Þjóðviljinn - 30.11.1989, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
Jafnréttisráð
Sigur á karlveldinu
Sparisjóður Norðfjarðar greiðir Klöru ívarsdóttur 450þúsund króna
skaðabœtur. Elsa Þorkelsdóttir: Viðurkenning á lagabroti
Verðlag
r
Afengi
og tóbak
hækkar
- Við lítum á niðurstöðuna
bæði sem persónulegan sigur
Kiöru og sigur Jafnréttisráðs, en
þetta er í fyrsta skipti sem
greiddar eru skaðabætur í máli
sem komið er fyrir dómstóla.
Með dómsáttinni er Sparisjóður
Norðfjarðar I raun að viður-
kenna brot sitt gegn
jafnréttislögunum, sagði Elsa
Þorkelsdóttir, framkvæmdastjóri
Jafnréttisráðs en í gær var gerð
sátt í máli Klöru ívarsdóttur gegn
Sparisjóði Norðfjarðar. Spari-
sjóðurinn féllst á að greiða Klöru
450 þúsund krónur í skaðabætur.
Jafnréttisráð höfðaði málið
fyrir hönd Klöru sem kærði á sín-
um tíma til ráðsins ráðningu í
stöðu sparisjóðsstjóra við Spari-
sjóð Norðfjarðar. Auk Klöru
Vöruskipti
Hagstæð um
6,8 miljarða
Fyrstu níu mánuði þessa árs
var vöruskiptajöfnuður hagstæð-
ur um 6,8 mi|jarða króna en á
sama tíma í fyrra var hann hag-
stæður um 0,1 miljarð króna á
sama gengi.
í septembermánuði voru flutt-
ar út vörur fyrir tæpa 5,9 milj arða
króna en inn fyrir röska 5,5 milj-
arða. Vöruskiptajöfnuðurinn í
september var því hagstæður um
360 miljónir króna en í septemb-
er í fyrra var hann hagstæður um
870 miljónir króna á sama gengi.
-Sáf
Einar Jóhannesson
Reflex hjá
Sinfóníunni
Á sjöttu áskriftartónleikum Sin-
fóníuhljómsveitar íslands sem
verð á kvöld kl. 20.30 í Háskóla-
bíói verður frumflutt Reflex, nýtt
íslenskt tónverk eftir Kjartan Ol-
afsson. Þá mun Einar Jóhannes-
son klarinettuleikari leika einleik
í Klarinettukonsert eftir Carl Ni-
elsen. Einnig er á efnisskránni
Sinfónía nr. 4 eftir Beethoven.
Hljómsveitarstjóri er írinn
Colman Pearce.
Forskot
á 1. des.
Megas verður með tónleika í Stú-
dentakjallaranum við Hring-
braut í kvöld og eru tónleikar
þessir upphafið að 1. des. fagnaði
stúdenta í ár. Megas mun flytja
nýtt og gamalt efni í bland. Að-
gangur 500 krónur. Allir vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
sem verið hafði skrifstofustjóri í 8
ár og settur sparisjóðsstóri til
skamms tíma, sótti Sveinn Áma-
son um stöðuna, en hann hafði
ekki starfað hjá bankanum áður.
Sveinn fékk stöðuna og í fram-
haldi af því sagði Klara upp störf-
um hjá Sparisjóðnum og lagði
fram kæru til Jafnréttisráðs þar
sem hún taldi að ólöglega hefði
verið fram hjá sér gengið við
stöðuveitinguna.
- í þessu máli gátum við að-
stoðað konu við að ná lengra en
að fá viðurkenningu Jafnréttis-
ráðs á að jafnréttislögin hefðu
verið brotin en það hefur lengi
verið talað um það að úrskurðir
ráðsins hafi enga þýðingu. Niður-
staða þessa máls sýnir að það er
ekki rétt í öllum tilfellum og er
viðurkenning á því að starfi okk-
ar miði f rétta átt, sagði Elsa.
