Þjóðviljinn - 12.10.1989, Qupperneq 15
í DAG
Þjódviljinn
- Frá lesendum -
Síðumúla 6
108 Reykjavík
Hverjir og
hversvegna?
Deilur manna geta stundum
tekið á sig kyndugar myndir. Ný-
lega kom út á vegum mennta-
málaráðuneytisins einskonar
kynningarbæklingur um skáld og
rithöfunda. Um hann hafa vakist
einkennilegar orðræður.
Tveir rithöfundar a.m.k. hafa
lagt þar orð í belg, þeir
Guðmundur Daníelsson og Ind-
riði G. Porsteinsson. Báðum
finnst hlutur sinn lítill í bæklingn-
um og í engu samræmi við verð-
leika. Báðir munu þeir telja sig
„borgaralega” rithöfunda - hvað
sem það nú er - og mun þykja
hlutur þeirra skálda og rit-
höfunda, sem þeir telja til þeirrar
manntegundar, mjög fyrir borð
borinn í bæklingnum. Um það
skal ég ekki deila, einfaldlega af
því að mér er það ekki ljóst hvað
þarna er átt við með orðinu
„borgaralegur”. Hvað þýðir það?
Og hvað nefnast þá hinir, sem
ekki eru taldir eiga heima í þessu
„samfélagi heilagra”? Hvað um
Þórberg Þórðarson, Jóhannes úr
Kötlum, Ólaf Jóhann Sigurðs-
son, Davíð frá Fagraskógi, Stein
Steinarr, Jón Helgason, Þorstein
Valdimarsson, Guðmund
Böðvarsson og Snorra Hjartar-
son, svo að einhverjir séu nefnd-
ir. Mér skilst, að þeirra sé að litlu
getið. Þeir hafa að vísu ekki að-
stöðu til að vera með neina kvein-
stafi en engu að síður hljóta þeir
að eiga sinn bókmenntalega
„rétt” engu síður en þeir Indriði
og Guðmundur. Eru þeir kannski
sniðgengnir vegna þess að þeir
séu svo „borgaralegir”. Og hvar
hefðu þeir verið vistaðir Stephan
G. Stephansson, Einar Bene-
diktsson, Þorsteinn Erlingsson,
Grímur Thomsen, Steingrímur
Thorsteinson og Matthías Joc-
humsson? Teljast þessir menn
allir „borgaraleg” skáld og rit-
höfundar eða bara sumir þeirra
og þá hverjir og hversvegna? Og
hvar þóknast þá þeim Guðmundi
og Indriða að vfsa hinum til sætis?
Nú er það sjálfsagt fyrir fávisku
sakir, að ég spyr slíkra spurninga.
En vilja þá ekki þeir, sem yfir
viskunni búa, vera svo vænir að
bæta úr fáfræði minni og annarra,
sem ekki átta sig á hinum dular-
fullu flokkunarreglum og á
hverju þær byggjast?
-mhg
Stöðvum
Sjálfstæöis-
svalliö
Samfélag er orð sem ég velti
ósjaldan vöngum yfir. Því í þessu
tiltekna orði felst mjög mikið af
hinu góða, svo sem önnur orð:
FRÁ LESENDUM
samvinna, sambýli, samhjálp og
svo mætti lengi halda áfram.
Hugsjónin á bak við þetta orð er
svo sannarlega mikil, en íhalds-
hugsjónin hefur tröllriðið í verki
alþýðu manna. Hér á árum áður
var slagorðið: Stétt með stétt,
hátt á lofti haft í röðum Sjálf-
stæðismanna. Hugsjón sem al-
menningur sá í gegnum, því
verkamaðurinn og öreiginn á
enga samleið með Sjálfstæðis-
manninum, sem safnar að sér
arðinum, og fitnar, meðan kúg-
aður almúgamaðurinn selur
vinnu sína fyrir það eitt að fá að
tóra og halda lífi í hörðum heimi
auðvaldsins, hins ómannúðlega
kapítalisma, þar sem hinir ríku
lifa með flottræfilshætti á kostnað
vinnandi sannkristinna og alúð-
legra alþýðumanna. Sambýli
hinna svokölluðu Sjálfstæðis-
manna og almúgamanna getur
aðeins gengið á einn veg, þar sem
alþýðan er kúguð og mergsogin.
Það er því ægi hart, þegar fals-
laust fólk lætur enn í dag blekkj-
ast af lygum íhaldsins, sem eru á
þá leið að ísland skuli vera sjálf-
stætt, að allir menn skuli vera
fjálsir, að hvergi sé til frelsi nema
á Vesturlöndum, þar sem íhaldið
fer með stjórn mála. Stétt með
stétt. Heyr á endemi! Því er nú
ver, að íhaldið kann ekki að
skammast sín nema á einn hátt,
að verða að taka niður fyrir sig,
sem það í fæstum tilfellum gerir,
eða'þá þegar það missir völdin.
