Þjóðviljinn - 03.10.1989, Page 2
Skoðanakönnun
Halldór á toppnum
Steingrímur Hermannsson ekki lengur vinsælasti stjórnmálamaður
þjóðarinnar. Sjálfstœðisflokkurinn með hreinan meirihluta. Alþýðu-
bandalag og Kvennalisti jafnstórir
Halldór Asgrímsson sjávarút-
vegsráðherra er vinsælasti
stjórnmálamaður þjóðarinnar
um þessar mundir ef marka má
skoðanakönnun sem SKAIS gerði
fyrir Stöð 2 og birt var í gær. Ekki
nóg með að hann skáki flokks-
bróður sínum, Steingrími Her-
mannssyni, úr efsta sæti vin-
sældalistans heldur er hann einn-
ig neðstur á lista yfir þá stjórn-
málamenn sem mest eru
gagnrýndir fyrir siðferðisbresti í
stjórnarháttum.
Það rýrir mjög könnun SKÁÍS
á afstöðu kjósenda til flokkanna
að tæpur helmingur,48,2%, segj-
ast ýmist vera óákveðnir, ekki
ætla að kjósa eða vilja ekki svara.
En þeir sem afstöðu tóku skiptast
þannig að 53,3% ætla að kjósa
Sjálfstæðisflokk, 14,5% Fram-
sókn, 10,9% Kvennalista og Al-
þýðubandalag og 7,1% Alþýðu-
flokk. Aðrir náðu ekki einu prós-
enti.
Það telst til tíðinda að
Steingrímur skuli vera fallinn úr
efsta sæti vinsældalistans en það
hefur hann vermt óralengi. Það
voru 41,8% 'sem nefndu Halldór,
29,4% Steingrím, 25,9% Þor-
stein Pálsson, 13,5% Jón Sig-
urðsson, 13,2% Ólaf Ragnar
Grímsson og 11,6% Davíð Odds-
son. Davíð og Steingrímur eru
þeir einu í efstu sætunum sem fá
færri tilnefningar en síðast þegar
spurt var. Þess má geta að af lista
yfir 11 vinsælustu stjórnmála-
mennina féll einn frá því síðast
var spurt, Friðrik Sophusson, en
Steingrímur J. Sigfússon kom í
hans stað.
Þá eru þátttakendur í könnun-
inni beðnir að tilnefna þá
stjórnmálamenn sem þeir telja
mestrar gagnrýni verða fyrir sið-
ferðisbresti í stjórnarháttum.
Spurt var um helgina og því engin
furða þótt Jón Baldvin Hanni-
balsson beri höfuð og herðar yfir
aðra á þessum lista. 81,4% til-
nefna hann en 41,1% Steingrím
Hermannsson. Næstur kemur
Ólafur Ragnar Grímsson með
22,9% tilnefninga og Stefán
Valgeirsson með 10,9%. Neðstir
á þessum 11 manna lista eru þeir
flokksbræðurnir Halldór Ás-
grfmsson og Jón Helgason.
Það vekur athygli að tveir
menn sem eiga að teljast hættir
að starfa að stjórnmálum eru til-
nefndir á þennan svarta lista. Það
eru þeir Albert Guðmundsson og
Sverrir Hermannsson. -ÞH
Bókaklúbbur Almenna bókafélagsins fagnaði 15 ára afmæli síðast
liðinn föstudag. Við það tækifæri var gestum og gangandi boðið upp á
afmælistertu í andyri bókaverslunar Sigfúsar Eymundssonar og
Lúðrasveit Kópavogs lék nokkur lög í Austurstræti. Þá afhenti Kristján
Jóhannsson, framkvæmdastjóri Almenna bókafélagsins, Guðmundi
Bjarnasyni, heilbrigðisráðherra, bókagjöf klúbbsins til 25 sjúkrastofn-
ana í landinu. En bókaklúbburinn gaf þessum stofnunum allar útgáfu-
bækur klúbbsins síðustu 5 ár. Nokkur skáld lásu upp Ijóð sín á afmæl-
ishátíðinni og sjást tvö þeirra til hægri við heilbrigðisráðherra. Þau eru
Birgitta Jónsdóttir og Sigmundur Ernir Rúnarsson. Mynd: Kristinn
Yfirskoðunarmenn
Þorlákshöfn
Miljón stolið
Brotist var inn í Kaupfélag
Þorlákshafnar í fyrrinótt og stolið
þaðan um einni miljón króna í
peningum sem geymdir voru í
peningaskáp.
Rannsókn málsins er í höndum
Rannsóknarlögreglu ríkisins og
seinnipartinn í gær hafði enginn
verið handtekinn í tengslum við
rannsókn málsins sem miðar eftir
atvikum að sögn lögreglu.
