Þjóðviljinn - 25.11.1989, Side 10

Þjóðviljinn - 25.11.1989, Side 10
LANPSFUNPURINN Ályktanir landsfundar Kjaramál og menningarmál Slæm mistök áttu sér stað þegar ályktanir landsfundar Al- þýðubandalagsins birtust í Þjóð- viljanum sl. fimmtudag. Höfðu dálkar stokkast í umbroti blaðs- ins. Biðst Þjóðviljinn velvirðing- ar á því og birtast hér aftur álykt- anir fundarins í kjara- og menn- ingarmálum. Ályktun um kjaramál Á undanförnum misserum hef- ur launafólk mátt þola samfellt kaupmáttarhrap. Þetta hefur komið sér illa fyrir allt launafólk og orðið til að auka á ójöfnuð í þjóðfélaginu. Alþýðubandalagið ítrekar þá stefnu sína að dagvinnutekjur dugi til að framfleyta fjölskyldu. Flokkurinn telur að þetta geti gerst með minni launamun og hækkun tímakaups samfara styttri vinnutíma og aukinni framleiðni. Jafnlaunastefna er stefna Alþýðubandalagsins. Fylgja þarf eftir þeirri hugsun sem fólst í samningum BSRB, en þar var áhersla á að hækka lægstu taxtana sett í öndvegi. Sérstakt átak þarf að gera í málum hinna lægstlaunuðu og til að jafna þann mun sem er á launum karla og kvenna. Fundurinn ítrekar kröfu Alþýðubandalagsins að sömu laun séu greidd fyrir sömu vinnu og ríkið gangi þar á undan með góðu fordæmi. Alþýðubandalagið telur brýnt að bæta og tryggja starfskjör launafólks. Flokkurinn mun beita sér á yfirstandandi Alþingi fyrir breytingum á lögum nr. 19 frá 1979 svo að atvinnurekendum verði ekki heimilt að senda fólk heim og fella það af launaskrá með tilvísun til hráefnisskorts, sem oft er tilkominn vegna á- kvörðunar atvinnurekenda um að láta skip sín sigla. Reynsla undangenginna ára sýnir að kaupmáttur verður ekki varinn nema að laun séu vísitölu- tryggð. Alþýðubandalagið telur mikil- vægt að efla almannatryggingak- ernð þannig að afkoma peirra sé tryggð sem þess þurfa að njóta. Alþýðubandalagið telur mikil- vægt að halda niðri verðlagi á brýnustu lífsnauðsynjum og leggur til að í áföngum verði dregið verulega úr skattlagningu á matvælum. Raunvextir á útlánum verði ekki hærri en í viðskiptalöndum okkar og verði beitt bindingará- kvæðum í bankalögum til að tryggja að árangur náist. Húsnæðismál eru eitt brýnasta hagsmunamál launamanna. Al- þýðubandalagið styður eindregið eflingu félagslega íbúðakerfisins, m.a. með auknu fjármagni og samræmingu eða samruna þeirra kerfa sem nú eru til staðar. Al- þýðubandalagið leggst gegn hækkun vaxta í almenna húsnæð- islánakerfinu. Flokkurinn krefst þess að þannig verði að greiðslu vaxtabóta í húsbréfakerfinu stað- ið að kostnaður almenns launa- fólks við að afla sér húsnæðis hækki ekki. Alþýðubandalagið bendir á að skattaícerfið á að gegna mikil- vægu hlutverki til tekjujöfnunar. í því sambandi styður flokkurinn að sett verði á hátekjuþrep og að fjármagnstekjur verði skatt- lagðar. Jafnframt bendir flokkur- inn á að til þess að mögulegt sé að nota skattakerfið til tekjujöfnun- ar verður að stórbæta skattaeftir- lit. Alþýðubandalagið telur að stjórnvöld og samtök launafólks þurfi að herða róðurinn gegn vax- andi atvinnuleysi. Stöðvun fyrir- tækja í einstökum byggðarlögum og atvinnugreinum er ekki eini þáttur þessa vanda, heldur hefur samdráttur í verslun, þjónustu og ýmissi framleiðslu valdið at- vinnuleysi sem bitnar harðast á eldra fólki á vinnumarkaði. Við þessu þarf að bregðast með marg- háttuðum aðgerðum: koma í veg fyrir stöðvun atvinnugreina sem eiga framtíð fyrir sér; aðstoða fólk til sjálfshjálpar, þ.e. að skapa sjálft ný atvinnutækifæri; auka atvinnuleysisbætur, efla at- vinnuleysissjóði o.fl. o.fl. Auðvelda þarf fólki í samdráttar- greinum að skipta um starf, t.d. þannig að það geti stundað starfs- nám í nýrri grein á launum eða bótum. Þá er brýnt að hefja