Þjóðviljinn - 30.11.1989, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 30. nóvember 1989 205. tölublað 54. örgangur
Vantraust á ríkisstjómina
Stjórnarandstaðan segir ríkisstjórnina ófœra um stjórn landsins vegna sundurlyndis varðandi virðisauka
og stefnuleysis í EB ogEFTA málum. Forsœtisráðherrafagnarvantrauststillögunni og fjármálaráðherra
segir tímasetninguna skrýtna
Stjórnarandstaðan bar í gær
upp vantrauststillögu á ruds-
stjórn Steingríms Hermanns-
sonar og fer fram á að þing verði
rofíð og efnt til kosninga svo fljótt
sem auðið er. Atkvæðagreiðsla
fer fram um vantraustið á Alþingi
í kvöld og er það í samræmi við
óskir forsætisráðherra, Stein-
gríms Hermannssonar, sem sagð-
ist fagna tillögunni og vilja at-
kvæðagreiðslu um hana sem
Fáskrúðsfjörður
Dyntótt
og stygg
Demantssíld í firðinum
Ingvi Rafn og áhöfn hans á
Guðmundi Kristni frá Fáskrúðs-
firði kláruðu sfldarkvótann í
fyrradag þegar þeir fengu 140
tonn af svokallaðri demantssfld í
fírðinum og hafa þeir þá veitt
2.220 tonn af sfld á þessari vertíð.
Að sögn Ingva Rafns hefur
lítið verið af svona stórri og búst-
inni sfld á miðunum til þessa.
Hann sagði ógerlegt að segja
nokkuð til um það hvort hún væri
núna loksins farin að gefa sig inni
á fjörðunum fyrir austan. „Hún
er illveiðanleg, dyntótt og stygg
og þessvegna ánægjulegt að enda
vertíðina með því að hitta á hana
svona í lokin,“ sagði Ingvi Rafn.
-grh
Virðisaukaskattur
Málamiðlun
í loftinu
Þetta mál er enn til meðferðar
hjá ríkisstjórninni, við höfum
ekki haft tíma til að setjast sam-
eiginlega yfír málinu en ætlum að
ijúka þessu á föstudaginn, sagði
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra þegar hann var
spurður hvort niðurstaða hefði
náðst í deilum innan stjórnarinn-
ar um upptöku virðisaukaskatts.
Ráðherramir ræddust við sím-
leiðis á þriðjudagskvöld, að sögn
Steingríms. Hann vildi ekkert
fullyrða um hvort virðisauka-
lögin tækju gildi um áramótin,
það væri einn kostur og ekki sá
versti. En ef lögin tækju gildi án
þeirra breytingatillagna sem nú
lægju fyrir þinginu, yrði ríkis-
sjóður fyrir verulegu tekjutapi.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans er málamiðlun þegar
fundin og aðeins eftir að setjast
niður og finna rétta orðalagið.
Málamiðlunin mun felast í því, að
virðisaukaskatturinn taki gildi
eins og uppmnalegt samkomulag
stjómarflokkanna gerði ráð fyrir,
en tveggja þrepa virðisauka-
skattur verði settur í vandlega at-
hugun. -hmp
fyrst. Þorsteinn Pálsson formað-
ur, Sjálfstæðisflokksins og fyrsti
flutningsmaður vantraustsins,
benti á að margir stjórnarþing-
menn hefðu lýst yfír óánægju með
stjórnarstefnuna og nú væri tæki-
færi fyrir þá til að standa við orð
sín.
Þorsteinn sagði í samtali við
Þjóðviljann, að sumir stjómar-
þingmenn hefðu sett fram kröfu
um nýja efnhagsstefnu, aðrir sett
stóra fyrirvara varðandi forsend-
ur fjárlagaframvarps og lýst and-
stöðu við grandvallarskatta-
stefnu ríkisstjómarinnar. Nú
reyndi á hvort þessir þingmenn
væra aðeins með hræsnisfullan
tvískinnung gagnvart kjósend-
um, eða meintu eitthvað með því
sem þeir segðu. Vantraustið væri
borið upp nú vegna þess að mál
væru komin í mikið óefni og
önnur eins staða hefði varla kom-
ið upp gagnvart nokkurri ríkis-
stjórn. Hún hefði misst tök á
öllum málum, gæti ekki komið
virðisaukaskatti til framkvæmda
sem samþykktur hefði verið á Al-
þingi og komið hefði í ljós að
henni væri ekki treystandi til að
gæta mikilvægustu hagsmuna ís-
lendinga í stærstu alþjóðlegum
samningum sem ísland hefði
tekið þátt í. Efnahagsstefna ríkis-
stjórnarinnar hefði einnig leitt til
kaupmáttarhruns langt umfram
rýmun þjóðartekna.
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra sagði þá röksemd-
arfærslu að efnhagsstefna ríkis-
stjórnarinnar væri ónýt, mjög
skrýtna. Tímasetningin væri
einnig skrýtin þar sem núna fyrst
væri árangur efnahagsaðgerða
stjórnarinnar að koma í ljós. í
fyrsta sinn í tvö ár væra útflutn-
ingsatvinnuvegimir reknir með
jákvæðum hætti. Ríkisstjóminni
hefði tekist að snúa við hrani at-
vinnulífsins og koma í veg fyrir
stöðvun þess, eins og blasað hefði
við eftir ríkisstjóm Þorsteins
Pálssonar. Þetta væri viðurkennt
af öllum forsvarsmönnum sjávar-
útvegs og fiskvinnslu.