-grh
Ekkert samstarf við Jón Baldvin
Ekki hlutverk yfirskoðunarmanna að setja reglur heldurfara þeir
eingöngu með endurskoðunar- og eftirlitshlutverk
Yfirskoðunarmenn ríkis-
reiknings 1988 telja að þeirra
hlutverk sé ekki að setja reglur
um meðferð risnufjár cða kaup á
áfengi fyrir opinbera aðila né
heldur að setja reglur um kaup
opinberra aðila á áfengi á kostn-
aðarverði. Því getur ekki orðið
um neitt samstarf þeirra og ein-
stakra ráðherra í þeim efnum.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu
sem yfirskoðunarmenn ríkis-
reiknings 1988 sendu frá sér í gær
í framhaldi af bréfi sem Jón Bald-
vin Hannibalsson utanríkisráð-
herra skrifaði þeim í síðustu viku.
Þar fer utanríkisráðherra ma.
fram á ýmsar upplýsingar um
framkvæmd þessara mála á liðn-
um árum og varpar fram spurn-
ingum um hvernig verja megi
risnufé ráðherra. Einnig er óskað
samstarfs við yfirskoðunarmenn
um að móta skýrar reglur um
þessa framkvæmd.
í yfirlýsingu yfirskoðunar-
manna segir að „þeir fari ein-
vörðungu með endurskoðunar-
og eftirlitshlutverk á grundvelli
gildandi laga og reglna á hverjum
tíma...“ „Ábyrgð þeirra er síðan
gagnvart Alþingi en ekki hand-
höfum framkvæmdavalds, sem
eftiriitshlutverk þeirra beinist
þvert á móti að. Þeir munu því
ekki taka upp bréfaskipti við ein-
staka ráðherra um störf sín og
starfshætti.“
-grh
Húsaleiga
Hækkar um 3,5%
Leiga fyrir íbúðarhúsnæði og
atvinnuhúsnæði sem samkvæmt
samningum fylgir vísitölu hús-
næðiskostnaðar eða breytingum
meðallauna hækkar um 3,5% frá
óg með 1. október.
Þessi hækkun reiknast á þá
leigu sem er í september 1989.
Síðan helst leiguverð óbreytt
næstu tvo mánuði það er í nóvem-
ber og desember. -grh
Otroönar
slóðir
Júlíus Sólnes, ráðherra Hagstofu
íslands, hefur skipað starfshóp
vegna undirbúnings að stefnu-
mótun í atvinnumálum, sem miði
að því að auka hagvöxt og tryggja
viðunandi atvinnustig á íslandi.
Starfshópurinn á að kanna nýjar
hugmyndir og nýjar leiðir í at-
vinnumálum Islendinga og fara
ótroðnar slóðir í þeim efnum,
eins og segir í tilkynningu frá
ráðuneytinu. Starfshópurinn
ásamt hagstofuráðherra munu
eiga náið samstarf við atvinnu-
stefnunefnd á vegum forsætisráð-
herra en í henni eiga sæti fulltrúar
stjórnmálaflokkanna og atvinnu-
lífsins.
Blásið í
Norræna
í kvöld klukkan 20.30 heldur
Blásarakvintett Reykjavíkur tón-
leika í Norræna húsinu. Sömu
menn hafa skipað kvintettinn frá
upphafi, þeir Bernharður Wilk-
inson flautuleikari, Daði Kol-
beinsson óbóleikari, Einar Jó-
hannesson klarinettleikari, Jos-
eph Ognibene hornleikari og
Hafsteinn Guðmundsson fagott-
leikari. Á efnisskránni verða
Kvintett op. 43 eftir Carl Nielsen,
Sex Bagatellur og Tíu þættir fyrir
blásarakvintett eftir György
Ligetí og Sextett í F-dúr op. 36
fyrir kvintett og píanó eftir Her-
mann D. Koppel. David Know-
les leikur á píanóið.
Nýtt
rækjuverð
Verðlagsráð sjávarútvegsins hef-
ur ákveðið nýtt rækjuverð fyrir
tímabilið 1. októbertil31. janúar
1989. Verð á ópillaðri rækju í
fyrsta flokki, þar sem 230 eða
færri rækjur eru í kílói, verður 81
kr. fyrir kílóið. Verð á rækju í
öðrum flokki, með 231-290 rækj-
um í kílói verður 73 kr. og í þriðja
flokki verður kflóverð 68 kr., en í
þeim flokki eru 291-350 stykki í
kílói. Fyrir undirmálsrækju, 351
stykki í kílói og fleiri, verða
greiddar 30 krónur.
ítalskir
dagar
ítalskir dagar hafa staðið yfir í
Kringlunni frá sl. fimmtudegi en
þeim lýkur laugardaginn 7. októ-
ber. Kynntar eru ferðir til Ítalíu,
ítalskar vörur og matur og ítalskir
listamenn skemmta gestum og
gangandi. Kringlan er sérstak-
lega skreytt í tilefni ítölsku dag-
anna og margar verslanir hafa
einnig skreytt glugga sína sér-
staklega og kynna ítalskar vörur.