-*Þ
Bíóhöllin í Breiðholti fylltist í gær af kátum börnum af nokkrum dagvistarstofnunum borgarinnar. Þau voru
þarna mætt á forsýningu teiknimyndarinnar Óliver og félagar, sem byggð er á sögunni Óliver Twist eftir
Charles Dickens. Myndin verður frumsýnd um alla Evrópu um þessi jól. Einsog sjá má á myndinni skemmtu
bömin sér konunglega. Mynd Jim Smart.
Búist er við að mjólk
og mjólkurafurðir
hœkkium5%
Áfengi og tóbak hækkaði í
verði í gær um 6% að meðaltali.
Hækkunin er til komin vegna
gengisbreytinga, hækkana er-
lendis og einnig til að tryggja rík-
issjóði þær tekjur sem gert er ráð
fyrir að hann fái frá Afengis- og
tóbaksverslun ríkisins.
Eftir þessa verðlagsbreytingu
hækkar íslenskt brennivín úr
1.400 krónum í 1.500 krónur og
venjulegt viskí hækkar úr 2.090
krónum í 2.250. Kippa af Löwen-
brau hækkar úr 700 krónum í 730
krónur, algeng rauðvínstegund
úr 670 í 710 krónur flaskan og
hvítvín úr 560 í 590 krónur. Al-
geng sígarettutegund hækkar úr
188 krónum í litlar 199 og vindla-
pakki úr 290 í 320 krónur.
Þá er reiknað með að komi til,
framkvæmda á fullveldisdaginn
1. desember 5% hækkun á mjólk
og mjólkurvörum en ákvörðun
um það verður tekin á fundi fimm
manna nefndar sem haldinn
verður í dag. Verði af þessari
hækkun mun mjólkurlítrinn
hækka úr 70,20 krónum í 73,70
krónur. Ennfremur er búist við
að á sama tíma hækki kjöt og full-
unnar kjötvörur um 3%.
Hluti þessara hækkana stafa af
því að 1. október var frestað
hækkun á launalið bænda og
álagningu kaupmanna sem hækk-
ar um 0,5%, úr 13,3% í 14,8%.
-grh
Veggspjald kvikmyndaeftirlitsins
Kvikmyndaeftirlit ríkisins hefur nýverið gengist fyrir útgáfu vegg-
spjalds sem ætlast er til að hengt verði upp á sem flestum myndbanda-
leigum á landinu. Á spjaldinu er vakin athygli á merkimiðum eftirlits-
ins en þeir eiga lögum samkvæmt að vera á öllum myndbandsspólum
með leiknum kvikmyndum, sem dreift er til leigu eða sölu. Það aldurs-
takmark sem tilgreint er á spólunni á að sjálfsögðu alltaf að gilda við
afhendingu hennar. Barnaverndarsjóður Knuds Knudsen styrkti út-
gáfuna og Samtök íslenskra myndbandaleiga taka að sér dreifingu til
allra sinna félagsmanna. Á myndinni tekur Ásgeir Þormóðsson for-
maður Samtaka íslenskra myndbandaleiga við veggspjaldinu af Auði
Eydal forstöðumanni kvikmyndaeftirlitsins. Með þeim á myndinni eru
þau Adolf Petersen og Guðrún Birgisdóttir skoðunarmenn kvik-
mynda.
Utgáfutónleikar
í Sjallanum
Bjartmar Guðlaugsson verður
með útgáfutónleika í Sjallanum á
Akureyri í kvöld. Þar kynnir
hann fímmtu sólóplötu sína,
„Pað er puð að vera strákur“.
Bjartmar mun einnig árita plöt-
una í Hljómdeild KEA og Hag-
kaupum á Akureyri í dag. Á laug-
ardag verður hann svo með tón-
leika í Hótel Mælifelli á Sauðár-
króki en daginn áður, föstudag-
inn 1. desemeber, áritar hann
plötuna í Kaupfélagi Skagfirð-
inga.