Fjármálaráðherra sagði vöra-
skiptajöfnuð nú jákvæðan í fyrsta
skipti síðan 1986, meira væri flutt
út en inn. En vöraskiptajöfnuð-
urinn hefði verið í graut í tíð Þor-
steins þegar meira var flutt inn er
út. „Þá hefur tekist að skap;
jafnvægi á peningamarkaði
þannig að lausafjárstaða bank;
er betri en í langan tíma,“ sagð
Ólafur. Nýjustu skýrslur Seðla
bankans sýndu mikla raunvaxta
breytingu þótt enn þyrfti ac
fylgja þeim málum eftir. Tekisi
hefði að eyða þeirri þenslu serr
ríkti og var að sporðreisa landið.
Ráðherrann sagði stefnu stjóm-
arinnar skila nýju efnhagslegu
jafnvægi eftir stórslys Sjálfstæðis-
flokksins. Tímasetning van-
traustsins hefði því varla getað
verið óheppilegri fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn og Kvennalistann.
Formaður þingflokks Kvenna-
listans, Danfríður Skarphéðins-
dóttir, sagði Kvennalistann
standa að vantrausti vegna þess
að allt væri í upplausn og óeirð
innan ríkisstjómarinnar. Ekki
væri hægt að sjá að stjómin gæti
haldið vel á nokkram málum.
Nefndi Danfríður viðræðumar
við EB, virðisaukaskattinn og
framvarp til aðstoðar loðdýra-
rækt, sem einn stjómarflokkanna
hefði sett sig upp á móti en hinir
samþykkt.
Vantraust á ríkisstjóm er borið
upp í sameinuðu þingi þar sem
ríkisstjómin hefur öraggan
meirihluta, eða 37 þingmenn af
63.
-hmp
Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins leggur á ráðin með Eyjólfi
Konráð Jónssyni og Ólafi G. Einarssyni. Mynd: Kristinn.
Loðna
Lýst eftir kynþroska loonu
Ámi Friðriksson: Lítið af kynþroska loðnu fyrir norðan og austan. Loðnu-
nefnd: Smáloðna út um alian sjó. Ofsnemmt að mála skrattann á vegginn.
Sádarvinnslan: Eitt þúsund tonn komin á land. Miðað við sama tíma ífyrra
að er smáloðna út um allan sjó
svo það er ekki fæðuskorti um
að kenna að ekki hefur fundist né
veiðst meira af kynþroska loðnu
en raun ber vitni. Þannig að ég tel
alltof snemmt að mála skrattann
á vegginn þótt veiðarnar gangi
ekki sem skyldi nú í augnablik-
inu, sagði Ástráður Ingvarsson
hjá Loðnunefnd.
Engin veiði var í fyrrinótt á
loðnumiðunum úti fyrir Norður-
landi sökum brælu. Þó tilkynntu
14 skip um samtals 7 þúsund
tonna afla frá miðnætti sem þau
höfðu náð að skrapa saman áður
en byrjaði að bræla fyrir alvöra á
miðunum. Ekki var útlit fyrir
neina veiði í gær sökum veðurs.
nemur tekjutapið um
Heildaraflinn frá vertíðarbyrjun
er því orðinn um 32 þúsund tonn
en var á sama tíma í fyrra vel yfir
160 þúsund tonn.
Þessi lélega loðnuveiði er farin
að fara fyrir brjóstið á sjó-
mönnum sem og öðram sem eiga
afkomu sína undir loðnunni. Til
að mynda hafa aðeins borist á
land til Sfldarvinnslunnar í Nes-
kaupstað um eitt þúsund tonn af
loðnu en á sama tíma í fyrra um
20 þúsund tonn og árið þar á
undan um 30 þúsund tonn. Að
sögn Finnboga Jónssonar fram-
kvæmdastjóri er tekjutapið
vegna þessa aflabrests metið á
um 200 miljónir króna og munar
um minna.
200 miljónum króna
Þá auka ekki bjartsýni manna
þær fréttir sem berast frá Haf-
rannsóknastofnun eftir fimm
vikna loðnuleit rannsóknaskips-
ins Árna Friðrikssonar fyrir vest-
an og norðan land. Að sögn
Sveins Sveinbjörnssonar leiðang-
ursstjóra fundu þeir á Áma lítið
af loðnu en að öðra leyti vildi
hann ekki tjá sig um niðurstöður
leiðangursins fyrr en búið væri að
ganga frá gögnum úr leiðangri
rannsóknaskipsins Bjama
Sæmundssonar. Skipin mættust
út af Vestfjörðum um miðjan
mánuðinn í loðnuleit og síðan
leitaði Bjarni að loðnu fyrir
austan land og var skipið væntan-
legt til lands í gær. Vegna hafíss
fyrir Norðvesturlandi var ekki
hægt að leita þar að loðnu og má
vera að hún haldi sig enn þar
nyrðra undir ísnum.
Loðnan er sem kunnugt er
uppsjávarfiskur sem þrífst best í
skilum milli hlýrra og kaldra haf-
strauma og ef breyting verður á
þessum umhverfisþáttum vegna
veðurfarsbreytinga getur það
valdið vissum mglingi hjá loðn-
unni miðað við það sem er í
venjulegu árferði. Hvort það er
skýringin á því að lítið hefur
fundist af kynþroska loðnu eða
hvort hún felur sig undir ís-
breiðunni er of snemmt að full-
yrða um að svo stöddu.
-grh