Því segi ég og rita, að Sjálfstæðis-
menn mega hreinlega ekki koma
vinstristjórninni frá. Það er nógu
hart á dalnum hjá hinum lægst-
launuðu, og þeir mega ekki blek-
kja lengur með slagorðinu: Stétt
með stétt.
Nú er í gangi hjá Sjálfstæðis-
flokknum mikið átak til fjár-
öflunar, þar sem fólk er hvatt til
þess að gerast styrktarmeðlimir
flokksins. Og hvaða peninga
skyldi vera ráðskast með, aðra en
ágóðann af vinnu láglauna-
mannsins, sem eru í raun hans
peningar.
Alþýðubarn, hvar sem þú
stendur í lífsbaráttunni í Síberíu
auðvaldsherranna! Hvort sem þú
vinnur í fiskverkun, gatnavið-
gerðum, mígur í saltan sjó við
öflun verðmæta á hafi úti, eða
keyrir strætisvagn í Reykjavíkur-
borg; virkjum það afl sem við
eigum með því að safnast saman í
virka mótstöðu um allt land.
Verkalýðsforingjar, formenn
Alþýðubandalagsins, allir þið
sem aðstöðu hafið, björgum
þjóðinni frá hættu hægrimanna,
stöðvum Sjálfstæðissvallið með
því að virkja afl alþýðunnar til
aðgerða gegn fyrirsjáanlegri
bráðapest sem ógnar alþýðu Is-
lands. Nú verða menn í alvöru að
þora að draga rauða fána á loft
við hvert byggt ból í okkar ást-
kæra landi.
Einar Ingvi Magnússon
Skáís ekki
hlutdrægt
Athugasemd frá
SKÁÍS
í leiðara Alþýðublaðsins í dag,
laugardag 7. október, er rætt um
skoðanakönnun þá sem Skáís
gerði fyrir Stöð 2 dagana 29. og
30. september sl. Af því tilefni
óskar fyrirtækið eftir að koma á
framfæri eftirfarandi athuga-
semd:
Skáís hefur gert langtíma-
samning við Stöð 2 um reglu-
bundnar skoðanakannanir.
Tímasetning einstakra kannana
er ákveðin með Iöngum fyrir-
vara. Tímasetning umræddrar
könnunar var ákveðin í júlí sl.
þegar samningur Skáís og Stöðv-
ar 2 var endurnýjaður.
í umræddum samningi er gert
ráð fyrir tveim aðalspumingum,
þ.e. um fylgi stjómmála-
flokkanna og um stöðu ríkis-
stjórnarinnar. Auk þess em hinir
spurðu beðnir að nefna 1 til 3
stjórnmálamenn, sem þeir bera
mikið traust til. Stöð 2 ákveður
síðan í samráði við Skáís þrjár
aukaspurningar.
í umræddum leiðara Alþýðu-
blaðsins er vikið sérstaklega að
einni aukaspurningunni, sem
þannig var orðuð:
Getur þú nefnt 1 til 3 stjórn-
málamenn sem þú telur að hafi
sýnt alvarlega siðferðisbresti í
stjórnarháttum?
Fyrirtækið vísar algerlega á
bug aðdróttunum blaðsins um
hlutdrægni og þess efnis að um-
rædd spurning sé leiðandi. Rétt
er að undirstrika, að niðurstöður
í umræddri könnun er enginn
endanlegur lífstíðardómur yfir
siðferði umræddra stjórnmála-
manna. Hins vegar mælir hún
viðhorf og viðbrögð almennings á
þeim tíma sem hún er gerð og við
þær aðstæður sem þá eru í þjóð-
félaginu. í þessu tilviki var hún
gerð í kjölfar snarprar umræðu
um áfengiskaup utanríkisráherra
fyrir ritstjóra Alþýðublaðsins.
Enginn ætti að vera í vafa um að
þessar umræður höfðu veruleg
áhrif á niðurstöðurnar og ber því
að skoða þær með hliðsjón af því.
í leiðara Alþýðublaðsins er
hins vegar þagað yfir annarri
spurningu sem skiptir miklu máli
í þessu samhengi. Sú spurning var
orðuð þannig:
Telur þú að Jón Baldvin hefði
átt að segja afsér eftir að hann
endurgreiddi áfengið sem fór í
veislu Ingólfs Margeirssonar og
viðurkenndi opinberlega að
hafa sýnt dómgreindarskort
eða var þetta fullnægjandi frá
hans hendi?