Ráðstefna
um hátækni
„Hvaða aðgerða er þörf til þess
að fjárfesting í rannsóknarverk-
efnum undanfarinna ára skili
auknum útflutningstekjum á
næsta áratug?“ er yfirskrift ráð-
stefnu um hátækni og nýiðnað
sem Útflutningsráð Islands
stendur fyrir á morgun, föstudag-
inn 1. desember. Á ráðstefnunni
verða flutt fímm erindi um þetta
efni og fjögur rannsókna-
verkefni, sem eru á lokastigi,
verða kynnt. Ráðstefnan verður í
Borgartúni 6 frá kl. 13.15 til
17.00.
Jólasmiðja
fyrir börn
Götuleikhúsið verður með Jóla-
smiðju fyrir böm alla laugar-
daga í desember. Jólasmiðjan er í
tengslum við Hlaðvarpann, Vest-
urgötu 3. Þar fá börnin að föndra,
syngja, dansa, hitta jólasveininn
og aðrar skemmtilegar ævintýra-
verur á meðan foreldrar gera
jólainnkaupin í Hlaðvarpanum
og Gamla miðbænum í ró og
næði. Jólasmiðjan tekur vægt
gjald fyrir að hafa ofan af fyrir
börnunum en hún er opin frá kl.
12 til 16 nk. laugardag en 9., 16.
og 23. desember er hún opin frá
12-18.
Minnihluta-
málsamfélög
Birgitta Vehmas, forstöðumaður
Tungumálstofnunarinnar við Há-
skólann í Rovaniemi, flytur opin-
beran fyrirlestur í boði
Heimspekideildar Háskóla ís-
iands og Norræna hússins mánu-
daginn 4. desember kl. 17.15 í
Norræna húsinu. Fyrirlesturinn
nefnist „Minoritetssprak í nord-
kalottomradet“ og fjallar um
minnihlutamálsamfélög í nyrsta
hluta Finnlands, Svíþjóðar og
Noregs. Fyrirlesturinn er á
sænsku og er öllum heimill að-
gangur.
íslenskar
kvennarannsóknir
Hvað er markvert að gerast í
kvennarannsóknum í hinum
ýmsu greinsum? er spurning sem
leitað verður svara við á fundi
áhugahóps um íslenskar kvenn-
arannsóknir sem haldinn verður í
kvöld kl. 20.30 í Skólabæ, Suður-
götu 26. Guðný Guðbjömsdóttir
dósent í uppeldisfræði opnar um-
ræðuna með því að fjalla um þró-
un í uppeldisfræði.
Hljómsveit
Tónlistarskólans
Hljómsveit Tónlistarskólans í
Reykjavík heldur tónleika í Bú-
staðakirkju á morgun, föstudag-
inn 1. desember, kl. 18.00. Flutt-
ur verður forleikur að Rakaran-
um í Sevilla eftir Rossini og Sin-
fónía í g-moll eftir Mozart.
Stjómandi hljómsveitarinnar er
Ingvar Jónasson. Aðgangur er
ókeypis.
Stefna Finna
í refsirétti
Dr. Terttu Utriainen lagapró-
fessor við Lapplandsháskóla í
Rovaniemi og forstöðumaður
Norrænu lagastofnunar.
Lapplands-háskóla verður með
fyrirlestur í Norræna húsinu í dag
kl. 17.30. Fyrirlesturinn nefnist
Stefna Finna í refsirétti og verður
fluttur á ensku.
Geðhjálp
um svefnleysi
í kvöld kl. 20.30 mun Júlíus
Björnsson sálfræðingur halda
fyrirlestur um svefnleysi á vegum
Geðhjálpar. Fyrirlesturinn verð-
ur á Geðdeild Landspítalans og
er öllum opinn. Félagið Geðhjálp
mun gangast fyrir mánaðarlegum
fyrirlestmm í vetur.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 30. nóvember 1989