ítalska ferðamannaráðið efndi til
sérstakrar samkeppni um bestu
ítölsku kynninguna og hreppti
Gunnhildur Þórarinsdóttir verð-
launin, ferð fyrir tvo með dvöl á
góðu hóteli í Lignano, fyrir út-
stillingu sína í versluninni Kosta
Boda.
Skyndihjálp
kennd
Reykjavíkurdeild Rauða kross
íslands gengst fyrir námskeiði í
skyndihjálp fyrir almenning sem
hefst á morgun kl 20.00 að Ár-
múla 34. Öllum sem orðnir eru 15
ára er boðið að taka þátt í nám
skeiðinu þar sem m.a. verður
kennd endurlífgun, stöðvun
blæðinga og margt fleira. Reynt
verður að heimfæra hjálpina við
aðstæður í byggð og óbyggðum
og er rjúpnaveiðimönnum bent á
að nú sé tækifæri til að hressa upp
á þekkingu þeirra í skyndihjálp,
þar sem rjúpnaveiðitíminn gangi
senn í garð. Skrifstofa RKÍ á
Öldugötu 4 veitir allar frekari
upplýsingar um námskeiðið.
Nýr
þingflokksformaður
Þingflokkur Kvennalistans hefur
valið sér nýjan formann. Á kom-
andi þingi mun Kristín Einars-
dóttir gegna starfi þingflokksfor-
manns og Málmfríður Sigurðar-
dóttir verður varaformaður. Á
síðasta þingi var Danfríður
Skarphéðinsdóttir formaður
þingflokks Kvennalistans og í til-
kynningu frá Kvennalistanum
segir að skiptin séu liður í vinnu-
reglum Kvennalistans.
Steingrímur J.
í Egyptalandi
Steingrímur J. Sigfússon sam-
gönguráðherra hélt á laugardag í
opinberra heimsókna til Egypta-
lands. Hann mun eiga fund með
egypskum starfsbróður sínum og
ræða við hann um samstarf land-
anna á sviði ferðamála. Við-
skiptmál og tvíhliða samskipti
landanna almennt verða einnig
rædd. Samgönguráðherra hefur í
farteskinu orðsendingu frá ríkis-
stjórn íslands til Hosni Mubar-
aks, forseta Egyptalands. Þar er
þess óskað að heimsókrrin stuðli
að aukinni samvinnu landanna og
látin í ljós sú skoðun, að unnt sé
að treysta enn frekar bönd á milli
íslands og Arabalanda. f yfirlýs-
ingunni er jafnframt lýst yfir
ánægju með friðarumleitanir Eg-
yptalandsforseta til að stuðla að
lausn deilumála og friðsamlegri
sambúð þjóða fyrir botni Mið-
jarðarhafs. í för með samgöngu-
ráðherra er eiginkona hans, Ber-
gný Marvinsdóttir ásamt deildar-
stjóra úr samgönguráðuneyti,
forstjóra Samvinnuferða Land-
sýnar, deildarstjóra frá ferða-
skrifstofunni Útsýn-Úrval,
fyrrum formaður ferðamálaráðs,
fulltrúar Sölusambands íslenskra
fiskframleiðenda og fréttamenn
sj ón varpsstöðvanna.
Fötluðum hjálpað
Menntaskólinn í Kópavogi býður
upp á nám á félagsbraut í vetur
eins og undanfarin ár, í stuðningi
við fötluð ungmenni. Námið felst
í því að nemendur fylgja fötluð-
um ungmennum í félags- og
skemmtanalífi. Þau fötluð ung-
menni sem vilja nýta sér námið
þurfa að hafa samband við Garð-
ar Gíslason menntaskólakennara
á skrifstofu skólans. Þátttakan er
ekki bundin við Kópavog.
Heimaslátrað
hættulegt
Heimaslátrað kjöt getur verið
hættulegt til neyslu, sérstaklega
ef ekki er vitað um uppruna þess,
segir í tilkynningu frá Hollustu-
vernd ríkisins. Þegar uppruni sé
ekki þekktur sé heldur ekkert vit-
að um hreinlætið við slátrunina
eða vitað hvort skepnurnar hafi
verið heilbrigðar. Hollustuvernd
vekur athygli á að breytingar hafi
verið gerðar á heilbrigðisreg-
lugerð í síðasta mánuði. Sam-
kvæmt henni er öll heimaslátrun
bönnuð utan kaupstaða og
kauptúna. Bóndi í strjálbýli má
þó slátra til eigin nota hæfilegu
magni en má hvorki gefa né selja
það kjöt eða dreifa því á annan
hátt. Áður var aðeins bannað að
slátra utan sláturhúsa í þéttbýli.
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 3. október 1989