Alls tóku 86,7% afstöðu til
þessarar spumingar og er það
mjög hátt hlutfall. Af þeim sögðu
53,5% að viðbrögð JónsBaldvins
hefðu verið fullnægjandi og að
hann ætti ekki að segja af sér. Til
samanburðar má geta þess að
einungis 39,6% þeirra sem tóku
þátt í þessari skoðanakönnun
vildu tilgreina stjórnmálamenn
sem þeir töldu að hefðu sýnt
alvarlega siðferðisbresti í
stjórnarháttum.
ekki meir...
Ekki meir,
ekki meir...
Örstuttar vangaveltur eftir
lestur annars ágætrar greinar
blaðamannsins hmp. um lands-
fund Sjálfstæðisflokksins og
valdabaráttu innan hans. Fyrir-
sögnin vakti forvitni mína - og
það eiga fyrirsagnir að gera.
„Fyrirtíðaverkir íhaldsdöm-
unnar”. Ég las greinina af athygli
en fann ekkert sem tengdi inni-
haldið og fyrirsögnina saman.
Kannski vegna þess að reynsla
mín af fyrirtíðaverkjum er eíckert
skyld þeim kvölum Sjálfstæðis-
karla sem greinarhöfundur er að
lýsa. Mér datt í hug hvort hmp.
væri e.t.v. að sækja samlíkingar
til ástands sem karlar þekkja ein-
ir en konur ekki nema af afspum,
þ.e. standpínu. Ef svo er þá er
rétt að það komi fram í fyrirsögn
og þannig verði samhengi á milli
hennar og innihalds ljóst.
En það er kannski ekki við-
eigandi að nota slík orð né heldur
samlíkingar sem hægt er að rekja
tii „einka”-reynsluheims karla?
Sér í lagi ekki ef formerkin eru
niðrandi eða gagnrýnin.
í alvöru talað, fyrirsagnir sem
þessar eiga ekki að sjást á síðum
Þjóðviljans. Ég þarf ekki að færa
nein rök fyrir því né eyða mörg-
um orðum í vangaveltur um þá
hugmyndafræði sem liggur að
baki orðnotkunar eins og þessar-
ar. Bið bara um að þetta gerist
ekki aftur.
Stefanía Traustadóttir
ÞlOÐVILIINN 12. október fimmtudagur. 285. dagur ársins. Viðburöir 1. dagur26. viku sumars. Sólar- Þióðhátíðardaour Soánar Páll upprás f Reykíavík kL 8 08 ‘ Isólfs^on tónskáld^æddtir 1893. sólarlagkl. 18.19. Kötlugos1918. Þjóðviljinn fyrir 50 árum Dagsbrún heldurfund annað kvöld kl. 8.30. Verkamenn sam- einist í baráttunni fyrir atvinnu og rétti. Skila Bretarflugvélinni er straukfrá Raufarhöfn?
DAGBÓK
• QVSkfc |f Vestmannaeyjum: alla virka daga 15- Arw 1 EIV 16 og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness: Reykjavík. Helgar- og kvöldvarsla lyfj- alla daga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra- abúða vikuna - húslð Húsavík: alla daga 15-16 og 29. sept.-5. okt. er í Holts Apóteki og J 9.30-20. Laugavegs Apóteki. Fyrrnefnda apótekið eropið um helgar YMISLE6T og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til * "* IwLíw 1 10 frídaga). Siðarnefnda apótekið er . opið á kvöldin 18-22 virka daga og á HJálparstöð RKI.Neyðarathvarf fynr ung- 5sar“fsi"'r62226s'»ií netnda. Sálfræðistöðin. Ráðgjöf í sálfræðilegum efnum.Sími 687075. MS-félaglðÁlandi13.0piðvitkadagafrá LOGGAN kl. 8-17. Slminner 688620. Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum vestur- Reykjavik sfmi f/11 66 götu3.Opiðþriðjudagakl.20-22, Kópavogur sfmi 4 12 00 fimmtudaga13.30-15.30ogkl.20-22, Qö|tj „pc Qímj , o. « sími21500,símsvari. Hafinrfi Qlmi c n AK SJálfshjólparhópar þeirra sem orðið hafa 2a,"aí s m! 5 11 66 fyrir sifjaspellum, s. 21500, sfmsvari. Garðabær ...sfmi 5 11 66 Upplýsingarumeyðni.Sími622280, Slökkvilíð og sjúkrabílar: beintsamband viðlækni/hjúkrunarfræðing Reykjavík sími 1 11 00 ámiðvikudögumkl. 