þér? Hvað er efst á baugi? Þú
getur tekiö þátt í umræöunni og lagt þitt
til málanna í sima 61 11 11. Steingrím-
ur Ólafsson stýrir umræðunum.
19.00-20.00 Freymóður T. Sigurðsson
Meiri tónlist - minna mas.
20.00-24.00 Sigursteinn Másson. Ný og
góö tónlist, kveðjur og óskalög.
24.00-07.00 Næturdagskrá.
Fréttir á Bylgjunni kl. 08, 10, 12, 14, 16 og
18. Fréttayfirlit kl 09, 11,13,15 og 17.
ÚTVARP RÓT
FM 106,8
09.00 Rótartónar.
12.00 Prógramm. Tónlistarþáttur. E.
14.30 Laust
15.30 Samtök græningja. E.
16.00 Fréttir frá Sovétríkjunum. María
Þorsteinsdóttir.
16.30 Umrót. Tónlist, fréttirog upplýsingar
um félagslíf.
17.00 Arnar Knútsson spilar tónlist.
18.00 Elds er þorf. Umsjón: Vinstrisósial-
istar. Um allt milli himins og jarðar og
það sem efst er á baugi hverju sinni.
19.00 Hlustið. Tónlistarþáttur í umsjá
Kristins Pálssonar.
20.00 Fés. Unglingaþáttur. Umsjón: Júlíus
Schopka.
21.00 I eldri kantinum. Tónlistarþáttur í
umsjá Jóhönnu og Jóns Samúels.
22.00 Magnamfn. Tónlistarþáttur með Ág-
ústi Magnússyni.
23.30 Rótardraugar.
24.00 Rokkað eftlr miðnætti.
Gerðu það, láttu kollhúfuna
koma í dag. Ég lofa að vera
aldrei vondur aftur. Geri hvað
semþú vilt.
Gerðu það, gerðu það, gerðu
það, Guð. Ég bið aldrei um
annan greiða ef óg fæ húfuna
ídag
Hvað þarf
einndrengur
aðþola?!!
inr
m
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvlkudagur 6. september 1989