rannsóknir á eðli atvinnuleysis og umfangi, og beinist þær meðal annars að því hverjir helst verða fyrir barð- inu á atvinnuleysi, hvaða félags- legar afleiðingar það hefur, og hvaða þróunar sé að vænta á næstu misserum. Sérstök ástæða er til að stjórnvöld og samtök launafólks vinni saman að því að samdráttur í atvinnu leiði til minnkandi yfirvinnu fremur en atvinnuleysis. Samfélagsþróunin hnígur í þá átt að heildarmagn vinnu minnki, - og mestu varðar að tryggja réttlátari dreifingu þeirrar vinnu. Alþýðubandalagið fagnar áformum um að spara útgjöld vegna einkareksturs sérfræðinga og lyfjanotkunar og telur brýnt að lækka smásöluálagningu á Iyf - og að efla heilsugæslustöðvar og göngudeildir sjúkrahúsa. Alþýðubandalagið leggur áherslu á að framlög til mennta-, heilbrigðis- og félagsmála rýrni ekki og beinist jafnan að því að leysa brýn verkefni sem auka jöfnuð í þjóðfélaginu. Jafnframt verði komið í veg fyrir að há- launahópar geti skarað eld að sinni köku í skjóli úrelts skipu- lags. Alþýðubandalagið leggur áherslu á að réttur Iaunafólks til starfsmenntunar og almennrar menntunar er hluti lífskjara. Landsfundurinn hvetur því til þess, að á yfirstandandi þingi verði sett lög, sem treystir rétt- indi fólks í þessu sambandi og efl- ir markvissa og fjölbreytta full- orðinsfræðslu. Alþýðubandalagið mótmælir öllum hugmyndum um að tak- marka samnings- og verkfallsrétt launafólks. Flokkurinn telur brýnt að sett- ar verði skorður við því að fólk sem ekkert hefur að selja annað en vinnuafl sitt sé gert að undir- verktökum og þannig svipt rétt- indum launafólks. Mikilvægt er að fólki sem starf- ar að verkalýðsmálum sé skapað- ur grundvöllur innan flokksins. í því skyni er mikilvægt að efla starfsemi verkalýðsmálaráðs og setja því fastari skorður. Samningsréttur laun- þegahreyfingarinnar Landsfundur Alþýðubanda- lagsins 1989 væntir þess, að ráð- herrar flokksins muni á vetri þessum a.m.k. beita áhrifum sín- um til þess að lög verði ekki sett til að skerða samningsrétt launþegahreyfingarinnar. Menningarmál I Landsfundur Alþýðubanda- lagsins lýsir yfir áhyggjum vegna síaukins framboðs á afþreyingar- efni fyrir börn þar sem frum- samdar bækur og annað vandað menningarefni skipar æ minni sess. Menningarleg stéttaskipting fer vaxandi í íslensku samfélagi og því verða skólakerfi og ríkis- fjölmiðlar að bregðast við þessari óheillaþróun nú þegar. Því fagn- ar Landsfundur AB áformum menntamálaráðuneytisins um að efla þátt lista og menningarstarfs í lífi, starfi og námi yngstu kyn- slóðarinnar og hvetur til þess að markvisst verði unnið að því á öllum stigum forskóla og grunn- skóla og við menntun uppeldis- stétta. Landsfundur AB lýsir yfir áhyggjum vegna hnignandi mál- þroska íslenskra barna og hvetur til þess að móðurmálskennsla skipi öndvegi hvarvetna í skóla- kerfinu. Landsfundur AB fagnar málræktarátakinu sem mennta- málaráðuneytið hefur gengist fyrir á þessu ári og hvetur til þess að því verði fylgt eftir með stór- aukinni móðurmálskennslu. II Landsfundur AB skorar á ráð- herra og þingmenn flokksins að sýna byggðastefnu í verki og rjúfa þá einangrun í menningarmálum sem íbúar landsbyggðarinnar hafa mátt búa við. Þeir sem búa á suðvesturhorni landsins njóta þeirra forréttinda að hafa greiðan aðgang að menningarlífi sem að verulegu leyti er kostað af al- mannafé, t.d. Þjóðleikhúsi, Sin- fóníuhljómsveit, Öperu og söfn- um. Úti á landi er sambærileg starfsemi, ef einhver þrífst, kost- uð af sveitarfélögum eða einfald- lega borin uppi af einskærum áhuga og fórnfósu starfi. Við verðum að vinna bug á þeirri menningarlegu stéttar- skiptingu sem er við lýði. Liður í þeirri baráttu eru m.a. svokallað- ar M-hátíðir sem