18—19, annarssím- Kópavogur sími 1 11 00 svari. Seltj.nes sími 1 11 00 Samtökumkvennaathvarf.sími 21205. Hafnarfj cimi c 11 nn Húsaskióloqaðstoðfyrirkonursembeittar Garðabær. . sími 5 11 00 hafaveriðofbeldieðaorðiðfyrirnauðgun. Samtökin ’78. Svarað er f upplýsinga- og ráðgjafarsíma félags lesbía og homma á 1 . _ mánudags-ogfimmtudagskvöldumkl.21- LÆ KNAR 23. Simsvari á öðrum tímum. Sfminn er 91-28539. LæknavaktfyrlrReykjavfk, Sel- Bilanavakt rafmagns-oghitaveitu:s. tjarnarnes og Kópavog er í Heilsu- 27311. Rafmagnsveita bilanavakt s. verndarstöð Reykjavfkur alla virka daga 686230. frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi- Vinnuhópur um sif jaspellamál. Sími dögum allan sólarhringinn. Vitj- 21260 alla virka daga kl. 1-5. anabeiðnir, símaráðleggingar og tima- Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga- pantanir í síma 21230. Upplýsingar um nema’®r V ?!tt' s,lm?11 ?1 ?.T'mk 19'3° lækna r^lyflaþjónustu eru gefnar í sím- ^“^Zbtameh.ssjúkiinga svara 18888. Skógarhlíð8 er„Opiðhús“fyrirallakrabb- Borgarspitalinn: Vaktvirka daga kl. 8- ameinssjúklingaog aðstandendur þeirraá 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis- fimmtudögumkl. 17.00-19.00. lækni eða ná okkitil hans. Landspft- samtök áhugafólk8 um a|nœmi8vand- alinn. Gongudeildin er opin 20-21. ann sem vjya styöja við smitaða og sjúka Slysadeild Borgarspftalans: opin allan og aöstandendur þeirra. Hringið f síma91- sólahringinn sími 696600. 22400 alla virka daga. Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan sími 53722. Næturvakt lækna sími 51100. Garðabær: Heilsugæslan Garöaflöt s. 656066, upplýsingar um vaktlækna s. 51100. Akureyri: Dagvakt 8-17 á Læknamið- stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s. 22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445. Farsfmi vaktlæknis 985-23221. Kef lavfk: Dagvakt. Upplýsingar s. 3360. Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s. GENGIÐ i , , 9. okt. SJUKRAHUS 1989 kl. 9.15. Sflls Heimsóknartímar: Landspftallnn: alla Bandaríkjadollar 61,68000 daga 15-16,19-20. Borgarspítallnn: Sterlingspund 97,73200 virkadaga 18.30-19.30, helgar15-T8, Kanadadollar 52,48200 ogeftirsamkomulagi.Fæðlngardelld Dönskkróna 8,39180 Landspítalans: 15-16. Feðratími 19.30- Norsk króna 8,84050 20.30. Öldrunarlæknlngadelld Land- Sænskkróna 9,52730 spftalansHátúnilOB.AIIadaga 14-20 Finnsktmark 14,33090 og eftirsamkomulagi. Grensásdelld Franskurfrank, 9,63600 Svissn.franki 37’,48750 14-19.30. Hellsuverndarstöðinvið Holl. gyllini 28,93740 Barónsst,gop,nalladaga15-16og V -þýskt mark 32.68940 18.30-19.30. Landakotsspftalhalla Itölsklfra 0,04468 daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild: Austurr.sch 4,64370 heimsóknirannarraenforeldrakl. 16-17 Portúg. escudo 0,38560 daglega. St. Jósefsspftall Hafnarfirði: Spánskur peseti 0,51600 alladaga15-16og19-19.30.Klepps- Japansktyen 0,43274 spftalinn:alladaga 15-16og 18.30-19. (rsktpund 87,03000
KROSSGÁTA
Lárett: 1 sögn 4 harm-
ur 6 fjör 7 grind 9 hóta
12fálmar14mánuður
15brún 16vöðvi 19
aula20 náttúra21 skar
Lóðrótt:2vitiausi3
ugg 4 fugl 5 þjófnaður 7
bisa 8 vitur 10 aðstoð
11 hrellir13tæki17
hvildi 18skref
Lausn á síðustu
krossgátu
Lárótt: 1 blót4sefi7
skap9ösla12naumt
14odd 15yls 16læður
19 teig 20 rjóö 21 titta
Lóðrótt: 2 lök 3 tæpa 4
stöm5fól7skorta8
andlit10styrja11ans-
aði 13urð 17ægi 18urt
Fimmtudagur 12. október 1989 þJÓÐVILJINN - SÍÐA 15