gera hvort- tveggja í senn að efla menningarl- íf í heimabyggðum og flytja list um landið. Landsfóndur AB hvetur til þess að framhald verði á þessu starfi og öðru sambæri- legu. Menningarstarf úti á landi á hvarvetna í vök að verjast og ríkisvaldið verður að styðja við bakið á því með stórauknum fjárframlögum. Eina atvinnu- leikhúsið á landsbyggðinni Leikfélag Akureyrar, mun hætta starfsemi á vori komanda eftir sextán ára samfellt starf sem atvinnuleikhús ef ekki kemur til aukið framlag frá hinu opinbera. Landsfóndur AB hvetur til að fjárveitingavaldið sjái til þess að því verði afstýrt. ra Á þeim tímum þegar umræður um sameinaða Evrópu standa sem hæst er mikilvægt að standa vörð um menningu smáþjóða og taka jafnframt þátt í alþjóðlegu samstarfi á sviði menningarmála af fóllri reisn. Nú þegar er farið að brydda á miðstýringu á fræðslu og menningarmálum innan Evrópubandalagsins, sem við hljótum að bregðast við. Landsfundur AB fagnar því átaki sem nú er fyrirhugað á veg- um menntamálaráðuneytisins til að kynna íslenska menningu og list erlendis Jafnframt hvetur fóndurinn til þess að mennta- málaráðuneytið hafi frumkvæði að stofnun kynningar- og útflutn- ingsmiðstöðvar fyrir íslenska list, sem stuðh að útgáfó íslenskra bókmennta á erlendum tungum og skipuleggi íslenska Ustvið- burði erlendis. Mikilvægt í því sambandi er að slíkt starf sé jafn- an unnið í náinni samvinnu við listamenn og samtök þeirra. IV Landsfóndur Alþýðubanda- lagsins ítrekar þá afstöðu flokks- ins að standa beri vörð um ís- lenska tungu og menningu. Þá skorar hann á forystu flokksins að nota það tækifæri sem nú býðst við fyrirhugaða skattkerfisbreytingu þannig að virðisaukaskattur leggist ekki á íslenskt prentmál, hvorki á fram- leiðslustigi né við sölu. Við slíka ákvörðun lækkaði verð íslenskra bóka og staða þeirra í samkeppni við erlendan menningariðnað styrktist. Um leið fylgdu íslendingar góðu for- dæmi flestra Evrópuþjóða í bar- áttu fyrir viðgangi þjóðlegrar menningar. ALÞYÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið í Hafnarfirði Fundur 1. des. Föstudaginn 1. des. hittast Alþýðubandalagsmenn í Hafnarfirði kl. 8 í Gaflinum til skrafs og ráðagerða. Stjórn ABH Alþýðubandalagið á Akranesi Bæjarmálaráðsfundur Fundur verður haldinn í bæjarmálaráði Alþýðubandalagsins á Akranesi í Rein mánudaginn 27. nóvember kl. 20,30. Dagskrá: 1. Á að gera SR að hlutafélagi? 2. Dagskrá bæjarstjórnarfundar. 3. Önnur mál. Á fundinn mæta Inga Harðardóttir fulltrúi AB í stjórn SR og Skúli Alexandersson alþingismaður. Stjórnin. Alþýðubandalagið Kópavogi Aðalfundur bæjarmálaráðs Aðalfundur bæjarmálaráðs Kópavogs verður haldinn mánudag- inn 27. nóvember n.k. í Þinghól, Hamraborg 11 og hefst kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Kynning á frumvarpi til laga um félagslega þjónustu sveitarfé- laga. Framsögumaður Bragi Guðbrandsson, félagsmálastjóri Kópa- 3. Örwfúr mál.______________________________StÍó™ln Alþýðubandalagið á ísafirði Aðalfundur Aðalfundur Alþýðubandalagsins á isafirði verður haldinn á Hót- el (safirði sunnudaginn 26. nóvember klukkan 16. Gestur fundar- ins verður Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Fréttir af landsfundi. 3. Önnur mái. Allt Alþýðubandalagsfólk og stuðningsmenn eru hvattir til að mæta. Nýir félagar eru sórstaklega boðnir velkomnir. cr> ™ ^ / Ol- UJ r- HRINGUR J0HANNESS0N • CN| • T- © •Zm OJ C -; ™ MÁLVERKASÝN I NG 3« —i • * Sýning í Listasafni ASÍ 25. nóvember —) > ° til 10. desember 1989 cd >• r —, iJ irí O' rívj Opið virka daga kl. 16.00 - 20.00 og kl. 14.00 - 20.00 um helgar I0ro( LISTASAFN ASI Idld Grensásvegur 16, Reykjavík

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.